Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 38
38 ættfræði umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur
Jón L. Árnason
forstöðumaður einkabankaþjónustu arion banka
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð 1979,
viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Ís-
lands 1986, lauk prófum á endur-
skoðunarsviði 1993–94 og síðar próf-
um í verðbréfaviðskiptum.
Jón var starfsmaður Löggiltra
endurskoðenda hf. 1994–97, fjár-
málastjóri Oz 1997–2001, stofnaði þá
fyrirtækið Fjárstoð ehf. og starfrækti
það 2001–2005, hefur starfað hjá Ar-
ion banka frá 2005 og er þar nú for-
stöðumaður einkabankaþjónustu.
Jón hefur verið stórmeistari í skák
frá 1986, sinnti skákskrifum fyrir DV
á árunum 1978–98, var einn stofn-
enda og kennara Skákskóla Friðriks
Ólafssonar og síðar Skákskólans til
1989, fastráðinn kennari við Skák-
skóla Íslands frá stofnun hans 1991–
94, hefur staðið fyrir fjölda skáknám-
skeiða og fjölteflum víða um land,
sinnt skákskýringum í sjónvarpi, var
formaður Félags stórmeistara 1991,
sat í stjórn Taflfélagsins Hellis 1996–
97, í stjórn Rotaryklúbbsins Reykja-
vík-Breiðholt um skeið frá 1996 og
var forseti klúbbsins 2002–2003.
Jón er höfundur bókarinnar Skák-
stríð við Persaflóa, ásamt dr. Kristj-
áni Guðmundssyni, 1987. Hann
samdi skákkennslu og skákþætti á
myndböndum, með Helga Ólafs-
syni, 1991. Þá hefur hann skrifað
fjölda greina um skák í ýmis tímarit,
m.a. verið með fasta þætti í Vikunni
1988 og Skinnfaxa 1986–88, sem og í
tímaritið Skák.
Jón varð heimsmeistari sveina,
sautján ára og yngri, í Cagnes sur
Mer 1977, skákmeistari Íslands 1977,
1982 og 1988, skákmeistari Tafl-
félags Reykjavíkur 1976, skákmeist-
ari Reykjavíkur 1981, FIDE-meistari
1977, alþjóðlegur skákmeistari 1979
og stórmeistari 1986 eftir sigra á al-
þjóðlegum mótum á Húsavík 1985, í
Helsinki 1986 og Plovdiv 1986. Hann
varð einn efstur á alþjóðamótinu í
Ólafsvík 1987, og á 13. alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu 1988, fyrst-
ur Íslendingar í átján ár, efstur á 14.
Reykjavíkurskákmótinu 1990, ásamt
níu öðrum og hefur lent í efsta sæti
á ýmsum öðrum mótum, s.s. í New
York 1980 og Zug í Sviss 1983 sem og
á 2. borði Íslands í HM skáksveita 26
ára og yngri í Chicago 1983, er sveit-
in hreppti annað sætið, ásamt Vestur-
Þjóðverjum. Þá sigraði hann á 110 ára
afmælismóti Taflfélags Reykjavíkur í
ársbyrjun 2010.
Jón tefldi fyrir hönd Íslands á Ól-
ympíuskákmótum 1978, 1980, 1982,
1984, 1986, 1988, 1990, 1992, og 1994
og átti fast sæti í landsliði Íslands á
sama tíma.
Jón var kjörinn maður ársins af
lesendum Vísis 1977, og maður árs-
ins í DV 1986, með íslensku Ólympíu-
skáksveitinni. Þá er hann heiðursfé-
lagi í skákfélagi Cagnes sur Mer frá
1992.
Fjölskylda
Jón kvæntist 8.6. 1991 Þórunni Guð-
mundsdóttur, f. 24.8. 1964, kennara.
Hún er dóttir Guðmundar Þorsteins-
sonar, f. 18.8. 1937, bónda á Skálpa-
stöðum í Lundarreykjadal, og Helgu
Bjarnadóttur, f. 20.7. 1937, húsfreyju.
Dætur Jóns og Þórunnar eru Ingi-
björg, f. 26.6. 1988, nemi í stærðfræði
við Háskólann í Reykjavík; Helga
Birna, f. 27.2. 1993, nemi við Versl-
unarskóla Íslands; Hugrún Arna, f.
19.9. 1994, nemi við Verslunarskóla
Íslands.
Systkini Jóns eru Björn Einar
Árnason, f. 2.11. 1953, eðlisfræðing-
ur, tölvunarfræðingur og framhalds-
skólakennari í Reykjavík; Brynhildur
Árnadóttir, f. 19.5. 1955, lyfjafræðing-
ur í Reykjavík; Ásgeir Þór Árnason,
f. 20.9. 1957, hæstaréttarlögmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Jóns voru Árni Björns-
son, f. 6.8. 1927, d. 24.7. 1978, hdl. og
löggiltur endurskoðandi í Reykjavík,
og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 22.10. 1930,
3.5. 1988, ritari.
Ætt
Árni var sonur Björns Einars, end-
urskoðanda í Reykjavík Árnasonar,
prófasts í Görðum á Álftanesi, bróð-
ur Sigurðar brunamálastjóra, föður
Sigurjóns lögreglustjóra í Reykjavík,
föður Jóhanns, forstjóra HAFRÓ, en
systir Sigurjóns var Ingibjörg, móð-
ir Magnúsar Magnússonar, rithöf-
undar og sjónvarpsmanns hjá BBC,
föður Sallýjar og Önnu Snjólaugar
hjá BBC. Árni prófastur var sonur
Björns, b. á Tjörn í Vindhælishreppi,
bróður Árna í Höfnum, föður Arnórs,
pr. í Hvammi í Laxárdal, afa Gunn-
ars Gíslasonar, alþm. og pr. í Glaum-
bæ, og listmálaranna Sigurðar og
Hrólfs Sigurðssona. Björn var sonur
Sigurðar, b. í Höfnum á Skaga Árna-
sonar, og Sigurlaugar Jónasdóttur, b.
á Gili í Svartárdal Jónssonar, bróður
Jóns á Finnastöðum, afa Björns Jóns-
sonar á Veðramótum, afa Sigurðar
Bjarnasonar sendiherra og Sigur-
laugar, fyrrv. alþm., móður Bjargar
Thorarensen lagaprófessors. Bróðir
Jónasar var Meingrundar-Eyjólfur,
langafi Jóns, föður Eyjólfs Konráðs
alþm. Móðir Jónasar var Ingibjörg
Jónsdóttir, af Skeggstaðaætt. Móð-
ir Björns Einars var Líney, systir Jó-
hanns Sigurjónssonar skálds og
Snjólaugar, móður Sigurjóns lög-
reglustjóra, og Ingibjargar. Líney var
dóttir Sigurjóns, b. á Laxamýri Jó-
hannessonar, b. á Laxamýri, bróð-
ur Jóns í Sýrnesi, langafa Jónasar frá
Hriflu. Jóhannes var sonur Kristjáns,
b. á Halldórsstöðum í Reykjadal Jós-
efssonar, b. á Stóru-Laugum í Reykja-
dal Tómassonar, bróður Jónasar, afa
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Móðir Árna hdl. var Margrét Ás-
geirsdóttir, b. á Arngerðareyri við
Ísafjörð Guðmundssonar, af Arnar-
dalsættinni.
Ingibjörg var dóttir Jóns, fram-
kvæmdastjóra í Reykjavík, bróður
Pálma, forstjóra Skipaútgerðar rík-
isins, afa Más Gunnarssonar, starfs-
mannastjóra Flugleiða. Jón var sonur
Lofts, b. á Mýrum í Sléttuhlíð Jónsson-
ar, b. á Hóli í Svarfaðar dal Jónssonar,
b. á Hóli Jónssonar, bróður Arnbjarg-
ar, langömmu Einars Olgeirssonar
alþm. Móðir Lofts var Gunnhildur,
systir Jóns á Jarðbrú, afa Guðjóns B.
Ólafssonar, forstjóra SÍS. Gunnhild-
ur var dóttir Hallgríms, b. á Stóru-
Hámundarstöðum, bróður Þorláks,
langafa Björns Th. Björnssonar list-
fræðings. Hallgrímur var sonur Hall-
gríms, b. á Stóru-Hámundarstöðum
Þorlákssonar, dbrm. á Skriðu í Hörg-
árdal Hallgrímssonar. Móðir Jóns var
Ingibjörg, systir Pálma, pr. á Hofsósi,
afa Jónasar Kristjánssonar, fyrrv. rit-
stjóra DV. Ingibjörg var dóttir Þór-
odds, b. á Skeggjastöðum í Garði
Magnússonar. Móðir Ingibjargar var
Brynhildur, systir Hjalta, prófessors
í læknisfræði. Brynhildur var dóttir
Þórarins, alþm. á Hjaltabakka Jóns-
sonar, og Sigríðar Þorvaldsdóttur, pr.
á Hjaltabakka Ásgeirssonar, dbrm.
á Lambastöðum Finnbogasonar,
bróður Jakobs, pr. í Steinnesi, lang-
afa Vigdísar Finnbogadóttur. Móð-
ir Sigríðar var Hansína Þorgríms-
dóttir, pr. í Þingmúla Arnórssonar,
af Bólstaðarhlíðarætt, og Guðrúnar
Pétursdóttur, b. í Engey Guðmunds-
sonar, langafa Guðrúnar, móður
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra, föður Björns, fyrrv. ráðherra
og Valgerðar alþm., en bróðir Bjarna
forsætisráðherra var Sveinn fram-
kvæmdastjóri, afi Bjarna Benedikts-
sonar, alþm. og formanns Sjálfstæð-
isflokksins.
Guðrún Lára fæddist og ólst upp
í Ási við Sólvallagötu í Reykja-
vík. Hún lauk gagnfræðaprófi í
Kvennaskólanum í Reykjavík 1957,
húsmæðrakennaraprófi í Hús-
mæðrakennaraskóla Íslands 1962
og lauk starfsréttindanámi í bóka-
safns- og upplýsingafræði við HÍ
1999.
Guðrún vann hjá Útlendinga-
eftirlitinu í Reykjavík 1957–60, hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins sumrin
1962 og 1964, var skólastjóri Hús-
mæðraskólans á Hallormsstað
1962–63 og 1968–69, hótelstjóri
á Hallormsstað 1963 og á Eiðum
1964, kennari í Ólafsvík 1970–72 og
símstöðvarstjóri á Mælifelli 1972–
80, kennari í Steinsstaðaskóla í
Skagafirði 1972–83 og kenndi á
fullorðinsfræðslunámskeiðum þar.
Hún var húsvörður í Húsi Jóns
Sigurðssonar í Kaupmannahöfn
1983–89, kenndi við Laugabakka-
skóla og við Grunnskólann á Borð-
eyri og var einn vetur skólastjóri
Barnaskóla Staðarhrepps á árun-
um 1989–96 og loks skólasafns-
kennari við Hagaskóla frá 1999–
2006.
Guðrún var fararstjóri í orlofs-
ferðum og öðrum hópferðum um
áratugaskeið. Hún var formaður
Landssambands símstöðvarstjóra
á minni stöðvunum. Hún var í
framboði fyrir Samtök frjálslyndra
og vinstri manna 1974 og 1978, sat
allsherjarþing SÞ í New York 1977,
sat í hreppsnefnd Lýtingsstaða-
hrepps 1978–82, var formaður
Skógræktarfélags Skagfirðinga og
Sambands skagfirskra kvenna. Þá
situr hún í ritnefnd prestkvenna-
bókarinnar Öll þau klukknaköll,
frá 2009.
Fjölskylda
Guðrún giftist 8.1. 1965 Ágústi
Matthíasi Sigurðssyni, f. 15.3. 1938,
d. 22.8. 2010, sóknarpresti og rit-
höfundi. Foreldrar Ágústs voru
Sigurður Stefánsson af Bergsætt,
vígslubiskup á Möðruvöllum í
Hörgárdal, og k.h., María Ágústs-
dóttir, af Vigurætt, cand.phil.
Börn Guðrúnar og Ágústs eru
Lárus Sigurbjörn, f. 9.8. 1965, um-
ferðarverkfræðingur hjá ráðgjafa-
fyrirtæki í Kaupmannahöfn, bú-
settur á Sjálandi, kvæntur Signe
Gjerlufsen, verkfræðingi og kenn-
ara, og eru börn þeirra Stefán,
Júlía, María og Matthías; María, f.
20.2. 1968, héraðsprestur í Reykja-
víkurprófastsdæmi vestra, búsett í
Reykjavík, gift Bjarna Þór Bjarna-
syni, presti í Grafarvogskirkju, og
eru börn hennar Kolbeinn, Ragn-
hildur, Guðný Lára og Guðrún
María.
Systkini Guðrúnar eru Ein-
ar Þorsteinn, f. 17.6. 1942, arki-
tekt og hönnuður í Berlín, en kona
hans er Manuela Gudrun Ros-
withadóttir og á hann tvö börn af
fyrra hjónabandi; Sigrún Valgerð-
ur, f. 19.10. 1944, fyrrv. sérfræð-
ingur í fjármálaráðuneytinu, gift
Pétri Guðgeirssyni héraðsdóm-
ara og eiga þau þrjá syni; Þórdís, f.
16.11. 1948, kennari í Mosfellsbæ,
gift Hirti Ingólfssyni framkvæmda-
stjóra og eru börn þeirra þrjú; Ás-
laug Kirstín, f. 13.2. 1952, Davis
ráðgjafi/kennari í Mosfellsbæ, og
eru börn hennar þrjú.
Foreldrar Guðrúnar voru Ásgeir
Ó. Einarsson, f. 21.11. 1906, d. 4.4.
1998, dýralæknir, og k.h., Kirstín
Lára Sigurbjörnsdóttir í Ási, f. 28.3.
1913, d. 29.5.2005, húsmóðir og
kennari.
Ætt
Ásgeir var sonur Einars, verka-
manns í Borgarnesi Ólafsson-
ar, b. á Stóru-Fellsöxl Jónsson-
ar. Móðir Ásgeirs var Þórstína
Björg Gunnarsdóttir, b. í Fögru-
hlíð á Djúpavogi Þorsteinssonar.
Móðir Gunnars var Helga Árna-
dóttir, b. á Karlsstöðum Jónsson-
ar og Guðrúnar Ólafsdóttur, b. á
Hamri í Hamarsfirði Björnsson-
ar, b. á Hamri Antoníussonar, ætt-
föður Antoníusarættar Árnasonar.
Móðir Þórstínu var Þórunn Björg
Jakobsdóttir, b. á Eyjólfsstöðum í
Fossárdal Steingrímssonar og Ingi-
bjargar Ásmundsdóttur, b. á Vetur-
húsum Ingimundarsonar.
Lára var systir Lárusar, skjala-
varðar og frumkvöðuls að Árbæjar-
safni. Lára var dóttir Sigurbjörns
Ástvaldar, stærðfræðikennara við
Vélstjóraskóla Íslands og prests á
Elliheimilinu Grund Gíslasonar, b.
á Neðraási í Hjaltadal Sigurðsson-
ar, b. á Miðgrund Gíslasonar, b. á
Kálfsstöðum Ásgrímssonar, ætt-
föður Ásgeirsbrekkuættar Jóns-
sonar. Móðir Gísla á Neðraási var
Sigríður Þorláksdóttir, systir Þor-
bjargar, ömmu Stefáns Stefáns-
sonar skólameistara, föður Val-
týs ritstjóra og Huldu skólastjóra,
móður Guðrúnar Jónsdóttur arki-
tekts. Móðir Sigurbjörns var Krist-
ín Björnsdóttir, b. á Syðri-Brekkum
Ingimundarsonar. Móðir Björns
var Sesselja Gísladóttir, b. á Mikla-
hóli Hannessonar, pr. á Staðar-
bakka Þorákssonar, sýslumanns
á Ísafirði Guðbrandssonar, sýslu-
manns á Lækjamóti Arngrímsson-
ar lærða á Melstað Jónssonar.
Móðir Láru var Guðrún, rit-
höfundur og alþm. Lárusdóttir,
prófasts og alþm. á Valþjófsstað,
síðar fríkirkjuprests í Reykjavík
Halldórssonar, prófasts og alþm. á
Hofi í Vopnafirði Jónssonar, bróður
Guðrúnar, ömmu Sveins Björns-
sonar forseta. Móðir Guðrúnar var
Kirstín Pétursdóttir, orgelleikara,
söngstjóra og tónskálds í Reykjavík
Guðjohnsen og Guðrúnar Laur-
itzdóttur Knudsen, kaupmanns í
Reykjavík og ættföður Knudsen-
ættar.
Guðrún Lára
Ásgeirsdóttir
skólasafnskennari
Sindri fæddist á Sauð-
árkróki og ólst þar upp.
Hann var í Grunnskóla
Sauðárkróks og Fjöl-
brautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki og
lauk þaðan prófum í húsa-
smíði.
Sindri vann í Stein-
ullarverksmiðjunni á
Sauðárkróki í tvö sumur með námi
á unglingsárunum en starfaði síð-
an hjá Trésmiðjunni Borg á Sauðár-
króki á árunum 1996–2002. Þá flutti
hann á Akranes þar sem
hann hefur búið síðan.
Sindri vann sjálfstætt
við trésmíðar á Akranesi frá
2002 en hefur starfað hjá
Norðuráli frá 2008.
Sindri hefur æft og
keppt í motocross.
Fjölskylda
Kona Sindra er Elísabet Ösp Páls-
dóttir, f. 28.8. 1981, hjúkrunarfræð-
ingur við Sjúkrahús Akraness.
Dóttir Sindra er Rakel Katrín
Sindradóttir, f. 22.8. 2005.
Sonur Elísabetar Aspar er Emil
Þór Guðmundsson, f. 25.4. 2001.
Systir Sindra er Sara Björk Sigur-
gísladóttir, f. 16.10. 1987, læknanemi
í framhaldsnámi í Danmörku.
Foreldrar Sindra eru Ólöf
Jósefsdóttir, f. 2.2. 1958, leik-
skólakennari og umboðsmaður
Morgun blaðsins á Sauðárkróki,
og Sigurgísli Ellert Kolbeinsson,
f. 15.11. 1957, trésmiður hjá Tré-
smiðjunni Borg á Sauðárkróki.
Sindri Freyr Sigurgíslason
trésmiður á akranesi
70 ára á sunnudag 50 ára á laugardag
40 ára á föstudag