Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 24
...fyrir 40 árum
V Í S I R . Föstudagur 10. desember 2010.24
Október 1970
Stjórnarskráin okkar er
orðin úrelt um margt. Lýð-
veldisstjórnarskráin frá 1944
tók ekki til annars en þess
sem beinlínis varðarði stofn-
un lýðveldisins. Í rauninni
búum við enn við „frelsis-
skrána“, sem Danakonung-
ur færði okkur árið 1874.
Tilraunir til að endurskoða
stjórnarskrána strönduðu
fyrir tuttugu árum á deilum
um kjördæmaskipulag.
Dr. Gunnar Thoroddsen
leggur til að undinn verði
bráður bugur að endurskoðun
stjórnarskrárinnar í samræmi
við nýja tíma, og verði þeirri
endurskoðun lokið árið 1974.
Það er afmælisár, 1100 ár frá
upphafi Íslandsbyggðar og
100 ár frá setningu stjórnar-
skrárinnar 1874. Dr. Gunnar
ræddi um ýmis þau atriði sem
sérstaklega ber að gefa gaum
við þessa endurskoðun.
Dr. Gunnar nefndi nokk-
ur atriði sem þyrfti að taka
til endurskoðunar en hér má
nefna að hann vildi breyta
kjördæmaskipan, auka þyrfti
þjóðaratkvæði í ýmsum mál-
um og hugsanlegt væri að láta
ráðherraembættin „rótera.“
Eins nefndi hann að nauð-
synlegt væri að endurskoða
mannréttindakaflann.
Ekkert varð úr endurnýjun
stjórnarskrárinnar árið 1974
og fyrst 30 árum seinna hef-
ur hafist undirbúningur að
breytingu með kosningu á
Stjórnlagaþing.
Stjórnarskráin orðin úrelt
Forsætis-
ráDherra
er látinn
Dr. Gunnar Thoroddsen leggur til að end
urskoðun hennar verði lokið fyrir 1974
Júlí 1970
Mikill harmur er kveð-
inn að íslenzku þjóð-
inni. Bjarni Benedikts-
son forsætisráðherra
fórst með konu sinni,
frú Sigríði Björns-
dóttur, og dóttursyni
þeirra, Benedikt Vil-
mundarsyni, í eldsvoða
í Konungsbústaðnum
á Þingvöllum á öðrum
tímanum í nótt. Þessi
válegi atburður er reið-
arslag fyrir alla þjóðina
er hefur hér orðið fyr-
ir tjóni, sem ekki verð-
ur bætt. Bjarni Bene-
diktsson ætlaði aðeins
að dvelja í bústaðn-
um í nótt, en í dag ætl-
aði hann á héraðsmót á
Snæfellsnesi.
Bjarni hafði átt glæsilegan
feril sem stjórnmálamaður fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn. Hann
var einnig fræðimaður og hafði
skrifað fjölda rita, einkum um
stjórnmál. Kunnust var bók
hans „Land og lýðveldi“ sem
hefur að geyma safn ritgerða
eftir hann.
Barnabarn Bjarna og Sigríð-
ar sem einnig fórst var 4 ára að
aldri. Hann var sonur Valgerð-
ar Bjarnadóttur og Vilmundar
Gylfasonar.
VÍSIR ÁRIÐ 1970 VÍSIR ÁRIÐ 1970 VÍSIR ÁRIÐ 1970 VÍSIR ÁRIÐ 1970 VÍSIR ÁRIÐ 1970
Bjarni Benendiktsson fórst í eldsvoða ásamt konu sinni og dóttur
syni. Mikið áfall fyrir íslenzku þjóðina.
Bjarni Benediktsson
September 1970
Frú Auður Auðuns alþingismað-
ur verður fjórði ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins í væntanlegu ráðuneyti Jó-
hanns Hafstein. Var þetta ákveðið á
fundi í þingflokki sjálfstæðismanna um
hádegisbilið í dag, þegar Vísir var að
fara í prentun. Auður er fyrsta íslenzka
konan, sem gegnir ráðherraembætti, og
var líka fyrsta konan sem varð borgar-
stjóri í Reykjavík á sínum tíma.
Auður Jónsdóttir Auðuns fæddist 18.
febrúar 1911 á Ísafirði. Hún lauk lög-
fræðiprófi við Háskóla Íslands og varð
fyrst íslenskra kvenna til að ljúka laga-
prófi. Hún gegndi störfum bæjar- og
borgarfulltrúa í Reykjavík, hún var for-
seti borgarstjórnar og var kjörin borg-
arstjóri árið 1959. Auk þess sat hún á
þingi til margra ára.
Auður Auðuns
verður ráðherra
— Þingflokkur sjálfstæðismanna valdi um hádegið
fyrstu konuna, sem verður ráðherra á Íslandi
Litasjónvarp hér árið 1973?
Desember 1970
Ráðgert mun nú vera að hefja út-
sendingar sjónvarps hér í litum eftir 3
ár eða 1973 í tilraunaskyni, samkvæmt
þeim upplýsingum sem Vísir hefur afl-
að sér. Þessi frétt hefur ekki fengizt
staðfest hjá forráðamönnum Ríkisút-
varpsins, sem trúlega vilja ekki vekja
upp vonir, sem gætu ef til vill að engu
orðið.
Dreifikerfi sjónvarpsins og annað
það, sem varanlega er gert mun vera
þannig úr garði gert, að tiltölulega auð-
velt sé að breyta því fyrir litasjónvarp.
Sjónvarpsviðtækjum landsmanna er
hins vegar ekki unnt að breyta, þó að
þau geti tekið á móti útsendingum í
lit og sýnt þær í svart-hvítu. Litasjón-
varpstæki myndi kosta núna um 80–
120 þúsund krónur hingað komið, ef
einhver hefur áhuga á að fá sér slíkt.
Útsendingar í lit hófust ekki fyrr
en 24. október árið 1975 og voru tak-
markaðar við efni af erlendum mynd-
segulböndum. Tveimur árum seinna
hófust útsendingar Sjónvarpsins í lit
frá upptökusal og á erlendum litkvik-
myndum.