Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Qupperneq 30
Hamlet og Don Carlos Á morgun og á laug-
ardag verða tvær beinar útsendingar í Sambíóunum í Kringlunni
frá breska þjóðleikhúsinu, National Theatre í London og Metrop-
olitan-óperunni í New York. Sú fyrri, sem er frá National Theatre,
er frá nýrri uppfærslu leikhússins á Hamlet Shakespeares með
Rory Kinnear í titilhlutverkinu. Á laugardaginn verður svo ópera
Verdis, Don Carlo, flutt af sviði Metropolitan-óperunnar. Þetta er
einnig ný uppfærsla undir stjórn Nicholas Hytners, með Roberto
Alagna í aðalhlutverki. Útsendingin er endurflutt á miðvikudag.
JólalJós í BústaðakirkJu Tónleikarnir Jóla-
ljós fara fram í Bústaðakirkju miðvikudaginn 15. desember klukk-
an 20.00. Það er Kór kirkjunnar sem stendur fyrir tónleikunum en
hann mun fá til liðs við sig góða gesti. Þar má nefna Örn Árnason
og Ívar Helgason sem gaf út plötuna Jólaljós. Strengjasveit,
blásarar og hrynsveit leikur undir stjórn Jónasar Þóris kantors sem
einnig stjórnar Kór Bústaðakirkju. Á efnisskránni eru þekkt jólalög
í nýjum útsetningum, ný lög og eldri. Miðaverð er aðeins 2.500 kr.
og fer miðasala fram í Bústaðakirkju og hjá kórfélögum.
Dúndrandi hamingja
Á plötunni Allt er eitthvað fylgir tölv-
unarfræðingurinn Jónas Sigurðsson
eftir plötunni Þar sem malbikið svífur
mun ég dansa, sem kom út fyrir þrem-
ur árum. Hann nýtur liðsinnis hljóm-
sveitarinnar Ritvélar framtíðarinn-
ar sem leikur undir með honum. Þar
eru á ferð dúndrandi hljóðfæraleikar-
ar sem eiga frábæra spretti á plötunni.
Heyra má blásturshljóðfæri, ýmiss
konar hljómborð, gítar og rafmagns-
dót, sem undirritaður kann ekki frek-
ari skil á. Það er alveg ljóst frá fyrstu
hlustun að hér er á ferð metnaðarfull
útgáfa. Fyrir utan hljóðfæraleikarana
þá er Jónas sjálfur alveg hrikalega flott-
ur, þar sem hann blandar saman hefð-
bundnum rokksöngi, tali og einhverju
sem gæti mögulega flokkast sem rapp.
Útkoman er tónlist sem hentar þeim
mjög vel sem hafa gaman af því að
dilla sér eða vilja tromma á stýrið í
bílnum. Tónlistin er taktföst, töff og
mjög skemmtilega útsett. Í hverju ein-
asta lagi skín í gegn metnaðurinn til
að búa til vandaða tónlist. Hann þarf
örugglega að berja frá sér auglýsinga-
stofur og kvikmyndagerðarmenn sem
standa í röðum til að fá að nota tón-
listina hans. Hún er einhvern veginn
þannig.
Platan inniheldur meðal annars
smellinn Hamingjan er hér, sem byrj-
aði að hljóma í útvarpinu í haust og
vakti mikla lukku. Fleiri álíka hressandi
og fjörug lög eru á plötunni. Þar má
meðal annars nefna titillag plötunn-
ar, Allt er eitthvað, Hleypið mér út úr
þessu partýi og Skuldaólin. Uppskrift-
in er víðast hvar sú sama. Áhersla er
lögð á búa til svala tónlist með föstum
takti og frábærum hljóðfæraleik. Ofan
á það allt bætist hinn fjölhæfi Jónas
sem fer á kostum. Frábær plata!
Valgeir Örn Ragnarsson
30 fókus 10. desember 2010 föstudagur
líkmenn
í mosfellsDal
Laugardaginn 11. desember mun
rithöfundurinn Bjarki Bjarnason
lesa úr nýrri skáldsögu sinni, Lík-
menn glatkistunnar, í Mosfellsdal.
Nánar tiltekið í galleríi Þóru Sigur-
þórsdóttur leirlistakonu á Hvirfli.
Líkmenn glatkistunnar er fyrsta
skáldsagan sem Bjarki sendir frá
sér en hann hefur áður sent frá sér
sagnfræðirit, barnabækur og ljóða-
bók svo eitthvað sé nefnt. Bjarki
var meðal annars aðalhöfundur
bókanna Ísland í aldanna rás sem
fjalla um sögu Íslands á 18. og 19.
öld. Líkmenn glatkistunnar fjallar
um sjómennina Ingólf Arnarson og
Leif fóstbróður hans, raunir þeirra
í fríríkinu Friðriksíu í Danmörku á
áttunda áratugnum. Í Friðriksíu hafa
íbúarnir sett sér lífsreglur sem ekki
hafa tíðkast áður. Þar drífur margt
óvenjulegt á daga fóstbræðranna
en allt tekur enda og þegar íslenska
þjóðin fagnar 1.100 ára búsetu sinni
heldur Ingólfur Arnarson heim til
Íslands þar sem hinn nýi landnáms-
maður mætir örlögum sínum. Upp-
lesturinn hefst klukkan 15.00.
Heimildamynd
Catfish
Ágætlega upp-
byggð heimilda-
mynd um þrjá vini
sem komast að því
að ekki er allt sem
sýnist á internet-
inu. Myndin er þó
óþarflega löng.
leikverk
Gili-
trutt
Leikbrúðan er elsti
leikarinn, segja
sumir. Vel má vera
að svo sé, þó að
uppruni þessarar
undarlegu listar sé að vísu myrkri og
móðu hulinn. Brúðuleiklistin er eflaust
sá þáttur leiklistarinnar sem okkur hættir
hvað mest til að vanmeta, gleyma jafnvel
alveg.
mælir með...
mælir ekki með...
kvikmynd
harry Potter
and the deadly hallows: Part i
Tiltölulega
lítið virðist gerast
á þessum 150
mínútum, þannig
að maður hallast
að því að þessi
skipting hafi
verið ákvörðun
markaðsfólksins, svo hægt væri að
græða vel á tveimur kvikmyndum í
stað einnar.
kvikmynd
the Joneses
Mynd sem vantar
allt hjarta í og
erfitt er að tengjast
sögupersónunum.
Kaldhæðni
að mynd um
fjölskyldu sem
er gangandi
auglýsing virki eins og auglýsing.
Allt er
eitthvAð
Flytjandi: Jónas Sigurðsson.
Útgefandi: Cod Music.
m
yn
d
d
av
íð
þó
r
Maður er að taka á ýmsum málefnum í bókunum,“ segir barnabókahöfundur-
inn Huginn Þór Grétarsson. Hug-
inn er einn allra afkastamesti rit-
höfundur landsins en hann er með
fjórar bækur í jólabókaflóðinu þetta
árið. Kanínan sem fékk aldrei nóg,
Ormur gutti og litli indjáninn, Lag-
arfljótsormurinn og Skýjahnoðr-
ar eru allar komnar í verslanir. „Ég
er að taka þarna á samfélagsmálum
og barnamálum. Svo eru auðvitað
sumar bækurnar almenns eðlis sem
taka á uppeldinu, eins og einu sinni
skrifaði ég um skilnaðarbörn,“ segir
Huginn sem er með meistaragráðu
í viðskiptafræði en hann hvarf frá lífi
sínu sem verðbréfamiðlari til þess að
ferðast og á endanum gerast barna-
bókahöfundur.
líka fyrir fullorðna
Kanínan sem fékk aldrei nóg er ein
fjögurra bóka sem Huginn gefur út
fyrir þessi jól. Hún er er lystilega
myndskreytt af Brad D. Nault og fjall-
ar um kanínu sem safnar og safn-
ar mat og, eins og titillinn gefur til
kynna, fær hún aldrei nóg. Hún nær
þó aldrei að njóta auðæfanna heldur
drepst hún með tóman magann en
græðgin fer á endanum með hana.
„Börnin sjá þetta auðvitað á sinn
hátt. Þau sjá þessa græðgi í kanín-
unni. Að hún lætur sér ekkert duga
og finnur engin takmörk. Foreldr-
ar sem lesa bókina munu þó aftur á
móti sjá þarna ljóslifandi útrásarvík-
inga á meðan þeir lesa bókina fyrir
börnin. Ég gerði svipaða bók í fyrra
þar sem fullorðnir hlæja að svörtum
Barnabókahöfundurinn Huginn þór Grétarsson er með fjórar
bækur í jólabókaflóðinu þetta árið. Bækur Hugins eru jafnan
með undirliggjandi boðskap sem bæði börn og fullorðnir geta
lært af. Þessi jólin skrifar hann meðal annars um kanínu sem
er útrásarvíkingur. Huginn starfaði sjálfur í kringum peninga
og verðbréf lengi en sagði skilið við það líf til að ferðast og
gerast rithöfundur.
Úr viðskiptalífinu
í barnabækurnar
Bækur fyrir börn og fullorðna Huginn Þór Grétarsson er með
fjórar bækur á markaðnum þessi jólin sem allir geta lært eitthvað af.