Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 48
48 Úttekt Föstudagur10. desember 2010 3 Dót fyrir sérfræðinga Margir eiga sér áhugamál sem þeir hafa sinnt lengi og eru þar af leiðandi nánast orðnir sérfræðingar. Sumir vita allt um fótbolta, aðrir um hannyrðir, sumir þekkja klassíska tónlist út og inn á meðan enn aðrir eru sérfróðir um plöntur. Þú tekur mikla áhættu ef þú ætlar að gefa einhverjum gjöf sem tengist brennandi áhugamáli viðkomandi. Líkurnar á því að þeir eigi hlutinn, hafi séð hann, hafi lesið bókina eða viti að þeir þurfa hana ekki, eru yfirgnæfandi. Ekki falla í þá gryfju nema sérfræðingurinn hafi beinlínis sagt að hann langi í hlutinn eða þú hafir unnið heimavinnunina þína þeim mun betur. 4 Gjafir með skilaboðum Þegar þér finnst frábær hugmynd að kaupa stóran stuttermabol handa óléttri systur þinni, sem á stendur stórum stöfum „Kaka í ofninum“ skaltu hugsa þinn gang. Það er álíka sorglegt og að kaupa handa frænda þínum, sem er félagsfælinn, bol sem á stendur „I am socially awkward“. Ekki gefa svona gjafir nema þiggjandinn sé barn eða unglingur – nei annars, aldrei gefa svona gjafir. 5 Risastórt listaverk „Ég er stoltur eigandi risamálverksins „Hissa hundur“ eftir algjörlega óþekktan málara.“ Ekki gefa einhverjum málverk nema hann sé einskær áhugamaður um myndlist eða hafi gefið sterklega til kynna að hann langi virkilega í eitthvað ákveðið verk. Betri hugmynd er að gefa gjafabréf í lista- galleríi, þó gjafabréf geti verið svolítið leiðinleg gjöf. Ef þú ert verulega áfjáð/ur í að gefa ættingja þínum málverk skaltu kaupa eitthvað sígilt. 1 „Ég meinti vel“-gjöfin Í þennan flokk falla gjafir sem eiga að stuðla að breytt- um lífsstíl þeirra sem gjöfina fá. Ef þú sérð fyrir þér að þurfa að útskýra meininguna að baki gjöfinni þegar hún er opnuð, ertu klárlega að velja vitlaust. Dæmi um svona gjafir væru gjafabréf í líkamsrækt handa feitu frænkunni, kennslumyndband um velgengni handa atvinnulausum vini eða mánaðarskammtur af níkótín- plástrum handa stórreykingamanninum honum pabba þínum. Nálastungumeðferð handa drykkjumanninum í fjölskyldunni er heldur ekki líkleg til að slá í gegn á aðfangadag. Líklegra er að þú særir vin þinn eða ættingja. 2 Einnota drasl Á hverju ári eru á boðstólum kynstrin öll af stórsniðugu en gagnslausu einnota drasli, framleiddu í Kína eða Taívan. Sniðuga dótið er yfirleitt ekki sniðugt nema í tíu mínútur og er oftar en ekki komið ofan í kassa eða jafnvel í ruslið innan fárra vikna. Dæmi um þetta er syngjandi fiskur, jólasveinn sem prumpar eða hvers kyns spiladósir sem klára rafhlöð- urnar á mettíma. Sjaldnast eru keyptar nýjar og gjöfin endist ekkert. 7 Mynd af sjálfum þér Átt þú eina Fríðu frænku sem sendir þér innrammaða mynd af sér í hinum ýmsu aðstæðum, um hver einustu jól? Við getum flest verið sammála um að það er mikilvægt að elska sjálfan sig. En að senda ættingja þínum eða vini inn- rammaða mynd af sjálfum þér er skrýtin jólagjöf, hvernig sem á það er litið. Á tímum Facebook og Myspace er líka skrýtið að senda alltaf jólakort með mynd af fjölskyldunni, bara svo ættingjarnir viti nákvæmlega hvernig þið lítið út frá ári til árs. 8 Gjöfin frá því í fyrra Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú gefur einhverjum myndastyttuna eða bókina sem þú fékkst frá afa og ömmu í fyrra. Það er afar ólíklegt að aðrir hafi áhuga á að lesa bókina ef þú hefur ekki tekið hana úr plastinu. Það getur líka verið hræðilega stressandi að gefa gjöfina einhverjum sem er þér nákominn ef þú manst ekki alveg frá hverjum þú fékkst hana. 9 M&M úr fríhöfninni Fórstu til útlanda fyrir jólin en áttaðir þig á því í leiðinni í gegnum tollinn, á Þorláks- messu, að þú gleymdir að kaupa gjöf handa uppáhalds- frænku þinni. Þó pakkinn líti ekkert illa út undir trénu getur það orðið vandræðalegra en heil þáttaröð af Klovn þegar frænka þín kemst að því að uppáhaldsfrændi hennar gaf henni tvo risastóra sekki af M&M í jólagjöf. Ekki gefa bensínstöðvagjafir og ekki fara í kerfi í fríhöfninni. Umfram allt; ekki gera þig að fífli. 10 Fyrir þig sjálfan Ein sjálfhverfasta hugmynd sem fólk fær er að gefa hluti sem það langar í sjálft – í þeirri von að þiggj- andinn vilji ekki gjöfina og bjóðist til að gefa þér hana eða leyfi þér að nota hana. Dæmi um þetta er tölvuleikur handa einhverjum sem spilar sjaldan tölvuleiki eða DVD-mynd sem þú veist að viðkomandi hefur séð. Nánast undantekningarlaust færðu illkvittnina í bakið og viðkomandi finnur hvað býr að baki. Ef þig langar í einhvern hlut þá skaltu safna þér fyrir honum sjálfur og kaupa hann þegar þú getur – já eða láta einhvern nákominn þér „óvart“ vita að þig langi mikið í leikinn eða myndina. 11 Gjafir fyrir seinni tíma Aldrei gefa börnum jólagjafir sem þau geta ekki notað strax. Börn eru óþol- inmóð og kröfuhörð. Fæst hafa þau skilning á því að uppáhaldsfrændinn gefi þeim línuskauta eða tennisspaða í jólagjöf – gjafir sem ætti að gefa á sumrin. Passið ykkur líka á því að kaupa rafhlöður með leikföngum á borð við rafmagnsbíla. Það er ekkert leiðinlegra en að vera 7 ára og geta ekki notað rafmagnsbílinn fyrr en verslanirnar eru opnaðar á öðrum eða þriðja í jólum. 12 Tveir fyrir einn Sástu tveir fyrir einn tilboð á uppáhaldssnyrtivörunum þínum? Tveir maskarar saman í pakka á verði eins? Þú hefur ekki efni á að kaupa þá en átt eftir að finna jólagjöf handa vinkonu þinni. Þú telur þér trú um að vinkonan verði svo ánægð með gjöfina að hún gefi þér hinn. Hún gerir það ekki, vittu til. Þú bíður fram yfir áramót en gefst svo upp á og kaupir þér annað sett. Eyðir tvöfalt meiri peningum fyrir vikið. 13 Gjafir sem valda skemmdum Ekki láta þér detta í hug að gefa 12 ára ofvirkum frænda þínum ofurvatns- byssu í jólagjöf, nema þú sért áfjáður í að láta reyna á heimilistryggingu foreldra hans. Vatnsbyssur og önnur stríðsleikföng á að gefa á sumrin. Og nei, krakkinn bíður ekki fram á sumar með að prófa gripinn. Haltu þig frekar við tölvuleiki eða Hollywood-myndir – ef þú vilt vera vinsæll hjá foreldrunum líka. 14 Hlutir úr setti Það er ekki góð hugmynd að gefa fólki, sem er búið að búa saman í tugi ára, leirtau í jólagjöf. Tvö glös úr rándýru setti eða stakur sparidiskur, sem passar ekki við neitt annað, eru gjafir sem líklega enda í kassa inni í geymslu, nema svo ólíklega vilji til að viðkomandi falli í stafi og byrji að safna sér í heilt sett. Líkurnar eru hverfandi. 15 Stríðnisgjafir Það jafnast ekkert á við að horfa á fólk taka upp gjafir sem innihalda eitthvað pínlegt. Dæmi um það eru: sjúkrasett handa óheppna íþróttamanninum í fjölskyldunni, léttir réttir – mat- reiðslubók handa feitu frænkunni eða göngustafur handa mömmu þinni sem varð 67 ára á árinu. Þú getur bókað að þau taka sig öll saman á næsta ári og gefa þér flugmiða til Ástralíu, aðra leið. Á jólunum eigum við að vera góð hvert við annað. Ekki gera lítið úr þeim sem standa þér næst. 16 Keypt í flýti Gjafir sem þú kaupir í tímaþröng eða á síðustu stundu bera þess gjarnan merki að þú hafir ekki vitað hvað þú áttir að kaupa. Það er betra að sleppa gjöfinni eða boða hana síðar en að kaupa gjöf í skyndi sem engin hugsun er að baki og passar engan veginn þeim sem fær gjöfina. Dæmi um slíkar gjafir eru eyrnalokkar handa einhverjum sem ekki hefur göt í eyrunum eða konfektkassi handa einhverjum sem er sykursjúkur. 17 Gjöf sem ekki má skipta Það er vond hugmynd að gefa gjöf sem ekki má skipta. Allir sem gefa jólagjafir hljóta að vonast eftir því að sá sem þiggur gjöfina kunni að meta hana. Staðreyndin er hins vegar sú, eins og flestir vita, að stundum fær maður gjafir sem maður hefur litla eða enga ánægju af. Þá getur verið gott að geta skipt gjöfinni. Ekki kaupa gjöf í sérhæfðri verslun sem jafnvel er í landshluta utan leiðar. Ekki kaupa gjöf í öðru landi sem þú ert ekki viss um að þiggjandinn kunni að meta. Ekki nema þér sé sama um viðbrögðin. 18 Notað dót sem þú átt sjálfur Færðu stundum pakka á síðustu stundu frá einhverjum sem þú áttir alls ekki von á að gæfi þér gjöf? Hefurðu ekki tíma til að skreppa í Kringluna? Sú leið að gefa óopnaða bók eða lítið notaða flík, sem þú sjálfur hefur keypt þér eða fengið að gjöf, er afleit og dæmd til að mistakast. Hvað ætlarðu að gera þegar vinur þinn hringir og spyr hvar hann geti skipt gjöfinni? Ef þú lendir í þessari aðstöðu skaltu frekar hringja í vin þinn og þakka honum fyrir gjöfina eða bjóða honum á kaffihús. 19 Í hugsunarleysi Ert þú einn af þeim sem ferð eina ferð í Smáralind í nóvember og kaupir heilan stafla af jólagjöfum. Á Þorláksmessu reynirðu svo að átta þig á því hver átti að fá hvað. Það er ávísun á vandræði. Hin leiðin er auðvitað sú rétta; að hugsa fyrst um manneskjuna sem á að fá jólagjöfina og reyna svo að finna gjöf sem hæfir henni. Dæmi um hugsunarlausar gjafir er að gefa einhverjum ostakörfu sem er með mjólkuróþol eða gefa þeim sem enn býr hjá mömmu og pabba gjafabréf í húsgagnaverslun. 20 Fatnaður Það er hræðileg hugmynd að kaupa föt handa fólki sem þú býrð ekki einu sinni með. Það eru allar líkur á að þú munir kaupa of stór föt, vitlausan lit eða bæði. Að kaupa tískufatnað handa einhverjum öðrum en sjálfum þér er líklega vandasamasta verk sem þú getur tekið þér fyrir hendur. Ekki leggja í slíka vegferð nema vinna heimavinnuna af kostgæfni. 20 verstu jólagjafirnar 6 Undarleg undirföt Jafn freistandi og það getur verið að kaupa sætar hreindýranær- buxur handa kærastanum þínum eða nærföt með vafasömum skilaboðum þá skaltu láta það eiga sig. Hann fer örugglega ekki í þeim í ræktina og heldur ekki í fótbolta með félögunum. Og strákar, ekki kaupa bleik pínulítil „barbídúkkunáttföt“ handa kærustunni nema hún hafi sérstaklega óskað eftir því.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.