Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 78

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 78
78 útlit umsjón: IngIbjörg Dögg kjartansDóttIr ingibjorg@dv.is 10. desember 2010 föstudagur Vertu óhrædd við að blanda ólíkum litum saman. Hér eru andstæðir lit- ir notaðir til að draga það besta fram í hverjum þeirra. Þegar þú berð kinnalitinn á er gott að brosa og sjá hvar eplakinnarnar myndast. Þar á kinnaliturinn að koma. Eins getur þú dregið ímyndaða línu frá miðju auga og niður á kinn og varast að bera kinnalitinn inn fyrir þá línu. n Gosh Intense maskarinn er vatnsheldur. nælonbursti aðskilur augnhárin og gefur þeim fyllingu án þess að formúlan klumpist. náttúrulegt vax nærir og styrkir augnhárin. maskarinn er ilmefnalaus. n make up store microshadow augnskugginn er þéttur og gefur sterkan lit sem á að endast út daginn. Hægt er að blanda litnum við mixing Liquid svo hann verði vatnsheldur og eins til þess að hægt sé að nota litinn sem eyeliner. Þessir augnskuggar eru svo þéttir í sér að það er einnig hægt að nota þá sem kinnalit, ef þeir eru í réttum litum, það er að segja. Þessi litur heitir Vertigo. n make up store microshadow, Winterland. n Gosh Effect Powder er laus augnskuggi með skínandi áferð. Hann er hægt að nota þurran eða blautan, sem augblýant eða augnskugga. Liturinn er nr. 20, lime. n make up store High Tech Lighter er kremkenndur og hægt er að nota á margvíslega vegu. Hægt er að nota hann til að lýsa upp ákveðin svæði og eins er hægt að nota hann á varir með varalit eða varagljáa. Þá getur þú einnig notað hann sem primer á augnsvæðið, t.d. fyrir eyedust-augnskuggana. Eins er hægt að blanda honum saman við farða til að fá fallegri áferð og meiri sanseringu. Liturinn heitir magma. n Gosh Velvet Touch varaliturinn gefur mikinn lit og endist vel á vörunum. Hann inniheldur sPF 6 og veitir vörn. Liturinn er nr. 145. Gott ráð! Best er að bera farða á varirnar svo varaliturinn haldist lengur á. síðan skaltu móta varirnar með varablýant, svo þær verði dýpri og fallegri. Svört lína yfir augunum og rauður varalitur er klassísk förðun sem þreytist seint. Til þess að gera hana sætari er flott að hafa bleikan tón í rauða litnum og bera bleikan kinnalit á kinnbeinin. Notaðu ljósan og náttúrulegan lit á augnlokin og haltu augabrúnunum í sínum náttúru- lega lit, en mundu samt að móta þær. Ef þú notar hvítan augnblýant í augnhvarmana virka augun stærri. n moschino Toujours Glamour ilmurinn er ný útgáfa af moschino Glamour sem kom á markað árið 2008. Hann er þó aðeins léttari en fyrri útgáfan með hressandi blæ af rauðum sólberjum. n maybelline The Falsies Volume Express mascara á að gefa augnhárunum fyllingu og lengja þau líkt og um fölsk augnhár væri að ræða. Burstinn er skeiðarlaga og á að hjálpa til við að lyfta og forma augnhárin. n Gosh Eye Liner Pen þornar fljótt og á ekki að smitast þótt hann sé ekki vatnsheldur. Hann hentar jafn vel fyrir breiða línu og fína. Gott ráð! Best er að gera línuna yfir augnlokið áður en þið dragið línuna út fyrir augnlokin. Eins er sniðugt að setja punkta báðum megin þar sem þið viljið að hann endi svo útkoman verði örugglega eins báðum megin. n make up store spark- ling Diamond er fjölnota krem sem gefur demants- áferð. Hægt er að nota það á varir, augu og kinnbein til þess að setja punktinn yfir i-ið og fá fallega áferð. n Gosh natural Touch Foundation er léttur farði sem gefur jafna áferð. Hann nærir húðina og veitir raka. Inniheldur sPF 8. n Gosh soft´n shine Lip Balm, 31 Passion Pink. Notaðu farða svo augnskugginn haldist betur á og smitist síður. Eins er víða hægt að fá góðan grunn á augnlokin. Berðu dökk- an augnskugga neðst á ytri helming augnloksins og dreifðu vel úr honum. Augnskugginn ætti að vera dekkstur neðst upp við augnlokin og sífellt ljósari eftir því sem ofar dregur. Farðu ekki yfir augnbeinið. Settu þá annan lit eða ljósari yfir og leyfðu honum að ná aðeins ofar. Mundu svo að nota dekksta litinn einnig undir ytri augnkrókinn. Dreifðu síðan úr hon- um í átt að augnkrókunum. Mótaðu augabrúnirnar, settu á þig augnblýant og mask ara. n make up store Eyedust er laus púðuraugnskuggi sem gefur tindrandi áferð og hægt er að nota á fjölmarga vegu. Fyrir náttúrulegt útlit er best að nota þurran bursta. Til þess að gera litinn sterkari og fá metaláferð er hægt að blanda smá augnskugga saman með vel rökum bursta og bera hann á augnlokin. Til þess að augnskugginn endist lengur á er gott að nota augngrunn eða primer eins og það er kallað. Þessi litur kallast Paragon. n Gosh Velvet Touch augnblýantur sem er vatnsheldur, endist lengi og kámast ekki. Hann inniheldur E-vítamín og jojobaolíu sem verndar húðina. Liturinn er nr. 16, Classic Grey. Gott ráð! Ef þú ert að gera smokey-förðun eða þarft að dreifa úr litnum getur þú auðveldlega gert það með bursta ef þú gerir það um leið og hann hefur verið borinn á. Ef þú bíður með það verður það erfiðara því liturinn á ekki að kámast. n Gosh soft´n shine varaliturinn er dúnmjúkur og rakagefandi. Hann nærir og ver varirnar. Liturinn er nánast gagnsær en gefur þó fallega áferð og ilmar af vanillu. Litur- inn er nr. 33, scarlet. Gott ráð! Til að varirnar virki stærri er hægt að setja ljósan sanseraðan augnskugga í miðju efri og neðri varanna. Passaðu bara að blanda honum svo vel við varalitinn svo skilin verði ekki greinileg. n make up store Gloss Lips ver, nærir og mýkir varirnar auk þess að gefa raka. Hægt er að nota varagljáann stakan eða með varalit. Hér er hann borinn yfir ljósan varalit með bleikum tón, en það væri einnig flott að leyfa aðeins meiri lit að skína í gegn þótt varirnar haldist enn nokkuð ljósar. Hvaða týpa ert þú?Mikið er gaman að geta leyft sér að nota alls konar liti og leiðir þegar kemur að hátíðarförðun. Njóttu þess að vera til og leika þér og leyfðu þér að prófa nýja hluti þegar kemur að förðun og útliti. Kisulóran Ljónynjan Silfurrefurinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.