Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 84

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 84
84 sport umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 10. desember 2010 föstudagur ALLTAF TEKINN ÚR UMFERÐ Handknattleiksmaðurinn Heiðmar Felix- son tók í sumar við þýska fjórðu deildar liðinu TS Großburgwedel en hann er spil- andi þjálfari liðsins. Hann hefur nú verið nánast óslitið atvinnumaður erlendis í ell- efu ár, bæði í Þýskalandi og á Spáni. Heið- mari líkar mjög vel í Þýskalandi. Giftist þýskri konu í vor og segir ólíklegt að hann flytji til Íslands í náinni framtíð. Handknattleiksmaðurinn Heið- mar Felixson ákvað í sumar að ger- ast spilandi þjálfari þýska liðsins TS Großburgwedel sem spilar í fjórðu deild þar í landi. Á síðasta tímabili lék hann með TusS N-Lübbecke í þýsku Bundesligunni en hafði þar áður leikið fimm tímabil með liði Hannover Burgdorf (Burgdorf) sem Aron Kristjánsson þjálfar nú. Í sam- tali við DV segir Heiðmar að það hafi ekki verið erfið ákvörðun að taka að sér lið í fjórðu deildinni. Hann hafi þó fyrst verið í viðræðum við Burg- dorf en ekki hafi gengið að semja við þá. „Það var heimþráin sem réð því að ég snéri til baka,“ segir Heiðmar en Großburgwedel er smábær ná- lægt Hannover líkt og Burgdorf. alltaf tekinn úr umferð „Ég er alltaf tekinn úr umferð,“ seg- ir Heiðmar aðspurður hvort hann sé ekki besti leikmaðurinn í fjórðu deildinni. Það eigi bæði við um hann og litháísku skyttuna Robertas Pauz- uolis. „Það gerist í hverjum einasta leik. Líklega er það þó bara vegna þess að við erum báðir þekktir leik- menn hérna í Hannover,“ segir hann. Þeir spiluðu saman hjá Burgdorf í nokkur ár og var það eitt fyrsta verk Heiðmars hjá TS Großburgwedel að fá Pauzuolis til liðs við félagið. Marg- ir Íslendingar kannast sjálfsagt við Pauzuolis en hann lék með Fram, Haukum og Selfossi. Bjóst aldrei við að verða þjálfari „Það er töluvert erfiðara en ég bjóst við að vera bæði þjálfari og leikmað- ur,“ segir hann. Þetta er þó ekki fyrsta þjálfarastarf Heiðmars. Þegar hann var hjá Burgdorf þjálfaði hann bæði yngri flokka og neðra lið meistara- flokks. Hjá TS Großburgwedel þjálfar hann líka yngri flokka liðsins. „Fyr- ir fjórum árum bjóst ég alls ekki við því að verða nokkurn tímann þjálfari. Mér gekk hins vegar vel með þjálfun- ina hjá Burgdorf. Þetta hentar mér vel og ég náði vel til leikmanna,“ segir hann. Stefnan hjá honum er að koma TS Großburgwedel úr fjórðu deild og upp í aðra deild innan þriggja ára. Ábyrgð íslenskra leikmanna Honum líkar vel að þjálfa börn en segir það þó vissulega oft krefjandi. „Þetta er mjög gefandi en stundum geta börnin þó verið svo erfið að ég fer jafnvel að blóta þeim. Það get ég hins vegar gert á íslensku sem er gott,“ segir Heiðmar hlæjandi. Tölu- verður munur sé þó á þjálfun yngri flokka í Þýskalandi og á Íslandi. Í Þýskalandi fái sem dæmi efnilegir leikmenn í yngri flokkum ekki að æfa með meistaraflokki í sama mæli og á Íslandi. „Ég spilaði minn fyrsta meistara- flokksleik 15 ára gamall í handbolta og 16 ára í fótbolta,“ segir Heiðmar. Að hans mati er ábyrgðin sem efni- legir ungir leikmenn þurfa að axla heima mjög jákvæð. Það sé ein helsta ástæða þess að Íslendingar eigi jafn mikið af góðum handknattleiks- mönnumm og raun ber vitni. „Gott dæmi er Aron Pálmarsson sem kom til Þýskalands 18 ára gamall. Þá var hann bara tilbúinn eftir að hafa æft og spilað með meistaraflokki FH í þrjú ár,“ segir Heiðmar. Bæði þórsari og Ka-maður Heiðmar er 33 ára og ólst upp á Akureyri og æfði alltaf bæði hand- bolta og knattspyrnu. Lék hann með Þór í handbolta til 17 ára aldurs eða þar til Alfreð Gíslason fékk hann til liðs við KA árið 1995. Hann hélt þó áfram að spila knattspyrnu með Þór og spilaði fyrsta meistaraflokksleik- inn gegn KR 16 ára gamall í Frosta- skjóli. „Ég er harður KA-maður í handbolta en harður Þórsari í knatt- spyrnu. Líklega eru ekki margir svo- leiðis,“ segir Heiðmar í gamansöm- um tón. Foreldrar hans fluttu hins vegar til Dalvíkur árið 1997 en þang- að fer Heiðmar oft um sumur og jól. Hefur hann starfað sem lögreglu- maður á Dalvík og þá tekið fram knattpyrnu skóna og spilað með Þór. Hann lék handbolta með KA 1995 til 1997, Stjörnunni 1997 til 1999, Wuppertal 1999 til 2001 og tók svo eitt tímabil með KA 2001. Eftir það spilaði hann tvö ár með Bida- soa á Spáni en hélt aftur til Þýska- lands árið 2004. Gekk þá til liðs við Burgdorf sem spilaði á þeim tíma í þriðju deild. Mönnum á Íslandi hafi þótt það umdeild ákvörðun. Að mati Heiðmars búa handboltamenn í Þýskalandi þó við meira öryggi á mörgum sviðum en á Spáni og hafi það ráðið úrslitum. Aðal lega trygg- inga- og peningalega séð. Vinsæll íþróttamaður í Hann- over Átti Heiðmar fimm tímabil með Burgdorf sem hann segir að hafi ver- ið góður tími. „Þegar ég kom til Burg- dorf þroskaðist ég mest sem leik- maður þótt ég væri að spila í annarri og þriðju deild,“ segir hann. Heiðmar er einn vinsælasti leikmaðurinn sem spilað hefur með liðinu. Þótti hon- um það því nokkuð sárt að hafa ekki getað gengið aftur til liðs við Burg- dorf eftir að hafa gert munnlegt sam- komulag um það. Sem dæmi um vinsældir Heiðmars hjá Burgdorf má nefna að árið 2005 varð hann í þriðja sæti í valinu á íþróttamanni Hannover. Eini handboltamaðurinn sem hef- ur fengið þau verðlaun. Í fyrsta sæti varð Robert Encke, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Þýskalands í knattspyrnu sem svipti sig lífi árið 2009. Enke er þekktasti íþróttamað- ur Hannover. Annar varð varnarmað- urinn Per Mertesacker, sem leikur nú með Werder Bremen og þýska lands- liðinu. Fékk svín í brúðkaupsgjöf Heiðmar er giftur þýskri konu sem heitir Sandra Peiter og starfar sem kennari. Giftu þau sig í Þýskalandi í vor og síðan aftur að Árskógsströnd í sumar. Heiðmar og Sandra búa á bóndabæ í Burgdorf sem er rétt utan við Hannover. Fengu þau með- al annars tvö svín í brúðkaupsgjöf í Burgdorf í vor. Heiðmar á síðan fjóra stráka sem allir eru búsettir á Akur- eyri en þeir heita Ívan Geir, tvíbur- arnir Aron Ingi og Óðinn Freyr og sá yngsti heitir Róbert Orri. Segir hann að strákarnir séu duglegir að heim- sækja hann til Þýskalands. stefnir á hestarækt „Ég reikna ekki með að spila aftur á Íslandi,“ segir Heiðmar aðspurður hvort slíkt sé í myndinni. Það sé frek- ar markmiðið hjá sér að fá íslenska leikmenn til liðs við TS Großburg- wedel. Honum líði mjög vel í Þýska- landi. Hann og Sandra ætli sér að koma upp hestarækt í Burgdorf en Heiðmar er mikill hestaáhugamaður. „Draumurinn er að byggja upp hest- arækt með íslenskum hestum. Síðan þarf ég að passa upp á svínin mín. Þau voru pinkulítill þegar við feng- um þau í brúðkaupsgjöf. Núna eru þau búinn að stækka og eru farinn að eyðileggja allt,“ segir Heiðmar. Íslensk tónlist sefar heimþrána Hann segist ótrúlega oft sakna Ís- lands. „Ég finn það ótrúlega oft þegar ég hlusta á íslenska tónlist. Þá fer ég að sakna Íslands. Núna hlusta ég sem dæmi bara á íslenska jólatónlist,“ seg- ir hann. Oft sé erfitt að geta ekki verið viðstaddur ættarmót eða afmæli hjá ættingjum. Þá hlusti hann oft á Álfta- gerðisbræður eða Óskar Pétursson og þannig nái hann að takast á við heim- þrána. Oftast reynir hann að fara til Íslands um jólin og síðan reynir hann að vera tvo mánuði á Dalvík og Ak- ureyri yfir sumarið. „Það fyrsta sem ég geri er að fá mér SS-pylsu og malt þegar ég kem til Íslands,“ segir Heið- mar að lokum. annas sigmundsson blaðamaður skrifar: as@dv.is Íslensk tónlist gegn heimþránni Handknattleikmaðurinn Heiðmar Felixson á jólamarkaði fyrir framan aðallestarstöðina í Hannover. Hann segist hlusta á óskar Pétursson og Álftagerðisbræður til að losna við heimþrá. mynd as reynslan Heiðmar, sem er hér í leik með Lübbecke, á að baki 55 landsleiki en í þeim hefur hann skorað 67 mörk. mynd oliVer Krato
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.