Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Blaðsíða 21
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Mánudagur 3. janúar 2011
Sigurjóna Björgvinsdóttir
Kennari við Breiðholtsskóla
Einar Arnalds
Hæstaréttardómari
f. 18.11. 1948, d. 12.12. 2010
Sigurjóna fæddist á Fyrirbarði í
Fljótum í Skagafirði og ólst upp
í foreldrahúsum í Fljótum fram
að fermingaraldri. Hún fór þá til
Reykjavíkur, stundaði nám við
Vogaskólann og var hjá systur
sinni, Sigurbjörgu, og manni henn-
ar, á vetrum, en starfaði við Sam-
vinnufélag Fljótamanna í Haga-
nesvík á sumrin.
Sigurjóna tók landspróf frá
Vogaskóla vorið 1967, stundaði
nám við Kennaraskóla Íslands og
lauk þaðan kennaraprófi 1971.
Sigurjóna var móttökuritari á
slysadeild Borgarspítalans 1971–
72 og hefur verið kennari við Breið-
holtsskóla í Reykjavík frá ársbyrjun
1973.
Sigurjóna hefur verið félagi í
Strengjasveit Listaakademíunnar
við Arnarbakka sl. 12 ár.
Fjölskylda
Sigurjóna giftist 6.1. 1972 Gunnari
Guðmundssyni, f. 3.5. 1949, bíl-
stjóra. Hann er sonur Guðmund-
ar Vigfússonar og Önnu Guðjóns-
dóttur, bænda í Eystri-Skógum
undir Eyjafjöllum.
Börn Sigurjónu og Gunnars eru
Anna Sigríður, f. 8.6. 1975, verkefn-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu, bú-
sett í Reykjavík, en maður hennar
er Ragnar Stefán Ragnarsson og
eru dætur þeirra Hekla, f. 2005, og
Salka, f. 2008; Erla Hjördís, f. 7.10.
1976, blaðamaður við Bænda-
blaðið, búsett í Reykjavík en mað-
ur hennar er Páll Dagbjartur Sig-
urðsson og eru börn þeirra Glódís
Björt, f. 2005, Dagbjört Dís, f. 2008
og óskírður drengur, f. 2010; Lilja
Katrín, f. 9.9. 1982, blaðamaður
við Séð og heyrt og leikkona, bú-
sett í Reykjavík en sambýlismaður
hennar er Hjalti Rúnar Sigurðsson
og er dóttir þeirra Amelía Björt, f.
2010.
Systkini Sigurjónu: Sigurbjörg, f.
1.11. 1941, forstöðumaður félags-
starfs aldraðra í Kópavogi; Erlend-
ur Jón, f. 4.8. 1944, d. 30.8. 2002, var
bílstjóri í Reykjavík; Freysteinn, f.
12.11. 1953, múrarameistari, bú-
settur í Reykjavík; Gylfi, f. 7.9.
1956, bankastarfsmaður, búsettur
í Hafnarfirði; Guðjón, f. 20.3. 1960,
bóndi í Skagafirði; Þröstur Már,
f. 21.7. 1962, forstjóri, búsettur í
Hafnarfirði; Guðrún, f. 1.11. 1963,
bankastarfsmaður, búsett í Reykja-
vík; andvana drengur, f. 2.12. 1948.
Foreldrar Sigurjónu voru Björg-
vin Márusson, f. 5.11. 1916, d.
13.11. 1993, bóndi að Fyrirbarði
í Fljótum, og k.h., Sigurlína Jóns-
dóttir, f. 31.1. 1922, d. 1.2. 1994,
húsfreyja.
Ætt
Björgvin var bróðir Friðriks Guð-
laugs, verkstjóra á Siglufirði, föð-
ur Margrétar Láru, móður Friðriks
Jóns Arngrímssonar, framkvæmda-
stjóra LÍÚ. Björgvin var sonur
Márusar, b. á Fyrirbarði í Fljót-
um Símonarsonar, b. á Fyrirbarði
Márussonar, b. í Langhúsum Guð-
mundssonar, b. í Langhúsum Jóns-
sonar. Móðir Márusar á Fyrirbarði
var Ingunn Helga Magnúsdóttir á
Fyrirbarði Jónssonar.
Móðir Björgvins var Sigurbjörg
Jónasdóttir, b. á Ökrum Jónasson-
ar, b. á Helgustöðum, bróður Jóns
í Grundarkoti, afa Hermanns Jón-
assonar forsætisráðherra, föður
Steingríms, forsætisráðherra, föð-
ur Guðmundar alþm. Jónas var
sonur Jónasar, b. í Brekkukoti í
Skagafirði og á Flögu í Hörgárdal
Björnssonar, b. á Hillum við Eyja-
fjörð Jónssonar. Móðir Sigurbjarg-
ar var Sólveig Ásmundsdóttir, b.
í Neskoti Eiríkssonar, Ásmunds-
sonar, Jónssonar, b. í Málmey Ás-
mundssonar. Móðir Sólveigar var
Guðrún Hafliðadóttir, b. á Kraka-
völlum Þórðarsonar.
Sigurlína var dóttir Jóns Sig-
mundssonar og Sigríðar Guð-
munsdóttur. Þau bjuggu allan sinn
búskap í Fljótum, síðast á Illuga-
stöðum í Austur-Fljótum.
Sigurjóna fagnar þessum tíma-
mótum að heimili sínu, Yrsufelli
38, laugardaginn 8.1. nk. eftir kl.
17.00 .
Einar fæddist í Reykjavík og voru for-
eldrar hans Ari (Jónsson) Arnalds
frá Hjöllum í Þorskafirði, sem lengi
var sýslumaður á Seyðisfirði, og k.h.,
Matthildur Einarsdóttir skálds Hjör-
leifssonar Kvaran. Þau slitu samvist-
ir. Bræður Einars voru Sigurður, út-
gefandi og heildsali, og Þorsteinn
framkvæmdastjóri. Eiginkona Ein-
ars var Laufey, dóttir Guðmundar
bankagjaldkera Guðmundssonar, pr.
í Reykholti Helgasonar, og eignuð-
ust þau tvær dætur, Kristínu og Matt-
hildi.
Einar varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1930 og lauk
laganámi við Háskóla Íslands 1935.
Hann tók eitt hæsta lögfræðipróf
sem á þeim tíma hafði verið tekið við
skólann og fékk „stóra styrkinn“ sem
gerði honum kleift að stunda fram-
haldsnám í Englandi, Þýskalandi og
Danmörku. Þegar Einar kom heim
varð hann fulltrúi lögreglustjórans
í Reykjavík. Þessi tími var mikil lífs-
reynsla fyrir hann. Breskt herlið gekk
á land í Reykjavík 10. maí 1940. Svo
vildi til að Einar var á þeim tíma stað-
gengill lögreglustjóra, sem þá var
fjarverandi, og bar honum að mót-
mæla hernáminu fyrir hönd íslensku
þjóðarinnar. Nokkrir góðglaðir Ís-
lendingar, sem Einar hafði haft af-
skipti af, fylgdust með og hrópuðu:
„Einar, taktu þá fasta!“
Einar var dómari að ævistarfi.
Hann var borgardómari og yfirborg-
ardómari í Reykjavík í tuttugu ár og
síðan tólf ár dómari við Hæstarétt Ís-
lands, þar af tvö ár forseti réttarins.
Hann var fyrsti Íslendingurinn sem
kjörinn var af ráðgjafarþingi Evrópu-
ráðsins í Mannréttindadómstól Evr-
ópu og gegndi hann því starfi í átta
ár. Í öllum störfum sínum ávann
hann sér virðingu og traust og var
farsæll dómari. Hann greindi skjótt
kjarna hvers máls og átti auðvelt með
að greina aðalatriði frá aukaatriðum.
Einari var lagið að gæta þess að góð-
ur andi samvinnu og velvildar ríkti
á þeim stað sem hann stýrði. Hann
var réttlátur maður og sanngjarn að
upplagi, jafnaðarmaður í eðli sínu.
60 ára á þriðjudag
Merkir Íslendingar
Björgvin fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Hann lauk fyrsta stigs
prófi frá Vélskóla Vestmannaeyja,
stundaði síðan nám við Iðnskól-
ann þar, lærði ketil- og plötusmíði í
Vélsmiðjunni Magna og lauk síðan
fyrsta stigs prófi frá Stýrimannaskól-
anum í Vestmannaeyjum.
Björgvin var til sjós á sumrin á
bátum frá Vestmannaeyjum frá fjór-
tán ára aldri, fyrst á Andvara VE, síð-
an á Öðlingi VE og á Stakki VE. Hann
stundaði síðan eigin útgerð á Bylgju
VE ásamt Matthíasi Óskarssyni.
Björgvin flutti til Reykjavík-
ur 1981. Þar starfaði hann fyrst við
verslunarrekstur en starfrækir nú,
ásamt konu sinni, skipasölufyrirtæk-
ið BP skip ehf.
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins er Guðrún Jac-
obsen, f. 8.2. 1951, danskennari. Hún
er dóttir Hauks Jacobsen, sem nú er
látinn, kaupmanns í Reykjavík, og
Inge-Liss Jacobsen húsmóður.
Sonur Björgvins og Guðrúnar er
Björgvin Gunnar, f. 9.12. 1987, nemi
í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.
Dætur Björgvins eru Þórey Guð-
rún, f. 25.8. 1969, búsett í Svíþjóð;
Ólöf Sigrún, f. 9.7. 1971, búsett í
Reykjavík; Aldís, f. 3.2. 1974, búsett í
Kópavogi.
Synir Guðrúnar eru Haukur Jens
Jacobsen, f. 3.3. 1969, tannsmiður,
búsettur í Danmörku; Helgi Örn Jac-
obsen, f. 13.4. 1973, skipasali, búsett-
ur í Reykjavík.
Systkini Björgvins eru Þyrí, f.
16.11. 1949, búsett í Vestmannaeyj-
um; Gunnhildur, f. 14.1. 1953, búsett
í Reykjavík; Guðrún, f. 25.8. 1956,
búsett á Akureyri; Ólafur Þór, f. 17.7.
1961, búsettur í Húsavík; Anne Mer-
ie, f. 12.2. 1967, búsett í Englandi.
Hálfsystir Björvins: Erla Ólafs-
dóttir, f. 6.10. 1945, búsett í Dan-
mörku.
Foreldrar Björgvins: Ólafur Páls-
son, f. 3.11. 1927, fyrrv. fiskmatsmað-
ur, búsettur í Vestmannaeyjum, og
Þórey Guðrún Björgvinsdóttir, f. 9.4.
1931, húsmóðir.
Björgvin er að heiman á afmælis-
daginn.
Björgvin Ólafsson
Skipasali
60 ára á þriðjudag
Til hamingju!Til hamingju!
Afmæli 4. janúarAfmæli 3. janúar
30 ára
Artemisia Constance Bertus Blesastöðum
1a, Selfossi
Katarzyna Krystyna Krolikowska Grundar-
tanga 32, Mosfellsbæ
Lech Mazurek Hafnargötu 26, Reykjanesbæ
Ewa Hawrylewicz Æsufelli 6, Reykjavík
Gyða Steina Þorsteinsdóttir Hjallabraut 2,
Þorlákshöfn
Svandís E. Margrét Leósdóttir Svölutjörn 45,
Reykjanesbæ
Guðrún Sigríður Grétarsdóttir Brávöllum
5, Húsavík
Eva María Þórarinsdóttir Lange Vatnsstíg
5, Reykjavík
Björn Arnór Sveinbjörnsson Móholti 4, Ísafirði
Ásta Halldóra Ólafsdóttir Barðastöðum 7,
Reykjavík
Jóhanna Jakobsdóttir Holtsbúð 55, Garðabæ
Sigurveig Gunnlaugsdóttir Heiðarbraut 65,
Akranesi
40 ára
Hilmidin Latifi Álfholti 2c, Hafnarfirði
Grazvydas Lepikas Flatahrauni 7, Hafnarfirði
Guðmundur Haukur Gunnarsson Skipholti
42, Reykjavík
Díanna Þyri Einarsdóttir Illugagötu 43, Vest-
mannaeyjum
Friðrik Hrannar Ólafsson Melbraut 23, Garði
Hrafnhildur Ósk Jóhannsdóttir Vanabyggð
10c, Akureyri
Gyða Pálsdóttir Heimahaga 4, Selfossi
Vilborg Guðjohnsen Fögrukinn 7, Hafnarfirði
50 ára
Regina Brigitte Þorsteinsson Fögrusíðu 11a,
Akureyri
Rósa Álfheiður Bragadóttir Stapasíðu 21a,
Akureyri
Símon Sigurður Sigurpálsson Þingási 3,
Reykjavík
Hannes Jónsson Austurbergi 8, Reykjavík
Friðrik Jón Aðalsteinsson Lindargötu 27,
Reykjavík
Snorri Markússon Lækjasmára 8, Kópavogi
Karl Konráð Andersen Melhæð 4, Garðabæ
Jóna Sigþórsdóttir Skíðbakka 2, Hvolsvelli
Sigurður Haukur Jónsson Ásbúð 45, Garðabæ
Gerd Hammerström Tröllaborgum 4, Reykjavík
Guðrún Sigvaldadóttir Jörundarholti 18a,
Akranesi
60 ára
Stefán Þorkell Evertsson Álfhólsvegi 153,
Kópavogi
Sigurbjörg Magnúsdóttir Vesturbergi 26,
Reykjavík
Halldór Sævar Ástvaldsson Tryggvagötu 6,
Reykjavík
Hermann Sævar Ástvaldsson Kóngsbakka
5, Reykjavík
Sveinn Gunnarsson Eyrarbraut 12, Stokkseyri
Jóna Guðbjörg Samsonardóttir Grænahjalla
1, Kópavogi
Erna Björk Friðriksdóttir Melasíðu 8L, Akureyri
Gerður Kristjánsdóttir Glaumbæ, Húsavík
Kristján Jóhannsson Frostaskjóli 65, Reykjavík
70 ára
Árni Alexandersson Bláskógum, Selfossi
Björn Pálmason Álfhólsvegi 131, Kópavogi
Ásta Salvör Þórðardóttir Þverbrekku 4,
Kópavogi
Sigurbjörn Finnbogason Flúðaseli 77,
Reykjavík
75 ára
Sven Olof Larsson Asparfelli 6, Reykjavík
Heiðar Guðmundsson Hjallavegi 17, Ísafirði
Kristrún Eymundsdóttir Efstaleiti 12,
Reykjavík
Hulda Helgadóttir Logafold 20, Reykjavík
80 ára
Alexander Jónsson Smáragrund 6, Sauðárkróki
Birna Sesselja Frímannsdóttir Hamraborg
14, Kópavogi
85 ára
Ásta Friðriksdóttir Dalsgerði 7h, Akureyri
Þórhallur Jónsson Háaleitisbraut 145, Reykjavík
Áslaug Kristjánsdóttir Torfnesi Hlíf 1, Ísafirði
Eggert Ólafsson Fálkakletti 3, Borgarnesi
Aðalheiður Ólafsdóttir Blesastöðum 3,
Selfossi
90 ára
Borgþór Þórhallsson Miklubraut 86, Reykjavík
30 ára
Andrea Falkvard Hansen Hrísateigi 13,
Reykjavík
Andrius Kelpsa Lynghálsi 10, Reykjavík
Arseni Melnikov Langholtsvegi 113, Reykjavík
Davíð Matthíasson Akurhvarfi 3, Kópavogi
Anna Kristín Sigursteinsdóttir Hringbraut
119, Reykjavík
Valdimar Ragnar Gunnarsson Löngumýri
6a, Selfossi
Linda Björk Þórðardóttir Fellsmúla 13,
Reykjavík
Kristinn Guðjónsson Gulaþingi 20, Kópavogi
Eiður Fannar Erlendsson Víkurási 3, Reykjavík
Bryndís Gunnlaugsdóttir Mánagerði 2,
Grindavík
Elín Drífa Ólafsdóttir Hraunöldu 3, Hellu
40 ára
Jóhanna Berghild Hergeirsdóttir Arnar-
hrauni 21, Hafnarfirði
Skúli Eyjólfur Bjarnason Dynsölum 2,
Kópavogi
Sigurður Helgi Hansson Akurholti 21, Mos-
fellsbæ
Þorsteinn Örn Finnbogason Straumsölum
9, Kópavogi
Víkingur Jónsson Hálsvegi 10, Þórshöfn
Theódór Sveinjónsson Mosarima 16, Reykjavík
Sævar Hreiðarsson Bakkastöðum 167,
Reykjavík
Hilmar Þór Georgsson Fjallalind 74, Kópavogi
Halldóra Ágústa Halldórsdóttir Selvaði 1,
Reykjavík
Böðvar Sveinsson Skógargerði 2, Reykjavík
Sigríður Snorradóttir Mosgerði 12, Reykjavík
Marta Kristinsdóttir Kambaseli 54, Reykjavík
Sandra Sveinsdóttir Nielsen Furugerði 2,
Reykjavík
Tryggvi Tryggvason Gnitakór 2, Kópavogi
50 ára
Gísli Guðberg Gíslason Leynisbrún 11, Grindavík
Ólafur Þorsteinsson Ósi 1, Akranesi
María Traustadóttir Brimhólabraut 35, Vest-
mannaeyjum
Guðrún Halldóra Jónsdóttir Kleppsvegi 54,
Reykjavík
Grímur Þorkell Jónasson Laugavegi 105,
Reykjavík
Sigurjón M. Alexandersson Baugakór 5,
Kópavogi
60 ára
Ásdís Teresita Einarsson Dvergabakka 8,
Reykjavík
Sigurbjörg Guðný Björnsdóttir Grenilundi
6, Akureyri
Ásta Margrét Sigfúsdóttir Brautarholti,
Borgarfirði (eystri)
Ingigerður B. Guðbjörnsdóttir Víðihóli 1,
Mosfellsbæ
Ingunn Hávarðardóttir Engihjalla 5, Kópavogi
Sævar Rafn Hallgrímsson Hólabraut 21,
Skagaströnd
Óskar Ingiberg Axelsson Tjarnargötu 1,
Sandgerði
Arnfríður Hansdóttir Norðurbrún 8, Reykjavík
Ásta Fossádal Borgarhrauni 21, Grindavík
70 ára
Jóhanna Kristjánsdóttir Stýrimannastíg 7,
Reykjavík
Bryngeir V. Kristjánsson Rjúpnasölum 14,
Kópavogi
Sveinbjörn Daníelsson Norðurgötu 58, Akureyri
75 ára
Lonny Ray Du Chien Norðurbraut 25, Hafnarfirði
Ásgeir Sigurðsson Kópavogstúni 8, Kópavogi
Dagrún Kristjánsdóttir Borgarholtsbraut 46,
Kópavogi
80 ára
Sólveig Aðalbjarnardóttir Selási 5, Egils-
stöðum
Þorbjörg Bergsteinsdóttir Miðvangi 18,
Egilsstöðum
85 ára
Jón Hólmsteinn Júlíusson Skólagerði 38,
Kópavogi
Bragi Guðmundsson Hjaltabakka 6, Reykjavík
Bjarni G. Bjarnason Hringbraut 2a, Hafnarfirði
Sigríður Guðmundsdóttir Hringbraut 50,
Reykjavík
Ragnar Sveinn Olgeirsson Borgarbraut 65,
Borgarnesi
Þórarinn S. Öfjörð Laugarnesvegi 102, Reykjavík
Helga Jónsdóttir Kolbeinsgötu 3, Vopnafirði
Guðbjörg Árnadóttir Víðilundi 18d, Akureyri
90 ára
Sigrún Guðbrandsdóttir Hlunnavogi 10,
Reykjavík