Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 2. janúar 2011 Mánudagur Á árunum fyrir íslenska efnahagshrun- ið árið 2008 voru greiddar út gríðarlega fjárhæðir í arð til hluthafa fjármálafyr- irtækja og eignarhaldsfélaga. Í sumum tilfellum námu arðgreiðslurnar millj- örðum króna á einstökum árum á með- an þær hlupu á tugum til hundraða milljóna króna í öðrum tilfellum. Flest þessara fyrirtækja eru gjaldþrota í dag, eru í fjárhagslegri endurskipulagningu eða eru í eigu nýrra aðila. Arðgreiðslurnar voru að minnsta kosti að hluta til byggðar á því upp- blásna hlutabréfaverði á fyrirtækj- um og eignarhaldsfélögum sem ein- kenndi íslenskt atvinnulíf á þessum árum. Einstök viðskipti með hluta- bréf í fyrirtækjum, eins og til dæmis Sterling-flugfélagið danska, byggðu á því að hlutabréfin í fyrirtækinu voru seld á miklu hærra verði á milli sam- verkamanna í viðskiptum en raun- verulegt verðmæti þeirra var. Fjár- málastofnanir fjármögnuðu svo þessi fyrirtækjakaup með lánum frá erlend- um bönkum sem voru miklu hærri en raunverulegt verðmæti þessara fyrir- tækja. Á meðan fjármálafyrirtækin og eignarhaldsfélögin gátu staðið í skilum með einhverju móti voru engin vanda- mál og svo virtist sem viðskiptamódel- ið gengi fullkomlega upp. Fjármála- fyrirtæki og stór eignarhaldsfélög gátu sýnt methagnað sem að mestu var fjármagnaður með lánsfé en ekki með raunverulegri verðmætasköpun vegna framleiðslu eða ábatasams rekstrar. En þó fyrirtækin sem arðgreiðslurn- ar komu frá hafi lent í erfiðleikum og farið á hliðina halda þeir einstaklingar eftir þeim arðgreiðslum sem þeir fengu á þessum árum. Arðurinn var raunverulegur Fyrirtækin féllu því þegar íslenska efna- hagsbólan sprakk með látum árið 2008 en argreiðslurnar sem eigendur fjár- málafyrirtækjanna og eignarhaldsfé- laganna, sem og bankastarfsmennirnir, fengu vegna þessa meinta góðæris sem hér ríkti safna hugsanlega í einhverjum tilfellum ennþá vöxtum á bankareikn- ingum viðkomandi aðila. Í einhverj- um tilfellum má ætla að viðkomandi einstaklingar sem fengu arðinn séu tryggðir fjárhagslega um ókomin ár vegna þessa. Meðal hæstu arðgreiðslnanna til einstaklinga á árunum fyrir íslenska efnahagshrunið má nefna þriggja millj- arða arð sem eignarhaldsfélag Hann- esar Smárasonar í Hollandi, Oddaflug B.V., fékk vegna rekstrarársins 2006 hjá FL Group. Þá var hagnaður FL Group sagður hafa verið 44,6 milljarðar króna og voru 15 milljarðar greiddir út í formi arðs til hluthafanna. Öfugt við margt annað sem ein- kenndi íslenska góðærið, meðal ann- ars verðmat á mörgum fyrirtækjum og þar af leiðandi hlutabréfaverð í landinu almennt séð, þá voru þessar arðgreiðsl- ur raunverulegar. Um var að ræða bein- harða peninga sem skiptu um hendur og runnu til hluthafa þessara fyrirtækja. Hannes fékk því þessa milljarða og gæti allt eins átt þá enn á reikningum sín- um. Til að setja upphæðina sem Hann- es fékk í samhengi má geta þess að í fjárlögum ársins 2011 er reiknað með 2.962 milljónum króna til að reka Ríkis- útvarpið. Arðgreiðslan til Hannesar var því hærri en sem nemur áætluðu fjár- framlagi frá ríkinu til reksturs Ríkisút- varpsins. Hæstar voru þessar arðgreiðslur út úr fyrirtækjunum á árunum 2006 og 2007 þegar hlutabréfaverð í íslenskum fyrirtækjum og íslenska krónan fóru í hæstu hæðir. Bankarnir stórtækir í arðgreiðslum Hæsta arðgreiðslan út úr íslensku við- skiptabönkunum á árunum fyrir hrun- ið kom úr Kaupþingi árið 2007 en þá var greiddur út tæplega 15 milljarða arður, 14,8 milljarðar, til hluthafa félagsins. Stærsti hluthafi Kaupþings á þessum tíma var Exista. Stærsti hluthafi Existu var eignarhaldsfélagið Bakkabræður Holding B.V. í Hollandi. Eigendur hol- lenska félagsins, Lýður og Ágúst Guð- mundssynir, fengu því um 1,5 milljarð króna vegna eignarhlutar síns í Kaup- þingi á þessu ári. Ólafur Ólafsson fékk sömu upphæð vegna 10 prósenta eign- arhlutar síns í Kaupþingi í gegnum Eglu Invest B.V. í Hollandi. Árið áður fengu Bakkavararbræður og Ólafur samtals 2 milljarða króna í arð vegna rekstrar- ársins 2006 út af eignarhlutum sínum í Kaupþingi. Þá skilaði Kaupþing 85,3 milljarða króna hagnaði og greiddi 10,4 milljarða arð til hluthafa bankans. Til að setja arðgreiðslurnar út úr bankanum í samhengi má geta þess að ríkissjóður mun leggja stærsta vinnu- stað landsins, Landspítala-háskóla- sjúkrahúsi, til tæpa 33 milljarða króna vegna reksturs spítalans í ár. Arð- greiðslurnar frá Kaupþingi á þessum tveimur árum hefðu því farið langleið- ina í að dekka kostnað ríkisins af rekstri spítalans í ár. Arðgreiðslur úr hinum bönkunum voru nokkru lægri enda var Kaupþing stærsti banki landsins. Þannig greiddi Glitnir 9,4 milljarða króna í arð til hlut- hafa sinna árið 2006 eftir að hafa skil- að hagnaði upp á rúma 38 milljarða króna. Árið eftir, 2007, skilaði bankinn 27,7 milljarða króna hagnaði og var arðurinn til hluthafanna 5,5 milljarðar. Tvö hollensk félög í eigu FL Group sem áttu stóra hluti í bankanum á þessum árum fengu samtals tæpa 4 milljarða króna í arð á þessum tveimur árum út af hagnaði Glitnis. Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson voru ráð- andi í FL Group á þessum tíma. Samson, eignarhaldsfélag Björg- ólfsfeðga, sem var ráðandi hluthafi í Landsbanka Íslands fékk rúmlega þriggja milljarða króna arðgreiðslur út úr Landsbankanum á árunum 2006 og 2007. Á þessum tveimur árum voru heildararðgreiðslurnar út úr Lands- bankanum til hluthafa bankans rúm- lega 7,5 milljarðar króna. Björgólfur Thor Björgólfsson tók einnig himinhá- an arð út úr Straumi á þessum árum. Arðgreiðslan út úr Straumi árið 2006 var til að mynda hærri en arðgreiðsl- an út úr Landsbanka Íslands bæði árin 2006 og 2007 eða 7,8 milljarðar króna. Samtals 71 milljarður Samtals námu arðgreiðslur stóru við- skiptabankanna þriggja um 71 millj- arði króna á árunum 2004 til 2007. Í einhverjum tilfellum urðu arðgreiðsl- urnar eftir inni í eignarhaldsfélög- unum sem héldu utan um hlutabréf hluthafanna í fyrirtækjunum – til að mynda hjá Samson þar sem eigend- urnir tóku sér um einn milljarð króna af þeim rúmlega fjórum sem runnu frá Landsbankanum til félagsins – og voru notaðar með einum eða öðrum hætti í rekstur þeirra. Í flestum tilfellum má þó ætla að arðurinn hafi verið tekinn út úr eignarhaldsfélögunum sem áttu hluta- bréfin. Erfitt er hins vegar að ganga úr skugga um hvort arðurinn hafi runn- ið til eigenda félaganna sem áttu hlutabréfin þar sem þessi félög voru að mestu skráð erlendis. Þetta átti til dæmis við um stærstu hluthafa Glitnis og Kaupþings á þessum árum en eign- arhaldsfélögin sem áttu bréfin í þeim voru skráð í Hollandi. Starfsmenn fengu 1.200 milljónir Starfsmenn sumra bankanna fengu einnig greiddan arð af hlutabréfaeign sinni í þeim þrátt fyrir að þeir hefðu aldrei greitt fyrir hlutabréfin. Bréfin voru fjármögnuð með lánum frá bönk- unum til starfsmannanna, eins og frægt er orðið bæði í Glitni og Kaupþingi. Í tilfelli lánanna til starfsmanna Glitnis, sem veitt voru árið 2008, hafa fjórir milljarðar króna verið afskrifaðar vegna þeirra hjá arftaka Glitnis, Íslands- banka. Starfsmennirnir sem fengu lán- in þurfa ekki að greiða þau til baka að neinu leyti. Þeir starfsmenn Glitnis sem fengu þessi lán, meðal annars Jóhann- es Baldursson og Magnús Pálmi Örn- ólfsson, fengu ekki greiddan neinn arð af hlutabréfaeign sinni í bankanum, svo vitað sé. Öfugt við starfsmenn Glitnis fengu starfsmenn Kaupþings aftur á móti samtals greiddan nærri 1.200 milljóna króna arð út úr bankanum á árunum 2006 og 2007, samkvæmt útreikningum DV miðað hlutabréfaeign starfsmanna bankans árið 2006. Hæstu arðgreiðsl- urnar fengu Sigurður Einarsson, stjórn- arformaður bankans, og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri hans, en sá fyrr- nefndi fékk nærri 240 milljónir króna í arð á þessum tíma á meðan sá síð- arnefndi fékk 185 milljónir. Af öðrum starfsmönnum Kaupþings má einn- ig geta þess að Magnús Guðmunds- son, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, fékk rúmlega 120 milljóna króna arð af hlutabréfum sínum í bankanum og Kristján Arason fékk nærri 50 milljónir króna. Geta ekki sótt arðinn Þessir starfsmenn halda allir eftir þeim arði sem þeir fengu af hlutabréfunum í Kaupþingi sem þeir höfðu þó ekki borgað fyrir. Engin úrræði eru til sem gætu gert slitastjórn Kaupþings kleift að sækja þessar arðgreiðslur til þeirra starfsmanna sem fengu þær á þessum árum. Í þeim tilfellum þar sem engar persónulegar ábyrgðir eru fyrir hendi fyrir lánunum til starfsmannanna og slitastjórn Kaupþings þarf að afskrifa lánin að fullu halda starfsmennirnir því eftir arðinum af þessari fjárfestingu þrátt fyrir allt. Þetta á til dæmis við um Kristján Arason og einnig líklega Hreið- ar Má Sigurðsson og Sigurð Einarsson. Í þeim tilfellum þar sem persónuleg- ar ábyrgðir voru fyrir hendi, eða starfs- mennirnir sjálfir skráðir fyrir lánunum, má líta svo á að minnsta kosti hluti arð- greiðslnanna verði notaður til að greiða niður hluta skuldanna við Kaupþing. Arður úr ofmetnum félögum Arðgreiðslurnar úr íslensku bönkunum ÞAU SLEPPA MEÐ ARÐINN n Hluthafar í fyrirtækjum og bönkum góðærisins halda eftir arðinum sem þeir fengu fyrir hrun n Fyrirtækin eru flest fallin en arðurinn situr eftir hjá eigendunum n Ógerningur er fyrir kröfu - hafa fyrirtækjanna og bankanna að sækja arðinn til hluthafanna Fengu fimm milljarða Lýður og Ágúst Guðmundssynir og Ólafur Ólafsson fengu samtals um 5 milljarða króna arð á árunum 2006 og 2007 vegna eignarhluta sinna í Kaupþingi. Bankinn greiddi hærri arð en önnur íslensk fjármálafyrirtæki. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Össur um Lilju Mósesdóttur: „Alveg sama hvort hún fer eða verður“ „Nei, Lilja Mósesdóttir fer vill- ur vegar ef hún telur að það sé niðrandi að líkja henni við burð- uga hryssu með strok í augum og sjálfstæðan vilja,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um þá gagnrýni Lilju Mósesdótt- ur að hann hafi með því að nota dýralíkingar í samtali við DV viljað niðurlægja hana og VG. Lilja brást mjög harkalega við ummælum Össurar á Facebook- síðu sinni og taldi það niðurlægj- andi að vera líkt við hryssu.  „Það er alveg orðið ljóst í mín- um huga hver heitasta ósk Sam- fylkingarinn- ar er. Það er hins vegar ekki hægt að sýna samstarfsflokki sínum meiri fyrirlitningu en að lýsa skoð- unum sínum á einstökum þingmönnum hans með slík- um yfirlýsingum og með því að nota dýralíkingarmál. Það kemur á óvart að ráðherrar séu á þessu plani en maður lærir svo lengi sem maður lifir,“ skrifaði Lilja. Össur blæs á þessa gagnrýni hennar. „Hún er þá farin að lesa allt eins og andskotinn Biblíuna. Þannig bregðast menn stundum við þegar þeir standa í slagsmál- um við félaga sína og hafa kannski ekki eins góðan málstað og best yrði á kosið,“ segir hann. Össur segir að þvert á móti hefði Lilja átt að lesa úr ummæl- um sínum hrós enda hefði hann sagt í næstu setningu að hún væri „öflugur þingmaður“.  „Það er aftur á móti matsatriði og ekki allir sammála mér þar. Kjarni málsins er hins vegar þessi: Mér er einfaldlega alveg sama hvort hún fer eða verður, enda er ég fyrir löngu hættur að líta á hana sem stjórnarþingmann. Svo er held ég um langflesta í stjórnarlið- inu. Það breytir engu um það að mér sjálfum finnst hún vera öflug- ur og vinnusamur þingmaður.“ Ráðherrann segir alsiða í stjórnmálaumræðu að menn noti táknmyndir úr ríki dýra, bæði til að undirstrika kosti og lesti manna. „Ég var síðast í gær kall- aður heimilisfress af fyrrverandi stjórnmálaskörungi í Moggan- um, sennilega til að undirstrika friðsamlegt eðli mitt sem yfirdipl- ómats. Löngu fyrr var mér líkt við gamalt og örótt bardagafress, væntanlega til að undirstrika lang- lífi mitt í stjórnmálum þátt fyrir átök sem ég af lítt skiljanlegum ástæðum rataði stundum í, en lifði jafnan af, enda með fleiri líf en jafnvel villikettir.“ Lilja Mósesdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.