Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Page 26
26 | Fólk 10. janúar 2011 Mánudagur
Bláu augun
lokalagið
Allt fyrir
samsöng
með Ómari
Elísabet Jökulsdóttir steig á svið í
Norræna húsinu ásamt Heiðu í Unun,
Hörpu, Ástu, Ósk Vilhjálms, Lillý
kvikmyndagerðarkonu og Ómari
Ragnarssyni og saman sungu þau Bláu
augun þín, lokalag laugardagskvölds-
ins og þar með lokalag karókímaraþ-
onsins. Hilmar Örn lék undir á orgel.
Elísabet segist hafa ætlað að syngja
Blátt lítið blóm eitt er, en það hafi ekki
verið til. „Björk stakk þá upp á þessu
þar sem blátt kemur fyrir í textanum
og þetta heppnaðist ótrúlega vel. Nú
eru Bláu augun orðin nokkurs konar
þjóðsöngur. Ég hefði aldrei þorað þessu
ein, en hópurinn styrkti mig. Þetta
var skemmtileg æfing í hugrekki.
Kvöldið endaði svo á að allir sungu
þjóðsönginn. Það var mögnuð stund,“
segir Elísabet.
Og meira um maraþonið í Norræna hús-
inu. Einar Kárason rithöfundur hefur ekki
endilega verið þekktur sem andstæðingur
virkjunarframkvæmda, en hann birtist
óvænt seint á laugardagskvöld og söng
Limbó Rock Twist með Ómari Ragnars-
syni sem einmitt samdi lagið.
„Eins og sjá má á YouTube hef ég
sungið þetta lag með ýmsum frægum
hljómsveitum, en lagið er tvímælalaust
eitt af bestu lögum rokksögunnar.
Textinn er flókinn, en ég hef komið
mér upp ákveðinni tækni til að syngja
textann. Ómar taldi að samsöngur okkar
í þessu lagi myndi hafa góð áhrif á gang
þjóðmála svo við ruddumst upp á svið
þegar Björk ætlaði að enda kvöldið með
þjóðsöngnum. Við stugguðum henni
af sviðinu og sungum lagið, sem tókst
svo vel að áhorfendur risu úr sætum og
fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna.
Ég er að sjálfsögðu til í að hafa hvaða
skoðun sem er ef ég fæ að syngja með
Ómari, þá spyr maður ekki um smámál
eins og framtíð lands og þjóðar,“ segir
Einar hlæjandi.
Allt frá Lalla Johns
til Ólafs Ragnars
Ragnheiður M. Kristj-ónsdóttir hefur ver-ið ráðin nýr ritstjóri
Séð og heyrt. Ragnheiður er
þaulreyndur blaðamaður, hóf
feril sinn á DV árið 2005, en
réðst til Séð og heyrt í nóvem-
ber sama ár.
Ragnheiður sagði ráðn-
inguna ekki beint hafa komið
sér á óvart og segist sérstak-
lega ánægð með að vera fyrsti
kvenritstjóri blaðsins, þó það
skipti kannski ekki aðalmáli.
Hún segir lesendur koma
til með að sjá einhverjar
breytingar.
„Mér hefur alltaf þótt
gaman að vinna „dæmigerð
konuefni“, ég elska að skrifa
um stjörnurnar og glamúr-
inn. Við munum að sjálf-
sögðu halda því áfram og
jafnvel bæta við. Fréttir af
fólki verða svo á sínum stað,
kannski með örlítið breytt-
um áherslum, fréttir af fólki
sem er að gera eitthvað frum-
legt og öðruvísi. Hugsanlega
verðum við með innlit og ein-
hverjar fleiri nýjungar. Þetta
verður örugglega fjölbreytt,
allt frá Lalla Johns upp í Ólaf
Ragnar forseta.“
Hún segir mannabreyting-
ar hugsanlegar, en það verði
ekki alveg í bráð. „Hugmynd-
in er að stækka blaðið og
höfða til breiðari hóps.“
Ragnheiður er hvergi
smeyk við aukna ábyrgð.
„Mér finnst þetta spennandi
og held ég kunni þetta ágæt-
lega. Ég mun bara gera mitt
besta. Það má líka segja frá
því að besti skóli sem ég hef
verið í var blaðamennskan á
DV.“
Fyrsta eintak Séð og
heyrt undir stjórn Ragnheið-
ar kemur út næstkomandi
fimmtudag. edda@dv.is
Óhrædd við aukna
ábyrgð Ragnheiður er
þaulreyndur blaðamaður og
tekur nú við ritstjórninni á
Séð og heyrt.
Svava Johansen verslunar-maður átti afmæli á föstu-daginn og tók sér frí frá út-
sölunum í tilefni dagsins. Hún
sagði þó útsölurnar ganga vel.
„Fólk verslar eins og enginn sé
morgundagurinn,“ segir hún og
telur að útsölur séu aldrei fjölsótt-
ari en þegar harðnar í ári.
„Þetta hefur verið jafnt og
þétt frá því við byrjuðum, bæði
í Kringlunni, Smáralind og Evu,
nýju versluninni okkar á Lauga-
veginum.“
Svava segir að vor- og sumar-
fatnaðinum verði stillt út strax og
útsölum lýkur.
„Það er kannski hálffáránlegt
að tala um sumartísku í þessu
brjálaða veðri, en vor- og sumar-
tískan verður mjög skemmtileg og
einkennist af sterkum, glaðlegum
litum. Gallaefnin eru að koma aft-
ur, til dæmis lausar gallabuxur við
stutta, teinótta jakka, tweed-jakka
eða blazer-jakka. Leðrið kemur
líka sterkt inn.“
Lætur sig ekki muna um að
syngja
„Já, Bjössi ætlar að bjóða mér í
dekur í World Class og svo förum
við út að borða. Aðalfagnaðurinn
verður samt í kvöld þegar við hitt-
um golffélaga okkar og höldum
árlegan áramótafagnað. Þetta eru
um 30 manns og alltaf gríðarlega
gaman hjá okkur.“
Aðspurð hvort hún ætli að taka
lagið fyrir hópinn skellihlær Svava.
Hún er nefnilega hinn mesti ær-
ingi og hefur ekki látið sig muna
um að syngja fyrir hópa hingað til
og þá oftast lagið I Will Survive.
Svava er auðvitað löngu búin
að sanna að hún er „surviver“ og
segist alveg til í að hugleiða eitt-
hvað nýtt.
„Já,“ segir hún og hlær enn,
„það er trúlega kominn tími á eitt-
hvað nýtt, eins og Life Goes On
eða New Adventures. Ég mæti
bara með karókísettið og kórón-
una og heimta athygli af því ég á
afmæli.
Þetta er samt ekki allt. Á morg-
un fer ég með göngufólkinu mínu,
sem kallar sig Jagerana, í sum-
arbústað þar sem við ætlum að
halda náttfatapartí.
Við erum tólf, og nei, það verða
sko engin tískunáttföt. Við verðum
í Grímsnesinu eins og afdalavík-
ingar. Mest minnir þessi samkoma
á menntaskóla-„gig“, en er ekki
einmitt svo mikilvægt að varðveita
barnið í sér?“
Svava segist vera vön að hafa
opið hús fyrir fjölskylduna þeg-
ar hún á afmæli. „Ætli ég verði
ekki að vera með þriðja í afmæli
á sunnudaginn svo enginn verði
svekktur. Taka glöð á móti fjöl-
skyldunni, og að sjálfsögðu enn
með kórónuna,“ segir hún og eng-
ist af hlátri.
Náttfatapartí
kóróna og söngur
Svava Johansen:
n Svava Johansen tók helgina með trompi n Hvíldi sig frá
verslunarrekstrinum n Hélt upp á afmælið sitt með stæl
Eva á Laugaveginum Svava við opnun
nýrrar verslunar í hjarta borgarinnar.