Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Page 8
8 | Fréttir 12. janúar 2011 Miðvikudagur Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytið greiddi stjórnsýslu- fræðingnum Sigurði Helga Helga- syni alls 6,9 milljónir króna frá því í janúar 2009 og fram í október í fyrra. Sigurður rekur ráðgjafarfyr- irtækið Stjórnhætti ehf., sem sér- hæfir sig í opinberri stjórnun og stjórnsýslu. DV greindi frá því í síð- ustu viku að á sama tímabili hefði Sigurður fengið um 26 milljón- ir króna í gegnum tvö félög í sinni eigu frá félagsmálaráðuneytinu. Sigurður vill sjálfur ekki upplýsa um hversu háar greiðslur fyrirtæki hans hafa fengið í heildina frá rík- inu á tímabilinu sem um ræðir, en ljóst er að á því 22 mánaða tímabili sem er undir hafa fyrirtækin fengið að lágmarki 32 milljónir króna frá tveimur ráðuneytum. Það jafngildir um 1,5 milljónum á mánuði allt það tímabil. Eins og greint var frá hér í blaðinu í síðustu viku er einn fastur starfsmaður hjá Stjórnháttum, auk Sigurðar. Verk- efnin fyrir samgönguráðuneyt- ið fólu í sér endurskipulagningu samgöngustofnana, sérfræðiþjón- ustu vegna fjárhaldsstjórnar Álfta- ness og sérfræðiráðgjöf vegna endurskipulagningar samgöngu- stofnana. Ekkert útboð Í reglum um innkaup hins opin- bera kemur fram að opinberir að- ilar geti komist hjá því að fara með verk í útboð ef kostnaður þess er undir 12,4 milljónum króna. Ofan á þá upphæð bætist síðan virðis- aukaskattur. Eins og fram kom í DV um helgina rukkaði Sigurður félagsmálaráðuneytið í gegnum tvö félög í sinni eigu. Sjálfur vildi hann engu svara um ástæður þess. Í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra kemur fram að upphæðirnar hafi verið 13,2 millj- ónir og 12,7 milljónir. Samanlagt eru þær því yfir hámarki um út- boðsskyldu. Í svari við fyrirspurn til upplýsingafulltrúa velferðar- ráðuneytisins kemur fram að sú þjónusta sem félög Sigurðar veittu hafi ekki verið boðin út. Sigurður sagði við DV í síðustu viku að ekki væri munur á starfsemi félaganna tveggja. Líklegt má telja að ráðu- neytið hefði ekki komist hjá því að fara í útboð ef eitt félag hefði inn- heimt þessa upphæð. Vill skýrari svör Kristján Þór Júlíusson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, lagði fram skriflega fyrirspurn fyrir öll ráðu- neytin um aðkeypta þjónustu. Svör frá flestum ráðuneytum bár- ust rétt fyrir jól. Í mörgum tilfellum eru skýringar við hvern lið held- ur snubbóttar. „Eftir þá yfirferð sem ég er búinn að taka, þá er það skynjun mín að þessi svör séu þess eðlis að ég þarf að fara miklu betur ofan í þetta því það er ekki verið að svara þessu eins og ég ætlaðist til að yrði gert. Þessi atriði eru dæmi um greiðslur sem við verðum að kalla eftir einhverjum frekari skýr- ingum á,“ segir Kristján Þór. „Þessi atriði eru dæmi um greiðslur sem við verðum að kalla eftir einhverjum frekari skýringum á. n Sigurður Helgi Helgason fékk samtals 32 milljónir frá tveimur ráðu- neytum n Verkin voru ekki boðin út n Þingmaður vill skýrari svör Tugmilljónir án útboðs Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Sigurður Helgi Helgason Fékk 6,9 milljónir frá samgönguráðuneytinu ofan á 26 milljónir frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Haukur Hilmarsson ávarpaði hæstaréttardómara: „Stoltur af andófinu“ Samningi við Álftanes rift Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað á fundi sínum á mánudag að rifta samningi fyrirtækisins og sveitar- félagsins Álftaness frá árinu 2007 um kaup, uppbyggingu og rekst- ur fráveitu Álftaness. Ástæðan er verulegar vanefndir sveitarfélags- ins á greiðslum til Orkuveitunnar samkvæmt samningnum. Í tilkynn- ingu frá Orkuveitunni kemur fram að krafan á hendur sveitarfélaginu nemi tæpum 90 milljónum króna. Orkuveitan keypti fráveitu Álfta- ness árið 2007 en í samningnum var kveðið á um að OR fengi mán- aðarlegar greiðslur frá sveitarfé- laginu. Erfiðlega hefur gengið að fá þessar greiðslur. Ólafur kominn á Grensásdeild Tónlistarmaðurinn Ólafur Þórðar- son, sem slasaðist illa þegar sonur hans réðst á hann í fyrra, er kominn á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensás. Hann er meðvitundarlaus en merki eru um hægan bata. Þetta kom fram á Vísi á þriðjudag. Rann- sókn á málinu er lokið og verður það sent embætti ríkissaksóknara á næstu dögum. Sonur Ólafs, Þorvarður Davíð, sem játað hefur árásina verður að lík- indum ákærður fyrir tilraun til mann- dráps. Hann situr nú í gæsluvarðhaldi. Bandaríkjamenn gefa ekkert eftir Philip J. Crowley, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði á daglegum blaðamannafundi ráðu- neytisins í Washington á mánudag að Luis Arreaga, sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, hefði fullvissað stjórnvöld á Íslandi um að aðgerðir bandaríska dómsmálaráðuneytisins gagnvart Birgittu Jónsdóttur þing- konu væru innan ramma banda- rískra laga. Crowley var spurður um fund Arreaga með fulltrúum utanrík- isráðuneytisins þar sem sendiherr- ann var krafinn svara um framgöngu Bandaríkjanna gagnvart þjóðkjörn- um fulltrúa Íslands. Birgitta Jónsdótt- ir er þessa stundina stödd í Toronto í Kanada þar sem hún hélt fyrirlestur um upplýsingafrelsi á þriðjudag. Haukur Hilmarsson ávarpaði sjálfur dómara Hæstaréttar við lok aðalmeð- ferðar ákæruvaldsins gegn honum og Jason Thomes Slader. Haukur og Jason voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykja- víkur fyrir að raska öryggi flugvéla þeg- ar þeir hlupu inn á flugbraut í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að flogið yrði með Paul Ramses úr landi í flótta- mannabúðir á Ítalíu. „Blekið var varla þornað á dómsorði okkar Jasons þegar Ramses fékk stöðu flóttamanns. Sú staða náðist fram með sleitulausu andófi almennra borgara sem hófst þarna á flugvellinum,“ sagði Haukur þegar hann ávarpaði þá Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólaf Börk Þor- valdsson og Pál Hreinsson hæstarétt- ardómara. Sagðist hann hafa litið á það sem siðferðislega skyldu sína að koma Paul Ramses til hjálpar. Haukur mótmælti þeim ummælum saksóknara að hann hefði ekki velt því fyrir sér hvort nokkur hætta stafaði af aðgerðum þeirra Jasons. Sagðist hann margoft hafa rökstutt fyrir rétti hvernig hann komst að því kalda mati að með aðgerðunum stofnaði hann engum í hættu. „Ég get að sjálfsögðu ekki annað en verið stoltur af að hafa tekið þátt í því andófi og raunar er fátt sem ég get verið jafn stoltur af. Ég hef aldrei getað fund- ið það í mér að sjá að mér og enginn dómur, hvorki í héraði né Hæstarétti, getur breytt því,“ sagði Haukur sem lauk ræðu sinni með orðum Martins Luth- ers King: „Þau sem gera friðsamlega byltingu ómögulega gera blóðuga bylt- ingu óhjákvæmilega.“ hanna@dv.is Í Hæstarétti Haukur og Jason reyndu að hindra að flogið væri með Paul Ramses úr landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.