Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Blaðsíða 14
Tími skíðaferða stendur sem nú sem hæst og þeir sem hafa hug á að fara og renna sér á skíðum erlend- is ættu að fara að undirbúa það hið fyrsta. Það er hins vegar ekki nauð- synlegt að leita út fyrir landstein- ana til að komast á skíði þar sem nokkur góð skíðasvæði eru á land- inu. Eins dugar eflaust einhverj- um bara að skella sér á skauta með fjölskyldunni og eiga góðar stund- ir þar. DV skoðaði nokkra kosti fyrir þá sem vilja fara í skíðaferð en tekið skal fram að um óformlega könn- un er að ræða og listinn er ekki tæmandi. Líklegt er að hægt sé að fá ódýrari ferð, hvort sem er innan- lands eða utan. Dýrt um páskana Nokkrar ferðaskrifstofur bjóða upp á pakkaferðir til útlanda á skíði en helsti skíðatíminn er nú í janúar og febrúar. Ástæðan fyr- ir því mun vera að ferðir í kring- um og um páskana eru mjög dýr- ar og þær ferðaskrifstofur sem DV ræddi við bjóða ekki upp á þann tíma. Beðið var um upplýsingar um hvað ferðaskrifstofurnar hafa upp á að bjóða í skíðaferðunum og hagstæðasta verðið fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Austurríki Expressferðir bjóða upp á skíða- ferðir til Montafon, Lech og Ischgl í Austurríki en helsti tíminn fyr- ir skíðaferðir þar er í janúar og febrúar. Hagstæðast væri fyrir fjög- urra manna fjölskyldu að fara til Montafon í janúar en þá er verðið 118.000 krónur á mann. Inni í því verði er flug, gisting og hálft fæði. Þess utan greiðir hver ferðamaður 10.000 krónur í rútu, til og frá flug- velli, en þá er eftir að greiða fyrir skíðapassann sem er um það bil 26.000 krónur á mann. Inga Dóra Halldórsdóttir, hjá Expressferð- um, sagði að frá drægist barnaaf- sláttur sem fer eftir tíma og stað- setningu en er oftast í kringum 10.000 á barn. Verð á skíðaferð fyr- ir 4 manna fjölskyldu til Montafon, með öllu inniföldu, yrði því rétt tæplega 600.000 krónur. Ítalía Hjá Úrvali Útsýn fengust þær upp- lýsingar að verð á skíðaferðum væri mismundandi eftir tímabil- um. Þegar leitað var að ódýrasta fargjaldinu var það ferð til Selva á Ítalíu í lok febrúar. Fyrir flug og gistingu í íbúð með einu svefnher- bergi væri meðalverð í slíka ferð um 600.000 krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Sú upphæð er án fæðis og rútu frá flugvelli. Bent var á að fjögurra manna fjölskylda gæti verið í stúdíóíbúð og lækkar þá upphæðin töluvert. Fékkst þá heildarupphæðin 540.000 krón- ur með akstri. Ofan á þetta bætast 30.000 krónur á hvern fullorðinn og um 22.000 á barn vegna skíða- passa í viku. Akureyri Á Akureyri er skemmtilegt skíða- svæði í Hlíðarfjalli þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það er á snjóbretti, svigskíðum eða gönguskíðum. Skíðaleiga er á staðnum en skíða- pakki kostar 11.900 krónur fyr- ir fullorðna og 6.400 krónur fyr- ir börn. Viku skíðapassi kostar 15.200 krónur fyrir fullorðna og 5.000 krónur fyrir börn. Ferðakostnaður Ef farið er frá Reykjavík þarf að huga að ferðakostnaði. Sé farið á bíl má gera ráð fyrir 16.300 krónum í bensínkostnað, sé miðað við verð á bensíni í dag fyrir bíl sem eyðir 10 lítrum á hverja 100 kílómetra. Flug fyrir fjóra með Flugfélagi Íslands á Akureyri kostar 52.620 báðar leiðir. Þær upplýsingar fengust að iðulega kæmu inn nettilboð og fólk væri hvatt til að fylgjast með þeim. Eins væri líklegt að flugfélagið byði upp á pakkaskíðaferðir um páskana en það skýrist þegar nær dregur. Vert er að geta þess að ekki hefur verið boðið upp á rútuferðir í fjallið úr bænum og því erfitt að vera án bíls þegar komast þarf á skíðasvæðið. Gisting Á Akureyri er um ýmsa möguleika á gistingu að ræða. Sem dæmi er KEA hótel með páskatilboð og mundi bjóða fjölskyldunni gistingu í viku á 96.600 krónur og er það með morg- unverði. Eins er hótelið með sér- stakt skíðatilboð sem gildir ekki yfir páskana og er háð bókunarstöðu. Það hljóðar upp á 25.900 krón- ur fyrir manninn en innifalið í því eru 3 nætur og 2 kvöldverðir. Sig- urbjörn Sveinsson hótelstjóri seg- ir það afar hentugt að koma norð- ur í miðri viku og skella sér á skíði. Ekki skemmdi útsýnið n Lofið að þessu sinni fær Veislu- turninn í Kópavogi fyrir einfaldlega frábæran brunch, eins og ánægð- ur viðskiptavinur segir: „Við fórum þangað, öll fjölskyldan, og mat- urinn var frábær, þjónustan með eindæmum góð og ekki skemmdi útsýnið. Það var meira að segja nammib- ar handa litla fólkinu, sem fannst enn meira spennandi að komast á þann bar en að borða matinn.“ Ryðfríir pottar þykja bestir Pottar og pönnur eru til á hverju heimili og eru að öllum líkindum þau eldhúsáhöld sem mest eru notuð. Heilsubankinn mælir með að fólk kynni sér úr hverju áhöldin eru búin til því mikilvægt sé að vita hvaða efni maður hefur í höndunum og hvers þarf að gæta við notkun þeirra. Á vef Heilsubankans eru taldar upp helstu tegundir þeirra en það eru álpottar, teflonhúðaðir pottar, emileraðir pottar og ryðfríir stálpottar sem almennt þykja þeir bestu með tilliti til heilsu. 50 mínútna bið n Lastið fær Hrói höttur fyrir lé- lega þjónustu. Viðskiptavinur fékk heimsenda pítsu 50 mínútum eftir að hann pantaði og þegar hún kom var hún köld. Honum var þá boðinn afsláttur sem varla nam nema heim- keyrsluafslættinum. „Starfsmaður viðurkenndi að hafa villst og að það væri brjálað að gera. Mér var boðin ný pítsa en langaði ekki að bíða aftur svipaðan tíma svo að ég afþakka hana hjá vakt- stjóra,“ segir viðskipta- vinurinn sem bætir við að vaktstjórinn hafi ekki viljað veita frekari afslátt vegna taf- anna. „Ég hefði betur fengið mér örbylgjupítsu frá Krón- unni.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Hafðu þetta í huga á ferðalögum erlendis Í dimmasta skammdeginu láta margir sig dreyma um að fara til útlanda í frí. Sumir láta drauminn rætast og kaupa sér farmiða út fyrir landsteinana. Fyrir utan að muna eftir vegabréfi og farmiða er ýmislegt sem þarf að huga að þegar ferðast er til útlanda. Ef fólk leigir sér bílaleigubíl erlendis er gott að vita að íslenskt ökuskírteini gildir á Norðurlöndunum og í þeim löndum sem eru innan EES. Ferðamönnum er heimilt að hafa ákveðið magn af vörum, áfengi, tóbaki og fleiru með sér inn í landið tollfrjálst. Eins geta ferðamenn fengið endurgreiddan hluta virðisaukaskatts af keyptum vörum. Þessar og fleiri upplýsingar er að finna á island.is og gott er að kynna sér framangreind atriði fyrir brottför. 14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 12. janúar 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 212,9 kr. Verð á lítra 213,4 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 212,8 kr. Verð á lítra 213,2 kr. Verð á lítra 213,6 kr. Verð á lítra 213,4 kr. Verð á lítra 212,7 kr. Verð á lítra 213,1 kr. Verð á lítra 212,8 kr. Verð á lítra 213,2 kr. Verð á lítra 212,9 kr. Verð á lítra 213,9 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Akureyri Melabraut Algengt verð Sparaðu hálfa milljón á skíðum innanlands n Skíðaferð fjögurra manna fjöl- skyldu til útlanda kostar 600.000 krónur n Vikuferð innanlands kost- ar um 155.000 krónur n DV skoðaði hagstæðustu skíðaferðirnar„Bent var á að fjögurra manna fjölskylda gæti verið í stúdíóíbúð og lækkar þá upphæðin töluvert. Fékkst þá heildarupp- hæðin 540.000 krónur með akstri. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Ódýrt á skauta Fyrir þá sem ekki komast á skíði þetta árið má benda á að tilvalið er að skella sér á skauta en það getur verið mikil skemmtun fyrir fullorðna jafnt sem börn að renna sér á skautum. Auk þess fær maður góða hreyfingu út úr þessari íþrótt. Þrjár skautahallir eru á landinu, tvær eru á höfuðborgarsvæðinu og ein á Akureyri. Á milli salíbuna er svo hægt að fá sér hress- ingu, hvort sem það er heimatilbúið nesti og kakó á brúsa eða keypt á staðnum. Sjá má opnunartíma fyrir almenning á heimasíðum skautahallanna. Í Skautahöllinni í Laugardal er verðið inn á ísinn 600 krónur fyrir 16 ára og yngri en leiga á skautum 400 krónur. Leikskólabörn borgar aðeins 200 krónur fyrir aðgang og skauta en aðgangseyrir fyrir fullorðna er 850 krónur auk 400 króna í skautaleigu. Eins er boðið upp á fjölskyldupakka sem kostar 3.200 krónur en það er fyrir fjóra, þar af einn fullorðinn. Í skautahöllinni í Egilshöll er verðið 500 krónur fyrir börn og 700 fyrir fullorðna og leiga á skautum er 300 krónur. Fjölskyldupakki fyrir 4 með skautum er á 2.600 krónur. Á Akureyri fá börn yngri en 4 ára aðgang og skauta leigða á 300 krónur. Börn á aldrinum 5 til 16 ára borga 500 krónur en eldri 600 krónur. Skautaleiga fyrir alla 5 ára og eldri er 300 krónur. Eins er hægt að kaupa 10 tíma kort á 4.000 krónur. Skíðaíþróttin Að fara á skíði er góð útivera og mikil hreyfing.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.