Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Síða 15
Ráð gegn ferðaveiki Margir finna fyrir svokallaðri
ferðaveiki þegar þeir leggja land undir fót. Á síðunni heilusbanki.is má
finna ráð við slíkri veiki en þar er mælt með að hvíla sig vel daginn fyrir
brottför. Forðast skal áfenga drykki sem og djúpsteiktan og brasaðan
mat. Ráðlagt er að borða góðan morgunmat en forðast skal kaffið.
Bananar eru góðir til að narta í ef ógleðin gerir vart við sig og mikilvægt er
að drekka vel af vatni. Kóladrykkir eru einnig góðir en þá er betra að hafa
þá flata og eins er mælt með engiferöli. Engifer slær á ógleði svo hægt er
að tyggja engifer eða taka engiferhylki.
Kanill við ýmsum kvillum Kanill hefur lengi verið
notaður í matargerð og sem bragðefni í kökur en kanill er einnig talinn
getað hjálpað gegn meltingartruflunum, sveppasýkingu og liðagigt.
Hann á einnig að geta unnið gegn sykursýki ásamt því að geta hamið
vöxt krabbameinsfruma. Þetta kemur fram á síðu Leiðbeiningastöðvar
heimilanna. Kanill er unninn úr innri berki kaniltrésins en besti kanillinn
þykir sá sem kemur frá Sri Lanka. Góð og áhrifamikil blanda er að hræra
saman tvær matskeiðar af hunangi og 3 teskeiðar af kanil í um það bil
hálfan lítra af vatni eða tei og drekka daglega.
Neytendur | 15Miðvikudagur 12. janúar 2011
Sparaðu hálfa milljón
á skíðum innanlands
Kostnaður fyrir fjögurra manna
fjölskyldu í viku á Akureyri
Skíðaútbúnaður fyrir fjóra
36.600 krónur
Skíðapassi í viku fyrir fjóra
40.400 krónur
Ferðakostnaður með bíl
18.300 krónur*
Ferðakostnaður með flugi
52.620 krónur
Hótelgisting
96.600 krónur
Gisting á gistiheimili
60.000 krónur
Ódýrasti kosturinn fyrir fjölskylduna
hljóðar upp á 155.300 krónur.
Sé kosið að fljúga og gista á hóteli er
heildarupphæðin 226.220 krónur.
* (HvalfjaRðaRgöng innifalin)
Kostnaður fjölskyldu
Á Íslandi eru nokkur góð skíðasvæði sem
hægt er að heimsækja og má þar nefna
Ísafjörð, Dalvík, Siglufjörð og skíðasvæði
Reykjavíkur í Bláfjöllum og Skálafelli.
Skíðasvæði Reykjavíkur
Dagskort
Fullorðnir 2.200 krónur
Börn 650 krónur
Skíðaleiga: skíði, skór og stafir
Fullorðnir 3.500 krónur
Börn 3.000 krónur
Rúta frá Reykjavík
Fram og til baka 1.500 krónur
Skíðasvæði Ísafjarðar
Dagskort
Fullorðinir 1.900 krónur
Börn 800 krónur
7 daga kort
Fullorðnir 11.500 krónur
Börn 4.750 krónur
Skíðasvæði Dalvíkur
Dagskort
Fullorðnir 1.600 krónur
15 ára og yngri 700 krónur
Skíðasvæði Siglufjarðar
Dagskort
Börn 500 krónur
Fullorðnir 1.500 krónur
Skíðaleiga
Skíði 2.000 krónur
Bretti 2.000 krónur
Skíðaskór 700 krónur
Brettaskór 700 krónur
Skíði/skór/stafir 2.500 krónur
Bretti/skór 2.500 krónur
Skíðasvæði
Þá sé lítið af fólki í brekkunum og
þar gott að vera. Gistiheimilin eru
nokkur og til að mynda hjá AK-gist-
ingu mundi vikan kosta um 60.000
krónur í fjölskylduherbergi. Þar er
ekki boðið upp á morgunverð en
eldhúsaðstaða er fyrir gesti.
Hlíðarfjall Fólk á öllum
aldri skemmtir sér á skíðum.
Áramótin eru sá tími sem fólk
hugsar til baka yfir liðinn tíma en
horfir jafnframt fram á við. Algengt
er að fólk strengi áramótaheit við
þetta tækifæri og margir eru með
háleit markmið um þá hluti sem
þeir vilja breyta í lífi sínu. Oft fara
áramótaheitin á annan veg en
ætlað var og búast má við að ein-
hverjir reiðist sjálfum sér þegar
heitin eru ekki haldin.
„allt eða ekkert“ sjónarhornið
„Það þarf ekki að horfa á þetta út
frá „allt eða ekkert“ sjónarhorn-
inu. Það er aldrei allt tapað þó svo
þú fallir einu sinni,“ segir Árný
Ingvarsdóttir sálfræðingur. Hún
skrifaði grein um áramótaheit og
markmiðssetningu sem sjá má á
vefsíðunni fyrirfolk.is. Í greininni
segir að til séu þeir sem ákveða að
strengja ekki áramótaheit því þau
séu til þess eins fallin að vera svik-
in. Árný segir að til þess að auka
líkurnar á því að áramótaheitin
verði að veruleika sé mikilvægt að
byggja upp „góð markmið“ og vert
sé að hafa nokkur atriði í huga.
Skilgreina markmiðin
Í fyrsta lagi þarf að skilgreina
markmiðin vel. Hún segir að séu
þau óljós, til dæmis: „Ég ætla að
hugsa betur um heilsuna,“ sé erf-
itt að segja til um hvenær þeim
er náð. Í grein Árnýjar segir: „Ef
við hins vegar einsetjum okkur
til dæmis að mæta í spinning á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum, og fara í nudd síðasta
fimmtudag í hverjum mánuði eru
mun meiri líkur að við höldum því
til streitu þegar eldmóðurinn tek-
ur að dvína er líður á janúarmán-
uð.“
Hafa markmiðin sýnileg
Annað atriði sem þarf að hafa í
huga er að gott sé að markmið-
in séu sýnileg og aðgengileg. „Til
dæmis er hægt að skrifa þau á blað
og hengja upp í svefnherberginu
svo þau séu það fyrsta – og síðasta
– sem við sjáum á hverjum degi.“
Eitt í einu
Árný segir að mikilvægt sé að taka
eitt markmið fyrir í einu en ein af
helstu mistökum sem við gerum
við markmiðssetninguna er að
ætla okkur of mikið. Skynsamlegt
sé að gera lista yfir þau markmið
sem við viljum ná og byrja á einu
þeirra. „Um leið og markmiðið er
orðið að veruleika eða hegðun-
in sem við viljum tileinka okkur
er orðin að venju er tímabært að
snúa sér að því næsta,“ segir hún.
Sveigjanleiki í hugsun
Að lokum skal hafa í huga að ekki
má láta hindranir koma í veg fyrir
að við reynum að ná settum mark-
miðum. Ef við föllum af hestinum
er mikilvægt að fara upp á hann
aftur og halda áfram. „Við meg-
um ekki hugsa sem svo að fyrst
við héldum okkur ekki við plan-
ið, þá sé alveg eins gott að hætta
við.“ Hún segir að við eigum frek-
ar að tileinka okkur sveigjanleika í
hugsun og halda áfram þaðan sem
frá var horfið.
Margt smátt gerir eitt stórt
Árný bætir því við í lokin að við
verðum að muna að ekkert mark-
mið er óbrigðult. „Ef við komumst
að því að það sem við töldum rétt
hentar okkur ekki er um að gera
að breyta markmiðum sínum, að-
laga þau eða bæta. Einnig skul-
um við hafa í huga að margt smátt
gerir eitt stórt. Því kann að reynast
gott að búta stærri markmið nið-
ur í undirmarkmið, en það dregur
úr líkum á að okkur fallist hend-
ur vegna þess hversu fjarlægt eða
ósnertanlegt markmið okkar kann
að virðast.“
„ Í fyrsta lagi þarf
að skilgreina
markmiðin vel en séu
þau óljós er erfitt að
segja til um hvenær
þeim er náð.
Hafðu mark-
miðin sýnileg
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Sumum reynist erfitt að standa við áramótaheitin
n lykilatriði að skrifa markmiðin niður og hafa þau sýnileg
Áramótaheit Árný Ingvarsdóttir
sálfræðingur segir mikilvægt að skilgreina
markmiðin.
líkamsrækt Hvort sem
markmiðið er að standa sig vel í
ræktinni á nýju ár eða hætta að
reykja er mikilvægast að skrifa
markmiðin niður nákvæmlega og
hafa þau sýnileg.
MynD PHotoS.coM