Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Síða 16
Í síðustu viku greindi DV frá ferð
Lis Keqiang, næstráðanda í kín-
verska kommúnistaflokknum, til
Evrópu. Keqiang hóf ferð sína á
Spáni, þá fór hann á fund Angelu
Merkel í Þýskalandi og lauk síð-
an ferð sinni í Bretlandi þar sem
hann hitti meðal annars þá Dav-
id Cameron forsætisráðherra og
Nick Clegg varaforsætisráðherra.
Tilgangur ferðar Keqiangs var að
greiða götu viðskipta milli Kín-
verja og Evrópusambandsins en
þá lofaði hann einnig að Kínverjar
myndu leggja sitt lóð á vogarskál-
arnar til að kaupa upp ríkisskulda-
bréf skuldugra Evrópuríkja – aðal-
lega Portúgals og Spánar.
Með Keqiang í Evrópureisunni
voru 50 kínverskir embættismenn
auk hundrað manna sem teljast til
lykilmanna í kínversku viðskiptalífi.
Á ferð þeirra í Bretlandi, eða nánar
tiltekið í Skotlandi, var skrifað undir
viðskiptasamninga sem eru metnir á
það sem samsvarar um 480 milljörð-
um króna. En lykillinn að samning-
unum er talinn vera loforð Kínverja
um að útvega Skotum pandabirni,
sem hafa ekki sést þar um slóðir í 17
ár.
Pandabirnir fyrir
olíuhreinsistöð
Nick Clegg ferðaðist með Li Keqi-
ang og föruneyti hans til Skotlands
þar sem skrifað var undir samninga
milli Petro China, stærsta olíufyrir-
tækis Kínverja, og Grangemouth-
olíuhreinsistöðvarinnar sem er sú
stærsta sinnar tegundar í Skotlandi.
Samningarnir tryggja olíuhreinsi-
stöðinni fjármagn sem þýðir að
störf 2.000 starfsmanna Grangem-
outh-stöðvarinnar eru ekki lengur í
hættu.
Rósin í hnappagatið var þó
samningur sem þeir Clegg og Keqi-
ang undirrituðu persónulega, þess
efnis að dýragarðurinn í Edinborg
fengi senn pandabirni af báðum
kynjum – sem geta þá fjölgað sér.
Bretar eru hæstánægðir með þess-
ar málalyktir, en samningavið-
ræður milli breskra og kínverskra
stjórnvalda um möguleikann á að
fá pandabirni hafa staðið yfir í fimm
ár. Síðasta pandabirnan í Bretlandi,
Ming Ming, bjó í dýragarðinum í
Lundúnum uns henni var skilað til
Kína árið 1994.
Cameron vakti máls
á mannréttindum
Stjórnmálaskýrendur eru á einu
máli um að Kínverjar hafi með Evr-
ópureisu Lis Keqiang verið að leit-
ast eftir því að bæta ímynd sína í
Evrópu svo greiða megi götu við-
skipta í náinni framtíð. Var föru-
neyti Keqiangs vel tekið og sagði
David Cameron meðal annars að
markmið Breta væri að auka út-
flutning á breskum vörum til Kína.
16 | Erlent 12. janúar 2011 Miðvikudagur
Flóðin í Queensland í Ástralíu halda áfram. Að minnsta kosti níu eru látnir og 70 er saknað:
Neyðarástand í Ástralíu
Ástandið fer versnandi í Queens-
land í Ástralíu vegna gífurlegra flóða.
Rignt hefur látlaust síðan á aðfanga-
dag og tala Ástralar nú um verstu
flóð á svæðinu frá því 1974, þegar
stór flóð ollu miklu tjóni á svæðinu.
Landsvæðið sem hefur farið undir
vatn er stærra að flatarmáli en Þýska-
land og Frakkland til samans. Í síð-
ustu viku var vonast til þess að flóð-
in væru í rénun en um helgina jókst
rigning á ný. Nú er svo komið að um
30 þúsund hús eru talin ónýt vegna
flóðanna og hundruð þúsunda hafa
þurft að yfirgefa heimili sín á með-
an það versta gengur yfir. Ljóst er að
níu manns hafa þegar týnt lífi í flóð-
unum og yfir 70 er saknað. Af þeim
sem er saknað er fjöldi ungra barna,
og fimm þeirra sem hafa látist voru á
barnsaldri.
Flóðin eru nú talin ógna Bris-
bane, sem er stærsta borgin í
Queens land. Eftir mikið úrhelli í
bænum Toowoomba, sem er í 600
metra hæð yfir sjávarmáli, renn-
ur nú regnvatnið á miklum hraða
í átt til Brisbane. Þar eru ár þeg-
ar farnar að flæða yfir bakka sína.
Forsætisráðherra Queensland-rík-
is, Anna Bligh, segir að íbúar Bris-
bane standi nú frammi fyrir mestu
náttúruhamförum sem sést hafa í
ríkinu síðastliðin 30 ár. „Við erum
nú að ganga í gegnum skelfileg-
ar raunir. Ég hvet því alla til að
sýna stillingu, þolinmæði og sam-
heldni.“ Forsætisráðherra Ástralíu,
Julia Gillard, tók í sama streng en
varaði jafnframt við því að tala lát-
inna gæti farið hækkandi.
bjorn@dv.is
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Bíða björgunar uppi á þaki Vatnsstraumurinn umlykur þetta hús í Toowoomba.
Pandabirnir innsigla
viðskiptasamninga
n Evrópureisu Lis Keqiang, næstráðanda Kínverja, lauk í Bretlandi með viðskiptasamningum sem
eru metnir á 480 milljarða íslenskra króna n Loforð um að Bretar fengju pandabirni innsiglaði
samninginn n David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, vill auka viðskipti við Kínverja
Innsigla samninginn Zhang Yongli,
fulltrúi Kínverja, og Donald Emslie, yfir-
maður dýragarðsmála í Skotlandi, innsigla
samninginn um pöndurnar.
„Rósin í hnappagatið var þó
samningur sem þeir Clegg og
Keqiang undirrituðu persónulega,
þess efnis að dýragarðurinn í Edinborg
fengi senn pandabirni.
Hnerraði
byssukúlu
Ótrúlegt þykir að Ítalinn Darco
Sangermano hafi lifað það af þeg-
ar hann fékk byssukúlu í höfuðið á
nýársnótt í hafnarborginni Napólí.
Þar um slóðir tíðkast það að byss-
ueigendur skjóti af byssum sínum
upp í loftið þegar nýju ári er fagn-
að. Sangermano var á leið úr kirkju
þegar kúla úr riffli datt af himnum
ofan og hæfði hann í ennið. Kúlan
hægði á sér og endaði fyrir aftan
hægra auga Sangermanos, án þess
þó að skaða augað. Mikið blæddi úr
nefi Sangermanos en þegar hann
var kominn á spítala hnerraði hann
og kúlan skaust út um nefið. Eftir að
hafa gengist undir aðgerð, þar sem
lausar beinflísar voru fjarlægðar, var
Sangermano útskrifaður af sjúkra-
húsinu og mun hann ná fullum bata
að sögn lækna.
Fyrrverandi leið-
togi repúblikana
í fangelsi
Tom DeLay, fyrrverandi leiðtogi
repúblikana í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings, hefur verið dæmdur til
fimm ára fangelsisvistar. DeLay var
fundinn sekur um peningaþvætti og
glæpsamlegt samsæri. DeLay er gef-
ið að sök að hafa komið fjármunum
með ólöglegum hætti til frambjóð-
enda repúblikanaflokksins í Texas
árið 2003. DeLay sagðist við úrskurð
dómara vera saklaus. „Dómari, ég
get ekki sýnt iðrun vegna einhvers
sem ég tel að ég hafi ekki gert,“ sagði
DeLay, þegar dómarinn spurði hvort
hann sæi eftir glæpum sínum.
Assange gæti
verið líflátinn
Lögfræðingar Julians Assange, að-
alritstjóra uppljóstrunarsíðunnar
Wikileaks, segja að verði skjólstæð-
ingur þeirra framseldur til Svíþjóðar
séu góðar líkur á því að hann verði
framseldur þaðan til Bandaríkj-
anna. Í Bandaríkjunum gæti Ass-
ange átt von á því að verða haldið í
fangabúðunum í Guantanamo, eða
í versta falli verða tekinn af lífi fyrir
njósnastarfsemi. Þetta sagði Mark
Stephens, aðalverjandi Assange, við
dómara í Bretlandi eftir stuttan fund
í gær, þar sem fjallað var um fram-
salsbeiðni Svía. Assange segir að
Wikileaks muni halda sínu striki og
að búast megi við miklu af gögnum
innan skamms frá samstarfsaðilum
uppljóstrunarsíðunnar.