Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2011, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2011, Page 2
2 | Fréttir 16. febrúar 2011 Miðvikudagur Í Icesave-málinu endurspeglast á ýms- an hátt dýpri sannleikur um stöðu ís- lenskra stjórnmála en finna má í öðr- um pólitískum átakamálum. Í fyrsta lagi hefur fyrirliggjandi Ice- save-samningur við Hollendinga og Breta framkallað uppgjör innan Sjálf- stæðisflokksins. Í öðru lagi geta afdrif þessa samnings ráðið úrslitum um framtíð ríkisstjórnar Samfylkingarinn- ar og Vinstri grænna, fyrstu hreinu rík- isstjórn jafnaðar- og vinstrimanna frá stofnun lýðveldisins árið 1944. Niður- staðan um Icesave getur þar af leið- andi – og í þriðja lagi – haft afgerandi áhrif innanflokks í VG og á styrk flokks- ins til áframhaldandi stjórnarsetu. Samábyrg stjórnarandstaða Þótt Geir H. Haarde, Bjarni Benedikts- son og fleiri forystumenn flokksins hafi í ríkisstjórn með Samfylkingunni samið um ábyrgð íslenska ríkisins á innstæðum breskra og og hollenskra sparifjáreigenda í Landsbankanum haustið 2008 snérist Bjarni gegn síðari útgáfum Icesave-samninga þótt skárri væru. Hægriöfl innan flokksins gengu lengst gegn samningum þegar fram í sótti og afstaða flokksins virtist fara saman við harðlínu Morgunblaðsins. Andstaðan við fyrri gerð Icesave- samningsins náði langt inn í raðir stjórnarliða. Stjórnarsamstarfið nötr- aði og loft var lævi blandið innan VG þegar Ögmundur Jónasson sagði af sér ráðherradómi í lok september 2009, fyrst og síðast vegna átaka um Icesave-skuldbindingarnar. Sjálfstæð- isflokkurinn dró ekkert af sér í and- stöðu. Forsetinn synjaði Icesave-lög- um staðfestingar í ársbyrjun 2010 en þau voru síðar felld í þjóðaratkvæða- greiðslu. Í kjölfar þeirrar atburðarásar neyddist ríkisstjórnin til þess að taka á málinu á þverpólitískan hátt. Það verklag endurspeglaðist síðar í skip- an samninganefndar þar sem fulltrú- ar stjórnarandstöðunnar voru áber- andi. Stjórnarandstæðingar báru þar með einnig ábyrgð á framvindu Ice- save-málsins. Undan þeirri ábyrgð víkur formaður Sjálfstæðisflokksins sér ekki nú. Línur skerpast innanflokks Það þóttu umtalsverð pólitísk tíðindi þegar Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, og meirihluti þingflokksins ákváðu að styðja núver- andi gerð Icesave-samningsins. Þing- flokkurinn fylkti sér ekki einhuga bak formanni sínum og sýnir það að mik- il áhætta var tekin. Bjarni fylgdi eftir ákvörðun sinni á fundi í Valhöll nokkr- um dögum síðar. Þar hafði hann með- al annars fengið tvo fyrrverandi flokks- formenn, Geir H. Haarde og Þorstein Pálsson, til liðs við sig, en þeir lýstu opinberum stuðningi við Bjarna og flokksforystuna. Þetta kallaði að sínu leyti á hörð viðbrögð andstæðinga Icesave-samninga innan flokksins sem birtist ekki síst í ritstjórnarefni Morgunblaðsins undir stjórn Davíðs Oddssonar. Þá reyna hægriöfl innan flokksins að safna undirskriftum gegn Bjarna og stefnu hans og stilla sér þar í raun við hlið InDefence og formanns Framsóknarflokksins. Röng herfræði að fella ríkisstjórnina? Hverjir voru kostir Bjarna? – Hann, sem formaður Sjálfstæðisflokksins, hefði vissulega getað lýst andstöðu við núverandi Icesave-samning þrátt fyrir orð hans eigin samningamanna um að lengra yrði ekki komist og dómstóla- leið væri áhættusöm. Með því að lýsa andstöðu Sjálfstæðisflokksins hefði söfnun undirskrifta gegn samningn- um fengið byr í seglin og líkur á annarri þjóðaratkvæðagreiðslu hefðu aukist til muna. Líkur á að samningnum yrði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu hefðu við slíkar aðstæður verið umtalsverðar og dagar ríkisstjórnarinnar jafnframt verið taldir. Vel má vera að það hljómi vel í eyrum margra sjálfstæðismanna en böggull fylgir skammrifi. Ef dómstólaleiðin yrði farin Ef þessi yrði framvindan og Icesave yrði útkljáð fyrir dómstólum er und- ir hælinn lagt hvort Íslendingar hefðu betur. Jafnvel er hugsanlegt að krafist yrði svimandi hárra skaðabóta með- al annars vegna þess að Landsbank- inn var ekki greiðslufær löngu áður en hann féll og háður söfnun sparifjár meðal Hollendinga síðustu mánuð- ina fyrir fallið. Líkur eru á því að það yrði algerlega talin ábyrgð ríkisins að hafa ekki gert grein fyrir því að eigið fé bankans var komið langt niður fyrir lögleg hættumörk. Sjálfstæðisflokkurinn ætti við þess- ar aðstæður erfitt með að koma sér undan ábyrgðinni á slíku dómstóla- klúðri og stórfelldu tjóni þjóðarinnar. Framtíð Bjarna á formannsstóli yrði þar með hugsanlega ráðin. Bjarna, rágjöfum hans og stuðn- ingsmönnum, var því nauðugur einn kostur að taka af skarið og lýsa stuðn- ingi við núverandi Icesave-samn- ing frekar en að taka áhættu með herskáum andstæðingum samninga við Breta og Hollendinga og freista þess um leið að fella ríkisstjórnina. Ákvörðun Bjarna er stórpólitísk og markar vatnaskil innan Sjálfstæð- isflokksins. Með ákvörðun sinni um stuðning við Icesave-samninginn hef- ur Bjarni framkallað uppgjör við Dav- íð Oddsson og hægriarm flokksins. Sá armur hefur risið til varnar. Harð- ir andstæðingar Bjarna í Icesave-mál- inu – þeirra á meðal Samtök fullveld- issinna - safna nú undirskriftum þar sem hvatt er til þess að Icesave-lögum verði vísað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Vandinn í VG Hvernig getur kúvending Bjarna og meirihluta þingflokks Sjálfstæðis- flokksins haft áhrif á stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og VG? Helstu erfiðleikarnir í samstarfi stjórnarflokkanna tengjast „órólegu deildinni“ svonefndu innan VG. Mjög tvísýnt hefur verið um þingmeirihlut- ann í ýmsum málum. Skömmu fyrir jól kusu þrír þingmenn VG, Ásmund- ur Einar Daðason, Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir, að styðja ekki fjár- lagafrumvarp formanns síns, Stein- gríms J. Sigfússonar. Væringar héldu áfram og brigslyrði gengu á víxl innan flokksins út allan janúarmánuð innan um fundahöld þingflokksins þar sem reynt var að bera klæði á vopnin. Trú- verðugleiki og traust til flokksins eykst varla við slíkar aðstæður. Þótt formenn stjórnarflokkanna og nánustu trúnaðarmenn þeirra standi einarðlega saman um ríkisstjórnar- samstarfið er ljóst að þreytu gætir innan Samfylkingarinnar. Það skap- raunaði órólegu deildinni í VG þeg- ar Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, færði þennan nún- ing í tal á flokksstjórnarfundi í lok jan- úar. Hún talaði um að hluti VG hefði skaðað stjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar. „En það er hættulegur leikur að spila póli tískan einleik á kostnað samstarfs- félaga sinna í trausti þess að samstaða annarra og stuðningur við óvinsælar en óhjákvæmilegar ákvarðanir tryggi að upp úr stjórnarsamstarfinu slitni ekki. Hættulegur leikur sem gæti end- að öðruvísi en menn ætla [...] Stjórnar- liðar verða allir að gera upp við sam- visku sína hvernig þeir vilja að arfleifð þessa ríkisstjórnarsamstarfs verði,“ sagði Jóhanna. Málefni og samvinna Síðan Jóhanna tjáði sig með svo n „Hættulegur leikur sem getur endað öðruvísi en menn ætla“ n Jóhanna og fleiri sam- fylkingarmenn senda VG tóninn n Bjarni styður Icesave. Samþykkir hann næst umsókn um aðild að ESB? n Endist fyrsta hreina vinstristjórnin ekki út eitt kjörtímabil? „Getur endað öðru- vísi en menn ætla“ Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johann@dv.is Sendi VG tóninn „Það er hættulegur leikur að spila pólitískan einleik á kostnað samstarfsfélaga sinna,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir um órólegu deildina í VG á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. Veikleikarnir í VG Það veltur fyrst og fremst á Steingrími J. Sigfússyni og forystu VG hvort ríkisstjórnarsamstarfið endist út kjörtímabilið. Stjórnkænska eða nauðung? Bjarni Benediktsson þótti taka ögrandi ákvörðun gegn heimastjórnararmi Sjálfstæðisflokksins með stuðningi við Icesave-samninginn. Lík- lega voru aðrir kostir verri í stöðu formannsins. Fyrrverandi flokksformaður Tveir fyrrver- andi flokksformenn fylgja Bjarna Benediktssyni í Icesave-málinu. Á myndinni er Geir H. Haarde ásamt Ingu Jónu Þórðardóttur, eiginkonu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.