Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2011, Side 12
Mörður biðst
afsökunar
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingar og formaður umhverf-
isnefndar Alþingis, bað Vigdísi
Hauksdóttur, þingmann Framsókn-
arflokksins, afsökunar á harðneskju-
legri fundarstjórn á fundi nefndar-
innar í gærmorgun. Vigdís sakaði
Mörð um að hrópa á stjórnarand-
stæðinga, gekk af fundinum og sagði
sig úr nefndinni í kjölfarið. „Við tók-
umst svo í hendur á eftir í þinginu
og ég held að málið endi eins vel
og hægt er. Svo bara læra menn af
þessu, menn læra hver á annan og á
gott og rétt samstarf,“ sagði Mörður
af yfirlýstri einlægni og bað Vigdísi
að endurskoða ákvörðun sína. Hún
gerði það.
Leiða stjörnur
inn á völlinn
Tvö íslensk börn verð í hópi þeirra
barna sem leiða stórlið Arsenal og
Barcelona inn á Emirates-völlinn
í Lundúnum á miðvikudagskvöld
þegar liðin eigast við í 16 liða úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu.
Sóley Björk Hauksdóttir, 8 ára,
og Stefán Arnar Einarsson, 7 ára,
voru valin úr hópi nokkurra þús-
unda íslenskra barna sem sóttu
um að fá að gera þetta.
12 | Fréttir 16. febrúar 2011 Miðvikudagur
Skuldugasti
bankastjórinn
er hættur
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hefur
sagt upp störfum sem forstjóri Sögu
Fjárfestingarbanka á Akureyri í skugga
rannsóknar sér-
staks saksóknara
á allsherjarmark-
aðsmisnotkun
Kaupþings á ár-
unum fyrir hrun.
Þorvaldur var
framkvæmda-
stjóri eigin við-
skipta hjá Kaup-
þingi. Þorvaldur
gaf til kynna að skilnaði að umfjöllun
fjölmiðla hefði verið honum þungbær.
„Umhverfi bankans hefur verið erfitt
og aðstæður allar í samfélaginu og
fjölmiðlaumhverfi þungar á undan-
förnum árum,“ sagði hann í yfirlýsingu.
Undanfarið hefur Saga Fjárfestingar-
banki verið í fréttum vegna innheimtu
á lánum til stofnfjáraukningar til íbúa á
Dalvík og í nágrenni og vegna ráðninga
kúlulánaþega til bankans.
DV greindi í ársbyrjun frá erfiðri
skuldastöðu Þorvaldar Lúðvíks. Í úttekt
DV kom meðal annars fram að hann
skuldaði vel á annan milljarð króna og
eru þær skuldir í eignarhaldsfélagi og á
honum persónulega.
Við þetta bætist að Þorvaldur Lúð-
vík hefur verið yfirheyrður í tveim-
ur málum sem sérstakur saksóknari
íslenska efnahagshrunsins hefur verið
með til rannsóknar.
12. janúar
„Hann er lítil tifandi tímasprengja, fár-
veikur og enginn vill hjálpa honum. Ef
þetta heldur svona áfram endar þetta
með ósköpum,“ segir móðir fimmt-
án ára drengs sem glímir við bæði
geðraskanir og þroskafrávik, en hann
er greindur með ADHD með mikilli
hvatvísi, þráhyggju og árátturöskun,
fælni, tourette, mótþróaþrjóskurösk-
un, einhverfu, misþroska og tornæmi,
sykursýki og hegðunarröskun.
Sonur hennar tekur reglulega æð-
isköst þar sem hann eyðileggur allt
sem á vegi hans verður og hefur ótal
sinnum beitt fólk ofbeldi sem kem-
ur að hans málum, hvort sem það er
móðir hans, kennarar, starfsmenn
Barna og unglingageðdeildar Land-
spítalans (BUGL) eða samnemendur í
skóla. Hann hefur brotið sér leið gegn-
um rúðu í neyðarherbergi á BUGL
þrátt fyrir að vera vaktaður af tveim-
ur starfsmönnum, verið yfirbugaður
af lögreglu og haldið starfsmanni sem
var með hann í liðveislu í gíslingu í bíl
á meðan hann ógnaði honum með
hnífi bara til að nefna fátt.
Engu að síður þarf móðir hans að
berjast fyrir því að hann sé vistaður
á stað þar sem hann getur ekki farið
sjálfum sér og öðrum að voða og ell-
efu ára systir hans þjáist af miklum
svefntruflunum og kvíða vegna erfiðr-
ar nærveru hans á heimilinu.
Ógnaði með hnífi
Vegna þess hversu fjölbreytt og al-
varleg hans veikindi eru segist móð-
ir hans koma alls staðar að lokuð-
um dyrum en hún segir mikla þörf á
langtímaúrræði fyrir börn og unglinga
með fjölkvilla og sem sýna ofbeldis-
hegðun, þar sem enginn treysti í kerf-
inu sér til að hafa strákinn.
Sem stendur er drengurinn í
styrktu fóstri á vistheimili úti á landi
en móðir hans kvíðir því daglega að
hún fái símhringingu þar sem henni
verði tjáð að gefist hafi verið upp á
honum eða drengurinn sé orðinn
svo veikur að hann sé búinn að skaða
sjálfan sig eða aðra íbúa á bænum.
Í janúar síðastliðnum gerðist það
í tvígang að drengurinn ógnaði með
hnífi. Í fyrra skiptið kom hann heim
með fjaðurhníf eftir að hafa ver-
ið í heimsókn hjá föður sínum, en í
seinna skiptið hafði hann orðið sér
úti um stóran veiðihníf og öxi. „Pabbi
hans gaf honum þennan hníf, sem er
auðvitað alveg út í hött en hann hef-
ur ekki haft mikið samband við pabba
sinn og þess vegna var þessi gjöf hon-
um mjög kær.
Ég sagði við hann að hann hefði
ekkert með það að gera að vera með
hníf í vasanum og bað hann um að af-
henda mér hann. Þá tók hann æðis-
kast og braut hurðina að herberginu
sínu, kastaði stólum og borðum, fór
út á svalir og eyðilagði hluta af báru-
járni sem er utan á húsinu. Síðan rauk
hann út með hnífinn.
Ég fann hann síðan niðri í bíla-
kjallara í lítilli geymslu þar. Ég sagði
honum að þetta væri ekki í boði og
bað hann um að afhenda mér hníf-
inn. Þá varð hann gjörsamlega tryllt-
ur. Hann rauk að mér með hnífinn í
hendinni og ég rétt náði að læsa mig
inni í geymslunni áður hann réðst á
mig. Þá sparkaði hann í hurðina og
náði að brjóta hana niður.“
Blóðugur fyrir utan blokkina
Eftir að hafa brotið niður hurðina að
geymslunni hljóp drengurinn í burtu.
Uppi í íbúðinni stóð ellefu ára dóttir
hennar öskugrá og stjörf í framan og
sagði móður sinni að bróðir hennar
hefði tekið stóra hnífinn úr eldhúss-
kúffunni og hlaupið út. „Þegar ég leit
út var hann alveg argandi brjálað-
ur fyrir utan blokkina með hnífinn í
hendinni. Hann var alblóðugur þar
sem hann hafði skorið sig á hend-
inni og var með blóðnasir og skurð á
enni. Ég hringdi í lögregluna sem kom
og einn lögreglumaðurinn reyndi að
tala um fyrir drengnum. Hann öskr-
aði bara á hann og kastaði í hann
grjóti svo hann snéri sér við og tal-
aði eitthvað í talstöðina. Áður en ég
vissi af voru tíu lögreglumenn komn-
ir í kringum strákinn en þeir höfðu þá
verið í felum í nágrenninu. Þeir stukku
á hann, handjárnuðu hann og fluttu
hann burtu öskrandi í lögreglubíl.“
Þar sem drengurinn er aðeins
fimmtán ára mátti ekki halda hon-
um á lögreglustöðinni en mamma
hans sagði lögreglunni að hún treysti
sér ekki til að taka við honum heim.
Hvorki BUGL né Stuðlar sögðust geta
vistað drenginn og eftir að hafa ítrek-
að þurft að segja barnaverndarfulltrúa
að hún vildi ekki taka við stráknum í
þessu ástandi, bæði sín vegna og yngri
systkina hans, var á endanum fund-
ið pláss fyrir hann í neyðarvistun yfir
nóttina.
Keyrðu hratt, eða deyðu
Daginn eftir var hringt og hún beðin
um að sækja hann. „Ég sagðist ekki
geta tekið við honum nema fá aðstoð
inn á heimilið en þá var ég sökuð um
að vera ósammvinnufús. En eftir tólf
vikur þar sem hann var í miklum veik-
indum, nánast í sturlunarástandi, og
átta vikur í úrræðaleysi og bið eftir
svörum var mér nóg boðið.“ Það varð
til þess að drengurinn fékk liðveislu á
heimili sitt í tíu tíma á dag í tvær vikur.
Seinna náði hann aftur í hníf sem
móðir hans segir enn þann dag í dag
ekki vita hvernig hann hafi orðið sér
úti um.
Bílferð með einstaklingi úr lið-
veislunni endaði með skelfingu þeg-
ar drengurinn dró stóran hníf upp úr
vasa sínum og sagðist ætla að drepa
hann ef hann keyrði ekki á ofsa-
hraða. Maðurinn náði að tala hann
til og keyra hann heim en sagðist ekki
treysta sér í frekari liðveislu eftir það.
Þegar móðirin spurði drenginn út í at-
vikið kom hann af fjöllum og sagðist
ekki hafa hugmynd um hvers vegna
þessi liðveilsa hefði ekki gengið sem
skyldi.
Réðst á starfsfólkið
Aðdragandinn að þessu atviki var
langur en drengurinn hafði verið á
fósturheimili í sveit þar sem hann hef-
„Hann rauk að
mér með hnífinn í
hendinni.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Móðir 15 ára ofbeldisfulls drengs talar út n Hann hefur ógnað
mömmu sinni með hnífi n Liðveislan gafst upp eftir líflátshót-
un n Hann er svo veikur að enginn getur tekið við honum
SONUR MINN
ER TIFANDI
TÍMASPRENGJA
12 ára barátta Hann var fyrst greindur þriggja ára. Nú er hann greindur með ADHD
með mikilli hvatvísi, þráhyggju og árátturöskun, fælni, tourette, mótþróaþrjóskuröskun,
einhverfu, misþroska og tornæmi, sykursýki og hegðunarröskun. Myndin tengist efni
greinarinnar ekki beint.