Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 18
18 | Erlent 4.–6. mars 2011 Helgarblað
Mohammad Yunus, nóbelsverð-
launahafinn frá Bangladess, hefur
verið skipað að stíga úr forstjórastóli
Grameen bankans. Það var Yunus
sjálfur sem stofnaði bankann í byrjun
9. áratugar síðustu aldar en hugmynd
hans að svokölluðum „míkrólánum“
þótti byltingarkennd. Öðlaðist Yun-
us heimsfrægð fyrir vikið og hlaut
hann friðarverðlaun Nóbels árið
2006 fyrir að hafa umbreytt lífi millj-
óna manna í Bangladess. Míkrólánin
hafa gert fátæku fólki kleift að fá hag-
stæð lán til að koma af stað atvinnu-
starfsemi, en hugmyndina fékk Yun-
us þegar hann sá fátækar konur búa
til stóla úr bambus í fátækasta hverfi
Chittagong – en þar starfaði Yunus
sem prófessor í hagfræði. Konurn-
ar þurftu að greiða allan hagnaðinn
af því að selja stólana til lánveitanda
og gátu því ekki keypt meiri bambus,
til að gera fleiri stóla. Yunus lánaði
þeim persónulega, og þar fór boltinn
að rúlla.
Of gamall
Yunus var rekinn úr starfi samkvæmt
fyrirskipun frá Seðlabanka Bangla-
dess, en samkvæmt honum hefur
Yunus brotið gegn lögum um starfs-
aldur. Í Bangladess er fólki skylt að
setjast í helgan stein við 60 ára aldur,
en Yunus er sjötugur að aldri.
Flestum þykir þó líklegra að brott-
för Yunus tengist útistöðum hans við
forsætisráðherra Bangladess, Sheikh
Hasina. Í nóvember síðastliðnum
var Yunus, í heimildamynd sem gerð
hafði verið um Grameen bankann,
sakaður um að hafa dregið sér fé. Þar
á meðal átti að vera fé sem bankinn
hafði þegið frá norsku ríkisstjórninni
sem þróunaraðstoð. Yunus vísaði
öllum slíkum ásökunum á bug, og
það gerði líka þróunarmálaráðherra
Noregs, sem hafði beina vitneskju
um hvernig hinu norska fé hafði
verið varið. Hasina fór þó fram á að
starfsemi bankans yrði tekin til end-
urskoðunar, en fréttaskýrendur segja
að hún sé enn reið út í Yunus fyrir að
lýsa því yfir árið 2006 að hann kynni
að fara út í stjórnmálastarfsemi. Has-
ina sagði eftir að hafa séð umrædda
heimildamynd, að Yunus væri að
„sjúga fé frá fólkinu sem hann hefur
lánað.“
Mun halda áfram
Yunus hefur síðan í desember stað-
ið fyrir alþjóðlegri herferð fyrir því
að stjórnvöld í Bangladess virði sjálf-
stæði Grameen bankans. Meðal
þekktra stuðningsmanna hans má
nefna Bill Clinton, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, og Kofi Annan,
fyrrverandi aðalritara Sameinuðu
þjóðanna. Í yfirlýsingu frá Grameen
bankanum sem birtist á miðvikudag
kom fram að bankinn hefði farið að
lögum og skipað nýjan forstjóra. Lög-
fræðiteymi bankans vinnur þó að því
að halda Yunus í starfi, og mun hann
líklega halda áfram að stýra bankan-
um, þó það verði ekki að nafninu til.
n Handhafi friðarverðlauna Nóbels og stofnandi Grameen bankans, Mohammad
Yunus, hefur verið rekinn frá eigin banka n Hefur umbreytt lífi milljóna til hins
betra n Forsætisráðherrann, Sheikh Hasina, hefur haft horn í síðu Yunus
„Hasina sagði að
Yunus væri að
„sjúga fé frá fólkinu sem
hann hefur lánað.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Yunus rekinn
frá eigin banka
Mohammad Yunus Öðlaðist heimsfrægð fyrir míkrólánastarfsemi og hlaut friðarverð-
laun Nóbels árið 2006.
Sheikh Hasina Forsætisráðherra
Bangladess hefur horn í síðu Yunus.
Muammar al-Gaddafi tekinn til rannsóknar hjá Alþjóðaglæpadómstólnum:
Gaddafi til rannsóknar
Muammar al-Gaddafi, leiðtogi Líb-
íu, hefur fengið þau skilaboð frá Al-
þjóðaglæpadómstólnum í Haag, að
hann kunni að verða ákærður fyr-
ir stríðsglæpi. Yfirsaksóknari dóm-
stólsins, Luis Moreno-Ocampo,
sagði að rannsókn væri þegar haf-
in á „Gaddafi og hans innsta hring,
en þar eru meðtaldir synir hans sem
stýra í raun öryggissveitum Gadd-
afis.“ Fórnarlömbin í byltingunni í
Líbíu telja nú vel á annað þúsund, en
sú tala gæti verið mun hærri. Gaddafi
hefur miskunnarlaust reynt að berja
niður byltinguna allt síðan hún hófst
15. febrúar. „Rannsóknin beinist að
Gaddafi fyrir að hafa skipað öryggis-
sveitum sínum gegn almenningi sem
stundaði friðsamleg mótmæli. Rann-
sóknin mun beinast að alvarlegustu
glæpunum og þeim sem eru ábyrgir
fyrir þeim,“ sagði Moreno-Ocampo.
Gaddafi hefur farið mikinn á síð-
ustu dögum í stríði sínu gegn mót-
mælendum. Á miðvikudag fyrirskip-
aði hann flugher sínum að varpa
sprengjum á borgina Brega í austur-
hluta Líbíu, en þar höfðu mótmæl-
endur náð undirtökum. Sprengju-
regnið hélt áfram á fimmtudag en
fréttir frá Brega hafa reynst af skorn-
um skammti. Bresk yfirvöld fengu
staðfest að einn þeirra sem féllu í
Brega hafi verið breskur ríkisborgari,
sjö barna faðir frá Manchester. Saif
al-Islam, sonur Gaddafis, var beðinn
um viðbrögð við sprengjuregninu í
Brega. Hann sagði að loftárásirnar á
borgina hefðu ekki átt sér stað: „Þetta
er allt saman stór misskilningur.“
Luis Moreno-Ocampo Yfirsaksóknari
Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag.
Lokað fyrir
rafmagnið
Forseti Fílabeinsstrandarinnar,
Laurent Gbagbo, hefur lokað fyr-
ir rafmagn til norðurhluta lands-
ins, sem er undir stjórn stuðnings-
manna Alassanes Ouattara. Eins
og frægt er orðið tapaði Gbagbo í
forsetakosningum fyrir Ouattara í
nóvember í fyrra, en hefur neitað
að viðurkenna úrslitin og situr enn
sem fastast. Hann sagði við eftirlits-
menn frá Sameinuðu þjóðunum að
lokað hefði verið fyrir rafmagninð af
„pólitískum ástæðum“. Eftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna fullyrða að
Fílabeinsströndin sé á barmi borg-
arastyrjaldar.
Frá Mílanó til Vínar
Karima El Mahroug, eða Ruby
hjartaþjófur eins og hún er kölluð á
Ítalíu, virðist ekki hata sviðsljósið.
Hún er einmitt ólögráða vændiskon-
an sem Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, er sakaður um að
hafa sængað hjá. Nú er Ruby búin
að flytja sig um set, í bili að minnsta
kosti. Hefur henni verið boðið að
fylgja austurríska milljarðamær-
ingnum Richard Lugner á hið árlega
Óperuball í Vínarborg, en það hef-
ur verið haldið síðan á 18. öld fyrir
heldri borgara Austurríkis. Lugner
er í það minnsta á svipuðum aldri
og Berlusconi, hann er 78 ára. Ruby
mun þiggja 40 þúsund evrur fyrir
greiðann.
Matvælaverð
aldrei hærra
Samkvæmt vísitölu Sameinuðu
þjóðanna um matvælaverð á heims-
markaði hefur matarverð aldrei
verið hærra en í febrúar síðastliðn-
um. Meðal þeirra afurða sem hafa
hækkað hvað mest eru kaffibaunir,
sem hafa tvöfaldast í verði, sem og
verð á hveiti sem hefur rúmlega tvö-
faldast. Verð á kakóbaunum hefur
einnig hækkað umtalsvert, eða um
40 prósent. Ástæðan fyrir hækkandi
matvælaverði er fyrst og fremst rakin
til átaka í heiminum. Átökin í Mið-
Austurlöndum hafa orsakað mikla
hækkun á olíuverði sem hefur áhrif
á landbúnað í heiminum. Hækkun
á kakóverði er bein afleiðing átaka á
Fílabeinsströndinni, sem er stærsti
kakóbaunaframleiðandi í heimi.