Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 33
Katrín
Sigurðardóttir
Við Metropolitan
safnið í New York.
Bernd
Ogrodnik
Er staddur í
Kanada að sýna.
33M E N N I N G A R V E R Ð L A U N D V 2 0 1 0H E L G I N 4 . – 6 . M A R S 2 0 1 1 LEIKLIST
MYNDLIST
Þetta er fyrst fremst viðurkenning á störf-um manns og ein-
hverju sem maður hefur verið að
berjast fyrir lengi,“ segir Bernd
Ogrodnik brúðugerðarmeistari
sem hlaut Menningarverðlaun
DV í flokki leiklistar. „Það er líka
mjög ánægjulegt að það sé verið
að verðlauna brúðuleiklistina og
það er mjög spennandi hvað það
er mikið líf í kringum brúðuleik-
hús á Íslandi núna,“ segir Bernd
sem er nú í Kanada að sýna og
gat því ekki tekið á móti verð-
laununum sjálfur. Það gerði eig-
inkona hans, Hildur Jónsdóttir,
en hún rekur Brúðuheima í Borg-
arnesi ásamt Bernd.
Það var ekki síst fyrir Brúðu-
heima sem Bernd hlaut verðlaun-
in en þá opnuðu Bernd og Hildur
síðastliðið vor. Brúðuheimar eru
í senn safn, kaffihús, vinnustofa
og brúðuleikhús og hafa fengið
frábærar móttökur. „Á Íslandi er
rosalega mikil virðing fyrir leik-
húsinu, sama af hvaða toga það
er. Þannig að þetta hefur bara
gengið vel og bara spennandi
tímar fram undan.“
Bernd segir að þótt hann hafi
hlotið verðlaunin að þessu sinni
eigi kona hans, Hildur, helming-
inn af heiðrinum og rúmlega það.
„Hún á mestan heiðurinn. Hún
gerir allt sem skiptir máli. Ég sé
bara um að leika mér með brúð-
urnar,“ segir hann og hlær.
Bernd kynntist brúðulist-
inni fyrst þegar hann var strák-
ur í Þýskalandi þar sem hann er
fæddur og uppalinn. „Þegar ég
var ungur sá ég brúðuleiksýn-
ingu sem ég heillaðist rosalega
mikið af og byrjaði strax að búa
til brúður sjálfur. Svo fór ég eins
og flestir aðrir brúðulistamenn að
læra eitthvað annað fyrst. Fór að
fikta með tónlist og hreyfilist. Svo
trélist og útskurðarlist. Það sem
heillar mig hvað mest við brúð-
ulistina er hvað þetta er stórt og
mikið listform. Það er svo mikið
innan þess sem maður getur gert.
Tónlist, leikhús, skáldskapur, út-
skurður og fleira og fleira.“
Bernd kom fyrst til Íslands árið
1982 en hann féll samstundis fyr-
ir landinu. „Þá dvaldi ég hérna í
þrjá mánuði. Ég kynntist frábær-
um hópi fólks sem kynnti mig
fyrir landinu. Þá kynntist ég líka
íslenska hestinum sem hefur alla
tíð síðan verið stór partur af mínu
lífi.“ Eftir það kom Bernd aftur og
aftur til landsins og dvaldi loks
hér í nokkur ár við gerð myndar-
innar Pappírs Pési sem var gríðar-
lega vinsæl barnamynd sem kom
út árið 1990. „Ég flutti svo út
til Bandaríkjanna og Kanada en
kom alltaf aftur og settist hér að
á endanum enda langbest að vera
hérna á Íslandi.“
Það er nóg um að vera í
Brúðuheimum á næstunni. Bernd
og Hildur standa fyrir sinni fyrstu
Frá Pappírs Pésa
til Brúðuheima
Bernd Ogrodnik er kominn langt í list sinni og segir
velgengnina konunni sinni Hildi að þakka.
alþjóðlegu brúðuleiklistarhátíð í
lok mars auk þess sem áframhald
verður á sýningunni Gilitrutt. En
að lokum spyr Bernd: „Hvernig er
veðrið heima á Íslandi? Ég er bú-
inn að vera hérna í 30 stiga frosti
og svei mér þá ef það var ekki
bara 40 í nótt. Ég get ekki beðið
eftir því að komast heim.“
Hildur
Jónsdóttir
Bernd
þakkar henni
velgengnina.
Ég er í fyrsta lagi ákaf-lega þakklát. Ég veit að dómnefndin er fólk
sem best er fært um það að dæma
hvað sé gott og hvað skipti máli
á Íslandi og af því sem íslenskir
listamenn eru að gera,“ sagði Katr-
ín Sigurðardóttir myndlistarkona
þegar henni var tjáð að hún hefði
hlotið Menningarverðlaun DV árið
2010 í flokki myndlistar. Katrín
hefur sýnt mikið undanfarin ár,
bæði hér á Íslandi og í Bandaríkj-
unum þar sem verk hennar hafa
hlotið mikla athygli. Nú síðast var
hún fengin til að búa til verk til
sýningar í tveimur sölum Metr-
opolitan-safnsins í New York sem
hún vinnur í samráði við safneign-
ina. „Ég hef aldrei lagt eins mikið
undir listrænt séð eins og í þessari
sýningu og þess vegna er ég mjög
þakklát fyrir það að fólk taki eftir
henni,“ segir Katrín.
Vill deila verðlaununum
Katrín vill deila verðlaunum sín-
um með öllum þeim sem tilnefnd-
ir voru í flokki myndlistar. „Vegna
þess að við erum öll úr sömu
hringiðunni, við erum öll vinir,
tölum saman og deilum reynslu
okkar og verkum og lærum af
hvert öðru,“ segir Katrín. „Í þess-
um hópi er fólk sem hefur verið
kennarar mínir, samkennarar mín-
ir og nemdendur mínir. Við erum
bara öll einn og sami hópurinn og
þess vegna eigum við það skilið að
eiga þessi verðlaun saman.“
Ómetanlegt að hafa konur sem
fyrirmynd
Hún vill þó sérstaklega minnast á
Hrafnhildi Schram í því samhengi,
vegna þeirra rannsókna sem hún
hefur stundað á síðustu árum í
þágu kvenna í myndlist. „Með því
að heiðra Hrafnhildi þá erum við
líka að heiðra allar þær íslensku
konur sem hafa verið að reyna
að stunda myndlist. Mín blessun
hefur verið sú að alveg síðan ég
var lítil hef ég verið umkrind mjög
sterkum konum í myndlist og
þær hafa verið mínar fyrirmynd-
ir. Það er ómetanlegt þegar konur
eru fyrirmyndir fyrir aðrar konur
í greinum sem hafa ekki, á tímum
viðkomandi kvenna, verið viðtek-
in störf fyrir konur.“
Hjartað á tveimur stöðum
Katrín segir það vera ofboðslega
gaman að fá þessi verðlaun fyr-
ir eitthvað sem hún hefur unnið
hörðum höndum að, ekki bara á
Íslandi, heldur einnig á erlendri
grundu. „Ég er mjög þakklát fyrir
það að augu manna á Íslandi bein-
ist líka út á við til þeirra Íslend-
inga sem vinna bæði á Íslandi og
erlendis. Að því leyti vil ég deila
þessum verðlaunum með okkur
„Aldrei lagt eins
mikið undir“
Katrín Sigurðardóttir vill deila verðlaununum með öllum sem tilnefndir voru.
öllum sem erum í þeirri
stöðu að kalla á athygli
að íslenskri myndlist frá
augum útlendinga.“ Hún
er bæði með vinnustofu í
Reykjavík og í New York og segist
búa jafn mikið á báðum stöðum.
„Ég er alls ekki í þeirri stöðu að
landamæri takmarki það hvernig
ég sé sjálfa mig og heimili mitt og
þess vegna lít ég svo á að ég búi
á báðum stöðum. Hjarta mitt er á
báðum stöðum.“ Katrín segir ýmis
skemmtileg verkefni vera fram
undan hjá sér sem þó sé ekki tíma-
bært að gera opinber strax.
Unnur móðir Katrínar
Tók við verðlaununum fyrir
hennar hönd.