Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 50
50 | Lífsstíll 4.–6. mars 2011 Helgarblað
Gerðu garðverkin skemmtilegri
Þýsk gæðatæki
sem auðvelda þér
garðvinnuna
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Keðjusagir
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Hekkklippur
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Úðabrúsar
1-20 ltr.
Með og án
þrýstijafnara
Sláttuorf
Rafmagns- eða
bensíndrifin
Garðsláttuvélar
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Sláttutraktorar
Ýmsar útfærslur
Einnig
mosatætarar,
jarðvegstætarar,
laufblásarar,
kantskerar
Kolbrá Bragadóttir, myndlistar-kona og verslunarstjóri í Karen Millen í Smáralind, er glæsi-
leg kona sem tekið er eftir. Hún er
dóttir Kolbrúnar Benediktsdóttur og
Braga Ásgeirssonar myndlistargagn-
rýnanda með meiru, og systir Fjölnis
„tattú“ Bragasonar.
Kolbrá sem verður fertug í sum-
ar segir unna matvöru, hvítt hveiti og
majónes ekki hafa góð áhrif á útlit-
ið en hún reykir og fer tvisvar á dag í
World Class.
Hvernig byrjar dagurinn hjá þér?
„Hann byrjar á því að vekjara-
klukkan hringir klukkan 6.20 og ég
fæ mér kaffibolla og sígarettu í ró og
næði áður en Askur Ari sonur minn
vaknar. Svo vek ég hann og fer á nátt-
fötunum í World Class. Skelli mér í
æfingagallann, æfi í klukkutíma eða
einn og hálfan, fer svo í sturtu, hef
mig til á tíu mínútum og fer í vinn-
una.“
Hvernig ferðu að þessu á tíu mín-
útum? Hvað gerir þú?
„Hyljari fyrir augun, maskari,
kinnalitur og svo leyfi ég hárinu að
þorna. Þetta tekur enga stund.“
Hver var fyrsta snyrtivaran sem þú
notaðir og hvernig gekk það?
„Rauður varalitur frá Chanel. Ég
var svona fjögurra ára. Mamma var
búin að safna sér fyrir þessum fína
varalit og leyfði sér að kaupa þetta.
Ég tók mig til og prófaði hann, og ekki
bara á varirnar heldur allt andlitið.
Varliturinn skemmdist auðvitað en
ég hef enn smekk fyrir Chanel.“
Hver er lykillinn að aðlaðandi út-
liti?
„Ég held að lykillinn sé sá að vera
glaður og í góðu skapi. Geisla af lífs-
gleði. Það er langfallegast á fólki. Ef ég
tek eftir öðrum konum þá tek ég ekki
eftir því í hverju þær eru eða hvern-
ing þær eru málaðar heldur tek ég
eftir gleði og sjálfsöryggi. Mér finnst
ekki fallegt þegar fólk er með krónísk-
an fýlusvip. Þú getur verið falleg, vel
tilhöfð og flott klædd en ef fýlusvip-
urinn er á andlitinu þá sést ekki feg-
urðin.“
Hugsar þú um heilsuna?
„Já, ég fer bæði fyrir og eftir vinnu
í ræktina fimm til sex sinnum í viku.
Á morgnana æfi ég í salnum og eftir
vinnu fer ég í hot jóga. Minn stærsti
löstur er eflaust sá að ég reyki og hef
gert síðan ég var tíu ára. Ég hef samt
alltaf hætt í kringum barneignir og
brjóstagjöf en ég á þrjú börn. Mér
finnst ekkert erfitt að hætta að reykja
en mér finnst bara lífið skemmti-
legra þegar ég reyki. Það er svo fínt að
drepa tímann með þessu og svona.
Gott líka þegar maður þarf að hugsa
um hlutina.“
Hvaða fæðu ætti maður að forðast
að þínu mati til að halda í fegurðina?
„Ég myndi segja hvítt hveiti og
majónes og þess háttar feitmeti og
sósur. Einnig allar unnar matvörur.“
Hvaða snyrtivöru kaupir þú aftur
og aftur?
„Kanebo Sensai Fluid Finish-farða
hef ég notað í svona fjögur ár. Hann er
léttur og fellur að húðinni og er ekki
gervilegur.“
Hvaða mistök gera Íslendingar
þegar kemur að útlitinu?
„Mitt heilræði er bara „less is
more“. Konur og karlar eiga það til
að fara yfir mörkin og gera of mikið,
ofhlaða stílum, hárgreiðslu, förðun
og þess háttar. Það mætti vera meiri
fágun hjá okkur og fólk mætti líka
vera sjálfstæðara í fatavali. Það eru of
margir að eltast við það sama. Bæði
unglingar og fullorðnir.“
Nefndu manneskjur sem þér finnst
flottar í tauinu.
„Hulda Ingvarsdóttir, yfirmað-
ur minn hjá Karen Millen, er alltaf
mjög smart. Hún er 46 ára og alveg
gordjöss. Jóhanna Þorkels listakona
er líka með afgerandi skemmtilegan
stíl og geislar af sjálfsöryggi. Fjölnir
bróðir minn finnst mér alltaf gordjöss
líka og Kári Stefánsson er flottur og
vel klæddur þó hann elti ekki tískuna,
þeir vita báðir hvað fer þeim vel og að
lokum leikarinn Ingvar E. Sigurðsson.
Mér finnst hann mjög töff. Svo verð ég
að bæta syni mínum Aski Ara við sem
sjötta nafni en hann er átta ára gam-
all og með ótrúlega þroskaðan smekk
á tísku. Askur hefur hjálpað mér að
velja föt síðan hann var smápatti og
er sjálfur með sterkar skoðanir á því
hvað er keypt fyrir hann.“
margret@dv.is
Fer á náttfötunum í ræktina
„Minn
stærsti
löstur er ef-
laust sá að ég
reyki og hef
gert síðan ég
var tíu ára.
Lífsgleði er lykillinn „Lykillinn sé sá
að vera glaður og í góðu skapi. Geisla af
lífsgleði. Það er langfallegast á fólki.“
Beyoncé er ekki til í slaginn fyrr en hún er búin að setja á sig ilmvatn:
Þokkadísin og tónlistarmaðurinn Beyoncé Knowles telur útlitið ekki full-
komnað fyrr en hún er búin að setja á sig ilmvatn.
Söngkonan setti nýverið á markað ilm númer tvö en nýju lyktina kallar
hún Heat Rush. Beyoncé er á þeirri skoðun að klæðnaðurinn verði ekki
fullkomnaður fyrr en búið er að kóróna hann með góðu ilmvatni:
„Mér finnst ilmvatnið vera öflugasti fylgihlutur konunnar.
Góður ilmur er kynþokkafullur, gefur karakter og þú seg-
ir eitthvað sérstakt með ilminum sem þú notar. Ilmurinn
er punkturinn yfir i-ið,“ sagði Beyoncé í viðtali við Cosmo-
politan.
„Ég man þegar ég var lítil stelpa að fylgjast með mömmu
hafa sig til. Ég elskaði alltaf að sjá hana úða á sig ilmvatni í
lokin. Þessi dásamlega lykt sem hún skildi eftir í herberg-
inu til minningar um sig. Mér fannst þetta alltaf svo fágað og
glamúrus, svo kvenlegt og kynþokkafullt. Í mínum huga getur
kona verið mjög fallega klædd og vel útlítandi en hún er ekki til í
slaginn fyrr en ilmurinn er komin á. Ilmurinn rammar þetta inn,“
sagði Beyoncé og bætti við að hún væri stolt og glöð yfir að fá að
skilja eftir sína eigin minningu í heiminum með ilminum sín-
um sem inniheldur meðal annars angan af kirsuberjum,
appelsínum og ástríðuávexti.
margret@dv.is
Ilmurinn er
punkturinn
yfir i-ið
M
Y
N
D
IR
S
IG
TR
Y
G
G
U
R
A
R
I