Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 32
32 M E N N I N G A R V E R Ð L A U N D V 2 0 1 0H E L G I N 4 . – 6 . M A R S 2 0 1 1 HÖNNUN
KVIKMYNDIR
Það er auðvitað mikill heiður fyrir okkur að fá þessi fínu verðlaun.
Það er alltaf gott að fá klapp á bak-
ið,“ segir Magni Þorsteinsson sem
ásamt Hugrúnu Dögg Árnadótt-
ur, konu sinni, tók við menningar-
verðlaunum DV í flokki hönnunar
en þau eru eigendur og hönnuðir
Kron by KronKron. „Þetta er mikil
gleði fyrir okkur að fá viðurkenn-
ingu fyrir allt púlið. Hugrún og
Magni eru stödd í París um þessar
mundir en tískuvikan er þar nú í
fullum gangi. Ég er í þessum töl-
uðu orðum að skrúfa saman hillur,
það er svona ýmislegt sem fylgir
þessu. En við erum núna að fara að
fylgja eftir næstu línu hérna úti.“
Aðspurður segir Magni allt
hafa gengið framar vonum. „Við
erum alveg í skýjunum. Við höf-
um fengið æðislegar viðtökur og
alveg frábærar við nýju fatalín-
unni. Skórnir hafa auðvitað geng-
ið mjög vel og við erum núna að
selja vörur frá okkur í um sjötíu
búðum í fjörutíu löndum. Við
erum töluvert mikið í Asíu og
erum svona að opna fyrir Amer-
íku núna.“
Fyrsta skólína þeirra kom út
árið 2008 og segir Magni að þau
séu núna farin að njóta árangurs
erfiðisins. „Núna er fólk farið að
vita af okkur og erum ekki lengur
bara ný.“
Í rökstuðingi dómnefndar seg-
ir: „Hugrún Árnadóttir og Magni
Þorsteinsson, eigendur og hönn-
uðir Kron by Kronkron, byrjuðu
að hanna sína eigin skólínu árið
2008. Skórnir hafa síðan not-
ið vinsælda um heim allan og
ekki síst hér á Íslandi. Hugrún og
Magni hafa sýnt mikinn dugn-
að og eljusemi í gegnum árin.
Þau hafa einnig
vaxið í hönnun
sinni, eins og
sást meðal ann-
ars með haust-
línu síðasta árs.
Þá færðu Hugrún og Magni einn-
ig út kvíarnar og settu á markað
fyrstu fatalínu sína. Í línunni eru
kjólar og sokkabuxur. Hún er í
skemmstu máli afar vel heppn-
uð. Einnig ber að geta verslana
Ég mjög sáttur. Ég hef einu sinni áður hlotið menningarverðlaun
DV og mér finnst þetta óvenju
skemmtileg verðlaun að veita
viðtöku. Þau hafa beint sjón-
um framhjá því augljósasta og
verið að upphefja það sem hefur
kannski aðeins týnst eða orðið út
undan,“ segir Dagur Kári Péturs-
son sem hlaut menningarverð-
laun DV í flokknum kvikmyndir.
Dagur Kári hlaut verðlaunin fyrir
kvikmyndina The Good Heart.
Myndin þykir einstaklega vel
skrifuð, listræn kvikmynd sem
sameinar hinar ýmsu hliðar kvik-
myndalistarinnar í sannfærandi
og heilsteypt verk. Í umfjöllun
dómnefndar um kvikmyndina
segir að myndin búi yfir ljóð-
rænni dulúð og næmum húmor
sem oft einkennir myndir hans.
„Dagur Kári hefur sýnt það og
sannað að hann er sívaxandi
listamaður og kemur áhorfand-
anum á óvart með óþrjótandi
hugmyndaflugi í hverri mynd.“
Gekk mjög vel
Kvikmyndin The Good Heart var
„Mikill heiður“
„Þetta er
harður heimur“
Eigendur Kron by KronKron eru í skýjunum yfir góðum
viðtökum á nýrri línu.
Dagur Kári Pétursson var verðlaunaður fyrir mynd sína The Good
Heart. Hann íhugar jafnvel að taka sér hlé frá kvikmyndagerð í bili.
Erfiður bransi
Dagur segir að
það sé erfitt að fá
aðsókn á myndir
sem eru ekki með
mikið fjármagn
til að verja í
auglýsingar.
sýnd í fyrra og var tekin upp í
Bandaríkjunum og Dóminíska
lýðveldinu. Hún skartar meðal
annars Brian Cox og Paul Dano
í helstu hlutverkum og fékk fína
dóma þegar hún var tekin til
sýninga. „Myndin gekk mjög vel
að því leyti að hún fór í dreifingu
út um allan heim og það var það
sem var lagt upp með. Hún er á
ensku og gerist í Bandaríkjunum.
Dæmið gekk upp að því leyti,“
segir Dagur en bætir við að blik-
ur séu á lofti í kvikmyndaiðnaðn-
um, þá sérstaklega fyrir kvik-
myndagerðarmenn eins og hann.
„Það eru erfiðir tímar fyr-
ir listrænar kvikmyndir. Það er
dálítil mainstream-holskefla í
gangi núna og það er erfitt að fá
aðsókn á myndir sem eru ekki
með hundrað milljóna dala aug-
lýsingafjármagn. Þetta er harð-
ur heimur að mörgu leyti en er
engu að síður mynd sem gekk
mjög vel upp.“
Óvissuásand
Dagur, sem skaust upp á stjörnu-
himininn árið 2003 með mynd
sinni Nóa albínóa, segir að hann
finni mikinn mun á landslaginu
núna og þá. „Þá voru allir mark-
aðir mun opnari fyrir listrænum
kvikmyndum. Nú ríkir óvissuá-
stand, bæði út af efnahagskrepp-
unni og líka af því að það er
komið skrið á sýningargluggana.
Maður býr til kvikmynd og veit
ekkert undir hvaða kringumstæð-
um hennar verður notið. Maður
býr til kvikmynd fyrir tjald en
svo kannski horfir fólk á hana í
símanum sínum,“ segir Dagur og
bætir við að sjóræningjastarfsemi
sé ekki að hjálpa kvikmynda-
gerðarmönnum. „Á mörgum
vígstöðum ríkir því mikil óvissa
og ég lít á þetta sem óvissufasa í
kvikmyndasögunni.“
Tekur sér hugsanlega pásu
Aðspurður hvað sé framund-
an segir Dagur að hann sé með
nokkur verkefni í höfðinu. „Ég
hef ekki alveg ákveðið hvaða
stefnu ég ætla að taka. Ég mun
hugsanlega taka mér smá hlé.
Ég er líka tónlistarmaður og það
hefur lengi staðið til að veita því
stærra svigrúm. Að mörgu leyti
langar mig að taka smá pásu frá
kvikmyndagerð og sjá hvernig
málin þróast og kannski prófa
eitthvað nýtt.“
Þegar Dagur er inntur eftir
því hvort það sé vel launað starf
að vera kvikmyndagerðarmaður
segir hann að það væri synd að
segja það. „Ef maður tekur tíma-
kaupið þá er maður verr staddur
heldur en sendisveinninn. Þetta
er bara starf eins og hvað annað
sem maður reynir að láta ganga
upp fjárhagslega.“
þeirra, Kronkron og Kron við
Laugaveg, en í gegnum þær
hafa þau kynnt vandaða hönn-
un fyrir Íslendingum og sett
svip sinn á íslenskt tískusam-
félag.“
Vönduð hönnun
Hugrún Dögg
Árnadóttir og Magni
Þorsteinsson fengu
Menningarverð-
laun DV í flokki
hönnunar fyrir Kron
by KronKron
Míó Sonur Hugrúnar og Magna mætti til að taka
við verðlaununum í fjarveru foreldra sinna.