Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 52
52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 4.–6. mars 2011 Helgarblað STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is SJÓNVARPSTILBOÐ TILBOÐ 249.990 FULLT VERÐ kr. 329.990 ideas for life Panasonic TXP42GT20 - Full HD 3D 42" Full HD 3-D THX NeoPlasma sjónvarp með 1920x1080p upplausn, THX, Vreal Pro5 Engine - High Contrast Filter, 600Hz Intelligent Frame Creation, Infinite Black 5.000.000:1 (Native) skerpa, Pro 24p Smooth Film/Play Back, 0.001 msec svartíma, x.v Colour, Progressive Scan, VIERA CAST nettengingu, Digital Cinema Colour 3D Colour, Motion Pattern Noise Reduction 3D Comb Filter, C.A.T.S háskerpu HDTV DVB-T stafrænn móttakari (MPEG4), kortalesari, 2 x USB tengi fyrir Wi-Fi/HDD upptöku, 2x Scart (með RGB), 4 HDMI, innbyggður gervihnattamóttakari, PC tengi ofl. SKERPA 5.000.000:1 PRO 5 600Hz FULL HD 1920x1080p AVATAR 3D Blu-Ray FYLGIR MEÐ! Ö llum að óvörum steig Steve Jobs, forstjóri Apple-fyrir- tækisins, á svið á miðviku- daginn til að kynna iPad 2 spjaldtölvuna sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Jobs, sem verið hefur í veikindaleyfi frá því í janúar, var furðu brattur og hress í viðmóti þrátt fyrir að líkaminn virtist einungis orðinn skinn og bein. Sama verð, öflugri tölva Auk þess að vera þynnri og léttari státar iPad 2 tölvan af töluvert öfl- ugri örgjörva, 1GHz tvíkjarna A5, sem að sögn skilar allt að helmingi meiri hraða en í fyrri útgáfunni auk þess sem grafísk vinnsla á nú að vera um níu sinnum skilvirkari en í upp- haflegri útgáfu spjaldtölvunnar vin- sælu. Þrátt fyrir öflugri tölvu er líftími rafhlöðu hinn sami og áður að sögn Apple, eða um 10 klukkustundir. Apple tók þann pól í hæðina að hækka ekki verð á þessari annarri kynslóð iPad og kostar ódýrasta út- gáfan (16GB WiFi-only) 499 banda- ríkjadali eða rétt tæpar 58 þúsund krónur. Jafnframt lækkaði fyrirtæk- ið verð á fyrstu kynslóð iPad um 100 bandaríkjadali og geta margir því gert kjarakaup þessa dagana ef þeir eru á höttunum eftir vænlegri spjald- tölvu. Tvær myndavélar iPad 2 er búin tveimur myndavél- um, á bakhlið tölvunnar er myndavél sem getur tekið upp í 720p upplausn með 30 römmum á sekúndu auk þess að vera með 5x stafrænan að- drátt (digital zoom) en myndavélin sem er á framhlið tölvunnar er ætluð fyrir myndspjall og tekur upp í hefð- bundnum VGA-gæðum. Vangaveltur höfðu verið um að skjár þessarar útgáfu yrði í hærri upplausn og gæðum en svo reyndist ekki vera, iPad 2 er sem fyrr með IPS LCD snertiskjá með 1024 x 768 upp- lausn. Sex útfærslur Sex mismunandi útfærslur verða á boðstólum fyrir væntanlega kaup- endur, annars vegar Wi-Fi með 16, 32 eða 64GB geymslurými – og hins vegar Wi-Fi + 3G með sömu útfærsl- um á geymslurými. Útgáfa iOS 4.3 kemur samhliða iPad 2 en þessi uppfærsla stýrikerfis- ins býður upp á mörg ný forrit og að sögn Apple er Safari-netvafrinn nú orðinn mun snarpari. iTunes hefur nú einnig verið uppfært vegna iOS 4.3. Ísland loks á lista Mikla athygli vakti hjá þeim Íslend- ingum sem fylgdust með á netinu þegar iPad var kynnt, að á meðal þeirra 25 landa þar sem spjaldtölv- an kemur fyrst í sölu er Ísland. Land- ið hefur hingað til ekki beint verið áberandi í heimssýn eða markaðs- setningu Apple-fyrirtækisins. Tæplega 90 iTunes-verslanir eru nú starfræktar í jafnmörgum lönd- um en Íslendingar hafa þurft að nota óhefðbundnar leiðir til að geta nýtt sér verslunina, stofna aðgang í iTunes-verslunum annarra landa og þá með erlent heimilisfang en vin- sælasta leiðin er að kaupa sérstök inneignarkort til að kaupa tónlist eða leigja kvikmyndir og sjónvarpsþætti. App Store fyrir Íslendinga Ástæða þess að engin iTunes-versl- un hefur verið opnuð fyrir Íslendinga liggur að öllum líkindum í því að ekki hefur tekist að semja um ýmis hags- munamál rétthafa og dreifingaraðila hér á landi. Samkvæmt heimildum blaðsins má hins vegar vænta þess að for- ritaverslun Apple, App Store, verði opnuð Íslendingum innan tíðar, samhliða komu iPad 2 til landsins. Verslunin verði þó hvorki þýdd né staðfærð heldur verði notast við sama viðmót og enskumælandi þjóðir eiga að venjast. Þetta þýð- ir þó að Íslendingar geti notast við eigin heimilisföng og kreditkort þegar þeir stofna aðgang í verslun- inni. palli@dv.is Óværa komst í Android-forrit Í ljós hefur komið að um 50 forrit í Android Market, forritaverslun Google fyrir Android- tæki, innihéldu óværu (malware) sem getur hreinlega yfirtekið síma eða spjaldtölvu notandans og þannig nálgast viðkvæmar eða mikilvægar persónuupplýsingar. Google hefur þegar fjarlægt umrædd forrit úr versl- uninni en ekki er ljóst þegar þetta er skrifað hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar varðandi þau eintök sem þegar hafa verið keypt og innsett á tölvur eða síma. Talið er að allt að 200 þúsund tæki geti verið sýkt af óværunni. Óværan sem kölluð er „DroidDream“ er sögð sérstaklega skæð þar sem hún geti sjálf sótt viðbótarkóða í gegnum nettengingu og þannig stökkbreyst. Þannig sé engin leið að vita nákvæmlega hvað óværan aðhafist eftir að hún verði virk. Gera má ráð fyrir að sala á vírusvörnum fyrir Android-kerfi verði stígandi á næstunni. iMovie og Garage- band fyrir iPad Samhliða kynningunni á iPad 2 í vikunni kynnti Steve Jobs, forstjóri Apple, sérstakar útgáfur á iMovie- og Garageband-forrit- unum fyrir iPad 2. Í iMovie verður hægt að gera fjölrása hljóðupptökur, nákvæma myndklippingu og einnig geta notendur notast við mörg ný þemu, AirPlay yfir í Apple TV og möguleikann á að deila hágæðamynd- skeiðum. iMovie mun kosta 4,99 banda- ríkjadali og verður sett í sölu þann 11. mars næstkomandi. Sama verð og útgáfudagur er fyrir Garageband-hljóðupptökuforritið en þessi útgáfa fyrir iPad státar af átta rása upptöku, hljóðfærum þar sem hægt er að notast við snertiskjáinn til að spila á, yfir 250 hljóðlúppur (loops) og samhæfni við Mac-útgáfu forritsins. n iPad 2 kemur til landsins síðar í mánuðinum n Ísland meðal þeirra 25 landa sem spjaldtölvan kemur fyrst til n App Store opnað fyrir Íslendinga App Store og iPad 2 til Íslands iPad 2 og App Store Íslendingar eru loks komnir inn á kortið hjá Apple og eru meðal þeirra 25 landa sem fyrst munu fá iPad 2. MYNDIR APPLE INC.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.