Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 30
BÓKMENNTIR
BYGGINGARLIST
30 M E N N I N G A R V E R Ð L A U N D V 2 0 1 0H E L G I N 4 . – 6 . M A R S 2 0 1 1
Svona viðurkenning eins og þessi er afskaplega mikils virði því hún
fleytir manni áfram,“ segir Kristín
Steinsdóttir rithöfundur sem hlaut
Menningarverðlaun DV í flokki
bókmennta fyrir bók sína Ljósa.
Krístin segir að það að fá við-
urkenningu á þennan hátt sé mik-
ilvægt. „Það fær mann til að trúa
á sjálfan sig og hvetur mann til að
takast á við komandi verkefni. Öll
svona viðurkenning er því mjög
örvandi.“
Kristín segir að efnið í bók-
inni hafi lengi leitað á hana. Hún
lagðist í mikla rannsóknarvinnu
en bókin fjallar um konu á 19. öld
sem þjáist af geðhvarfasjúkdómi og
er byggð á sögulegum staðreynd-
um. „Mig hafði lengi langað að
kynna mér betur örlög konu sem
var með þennan geðhvarfasjúk-
dóm. Bókin er ekki ævisaga en til
að geta skrifað um geðhvarfasýki
þarf maður náttúrulega að kynna
sér mjög margt. Ég var með óskap-
lega mikla heimildavinnu því þó að
þetta sé skáldsaga þarf hún að vera
lögð alveg í rétt umhverfi, annars
er hún ekki sönn. Það líða fimmt-
án ár frá því að ég fer að hugsa
um þetta fyrir alvöru og þangað til
bókin kemur út og ég skrifa hana
um aftur og aftur.“
Nostrið við bókina gerði hana
betri að mati Kristínar en hún segir
svona efni þurfa mikla yfirlegu því
engu má skeika. „Þó maður sé að
skrifa skáldsögu verður maður allt-
af að vera með staðhætti rétta. Sag-
an byrjar í kringum 1874 og henni
lýkur árið 1938 en það er löngu
áður en ég fæðist svo ég þarf að
sjálfsögðu að setja mig inn í alveg
annan heim og aðra heima. Ljósa
er í Reykjavík um aldamótin nítján
hundruð og svo er hún er austur í
Suðursveit bæði fyrir og eftir alda-
mót þannig að það er margt sem
ég þarf að kynna mér áður en ég
sest niður og skrifa. Maður þarf að
vinna heimavinnuna ef þetta á að
ganga upp.“
Þetta er fyrst og fremst mikill heiður fyrir mig og mitt sam-
starfsfólk að fá þessi verðlaun,“
sagði Sigríður Sigþórsdóttir sem
var aðalhönnuður Sundlaugar-
innar á Hofsósi, sem fékk Menn-
ingarverðlaun DV í flokki bygg-
ingarlistar. Sigríður er stödd á
ráðstefnu á Ítalíu og gat því ekki
verið viðstödd verðlaunaafhend-
inguna, en hún kvaðst vera afar
þakklát þegar blaðamaður DV
ræddi við hana í síma. „Það er
ætíð gaman að fá viðurkenningu
fyrir vel unnin störf og sérstak-
lega að fá þessi verðlaun því þau
eru í raun einu verðlaunin sem
eru veitt fyrir byggingarlist á Ís-
landi í dag.“
Eins og synt sé út í Drangey
Það var Sigrún Birgisdóttir, lektor
og fagstjóri í arkitektúr við Lista-
háskóla Íslands, sem stýrði dóm-
nefndinni um byggingarlist en
auk hennar sátu arkitektarnir
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir
og Sveinn Bragason í dómnefnd.
Í rökstuðningi dómnefndar sagði:
„Staðsetning sundlaugarinnar er
valin til að ná tengslunum við
hafið, laugarkerið stefnir á Drang-
ey. Kantur þess hluta kersins er
lægri þannig að vatnið fellur fram
af honum og sjónrænt rennur
sundlaugarvatnið og sjórinn í eitt.
Auðmýkt gagnvart umhverfinu og
landslagi fjarðar, fjalla og Drang-
eyjar einkenna verkið.“
Í samtali við DV sagði Sigrún
að verkið væri til fyrirmyndar og
vel að verðlaununum komið. „Eitt
það fallegasta er einmitt þessi
sjónlína sem er í lauginni og vísar
til Drangeyjar. Þegar synt er út
laugina er engu líkara en að mað-
ur sé að hefja sund til Drangeyj-
ar sjálfrar.“ Geta gestir sundlaug-
arinnar á Hofsósi fetað í fótspor
Grettis sterka Ásmundssonar og
synt til Drangeyjar, í það minnsta
fyrstu metrana.
Lyftistöng fyrir sveitarfélagið
Sigrún sagði það einnig jákvætt
hvað sundlaugin hefur reynst
sveitarfélaginu Hofsósi mikil lyfti-
stöng. Sundlaugin var gjöf frá
þeim Lilju Pálmadóttur og Stein-
unni Jónsdóttur, en þær lögðu frá
upphafi mikinn metnað í verkefn-
ið. „Þetta hefur gjörbreytt sveit-
arfélaginu. Mér skilst að viðskipti
á eina veitingastaðnum á Hofsósi
hafi aukist um 30 prósent síðan
sundlaugin var vígð. Nú hefur í
raun skapast nýr áfangastaður,
bæði fyrir erlenda ferðamenn sem
og Íslendinga.“
Eru það orð að sönnu hjá
Sigrúnu. Síðastliðið sumar voru
gestir sundlaugarinnar rúmlega
30 þúsund talsins, sem er saman-
„Fær mann til að
trúa á sjálfan sig“
„Eins og synt
sé til Drangeyjar“
Kristín Steinsdóttir rithöfundur lagðist í mikla
heimildarvinnu fyrir skrif bókarinnar Ljósa.
Sundlaugin á Hofsósi hlaut Menningarverðlaun DV fyrir byggingarlist.
Örvandi viðurkenning
Kristín Steinsdóttir rithöfundur
segir verðlaunin hvatningu til að
takast á við komandi verkefni.
Stefanía
Sigfúsdóttir tók
við verðlaununum
fyrir hönd Sigríðar.
lagður fjöldi allra annarra sund-
lauga í Skagafirði. Sigríður starfar
hjá Basalt arkitektum, og henni
til aðstoðar voru Jóhann Harðar-
son, Marcos Zotes Lopes, Rósa
Dögg Þorsteinsdóttir og Stefanía
Sigfúsdóttir.