Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 21
Umræða | 21Helgarblað 4.–6. mars 2011
Sigur fyrir
markverðina
Sveinbjörn Pétursson, ávallt
kallaður Bubbi, markvörður Akureyrar í
N1-deildinni í handbolta var í vikunni
valinn besti leikmaður umferða 8–14.
Bubbi hefur farið á kostum í vetur og
ekki síst vakið athygli fyrir að spila í
stuttbuxum.
Hver er maðurinn?
„Sveinbjörn Pétursson, Akureyringur,
Ísfirðingur og markvörður.“
Af hverju ertu kallaður Bubbi?
„Það kom upp í 3. eða 4. flokki í fótbolta.
Ólafur Torfason körfuboltamaður nennti
aldrei að öskra Sveinbjörn. Hann fór því að
kalla mig Bubba og það festist.“
Hvar ertu uppalinn?
„Fyrstu tíu árunum, með árs stoppi á
Siglufirði, eyddi ég á Ísafirði. Síðan þá hef ég
meira og minna búið á Akureyri.“
Hvað drífur þig áfram?
„Í augnablikinu er það að sækjast eftir titli
með Akureyri og ná sem lengst í boltanum.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Jólamaturinn hjá mömmu. Algjör klassík.“
Hver er uppáhaldsbíómyndin þín?
„Requiem for a Dream og Big Lebowski.“
Hvað þýðir þessi viðurkenning fyrir þig?
„Þetta er gott fyrir egóið. Það er líka
gaman að það sé tekið eftir manni og ekki
síst gaman að markvörður skuli fá þessa
viðurkenningu. Ég myndi segja að þetta
væri sigur fyrir okkur markverðina.“
Er þetta búið að vera þitt besta tímabil?
„Já, heilt yfir. Mér gekk vel með HK en á
þessu tímabili hef ég verið að fá viðurkenn-
ingar og detta inn í landsliðið.“
Hversu ömurlegt var að tapa bikarúr-
slitaleiknum?
„Þetta er ein allra súrasta tilfinning sem ég
hef fundið enda var tapið svo tæpt.“
Kemur eitthvað annað til greina en að
vinna Íslandsmeistaratitilinn?
„Það eru tveir bikarar í boði núna og við
ætlum okkur að sækja hart að þeim.“
Ertu hættur að ganga í buxum dagsdag-
lega líka?
„Ég fer í síðbuxur við mjög sérstök tækifæri,
annars er ég bara á stuttbuxunum.“
„Já, ég hugsa að það sé á næsta leiti.“
Lilja Ingjaldsdóttir
63 ára ræstikona
„Nei, alls ekki og langt í það.“
Davíð Einarssson
60 ára forritari hjá Landskerfi bókasafna
„Já, það er orðið miklu bjartara, vonandi
kemur ekki meiri snjór.“
Johanna Sjömann
27 ára frá Finnlandi starfar á leikskóla
„Algjörlega, ekki spurning.“
Gunnbjörg Óladóttir
47 ára vinnur við vefsíðugerð
„Nei, engan veginn. Það er enn opið í
Bláfjöllum.“
Óskar Máni Atlason
19 ára atvinnulaus
Maður dagsins
Er vorið komið?
Maður hífður upp Slysavarnaskóli sjómanna stóð fyrir æfingu á hafi úti fyrir nokkru. Nemendur skólans hentu sér í sjóinn en þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði
þeim svo úr ísköldum sjónum. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSO
Myndin
Dómstóll götunnar
Uggur læðist nánast ósjálfrátt að manni þegar stjórnmálamenn leggja til að yfirvöld fái aukn-
ar heimildir til að fylgjast með fólki
– og alveg sér í lagi þegar þverpólit-
ísk samstaða næst um að veita lög-
reglunni aukna heimild til að beita
svokölluðum „forvirkum“ eða „fyr-
irbyggjandi“ rannsóknarúrræðum
(les: njósnum) eins og eru í undir-
búningi í innanríkisráðuneytinu og
breið samstaða virðist samkvæmt
nýjustu fréttum hafa náðst um á Al-
þingi. Þá er svo sannarlega rétt fyr-
ir okkur borgarana að vera vel á
verði og hafa allan varann á. En ein-
hverra hluta vegna virðast stjórnvöld
á hverjum tíma verða ansi gjörn á
að hafa auga með fólki. Áráttan nær
jafnvel til þeirra sem í stjórnarand-
stöðu lögðust þvert gegn slíkum eft-
irlitstilburðum ríkisstjórnarinnar.
Eftirlitsæði
Í kjölfar hrðjuverkaárásarinnar 11.
september 2001 rann sannkallað
eftirlitsæði á Vesturlönd þar sem
yfirvöld tóku upp á því að þrengja
verulega að frelsi fólks með ótrúleg-
ustu hundakúnstum – eins og við
þekkjum til að mynda á flugvöllum.
Í Bandaríkjunum voru föðurlands-
lögin svokölluðu sett í nafni frels-
ins en gengu þó einkum út á það að
ganga nær einkalífi manna en áður
hafði þekkst þar í landi, með mjög
auknum heimildum yfirvalda til að
fylgjast með högum fólks án vitund-
ar þess. Yfirvöld fengu til að mynda
heimild til símhlerana og að gramsa í
bankareiknum einstaklinga.
Eftirlitsáráttan náði brátt einn-
ig til Íslands og sumarið 2006 kynnti
þáverandi dómsmálaráðherra, Björn
Bjarnason, áform (sem byggðu á
skýrslu tveggja erlendra sérfræð-
inga) um stofnun sérstakrar Þjóðar-
öryggisdeildar við embætti ríkislög-
reglustjóra sem fengi heimild til að
beita þessum forvirku rannsóknar-
úrræðum – njósnum semsé – til að
hafa eftirlit með fólki sem ætla mætti
að gæti hugsanlega haft fyrirætlun
um að brjóta af sér einhvern tímann
í framtíðinni. Deildinni var ætlað að
starfa með leynd og safna upplýsing-
um um viðkomandi einstaklinga svo
grípa mætti inn í áður en yfirvofandi
brot yrði framið.
Eins og við var að búast lögðust
þáverandi leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar, til að mynda þeir Öss-
ur Skarphéðinsson og Steingrím-
ur J. Sigfússon, þvert gegn áformum
dómsmálaráðherrans og aðför-
inni að friðhelgi einstaklingsins var
hrundið. Um sinn.
Englar vítis
Því er kannski ekki nema von að
menn undri þegar innanríkisráð-
herra Vinstri grænna dregur nú fram
þennan draug og setur fram í nýj-
um búningi, nú í baráttunni við al-
þjóðlegu glæpagengin Vítisengla (e.
Hells Angels) og Útlaga (e. Outlaws).
Svo virðist sem Ögmundur Jóna-
son ætli sér nú að framkvæma það
sem Björn Bjarnason gat aðeins lát-
ið sig dreyma um sumarið 2006. Ég
bið lesendur um að misskilja mig
ekki. Þessir hroðalegu afbrotahópar
sem kenna sig við vélhjólaakstur en
stunda einkum fíkniefnasölu, man-
sal og gróf ofbeldisverk eru skelfileg
óværa og við eigum vissulega að gera
allt sem í okkar valdi stendur, innan
ramma réttarríkisins og mannrétt-
inda, til að koma í veg fyrir að þau
nái fótfestu hér á landi. Svo ég skil
vissulega freistinguna við að fá að
beita þessum forvirku og fyrirbyggj-
andi rannsóknarúrræðum. En hér
verðum við þó að fara alveg sérlega
varlega. Og svona lagað á ekki að af-
greiða á Alþingi án viðamikillar um-
ræðu.
Frelsi, lýðræði, mannréttindi
Það tók Vesturlandabúa langan tíma
að byggja upp sín opnu og frjáls-
lyndu samfélög þar sem völd hins
opinbera eru takmörkuð og niður-
njörfuð með skýrum lögum. Þjóð-
félög Vesturlanda eru nú byggð á
þremur megingildum; frelsi, lýðræði
og mannréttindum. Þessi þrjú gildi
er samofin og ekkert þeirra getur
staðið án hinna. Frelsi er ekki til stað-
ar nema lýðræði og mannréttindi
séu virt. Lýðræði er ekki virkt nema
menn búi við mannréttindi og frelsi.
Mannréttindi eru fyrir borð borin ef
ekki er til staðar bæði frelsi og lýð-
ræði. Þessum megingildum hefur þó
margoft verið ógnað.
Á öllum tímum eru til öfl sem eru
tilbúin til að reita frelsið af okkur. Yf-
irleitt getum við staðið gegn slíkum
tilburðum en við stöndum þó alltaf
veikust fyrir þegar við teljum okkur
ógnað. Í seinni tíð hefur það eink-
um verið gert í nafni hryðjuverka-
ógnar. Nú er það lagt upp sem vörn
gegn fjölþjóðlegum glæpagengjum.
En einmitt á þeim tímum er mest um
vert að standa í lappirnar gagnvart
eftirlitsáráttu yfirvalda.
Forvirk rannsóknarúrræði
Kjallari
Dr. Eiríkur
Bergmann
„Svo virðist sem
Ögmundur Jóna-
son ætli sér nú að fram-
kvæma það sem Björn
Bjarnason gat aðeins lát-
ið sig dreyma um.