Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 28
28 | Nærmynd 4.–6. mars 2011 Helgarblað „Hann var einstakur vinur. Hann er jafnvel dýrmætasti vinur sem ég hef átt,“ segir Páll Guðmundsson lista- maður, sem kenndur er við Húsafell í Borgarfjarðarsýslu þar sem hann býr og stundar list sína, um Thor Vil- hjálmsson, rithöfund og þýðanda. Thor lést aðfaranótt miðvikudags, 85 ára að aldri. Eiginkona Thors er Margrét Indriðadóttir, fyrrverandi fréttastjóri á RÚV. Synir Thors og Margrétar eru Örnólfur Thorsson forsetaritari og Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur. Thor setti mikinn svip á íslenskt menningar- og þjóðlíf síðastliðin rúm 60 ár, allt frá því að fyrsta bók hans, Maðurinn er alltaf einn, kom út árið 1950. Meðal þekktra verka hans eru skáldsagan Grámosinn glóir, sem hann fékk Bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir árið 1987, Morgunþula í stráum, sem hann fékk Íslensku bókmenntaverð- launin fyrir árið 1998, og þýðing á ítölsku skáldsögunni Nafni rósar- innar eftir Umberto Eco. Hverjum sem hitti Thor duld- ist ekki að þar fór einstakur mað- ur, stór persóna, hlýr mannvinur með eftirminnilega nærveru. Enda fór það svo að Thor var orðinn hálf- gerð goðsögn í lifanda lífi löngu áður en hann féll frá. Og þótt hann væri fyrst og fremst þekktur sem rithöf- undur byggði frægð hans ekki síður á því hvað hann var merkilegur og sérstakur persónuleiki sem heillaði flesta sem hittu hann. Undirritaður tók viðtal við Thor á heimili hans í Vogunum fyrir sex árum þar sem hann spurði höfund- inn út í það hvernig hann aðstoð- aði rússneska kvikmyndaleikstjór- ann Andrei Tarkovskí við að koma syni hans frá Sovétríkjunum á ní- unda áratugnum. Yfirvöld í Sovét- ríkjunum höfðu ekki viljað leyfa syni Tarkovskís að fara úr landi en með hjálp hóps manna, meðal annars Thors, Halldórs Laxness og forsæt- isráðherra Svíþjóðar, Olafs Palme, náðist á endanum að fá son Tar- kovskís frá Sovétríkjunum. Laxness hafði þá meðal annars einnig skrif- að bréf til Gorbatsjovs, æðsta ráða- manns Sovétríkjanna. Í því viðtali fann undirritaður hvað Thor var hlýr maður og innilegur, hann gaf sér allan heimsins tíma til að tala við ungan blaðamann sem hann hafði aldrei hitt áður um 20 ára gam- alt mál, og deildi með honum kaffi og Oreo-kexi. Í lok viðtalsins fylgdi Thor honum út, nánast faðmaði hann á tröppunum við húsið sitt og klappaði honum vinalega á bakið í kveðjuskyni. Eftir það hafði undirrit- aður þá skoðun á Thor að hann væri afar góður maður. Í viðtölum við nokkra af vinum Thors komst undirritaður að því að þessi hjálpsemi og vinarþel í garð annarra sem hann sýndi Tarkovskí var eitt af karaktereinkennum hans, hvort sem um var að ræða að að- stoða íbúa Vestmannaeyja eftir eld- gos, sýna níumenningunum stuðn- ing í verki eða hlúa að vinum sínum þegar á móti blés. „...ef andinn kom yfir hann“ „Thor kom oft á Húsafell og var hjá mér í marga daga, jafnvel viku. Það var alltaf svo gaman þegar hann kom í heimsókn. Við unnum svo mik- ið saman og svo sinnti ég stundum bara mínu og hann sínum skrifum. Þetta var bara svo einstakt að eiga hann sem vin: Mér fannst ég vera ríkur að þekkja hann,“ segir Páll en þeir Thor kynntust árið 1985 þegar rithöfundurinn kom á eina af sýn- ingum Páls. „Ég á margar fallegar minningar um Thor frá Húsafelli frá því þegar við vorum að vinna saman. Ég gerði mynd en Thor fór upp í gil á með- an. Þegar hann kom til baka skrif- aði hann texta á myndina mína eft- ir að hafa horft á hana. En það var engin kvöð á Thor að hann myndi skrifa. Ef hann var ekki upplagður þá bara var það allt í lagi. Það var allt svoleiðis hjá okkur: Hann gerði það bara ef andinn kom yfir hann – það var aldrei nein kvöð með neitt,“ seg- ir Páll. Hann segir að Thor hafi líka verið mjög góður í myndlist, alltaf í fram- för, og að hann hafi gert fallegar myndir. „Við töluðum báðir um það hvað það gæti verið hollt fyrir lista- mann að stunda aðra listgrein sem þeir eru leikmenn í, til að hvíla hug- ann frá hinu.“ Sköpun í roki Ein af minningum Halldórs Guð- mundssonar, rithöfundar og útgef- anda og vinar Thors, um höfundinn er að ýmsu leyti sambærileg frásögn Páls af Thor á Húsafelli, þar sem hann skrifaði texta við myndir Páls þegar andinn kom yfir hann. Þessi minning Halldórs snýst um göngu- ferð um Laugaveginn sem hann fór í með Thor fyrir þremur áratug- um: „Fyrir 30 árum varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að ganga með Thor Laugaveginn sem kallað er, frá Landmannalaugum í Þórsmörk. Þetta var auðvitað stórskemmtileg ferð. Thor var með allt of þungan bakpoka sem var fullur af niðursuðu- dósum, allt of stóran svefnpoka sem hékk eins og segl aftan úr pokanum og það var stanslaust rok og rigning. En hann lét það ekkert á sig fá. Hvar sem andinn kom yfir hann stoppaði hann og tók upp blokkina sína og teiknaði og skrifaði. Og mér finnst hann hafa verið þannig til loka. Allt- af sami baráttuandinn og sköpunar- krafturinn, alveg sama hvað á gekk. Það er einhvern veginn svona sem ég sé hann fyrir mér,“ segir Halldór. Vildi moka meira en þrír Amer- íkanar Fyrstu kynni Páls Steingrímsson- ar, kvikmyndagerðarmanns og vinar Thors, af rithöfundinum voru í Vest- mannaeyjum í kjölfar eldgossins þar árið 1973. Thor ákvað þá, 48 ára gam- all, að fara til Vestmannaeyja til að hjálpa til við hreinsunarstarfið sem sjálfboðaliði en Páll vann við að kvik- mynda gosið og afleiðingar þess fyr- ir erlenda sjónvarpsstöð. „Ég kynntist Thor úti í Vestmannaeyjum í gosinu. Hann kom þarna út til að moka og ég lagði líka hönd á plóg og mokaði gjósku af einhverju þaki sem var að hrynja á milli þess sem ég tók upp. Fyrir tilviljun lenti ég á sama þaki og hann og kynntist honum. Thor var svona svakalega vel á sig kominn lík- amlega. Hann reyndist vera óþreyt- andi og ódrepandi þegar kom að því að beita líkamlegu afli og var al- veg ótrúlegur. En ég held að keppi- keflið hjá honum hafi verið að moka ekki minna en að minnsta kosti þrír af þeim Ameríkönum frá Vellinum í Keflavík sem unnu við að ryðja þök í Eyjum sem sjálfboðaliðar. Ég man eftir metnaðinum í honum að þessu leyti: Hann vildi skila þessum ár- angri,“ segir Páll sem telur að þetta sé gott dæmi um þann kraft og eldhug sem einkenndi Thor. Páll segir að frásögnin af sjálf- boðaliðastarfi Thors undirstriki einnig hvað hann var „spontant“ í lífinu. „Hann var mikill áhlaupa- maður. Hann fékk bara þessa köllun um að honum bæri að fara til Vest- mannaeyja og hjálpa þessu fólki. Hann var í moksturssveit sem fór á milli staða til að moka. Hann vann þarna dögum saman við mokstur. Ég notaði allar stundir sem ég gat til að umgangast hann. Þá var þetta gjarnan á húsþaki að moka því hann gaf sér ekki tíma í annað. Mér fannst Thor vera stórmerkilegur maður og ég hafði aldrei kynnst álíka manni og honum þegar við hittumst þarna,“ segir Páll og bætir því við líkams- hreysti Thors hafi sýnt sig 30 árum síðar þegar hann gekk Jakobsveginn til Compostela á Spáni áttræður, 800 kílómetra leið. „Fáir myndu leika þetta eftir honum á þessum aldri.“ Einstök persóna Páll á Húsafelli segir Thor hafa ver- ið afar hlýjan mann. „Hann Thor var svo hlýr og með svo góða nærveru, það er málið, og svo þakklátur, svo þakklátur fyrir allt sem maður gerði fyrir hann. Bara einstök persóna. Það er ríkidæmi að hafa átt hann sem vin. Það er eiginlega það orð sem ég á yfir Thor: Einstakur vinur.“ Þeir Thor og Páll á Húsafelli tvoru saman í hópi sem hittist alltaf á Þorláksmessu hvert ár og borðaði saman skötu, að sögn Páls. Aðrir í hópnum voru Atli Heimir Sveinsson tónskáld, Sigurður Pálsson ljóðskáld og Ari Alexander Ergiz kvikmynda- gerðarmaður. Ari Alexander segist hafa kynnst Thor þegar hann stundaði nám í París fyrir um 20 árum. Hann seg- ir að þrátt fyrir að um 40 ára ald- ursmunur hafi verið á milli hans og Thors hafi hann aldrei fundið fyrir þeim mun í samskiptunum við Thor. „Ég hef bara aldrei hitt svona mann. Hann var risi, hann var svo stór manneskja, svo næmur. Hvernig var að eiga slíkan risa sem vin? Hvar get- ur maður byrjað að lýsa manni sem var með svona tröllvaxna sköpunar- gáfu, hún fer inn á svo mörg svið. Ef þú hefur lesið verkin hans þá sérðu hvað það er mikið hjarta í þeim, mik- ill titringur og mikil taug og mikil ást. Það er það sem hefur alltaf heillað mig hvað mest við Thor, þessi ótrú- lega næmni og innsæi sem hann hafði, og hvað hann var mikill vinur vina sinna. Hann var svo umhyggju- samur og fann það alltaf þegar mað- ur þurfti á honum að halda. Ég hef aldrei átt svona vin,“ segir Ari. Góður vinur Ari segir að samband hans og Thors hafi verið einstakt að sínu mati. „Ég hef aldrei átt slíkan karlkyns vin þar sem ég hef getað dælt upp úr sjálf- um mér öllum mínum dýpstu leynd- armálum. Þá á ég við bæði persónu- legum sigrum og ósigrum. Ekki hlegið né grátið með nokkrum karl- manni eins og Thor og trúi því varla að hann sé nú látinn.“ Hann segist því vilja segja eina sögu af Thor sem lýsi því vel hvað hann var mikill vinur vina sinna og næmur gagnvart öðru fólki. Frásögn Ara snýst um persónulega reynslu úr æsku kvikmyndagerðarmanns- ins sem hann deildi með Thor. „Ég sagði honum hana með stóran kökk í hálsinum fyrir mörgum árum. Fað- ir minn hafði borist í tal, maður sem ég elskaði ákaflega heitt og mik- ið. Ég er skilnaðarbarn og fluttist til Danmerkur með móður minni þeg- ar ég var 11 ára. Faðir minn fluttist til Bandaríkjanna, var þar í doktors- námi en lést úr hjartaáfalli langt fyrir aldur fram. Við vorum nýflutt og að sjálfsögðu var þetta hrikalegt áfall, en skelfilegast var að ég fékk ekki að fara í jarðarför hans því við vorum föst í Danmörku. Það varð til þess að ég varð ákaflega óstýrilátur ungl- ingur lengi vel og fram eftir aldri. Ég sagði Thor þessa sögu, hann horfði lengi á mig og sagði síðan: Ari minn. Þú ert velkominn í jarðarförina mína.“ Gladdist yfir ritdómunum Thor og Páll í Húsafelli voru í miklu sambandi í gegnum árin og töluðu mikið saman í síma. „Hann hringdi alltaf í mig á kvöldin, frekar seint, og gaf mér skýrslu um hvað væri um að vera. Hann var til dæmis mjög glaður n Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson lést í vikunni, 85 ára að aldri n Vinir Thors lýsa honum sem hlýjum og góðum vini og baráttuglöðum eldhuga með óþrjótandi sköpun- armátt n Thor hélt áfram að skrifa þar í blálokin „Hvar sem andinn kom yfir hann“ Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Hann er jafnvel dýrmætasti vinur sem ég hef átt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.