Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 31
DANSLIST FRÆÐI 31M E N N I N G A R V E R Ð L A U N D V 2 0 1 0H E L G I N 4 . – 6 . M A R S 2 0 1 1 V ið erum stolt og ánægð yfir því að alþjóðlega verkefn- ið Keðja Reykjvaík skyldi vera fyrst til að fá Menningarverðlaun DV í dansi,“ segir Ása Richards- dóttir, stjórnandi Keðju Reykjavík sem hlaut Menningaverðlaun DV fyrir árið 2010. Ása segir að verkefnið eigi rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 2004 en Keðja Reykjavík sé hluti af mun stærra verkefni sem Norðurlöndin og Eystrasaltslönd- in sameinuðust um. Verkefnið fór af stað árið 2007 og fékk stóran Evrópusambandsstyrk sem gerði aðstandendum kleift að hrinda því í framkvæmd. Keðja Reykjavík var lokavið- burðurinn í stórri sex viðburða röð sem byrjaði árið 2007 og lauk í október á síðasta ári. Fram fóru fimm aðrir stórviðburðir auk fjölda smærri í hinum ýmsu borg- um Norðurlandanna og Eystra- saltslanda. „Þetta er búið að vera risastórt verkefni og gríðarlegur fjöldi stofnana, samtaka, félaga, listafólks og stjórnvalda hefur komið að því í heild sinni. Hér heima var þetta stór hópur en það voru um það bil 160 íslensk- ir listamenn sem gerðu Keðju Reykjavík að því sem hún varð,“ segir hún. Verkefninu lauk í haust en Ása segir að nú sé í undirbúningi umsóknarferli á meðal samstarfs- aðila en sótt verður um sams konar styrk til Evrópusambands- ins um áframhaldandi verkefni. „Við erum bjartsýn með það. Þessi viðurkenning sem við feng- um frá DV er gleðileg viðbót við margvíslegar viðurkenningar sem verkefnið hefur fengið þessi ár sem það hefur verið í gangi.“ Hún segir að verkefnið hafi verið notað, bæði af norrænum og evr- ópskum sjóðum, sem fyrirmynd- arverkefni um það hvernig búa eigi til tengslanet og sem verk- efni sem snerti heilan geira. Það sé ein af sérstöðum verkefnisins þar sem viðburðir vorum haldnir með það markmið að sameina dansgeirann í Norður-Evrópu í heild sinni og innan þess hafi all- ir aðilar í dansgeiranum haft sína rödd. „Í raun má segja að verkefnið hafi veitt þessum stóra hópi tæki- færi til þess að hittast en yfir þús- und aðilar sem mættu á viðburð- ina gátu átt samtal og kynnst og tengst. Nú er verið að undirbúa hvernig á að nýta þessa reynslu Risastórt verkefni og gríðarlegur fjöldi listafólks Samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Reykjavik Dance Festival, Sjálfstæðu leikhúsanna, Listaháskóla Íslands og Borgarleikhússins. til að fara í enn meira samstarf, bæði í listrænum verkefnum og á öðrum sviðum.“ Í umsögn dómara segir meðal annars að verkefnið hafi verið gríðarlega mikilvægt stefnumót íslenskra sviðslista við umheim- inn og það hafi skapað sam- bönd og tækifæri til samvinnu fyrir þátttakendur sem vonir eru bundnar við til framtíðar. Keðja var samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Reykjavik Dance Festival, Sjálfstæðu leikhúsanna, Listaháskóla Íslands og Borgar- leikhússins. Keðja Reykjavík Ása Richardsdóttir tók við verðlaununum sem stjórnandi verkefnisins. H verjum hefði dott-ið í hug að það ætti eftir að koma menning út frá ómenningu bankanna,“ sagði Páll Hreins- son, hæstaréttardómari og einn ritstjóra skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis, Aðdragandi og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdir atburðir. Auk Páls voru það Sigríður Bene- diktsdóttir, hagfræðingur við Yale-háskóla í Bandaríkjunum, og Tryggvi Gunnarsson, um- boðsmaður Alþingis, sem voru ritstjórar skýrslunnar. Skýrsl- an kom út í níu bindum, en eitt þeirra nefndist Siðferði og starfs- hættir, en höfundar þess voru heimspekingarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal, auk sagnfræðingsins og fyrrverandi þingkonunnar Kristínar Ástgeirs- dóttur. Áttu ekki von á verðlaunum „Þegar við lögðum af stað í þennan leiðangur þá áttum við allra síst von á því að fá ein- hvers konar menningarverðlaun. Hvað þá frá Dagblaðinu,“ sagði Páll brosandi þegar hann tók við verðlaununum úr höndum Illuga Jökulssonar, formanns dóm- nefndar menningarverðlauna DV um fræðirit. Páll lagði jafnframt áherslu á að ritstjórarnir þrír væru ekki þeir einu sem ættu heiðurinn að skýrslunni. „Við tökum við þessum verðlaun- um fyrir hönd þeirra fjölmörgu einstaklinga sem komu að gerð þessarar skýrslu og lögðu hönd á plóginn.“ Bjargaði geðheilsunni Í rökstuðningi dómnefndar, sem var auk Illuga skipuð Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur ritsjóra og Við- ari Hreinssyni bókmenntafræð- ingi sagði: „Í þessari löngu og miklu skýrslu er sögð dramatísk og sorgleg saga um vanhæfni, oflæti og ráðleysi íslenskra stjórnvalda, embættismanna, bankamanna og kaupsýslu- manna, sem keyrðu samfélagið í þrot haustið 2008. Skýrslan er afar vel unnin og átti góðan þátt í að bjarga því sem eftir var af geðheilsu Íslendinga árið 2010.“ Beðið hafði verið eftir skýrslu rannsóknarnefndarinnar með mikilli eftirvæntingu en útgáfu skýrslunnar var frestað nokkrum sinnum. Ástæðan var einfald- lega að efnið sem lá til grund- vallar var mun meira en talið var í fyrstu. Lög um rannsóknar- nefnd Alþingis voru sett í kjölfar hrunsins undir lok ársins 2008 en skýrslan kom út fyrir réttu Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis hlaut Menningarverðlaun DV í flokki fræðirita. Menning úr ómenningu ári, þann 1. mars 2010. Flestir eru sammála um að skýrslan sé afar vel unnin og er hún hafsjór fróðleiks um efnahagshrunið á Íslandi. Höfundar skýrslunnar eru því vel að menningarverð- launum DV fyrir fræðirit komnir. Páll Hreinsson Þakkaði fyrir sig á Hótel Borg á miðvikudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.