Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Page 34
LEIKLIST 34 M E N N I N G A R V E R Ð L A U N D V 2 0 1 0H E L G I N 4 . – 6 . M A R S 2 0 1 1 TÓNLIST VAL LESENDA Það finnst öllum gott að láta klappa sér á bakið,“ segir Kristinn Sigmundsson bassasöngvari og hlær djúpri röddu þegar hann er spurður út í það hvaða þýðingu Menningarverðlaun DV hafi fyrir hann. Kristinn hlaut verðlaun- in í flokki tónlistar en þar sem hann er staddur í Berlín vegna söngsins var það eiginkona hans, Ásgerður Þórisdóttir, sem tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd. „Ég er mjög glaður og ánægð- ur með þessa viðurkenningu. Þetta þýðir að maður hefur verið að gera eitthvað rétt um ævina,“ segir Kristinn sem er í hópi fær- ustu bassasöngvara óperuheims- ins og einn allra besti söngvari sem Ísland hefur alið af sér. Kristinn hefur undanfarna áratugi ferðast um allan heim og sungið með fremstu söngvur- um heims og í þekktustu óperu- húsum veraldar. „Ég hef verið í lausamennsku í upp undir 20 ár núna. Ég ferðast því bara um heiminn og syng þar sem fólk vill ráða mig í vinnu,“ segir Kristinn en árið 2010 söng hann meðal annars í Los Angeles, Flórens og Kaupmannahöfn. Sem fyrr sagði dvelur Kristinn núna í Berlín en þar syngur hann hlutverk kóngs- ins í Tristan og Ísold eftir Wagner. Kristinn kann sérlega vel við sig í hlutverkinu. „Það er bara eins og Wagner hafi skrifað þetta hlut- verk sérstaklega fyrir mig.“ Kristinn dvelur í Berlín fram í apríl en þó stóð til að fara til Ítalíu. „Ég átti að fara til Sardin- íu að syngja þar en svo var óp- eruhúsinu lokað og því verður ekkert af því. Ég kem því heim eftir dvölina hér og tek svo þátt í opnun Hörpu.“ Kristinn segir það mikið fagnaðarefni fyrir alla landsmenn að eignast tónlist- arhús á borð við Hörpu. „Það var löngu kominn tími til og ég hlakka mikið til að sjá hvernig til hefur tekist.“ Aðspurður hvort Harpa geti komist í hóp fremstu óperu- húsa heims þar sem söngvarar hvaðanæva úr heiminum kæmu til að syngja, sagði Kristinn það óskandi. „Það væri auðvitað frá- bært en ég held nú að við þurfum að koma okkur upp úr kreppunni fyrst. Það er örugglega eitthvað í að settir verði peningar í slík verkefni.“ Kristinn, sem varð sextugur á þriðjudaginn, segir röddina í fínu formi og að hann eigi nóg eftir. „Það er ómögulegt að segja hvað maður endist lengi í þessu en við bassarnir erum heppnir með það að söngröddin liggur svo nálægt talröddinni í tónhæð að við get- um haldið lengur áfram en aðrir. Á meðan líkamlegir kraftar bila ekki getur maður verið í þessu. Hann á nóg eftir þessi eins og sagt erum bílana,“ segir Krist- inn og kveður með sínum sérlega djúpa hlátri. Kristinn Sigmundsson segir röddina í fínu formi og að hann eigi nóg eftir. Hann hlakkar til að taka þátt í opnun Hörpu. Á flakki um heiminn í 20 ár Ásgerður Þórisdóttir Eiginkona Kristins tók við verðlaununum. Kristinn Sigmundsson Er staddur í Berlín þar sem hann fer með hlutverk kóngsins í Tristan og Ísold eftir Wagner. Þetta kom mér veru-lega á óvart. Ég hafði ekki leitt hugann að þessu en þetta er frábært og það er ofboðslega gott að fá þessa hvatningu,“ segir Bjartmar Guð- laugsson sem hlaut verðlaunin Val lesenda á Menningarverð- launum DV fyrir árið 2010. Bjartmar sneri sér að tónlist- inni aftur fyrir stuttu eftir um það bil áratugshlé. „Ég dett inn í myndlistana inni á milli. Það fór nánast áratugur hjá mér í að stúdera og vinna við hana en nú vinn ég að þessu jöfnum hönd- um. Nú er ég loksins búinn að ná þeim þroska,“ segir Bjartmar og hlær. Hann segist eiga mjög erfitt með að skilgreina sjálfan sig en tónlistin og myndlistin vinni saman. Það hafi bara tekið hann nokkur ár að ná því. „Það var yndislegt að koma aftur að tón- listinni því ég er alltaf að semja. Það er stór liður í mínu lífi og það er vont ef maður kemur tón- listinni ekki frá sér.“ Aðspurður um samstarfið við Bergrisana segir hann að fyr- ir rúmu ári hafi hann kynnst ungum gítarleikara, Birki Rafni Gíslasyni, sem Bjartmar segir vera yfirgengilega góðan tónlist- armann. „Við fórum að pæla í nýjum lögum sem ég var með í smíðum og svo hlóð þetta utan á sig. Ég þekkti alla þessa stráka áður. Þetta eru allt synir vina minna,“ segir hann og bætir við að samstarfið gangi glimrandi vel. Þeir skilji hvað hann vill og hann hvað þeir vilja. „Þetta er æðislega gaman og þeir eru svo áhugasamir. Það viðheldur eld- inum fyrir því sem maður er að gera að vinna með þessum ungu strákum.“ Bjartmar og Bergrisarnir eru önnum kafnir við tónleikahald og eru þeir á leið í stúdíó að taka upp plötu sem kemur út í haust. Þeir verða víða á ferðinni í sumar og segir hann að búið sé að ganga frá ýmsum tónleikum. Næsta mál á dagskrá eru þó stór- tónleikar sem þeir munu halda þann 30. apríl í Austurbæ og verða þeir hljóðritaðir fyrir RÚV. Bjartmar leggur mikla áherslu á að koma þakklæti til þjóðarinn- ar á framfæri. „Ég vil þakka ís- lensku þjóðinni fyrir að hafa ver- ið til staðar fyrir mig í þessi 30 ár sem ég hef verið í bransanum og fyrir að hafa fært mér yrkisefni. Það er mjög gott fyrir svona karla eins og mig að fá svona hvatn- ingu. Svo er það þannig að okkur líður vel í lífinu ef við náum að búa okkur alltaf nýtt og nýtt upp- haf,“ segir tónlistarmaðurinn að lokum. Í umsögn dómnefndar segir að Bjartmar hafi snúið til baka Þakklátur þjóðinni Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson sneri aftur í tónlistarbransann tvíefldur og með látum árið 2010 með hljómsveit sinni Bergrisunum. tvíefldur og með látum árið 2010 með hljómsveit sinni Bergris- unum og gefið út eina bestu ís- lensku plötu ársins. Endurkoma hans hafi skilað þessum ástsæla laga- og textasmiði þremur til- nefningum til Íslensku tónlistar- verðlaunanna á dögunum enda standist honum fáir snúning þeg- ar hann er upp á sitt besta. Það hafi hann svo sannarlega verið árið 2010. Laga- og texta - smiðurinn ástkæri Segir samstarfið við Bergrisana vera skemmtilegt og hafa gengið vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.