Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 38
K amilla fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavoginum. Hún var í Ísaksskóla og Kópavogs- skóla, lauk háskólabrú Keilis og stund- ar nú nám í stjórnmálafræði og þjóð- fræði við Háskóla Íslands. Kamilla starfaði við Sundlaug Kópavogs í fjögur ár með skóla en hef- ur starfað hjá Símanum frá 2005. Kamilla hefur verið sjálfboðaliði hjá Rauða krossi Íslands um nokkurt skeið og hefur tekið þátt í ungliðastarfi Samfylkingarinnar í Kópavogi. Fjölskylda Kærasti Kamillu er Þórður Þorsteins- son, f. 1.1. 1986, nemi og starfsmaður hjá Símanum. Sonur Kamillu og Gunnars Bessa Þórissonar er Benedikt Bessi Gunn- arsson, f. 23.7. 2004. Systkini Kamillu eru Elín Guð- mundsdóttir, f. 29.9. 1966, fasteigna- sali; Benedikt Henry Guðmundsson, f. 25.2. 1972, þyrluflugmaður í Kanada; Filippa Guðmundsdóttir, f. 18.8. 1978, þjónustufulltrúi hjá Arion banka og háskólanemi. Foreldrar Kamillu eru Guðmundur Grettisson, f. 24.6. 1942, vélfræðingur í Kópavogi, og Hafdís Benediktsdóttir, f. 12.6. 1949, leir- og myndlistarkennari í Kópvogi. Hafþór fæddist í Reykjavík. Hann var í Árbæjarskóla og stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Ár- múla. Hafþór starfaði hjá Landflutning- um á árunum 2003–2007 en hefur síð- an starfað hjá Securitas. Hafþór æfði og keppti í knattspyrnu með Fram í öllum aldursflokkum. Fjölskylda Unnusta Hafþórs er Margrét Jóhanns- dóttir, f. 9.11. 1982, starfsmaður hjá TVG – Zimsen. Börn Hafþórs og Margrétar eru Viktor Blær Hafþórsson, f. 30.8. 2002; Ásta María Hafþórsdóttir, f. 16.11. 2008. Systkini Hafþórs eru Ísabella Theodórsdóttir, f. 24.10. 1978, nemi við Háskóla Íslands, búsett í Reykja- vík; Eyþór Theodórsson, f. 6.3. 1981, ML-nemi í lögfræði við Háskólann á Bifröst. Foreldrar Hafþórs eru Theodór Stefán Friðgeirsson, f. 11.7. 1953, bif- vélavirki hjá Isavia, búsettur í Reykja- vík, og Guðbjörg María Garðarsdóttir, f. 19.5. 1958, starfsmaður hjá Slökkvi- liði höfuðborgarsvæðisins. E yþór fæddist í Reykjavík. Hann var í Árbæjarskóla, stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla og lauk þaðan stúdetnsprófi, lauk prófi sem viðskiptalögfræðingur frá Háskól- anum að Bifröst 2008 og stundar nú ML-nám í lögfræði þar. Eyþór vann við pípulagnir, starfaði hjá Kjötsmiðjunni og sinnti verslunar- störfum á framhaldsskólaárunum. Eyþór æfði og keppti í knattspyrnu með Fram frá æskuárum og upp alla aldursflokka. Hann sat í nemendaráði í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og var gjaldkeri skólafélagsins á Bifröst og sat í varastjórn Miðgarðs, félags sjálfstæð- ismanna á Bifröst. Fjölskylda Systkini Eyþórs eru Ísabella Theodórs- dóttir, f. 24.10. 1978, nemi við Háskóla Íslands, búsett í Reykjavík; Hafþór Theodórsson, f. 6.3. 1981, starfsmaður Securitas, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Eyþórs eru Theodór Stef- án Friðgeirsson, f. 11.7. 1953, bifvéla- virki hjá Isavia, búsettur í Reykjavík, og Guðbjörg María Garðarsdóttir, f. 19.5. 1958, starfsmaður hjá Slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins. Ármann fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann var í Víðistaðaskóla, stundaði síð- an nám í húsamálun við Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi og öðlaðist síðan meistararéttindi, stund- aði nám í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan BSc.-prófi 2010. Ármann var bátsmaður á línubát- um frá Grindavík í þrjú ár, var síðan stuðningsfulltrúi á sambýlum með námi í þrjú ár, vann við húsasmálun af og til með háskólanámi en er forstöðu- maður tæknideildar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps frá síðust mán- aðamótum. Ármann hefur stundað snjó- bretti, hjólabretti og brimbretti frá því snemma á unglingsárunum, og keppti m.a. á snjóbretti um skeið. Þá starfar hann við slökkviliðið á Patreksfirði og er í björgunarsveitinni þar. Fjölskylda Kona Ármanns er Hlín Sigurþórsdótt- ir, f. 24.3. 1983, þroskaþjálfi í MA-námi í sérkennslufræðum við Háskóla Ís- lands og grunnskólakennari. Sonur Ármanns og Hlínar er Frosti Reyr Ármannsson, f. 14.4. 2008. Bróðir Ármanns er Almar Miðvík Halldórsson, f. 18.4. 1973, starfsmaður hjá Námsmatsstofnun, í doktorsnámi í menntavísindum við Háskólann í Reykjavík. Foreldrar Ármanns eru Halldór Magnússon, f. 14.11. 1941, frá Búðum á Snæfellsnesi, og Ragnheiður Páls- dóttir, f. 2.11. 1948, frá Álftavatni á Snæfellsnesi, en þau hjónin starfrækja Vöfluvagninn sem er staðsettur í Mið- bæ Reykjavíkur um helgar. Tómas fæddist í Reykjavík en ólst upp á Hvammstanga frá því á fyrsta árinu. Hann flutti síðan átta ára til Svíþjóðar með fjölskyldu sinni og var þar búsettur í þrjú og hálft ár. Þá flutti hann aftur norður á Hvamms- tanga þar sem hann hefur átt heima síðan að mestu. Tómas var í barnaskóla í Svíþjóð og í Grunnskólanum á Hvammstanga, stundaði síðan nám við Fjölbrauta- skólann í Ármúla, Iðnskólann í Reykja- vík og Borgarholtsskóla og lauk sveins- prófi í húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Tómas sá um póstdreifingu á veg- um Íslandspósts um skeið, starfaði í blikksmiðjunni Aðalblikki í Reykjavík í þrjú ár, var síðan í brúarsmíði á veg- um Vegagerðarinnar víða um land í þrjú ár, starfaði hjá Tveimur smiðum á Hvammstanga í tvö ár en hefur starf- að við brúarsmíði hjá Vegagerðinni frá 2008. Tómas hefur starfað með slökkvi- liðinu á Hvammstanga og björgunar- sveitinni Húnum. Fjölskylda Unnusta Tómasar er Stella Guðrún Ellertsdóttir, f. 14.2. 1989, nemi í hestafræðum við Landbúnaðarhá- skóla Íslands á Hvanneyri. Börn Tómasar eru Þorgerður Gló Tómasdóttir, f. 26.9. 1999; Þór- ólfur Hugi Tómasson, f. 8.3. 2006. Systkini Tómasar eru Elvar Daníelsson, f. 28.1. 1977, lækn- ir í Reykjavík; Anna Dröfn Daní- elsdóttir, f. 15.11. 1990, nemi; Inga Hrund Daníelsdóttir, f. 15.8. 1993, nemi. Foreldrar Tómasar eru Helga Hreiðarsdóttir, f. 5.5. 1957, ljós- móðir og hjúkrunarfræðingur á Hvammstanga, og Einar Daníel Karlsson, f. 20.5. 1954, húsasmiður á Hvammstanga. G arðar fæddist á Akranesi en ólst upp í Grundarfirði. Hann var í Grunnskóla Grundarfjarðar og lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík. Garðar byrjaði sextán ára til sjós, var á bátum frá Grundarfirði og er nú háseti á Farsæl SH. Garðar æfði og keppti í knattspyrnu með Ungmennafélagi Grundarfjarðar og æfir nú golf af kappi. Fjölskylda Eiginkona Garðars er Rakel Jónsdótt- ir, f. 2.5. 1981, nemi í tómstunda- og félagsmálafræðum við Háskólann í Reykjavík. Dætur Garðars og Rakelar eru Aldís Ylfa Garðarsdóttir, f. 4.10. 2003; Lilja Ísabel Garðarsdóttir, f. 14.9. 2007. Bróðir Garðars er Tryggvi Haf- steinsson, f. 4.6. 1985, sjómaður í Grundarfirði. Foreldrar Garðars eru Hafsteinn Garðarsson, f. 11.11. 1960, hafnarstjóri í Grundarfirði, og Guðbjörg Jenný Ríkharðsdóttir, f. 6.1. 1962, skólaliði í Grundarfirði. 38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 4.–6. mars 2011 Helgarblað Logi fæddist í Keldunesi í Norð-ur-Þingeyjarsýslu og ólst upp í Kelduhverfi. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Laugum 1959 og bjó í foreldrahúsum til 1967 þar sem hann stundaði landbúnaðarstörf, auk þess sem hann vann ýmis önnur störf, m.a. við fiskvinnslu og netagerð í Grindavík og víðar. Logi flutti til Reykjavíkur haustið 1967 og hóf þá störf hjá Silla og Valda en þar starfaði hann þar til fyrirtækið hætti verslunarrekstri í árslok 1975. Síðari árin hafði Logi verið verslun- arstjóri hjá Silla og Valda í verslunum þeirra að Laugavegi 43 og í Austur- stræti 17. Logi hóf eigin verslunarrekstur fyrri hluta árs 1976 að Laugavegi 43 þar sem hann starfrækir enn versl- unina Vínberið. Fyrir u.þ.b. fimmtán árum breytti Logi versluninni í sæl- gætisverslun sem auk þess sérhæf- ir sig í berja- og annarri ávaxtasölu á sumrin með útimarkaði. Verslunin er nú eina sérhæfða sælgætisverslun landsins. Fjölskylda Logi kvæntist 30.1. 1971 Dagnýju Helgadóttur, f. 30.8. 1944, d. 24.12. 2000, kaupmanni. Hún var dóttir Helga Jónssonar og Þorbjargar Páls- dóttur, búenda í Kaldárholti í Holtum í Rangárvallasýslu. Börn Loga og Dagnýjar eru Krist- ín Þorbjörg Logadóttir, f. 2.8. 1971, bankastarfsmaður, búsett í Banda- ríkjunum; Helgi Þór Logason, f. 7.10. 1974, bankastarfsmaður, búsett- ur á Seltjarnarnesi, kvæntur Guð- rúnu Völu Davíðsdóttur og eru synir þeirra Davíð Helgason og Tómas Logi Helgason. Systkini Loga eru Kristín Ingibjörg Helgadóttir, f. 25.2. 1943, húsmóðir í Reykjavík; Oktavía Stefanía Helga- dóttir, f. 26.9. 1945, fyrrv. verslunar- maður í Mosfellsbæ; Bryndís Helga- dóttir, f. 25.1. 1949, bankastarfsmaður í Reykjavík; Jón Tryggvi Helgason, f. 14.6. 1953, rafeindavirkjameistari og framkvæmdastjóri Ísmar í Reykjavík; Helgi Þór Helgason, f. 31.3. 1960, raf- magnsverkfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Loga: Karl Helgi Jóns- son, f. 13.2. 1904, d. í júní 1969, bóndi í Keldunesi, og k.h., Þóra Stefánsdótt- ir, f. 12.5. 1920, d. 19.10. 2005, hús- freyja. Ætt Karl Helgi var sonur Jóns, b. í Keldu- nesi Guðmundssonar, og Ingibjargar Jóhannesdóttur. Þóra var dóttir Stefáns, bróður Jóns á Arnarstöðum, föður Jóns Hjör- leifs skólastjóra. Stefán var sonur Tómasar, b. á Arnarstöðum Jónsson- ar, b. í Blikalóni Péturssonar. Móðir Tómasar var Dórothea Halldórsdótt- ir. Móðir Stefáns var Ingibjörg, syst- ir Hildar, móður Guðrúnar, móður Zóphoníasar Péturssonar og Gunn- geirs Péturssonar sem var skrifstofu- stjóri borgarverkfræðings. Hildur var einnig móðir Stefáns, afa Björns Ön- undarsonar, fyrrv. tryggingayfirlækn- is og langafa Vigdísar Grímsdótt- ur rithöfundar. Þá var Hildur amma Kristveigar, ömmu Hafliða Vilhelms- sonar rithöfundar. Ingibjörg var dótt- ir Jóns, b. á Skinnalóni á Sléttu og ætt- föður Skinnalónsættar Sigurðssonar, og Þorbjargar, langömmu Hilmars bankastjóra, föður Stefáns banka- stjóra og langömmu Hildar, móð- ur Ólafar Pálsdóttur myndhöggv- ara. Þorbjörg var dóttir Stefáns, b. á Skinnalóni Grímssonar, bróður Ei- ríks. Móðir Þóru var Oktavía Stefanía, dóttir Ólafs, b. í Sauðanesi Þorsteins- sonar og Gunnþórunnar Halldórs- dóttur. Logi Helgason Kaupmaður í Reykjavík 85 ára 85 ára Kamilla Guðmundsdóttir Starfsmaður við vettvangsþjónustu Símans og háskólanemi Hafþór Theodórsson Sarfsmaður Securitas í Reykjavík Eyþór Theodórsson ML-nemi í lögfræði við Háskólann á Bifröst Ármann Halldórsson Forstöðumaður tæknideildar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps Tómas Örn Daníelsson Brúarsmiður á Hvammstanga Garðar Hafsteinsson Sjómaður og aðgerðarmeistari í Grundarfirði 70 ára á laugardag 30 ára á laugardag 30 ára á sunnudag 30 ára á sunnudag 30 ára á sunnudag 30 ára á laugardag 30 ára á laugardag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.