Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 54
54 | Sport 4.–6. mars 2011 Helgarblað
Chelsea hleypti heldur betur lífi í
toppbaráttuna í ensku úrvalsdeild-
inni síðastliðinn þriðjudag þeg-
ar það lagði Manchester United að
velli, 2–1. United er áfram með fjög-
urra stiga forystu á toppi deildar-
innar en nú á Arsenal leik til góða
á United, öfugt við það sem hefur
verið á tímabilinu. Arsenal á erfið-
an leik í vændum um helgina gegn
Sunderland en vinni liðið hann
mun það horfa spennt á aðalleik
helgarinnar. Á sunnudaginn mæt-
ast einmitt erkifjendurnir Liverpool
og Manchester United á Anfield.
Nái Liverpool jafntefli eða hreinlega
að vinna Manchester United get-
ur Arsenal komist í toppsætið með
leiknum sem það á til góða á strák-
ana hans Ferguson. Nánast frá því
úrvalsdeildin var stofnuð hafa síð-
ustu mánuðir tímabilsins verið þar
sem Manchester United slítur sig
frá hópnum fyrir aftan sig. Breidd-
in er þó töluvert minni í liðinu núna
eins og sást í seinni hálfleik gegn
Chelsea.
Færri lykilmenn
Þegar Manchester United tók sinn
þriggja ára sprett og vann deildina
2007–2009 var breiddin gífurleg.
Það átti til dæmis oftar en ekki eins
og einn Carlos Tevez sem kom inn á
og tryggði liðinu ófá stigin. Skringi-
leg kaup undanfarinna ára á mönn-
um á borð við Bebe og Obertan virð-
ast þó nú vera að koma Ferguson í
koll. Breiddin er minni hjá liðinu og
færri leikmenn þurfa að spila fleiri
leiki. Það sást langar leiðir hversu
þreytt liðið var í seinni hálfleik gegn
Chelsea á þriðjudaginn, það var líka
þriðji leikur liðsins á einni viku.
Meiðsli hafa einnig sett sitt strik
í reikninginn en Michael Owen
hefur lítið sem ekkert komið við
sögu undanfarið, Anderson er frá í
nokkrar vikur til viðbótar, Rio Ferd-
inand hrundi niður rétt fyrir tapið
gegn Úlfunum, Park er frá í nokkrar
vikur og þá er Antonio Valencia ekki
enn kominn til baka eftir hryllilegt
fótbrot.
Næstu vikur verða United-lið-
inu erfiðar en það á marga stórleiki
í vændum. Komist það þokkalega
í gegnum þá gæti svo farið að liðið
yrði mjög sterkt á lokasprettinum
fái það til baka áður upptalda leik-
menn. Það er þó núið sem verður að
horfa til og leiksins mikilvæga gegn
Liverpool um helgina.
Ekkert uppgefið um Carroll
Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri
Liverpool, hefur gert blaðamanna-
fundi Liverpool aftur skemmtilega
en hann fór á kostum í vikunni,
aðspurður hvort Andy Carroll yrði
látinn spreyta sig á varnarlausu
Manchester United-liðinu. Rio
Ferdinand verður ekki klár og þá er
Nemanja Vidic í banni vegna rauða
spjaldsins sem hann fékk gegn
Chelsea. Hinn ungi Chris Small-
ing mun standa vaktina sennilega
ásamt Wes Brown og þykir ekki
ólíklegt að Dalglish vilji láta hinn
kröftuga Andy Carroll láta Brown og
Smalling hafa mikið fyrir hlutunum.
„Kannski verður Andy ekki einu
sinni á varamannabekknum, hann
gæti verið að fara að sjá Boyzone,“
sagði Dalglish á blaðamannafund-
inum en í febrúar sáust þeir félag-
arnir saman á tónleikum Boyzone.
„Andy bætir sig með hverri æfingu
en ég veit ekki enn hvort hann spili
á sunnudaginn. Ég held að Ferg-
ie vilji ólmur vita hvort hann verði
orðinn klár á sunnudaginn,“ sagði
Dalglish. Carroll, sem er dýrasti
knattspyrnumaður Bretlandseyja,
hefur verið meiddur frá því hann
kom til Liverpool.
Liverpool og Manchester Un-
ited mættust í fyrsta leik Dalglish
með liðið. United hafði þá sigur,
1–0, með marki Dimitar Berbatovs
úr vítaspyrnu sem þótti mjög um-
deild og hreinlega röng. Liverpool-
liðið spilaði þó vel í leiknum, manni
færra, eftir brottrekstur Stevens
Gerrards.
Liverpool tapaði sannfærandi
um síðustu helgi gegn West Ham,
sínum fyrsta deildarleik síðan tólfta
janúar. Eftir þann leik sögðu margir
knattspyrnuspekingar hér heima og
ytra: „Betra er liðið bara ekki.“ Það
er þó aldrei hægt að bóka neitt þeg-
ar Manchester United er í heimsókn
enda hata liðin hvort annað nánast
takmarkalaust.
Arsenal í bílstjórasætið?
Arsenal getur setti mikla pressu á
Manchester United en á laugardag-
inn mætir liðið Sunderland. Sigur
þar myndi færa liðið nær United á
toppnum og myndi þá muna aðeins
einu stigi. Færi svo að United tækist
ekki að vinna á Anfield ætti Arsenal
leik til góða og væri þá komið í bíl-
stjórasætið um sigur í ensku úrvals-
deildinni.
Arsenal-menn eru í sárum eftir
grátlegt tap gegn Birmingham í úr-
slitaleik deildarbikarsins. Klaufa-
skapur í vörninni færði Birming-
ham sigurinn á silfurfati og heldur
því sex ára bið liðsins eftir titli áfram.
„Það var ömurlegt að tapa leikn-
um því við virkilega vildum vinna
þennan bikar. Það er líka það sem
okkur vantar. Að lyfta bikurum,“
segir Jack Wilshere, miðjumaður
Arsenal, sem hefur farið á kostum
á leiktíðinni. „Við erum alveg nægi-
lega góðir til að vinna ensku úrvals-
deildina og á það stefnum við. Um
helgina gætum við verið komnir í
dauðafæri að ná efsta sætinu geri
Liverpool okkur smá greiða. Fyrst
og fremst hugsum við samt um okk-
ur. Við þurfum að vinna Sunder-
land. Það verður erfitt en við töpum
ekki mörgum leikjum á heimavelli.“
VARNARLAUSIR
UNITED-
MENN Á
ANFIELD
n Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United mætast í stórleik helgarinnar n Rio
Ferdinand meiddur og Nemanja Vidic í banni n Tap hjá United gæti komið Arsenal í
bílstjórasætið í titilbaráttunni n Ekkert gefið upp hvort Andy Carroll verði með
Hvorugur með
Rio og Vidic verða
fjarri góðu gamni á
laugardaginn.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Bolt
inn
í be
inni
Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is
Leigjum út sal fyrir veisluhöld
Um helgina spilar
hljómsveitin sín
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn.
n Réttur dagsins alla virka daga
n Hamborgarar, steikar-
samlokur og salöt
n Hópamatseðlar
Laugardagur 5. mars
13.30 Birmingham - WBA
15.00 Arsenal - Sunderland
15.00 Bolton - Aston Villa
15.00 Fulham - Blackburn
15.00 Newcastle - Everton
15.00 West Ham - Stoke
17.30 Man. City - Wigan
Sunnudagur 6. mars
13.30 Liverpool - Man. United
16.00 Úlfarnir - Tottenham
Staðan
Lið L U J T M Stig
1. Man. Utd 27 17 9 1 61:25 60
2. Arsenal 27 17 5 5 57:27 56
3. Man. City 28 14 8 6 44:25 50
4. Tottenham 27 13 8 6 38:31 47
5. Chelsea 26 13 6 7 46:22 45
6. Liverpool 28 11 6 11 36:35 39
7. Bolton 28 9 10 9 39:38 37
8. Sunderland 28 9 10 9 33:35 37
9. Newcastle 28 9 9 10 43:39 36
10. Everton 27 7 12 8 35:36 33
11. Stoke City 27 10 3 14 31:34 33
12. Aston Villa 28 8 9 11 35:47 33
13. Fulham 28 6 14 8 29:29 32
14. Blackburn 28 9 5 14 35:46 32
15. Blackpool 28 9 5 14 42:55 32
16. Birmingham 26 6 12 8 25:35 30
17. Wolves 28 8 4 16 31:46 28
18. West Ham 28 6 10 12 33:49 28
19. WBA 27 7 7 13 35:52 28
20. Wigan 28 5 12 11 27:49 27
Leikir helgarinnar