Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 9. mars 2011 Miðvikudagur Sex æðstu stjórnendur Arion banka fengu 156 milljónir króna í laun á síð- asta ári. Bankastjórarnir sem stýrðu bankanum í fyrra, þeir Finnur Svein- björnsson sem hætti störfum í júní og Höskuldur H. Ólafsson sem tók við þá, höfðu saman 46 milljónir króna í árs- laun í fyrra og fimm framkvæmdastjór- ar bankans fengu samtals 109,9 millj- ónir króna í laun. Hjá Íslandsbanka fengu Birna Einars dóttir bankastjóri og sjö fram- kvæmdastjórar bankans 178 milljónir króna í fyrra; Birna ríflega 30 milljónir og framkvæmdastjórarnir um 21 millj- ón á mann. Samanburður á ársskýrslum bank- anna tveggja sýnir að mánaðarlaun á hvert stöðugildi hjá Arion banka hækk- uðu um 19 prósent á milli áranna 2009 til 2010 – úr 575 þúsund krónum á mánuði að jafnaði í 686. Hjá Íslands- banka hækkuðu launin um 17 prósent – úr 609 þúsund krónum í 710 þúsund krónur. Um 1.100 manns vinna hjá hvorum banka. 10 milljónir fyrir að byrja Finnur Sveinbjörnsson stýrði Arion banka fyrri hluta ársins í fyrra. Hann hafði 16 milljónir króna í laun fyr- ir fimm mánaða vinnu í fyrra, eða lið- lega 3,2 milljónir króna á mánuði. Höskuldur tók við 1. júní og greiddi bankinn honum 30 milljónir króna fyrir sjö mánaða vinnu, eða liðlega 4,3 milljónir króna á mánuði að jafnaði. Föst mánaðarlaun Höskuldar eru þó lægri ef marka má svör upplýsingafull- trúa bankans, sem birtust á Pressunni. Þar kom fram að hann hefði fengið 10 milljóna króna eingreiðslu fyrir að byrja í starfi bankastjóra. Föst laun séu 2,9 milljónir á mánuði. Til samanburðar hafði Birna Ein- arsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, 2,6 milljónir króna á mánuði í laun í fyrra og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hafði um 1,1 milljón króna. Þess ber þó að geta að Íslands- banki og Arion banki hafa skilað upp- gjöri fyrir síðasta ár en Landsbankinn ekki. Ríkið á 13 prósent í bankanum Árið 2009 var bankastjórinn Finnur Sveinbjörnsson með um 1,75 milljónir króna í laun á mánuði sem bankastjóri Arion banka. Höskuldur er því með 119 prósent hærri laun en bankinn greiddi bankastjóranum árið 2009. Þess má geta að Jóhanna Sigurðardóttir for- sætirsáðherra sagði á Facebook-síðu sinni, þegar laun Höskuldar komust í umræðuna, að engin siðleg réttlæt- ing væri á ofurlaunum sem þessum. „Það er ólíðandi að æðstu stjórnendur banka og fyrirtækja skammti sér millj- ónir í laun á meðan almenningur berst í bökkum vegna glímunnar við afleið- ingar bankahrunsins,“ sagði hún en hún sagði aftur á móti ekkert um það hvort og þá hvernig brugðist yrði við þessu. Þess má geta að Bankasýsla rík- isins á fyrir hönd ríkisins 13 prósenta hlut í bankanum. Fyrrverandi ráðuneytisstjóri stýrir lögfræðisviði Ljóst er að það gefur vel að starfa sem framkvæmdastjóri hjá bönkunum. Þeir eru fimm hjá Arion banka og höfðu hver um sig 1,8 milljónir króna á mán- uði í fyrra. Það er um 35 prósent meira en árið á undan. Þeir sem gegna þess- um stöðum nú eru Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar- sviðs, Stefán Pétursson, sem stýrir fjár- málasviði en hann starfaði áður hjá Landsvirkjun. Helgi Bjarnason er fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs en hann var áður framkvæmdastjóri Sjóvá-Al- mennra líftrygginga og aðstoðarfor- stjóri Sjóvár. Jónína S. Lárusdóttir, sem var ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneyt- isins þegar bankahrunið varð, stýrir lögfræðisviði og Hermann Jónasson stýrir framkvæmdum á þróunar- og markaðssviði en hann var forstjóri far- símafyrirtækisins Hive og var þar áður hjá Landsbankanum. Milljarða hagnaður Hagnaður Arion banka í fyrra nam 12,6 milljörðum króna eftir skatta, Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is samkvæmt uppgjöri bankans. Þetta er svipuð afkoma og árið 2009, þeg- ar hagnaðurinn nam 12,9 milljörðum króna en í frétt frá bankanum segir að árið 2010 hafi einkennst af umfangs- miklum aðgerðum til að leysa úr mál- um skuldsettra fyrirtækja og einstakl- inga. Um 14 þúsund einstaklingar hafi nýtt sér greiðsluerfiðleikaúrræði sem í boði séu og fjárhagslegri endurskipu- lagningu hafi lokið hjá um 500 fyrir- tækjum. Góð afkoma bankans vekur athygli í ljósi þessa en ekki er að sjá að afskrift- ir skulda hafi gengið nærri bankanum en tekið er fram að eiginfjárhlutfall bankans hafi aukist um 5,3 prósentu- stig í fyrra – sé nú 19 prósent og það sé „vel yfir mörkum FME“ eins og bank- inn státar sig af á heimasíðu sinni. Meira en 20 milljónir í árslaun Íslandsbanki skilaði 29,4 milljarða króna hagnaði í fyrra og áætlar að op- inber gjöld hafi numið 8,1 milljarði króna. Eiginfjárhlutfall bankans var 26,6 prósent, töluvert hærra en hjá Arion banka. Eins og áður sagði hafði Birna Einarsdóttir bankastjóri um 2,6 milljónir króna á mánuði í fyrra. Hún hækkaði í launum um 600 þúsund krónur á mánuði frá árinu 2009. Sjö framkvæmdastjórar bankans höfðu 147 milljónir króna í laun eða 21 millj- ón króna á mann. Þeir hækkuðu um 10,5 prósent í launum – höfðu 18 millj- ónir króna á mann árið 2009. Framkvæmdastjórarnir eru sjö; Una Steinsdóttir er yfir viðskipta- bankasviði. Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar Al- þingis, hefur opinberað þá skoðun sína að himinháan skatt, eins kon- ar ofurskatt, eigi að leggja á þá sem hafa allra hæstu launin. Það eigi að gera til þess að koma í veg fyrir að hæstu laun verði í líkindum við það sem þau voru fyrir hrun. Fundað var í viðskiptanefnd í gærmorgun þar sem fulltrúar bankanna og Banka- sýslu ríkisins voru kallaðir til. Lilja segir í samtali við DV að þar hafi þær skýringar á háum launum banka- stjóra fengist að miðað hefði verið við meðallaun framkvæmdastjóra hjá 40 stærstu fyrirtækjum landsins. Hún segist aðspurð enn þeirr- ar skoðunar að nauðsynlegt sé að grípa í taumana. Innan VG sé af al- vöru rætt um að leggja 65 prósent tekjuskatt á laun yfir tvær milljónir króna. „Þetta hefur verið rætt í þing- flokki VG og almennt hefur verið tekið jákvætt í slíkar hugmyndir. Það er nauðsynlegt að gefa skýr skilaboð um að við viljum ekki þetta mikla launabil sem var hér fyrir hrun,“ seg- ir Lilja og bendir á að launum lág- og millitekjuhópa hafi verið haldið niðri frá hruni. Ótækt sé að hækka aðeins hæstu laun. Spurð um þann milljarða hagn- að sem bankarnir eru að sýna segir Lilja að hún hefði heldur viljað að hluti hagnaðarins hefði runnið til viðskiptavina bankanna í stað kröfu- hafa þeirra eða eigenda. Hún segir einnig að hún hefði viljað sjá bank- ana skila hagnaði vegna hagræðing- ar í rekstri en ekki vegna endurmats á eignasöfnum, eins og raunin sé að stórum hluta. Ólína Þorvarðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, fer hörðum orðum um launakjör æðstu stjórn- enda fjármálastofnana landsins. Leggur hún til að ríkisstjórnin leggi fram frumvarp um 70 til 80 prósent skatt á laun sem fara yfir 1.200 þús- und krónur á mánuði. „Fregnir af launakjörum bankastjóra Arion banka eru storkun við íslenskt sam- félag og stjórnvöld landsins. Fjár- málastofnanir landsins voru endur- reistar með almannafé, eftir að þær höfðu spilað rassinn úr buxunum og leitt hér hörmungar yfir land og lýð. Já, þetta samfélag sem legið hefur í sárum eftir hrun, kom þeim aftur á lappirnar og já, gaf þeim síðan end- urheimt athafnafrelsi,“ segir Ólína á bloggsíðu sinni. Stjórnarþingmenn vilja leggja ofurskatt: „Storkun við íslenskt samfélag“ Gegn launaskriði tekjuhárra Lilja og Ólína vilja setja mjög háa skatta á ofurlaun. Launaskrið toppanna Laun 2009 Laun 2010 Birna Einarsdóttir (Íslandsbanki) 24 millj. 31 millj. Framkvæmdastjórar (Íslandsbanki) 18 millj. 21 millj. Höskuldur Ól/Finnur Sveinbj. (Arion banki) 21 millj. 46 millj. Framkvæmdastjórar (Arion banki) 16 millj. 22 millj. Birna Einarsdóttir (Íslandsbanki) Framkvæmdastjórar (Íslandsbanki) Höskuldur Ól/Finnur Sveinbj. (Arion banki) Framkvæmdastjórar (Arion banki) 25% hækkun 17% hækkun 25% hækkun 119% hækkun 76 milljónir samtals Birna Einarsdóttir og Höskuldur Ólafsson höfðu saman um 76 milljónir króna í árslaun í fyrra. Næstu undirmenn þeirra, fram- kvæmdastjórar bankanna, höfðu ríflega 20 milljónir króna í árslaun hver. n Launaskrið toppanna í bönkunum n Hækkanirnar ná ekki til almennra bankamanna n Framkvæmdastjórar bankanna með meira en 20 milljónir króna í árslaun n Margir fram- kvæmdastjórarnir störfuðu hjá bönkunum fyrir hrun Sex toppar fengu 156 milljónir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.