Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 22
22 | Viðtal 9. mars 2011 Miðvikudagur B ryndís Víglundsdóttir fædd- ist í Reykjavík árið 1934. Hún hefur sérfræðimennt- un og mikla starfsreynslu af kennslu og vinnu með fötluðu fólki, fullorðnum og börnum sem sérkennari og skólastjóri. Lengst af var hún skólastjóri Þroskaþjálfa- skóla Íslands en auk þess hefur hún starfað mikið að menntamálum fjölfatlaðra á Norðurlöndum og á alþjóðlegum vettvangi. Árið 1989 hlaut Bryndís riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín. Bryndís býr yfir viðamikilli þekk- ingu sem hún hefur sankað að sér áratugum saman og er fyllilega á pari við það sem er efst á baugi í fræðum um heilann í dag. Þá sér- staklega nýjar kenningar um heil- ann og möguleika mannsins hvað varðar lækningu og þá staðreynd að heilinn er breytanlegt efni og hefur mikla möguleika á að endur- skapa sjálfan sig. Bæði hvað varðar lækningu á skemmdum vefjum en líka hvað varðar nám og það að ná tökum á nýrri þekkingu og færni. Í stuttu máli: Við getum miklum meira en við höldum sjálf og aðr- ir sem við höfum dæmt úr leik eiga meiri möguleika en við teljum. Og enn í stuttu máli: Lausnina er ekki aðeins að finna finna í læknishjálp eða lyfjum. Hún er líka falin í gild- unum þremur: Trú, von og kær- leika. Fyrsta boðorðið er að trúa Saga Bryndísar er afar sérstök og lærdómsrík fyrir kynslóð sem er alin upp á hraða og skyndilausnum. Hún hefur reynt hið ómögulega mörgum sinnum á ævinni, kennt börnum sem eru bæði heyrnarlaus og blind að tala og fært yngri bróður sínum lífsgæði sem allir aðrir töldu töpuð. „Ég hóf minn feril sem almenn- ur kennari og eins og aðrir kennarar hafði ég mikinn áhuga á manneskj- unni og því hvernig hún hugsar og bregst við. Ég fór utan í sérnám og vann í skóla þar sem unnið var með bæði blind og heyrnarlaus börn. Þeir sem þekkja sögu Helen Kell- er skilja við hvaða vanda er að etja. Þeir sem heyra ekki og sjá ekki þurfa að notast við aðra skynjun til þess að læra að tala og tjá sig svo aðrir skilji. Þeir sem starfa við kennslu og stuðn- ing af þessu tagi eru sjálfkrafa leidd- ir að mikilvægri þekkingu um heil- ann. Við verðum einfaldlega vitni að þekkingunni fremur en að hún sé mæld.“ Bryndís segir að við þessa vinnu hafi hún strax skilið mikilvæga stað- reynd um heilann. „Fyrsta boðorð- ið er einfaldlega að trúa. Þeir sem hafa unnið með fötluð og vangefin börn vita að ómögulegir og ótrúleg- ir hlutir henda á hverjum degi. En þeir henda ekki af sjálfu sér. Á bak við undraverða hluti er þrautseigja og gríðarleg vinna og bjargföst trú. Leikskólakennarar, þroskaþjálfar og sérkennarar þekkja lykilinn að framfarakenningum um heilann. Við nefnilega notum hann á hverj- um degi. Ég vann með heyrnarlausum og blindum börnum í fjögur ár þang- að til ég fór að sjá breytingar sem að lokum leiddu til þess að þau lærðu að tala og skilja mál. Það var eitthvað að gerast í heilanum hjá þeim sem ég skildi ekki og þau að sjálfsögðu ekki heldur. En við fikruðum okkur áfram á hverjum degi og ef við þurft- um að standa á haus, þá stóðum við á haus. Við urðum vitni að því að hið ómögulega var að gerast og all- an tímann varð ég að trúa því mjög sterkt að það væri að gerast. Ég hef hér skjöld í eldhúsinu hjá mér af He- len Keller. Á honum stendur: Meðan þeir sögðu að það gæti ekki gerst – þá var það að gerast. Þessi tími var mér lærdómsríkur og kenndi mér að við höfum ekki leyfi til að gefast upp. “ Flest okkar hafa enga hugmynd um hvernig heilinn vinnur eða hverjir möguleikar hans eru. Í heilanum eru stofnfrumur sem gera það að verkum að skemmd svæði geta að einhverju leyti endurskapað sig. Að þessu komst Jón Víglundsson sem fékk heilablóðfall, lamaðist og missti málið. Læknar sögðu honum og ættingjum hans að hann ætti litla von um bata. Systir hans, Bryndís Víglunds- dóttir fyrrverandi skólastjóri Þroskaþjálfaskólans, var á öðru máli og kom honum til bjargar. Hún nýtti sérþekkingu sína honum til stuðnings og í dag hefur Jón náð fullum bata. Kristjana Guðbrandsdótt- ir heyrði í Bryndísi og Halli Hallssyni sem þýddi bók Johns Medina um nýja þekkingu á heilanum; Heilareglur og heilræði. KOM BRÓÐUR SÍNUM TIL BJARGAR „Hann er eitt þess- ara kraftaverka, en eins og ég hef áður sagt þá er hið ómögulega allt- af að gerast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.