Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 20
20 | Fókus 9. mars 2011 Miðvikudagur Ásta Briem með sýningar í Kaffifélaginu og Gallerí Horni: 101 KÖTTUR Í 101 REYKJAVÍK „Ég er oft á gangi í miðbænum með myndavélina á mér og mynda það sem fyrir augu ber,“ segir Ásta Briem, sjálfstætt starfandi kvikmyndagerð- arkona sem hefur sett saman sýn- ingu á myndum af kostulegum kött- um miðbæjarins. „Ég tók myndir af nokkrum köttum í nágrenni við heimili mitt og fékk þá hugmynd- ina að því að taka 101 mynd af kött- um miðborgarinnar. Þeir setja sterk- an svip á umhverfi sitt. Jafnvel meiri en kaffidrykkjufólk,“ segir hún og vísar þar í klisjuna um kaffilepjandi 101-miðbæjarrottuna. Ásta hefur því tekið myndir af 101 ketti og vísað þannig í staðsetningu þeirra miðsvæðis í borginni og sett saman í sýningu. Brotabrot af henni má sjá á Kaffifélaginu á Smiðjustíg og svo í fullri stærð á vinnustofu Ástu, Gallerí Horni á Skólavörðustíg 6b. Keðjuverkun er yfirskriftin á sýningu abstraktlistamannsins Helga Más Kristinssonar: Svífandi hjól og götulistir „Ég er undir áhrifum frá götulist borgarlandslagsins og á þessari sýn- ingu koma hjól og hjólreiðar nokkuð við sögu,“ segir Helgi Már Kristins- son myndlistarmaður um sýningu sína Keðjuverkun sem opnuð verður fimmtudaginn 10. mars klukkan 17. Þar verða sýnd málverk og skúlptúrar sem Helgi Már hefur unnið að síðast- liðna mánuði, þar á meðal endurgerð hans á frægum skúlptúr Duchamps, Bicycle Wheel, og svífandi BMX-hjól í blöðrum sem Helgi tengir við kvik- myndina E.T. og hina frægu frönsku kvikmynd Ballon Rouge. Helgi er einn fárra listamanna hér á landi sem hefur einbeitt sér að ab- straktmálverkinu og línuteikningu. Í verkum Helga verður til óræður smá- heimur þar sem fljótandi form og línuteikning eru ríkjandi. Helgi býr og  starfar í Reykjavík, en hann út- skrifaðist frá LHÍ árið 2002 og hefur sýnt á einka- og samsýningum síð- an þá auk þess að starfa sem sýn- ingarstjóri og verkefnastjóri viða- mikilla sýninga, meðal annars hjá Listasafni Reykjavíkur. „Helgi er ein- stakur í íslenskri myndlist, segir sýn- ingarstjóri sýningarinnar, Yean Fee Quay. „Hann er einn fárra sem hefur einbeitt sér bæði að abstraktverkum og línulegri teikningu, hann er eins og eyja meðal íslenskra myndlistar- manna. Hann tengir bæði við tón- list og hjólreiðar og hefur ávallt ver- ið mjög einbeittur í því hvernig hann skilar skynjun sinni á myndflötinn.“ Helgi Már verður með leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 13. mars klukkan 15.  Helgi Már Kristinsson Yean Fee Quay, sýningarstjóri Keðjuverkunar, segir Helga Má vera einstakan í íslenskri myndlist sam- tímans. Helgi Már er abstraktlistamaður sem leitar í áhrif frá götulist, djassi, graffiti og hjólreiðum. Veisla fyrir lestrarhesta Lestrarhestar landsins eiga gott í vændum því þann 14. apríl – 1. júní 2011 geta þeir hitt fyrir bestu rithöf- unda Norðurlanda á svokölluðum höfundakvöldum. Á höfundakvöld- unum koma fram rithöfundar og ljóðskáld frá Grænlandi, Færeyjum, Svíþjóð, Noregi og Íslandi. Þeir höf- undar sem hafa boðað komu sína í hús hinna norrænu bókmennta eru: Kristian Olsen Aaju frá Grænlandi, tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár fyrir bókina Det tatoverede budskap, Mariane Petersen, ljóðskáld frá Grænlandi sem hefur nýverið gefið út ljóða- safnið Storfangerens efterkomm- ere, Carl Jóhan Jensen frá Færeyjum og Tóroddur Poulsen frá Færeyjum, tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár fyrir bókina Út- sýni. Stórstjörnur hátíðarinnar eru svo Kaj- sa Ingemarsson, höfundur bókanna Sítrónur og saffran og Bara vanligt vat- ten sem kemur út í íslenskri þýðingu á vegum Forlagsins í ár, og Eva Ga- brielsson frá Svíþjóð en flestir þekkja hana sem ekkju Stiegs Larson en hún er einnig rithöfundur og hefur gefið út endurminningar sínar og bókina Sam- bo. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. Höfundur Sítróna og saffrans Kajsa Ingemarsson. Sambýliskona Stiegs Larsson Eva emur til Íslands og kynnir höfundarverk sín. Kostulegir nágranna- kettir Ástu Briem. The Rite IMDb 6,2 RottenTomatoes 20% Metacritic 38 Leikstjóri: Mikael Hafstrom Handrit: Michael Petroni Leikarar: Anthony Hopkins, Colin O’Donog- hue, Alice Braga, Ciaran Hinds, Rutger Hauer 119 mínútur Bíómynd Erpur Eyvindarson Michael Kovak (Colin O´Donog-hue) er úr fjölskyldu líksnyrta sem sinnir því starfi af alhug inni á sjálfu uppeldisheimili drengs- ins. Það segir sig sjálft að vitund um líf og dauða stimplast hratt inn hjá Michael og ekki síst þegar þeir feðgar snyrta lík móður hans. Hann elst upp sem venjulegur drengur sem af ein- hverjum óskiljanlegum ástæðum vel- ur sér guðfræði sem framtíðarmennt- un. Hann er að því er virðist trúlaus og þykir það því sæta furðu að hann skuli sigla inn í íhaldssama klerka- stétt kaþólsku kirkjunnar. Hann efast um þetta á ákveðnum tímapunkti en alvarlegir atburðir starta atburðarás sem skilar honum á andasæringa- námskeið í Vatíkaninu. Þar kynn- ist hann ýmsum sprækum fýrum og ber þá einna helst að nefna efasemd- armann en þungavigtarsæringa- meistara, Lucas Trevant (Anthony Hopkins). Michael er settur inn í fagið með aðferðum sem eiga eftir að hafa mikil áhrif á hann og fólkið í kringum hann. Munu trúlausi trúmaðurinn og fjölmiðlavinkona hans Angeline (Al- ice Braga) trúa á eitthvað sem leggst á þau með öllum mætti Flugna- höfðingjans? Innri barátta Michaels sveiflast frá því að skynja eingöngu það sem er fyrir framan hann og yfir í að trúa á Kölskann sem blómstrar í umhverfinu þar sem menn viður- kenna ekki tilvist hans. Það kemur fram að myndin er byggð á sönnum atburðum sem er mjög fyndið þegar hugsað er til þess að hún fjallar um sendimenn Almættisins sem kljást við snargeðveika púka, djöfla, ára, andsetna og önnur myrkraöfl Sat- ans. Allt sannsögulegt við það, þetta er allt í 118. Magnað líka hvernig öll þau einkenni andsetinna sem koma fram eru meira eða minna sjúkdóms- lýsingar sem er mikið vitað um í dag. Tourette, spastík, hrörnunarsjúk- dómar, einhverfa, MS, Alzheimer, al- menn geðveiki, menn heyra raddir og sjá óraunverulega hluti. En látum það liggja á milli hluta, góð andasæringa- mynd aftengir almenna skynsemi ef vel er gert. Myndin hefur hæga en vel útfærða uppbyggingu, missir sig ekki í tilgerðarlegum bregðisenum, fínt leikstýrt, ágætlega leikin og á sæmi- lega óhugguleg augnablik. Ég er einn mesti aðdáandi hryllingsmynda und- ir trúarlegum áhrifum og er alveg til í að trúa á svarthvíta heimssýn Bibl- íunnar meðan á kvikmyndinni stend- ur. En núna er halarófan af myndum af þessu tagi orðin heldur löng og ferskleikinn er langt frá því sem hófst fyrir nærri 40 árum með Exorcist. Það skal tekið fram að leikstjórinn Haaf- strom er mikill fagmaður sem meist- arastykkið Ondskan vitnar klárlega um. En núna er Svíinn í Hollywood- leik og kemst svo sem sæmilega frá því bæði með 1408 og The Rite. Auð- vitað getur hann gert miklu betri kvikmyndir en spurning hvort það sé eftirspurn eftir því í þeim geira sem hann vill koma sér fyrir í? ALLT ROSALEGA SANNSÖGULEGT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.