Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 9. mars 2011 Miðvikudagur
Slitastjórn Kaupþings sækir kúlulán til Kaupsþingmanna:
Skuldar nærri sjö milljarða
Eignarhaldsfélag Ingvars Vilhjálms-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra markaðsviðskipta hjá Kaup-
þingi, skuldar rúmlega 6,6 milljarða
króna. Skuldin er tilkomin vegna
kúluláns í erlendum myntum sem
félag hans, Ingvar Vilhjálmsson ehf.,
fékk til að kaupa hlutabréf í Kaup-
þingi á árunum fyrir íslenska efna-
hagshrunið. Þetta kemur fram í árs-
reikningi eignarhaldsfélagsins fyrir
árið 2009.
Ingvar færði hlutabréfin og skuld-
ina yfir af eigin nafni og inn í umrætt
eignarhaldsfélag rétt fyrir efnahags-
hrunið haustið 2008.
Slitastjórn Kaupþings, sem Ól-
afur Garðarsson lögmaður fer fyr-
ir, hyggst reyna að sækja umrætt
lán til Ingvars í dómsmáli sem rekið
verður fyrir íslenskum dómstólum.
Fyrir taka verður í málinu fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur þann 15. mars
næstkomandi. Samkvæmt útreikn-
ingum DV fékk Ingvar 37 milljónir og
83 milljónir króna í arð vegna þess-
arar hlutabréfaeignar sinnar í Kaup-
þingi á árunum 2007 og 2008.
Þegar DV hafði samband við
Ingvar til að ræða við hann um kúlu-
lánið og hlutabréfaeignina í Kaup-
þingi síðla árs 2008 sagði hann að
ekkert væri athugavert við það að
eiga hlutabréf í einkahlutafélagi.
„Það er ekkert óeðlilegt við að verð-
bréf séu í hlutafélögum, það er form
sem margir nota.“
Fyrirtökur verða í fleiri mál-
um slitastjórnar Kaupþings gegn
fyrrverandi starfsmönnum bank-
ans um miðjan mánuðinn, meðal
annars gegn fyrrverandi aðstoð-
arframkvæmdastjóra fjárstýring-
ar bankans, Hannesi Frímanni
Hrólfssyni.
ingi@dv.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Suðurnesjum
Húsavík
Flúðir
Vestmannaeyjar
KALT ÚTI!
Gas hitablásari 15Kw
18.900
Rafmagnshitablásari
2Kw 1 fasa
6.490
Rafmagnshitablásari
5Kw 3 fasa
11.900
EURO handklæðaofn
beinn hvítur 50x80 cm
7.290
EURO Panelofn 50x120 cm
12.390
MARGAR STÆRÐIR
KRANAR OG
HITASTILLAR FRÁ
VOTTUÐ GÆÐAVARA
Sækir kúlulán til Kaup-
þingsmanna Ólafur Garð-
arsson, formaður slitastjórnar
Kaupþings, reynir að sækja fimm
milljarða króna kúlulán til Ingv-
ars Vilhjálmssonar, fyrrverandi
framkvæmdastjóra markaðsvið-
skipta hjá bankanum.
Líkt og greint var frá í síðustu viku
ákvað knattspyrnudeild Víkings að
reka þjálfarann Leif Garðarsson. Ekki
hefur verið upplýst um ástæðu upp-
sagnarinnar. Þrálátur orðrómur hefur
hins vegar gengið um það að undan-
förnu að Leifur hafi komið sjálfum sér
til varnar á spjallsíðu Víkings. Á hann
þar ýmist að hafa gengið undir nöfn-
unum Albert Örn eða Albert Jónsson.
Samkvæmt heimildum DV var
orðið stirt á milli Leifs og stjórnar
Víkings áður en Excel-málið fræga
kom upp, þar sem viðkvæmar upp-
lýsingar um leikmenn liðsins láku út.
Stjórn Víkings gaf aldrei upp ástæðu
fyrir uppsögn Leifs, en sömu heim-
ildir herma að málið um dularfullan
hulduaðdáanda Leifs hafi orsakað
það að hann var rekinn í síðustu viku.
Auk þess að skrifa á spjallborðið
var til samnefndur notandi á Face-
book. Honum var eytt í síðustu viku.
Umræddur Albert Örn sagðist sjálf-
ur vera fæddur 4. ágúst árið 1969.
Þegar honum er flett upp í þjóðskrá
enginn upp sem það passar við. Al-
bert Örn virðist því ekki vera til.
Lofsamaði Leif
Huldumaðurinn hefur alltaf hald-
ið uppi vörnum fyrir Leif og meira
að segja þakkað honum fyrir frá-
bæra spilamennsku liðsins, hann
hafi aldrei séð annan eins fótbolta í
Víkinni. „Vil hrósa þjálfaranum sem
hefur sett sitt traust á unga Víkinga
og ég hef tekið eftir honum á mörg-
um leikjum 2. flokks og meira segja
3 leikjum í 3. flokki. Erum líka að
spila 100% betri fótbolta en verð-
um að klára færin. Þar liggur fjár-
ans hundurinn. Fyrri þjálfari henti
öllum í Berserki eða leyfði mönn-
um ekki að æfa,“ segir í fyrsta inn-
leggi huldumannsins á spjallborði
Víkings.
Alls eru innleggin 14 á spjall-
borðinu. Í einu þeirra segir meðal
annars: „Takk leikmenn og Leifur
Garðarsson fyrir frábæran fótbolta
í gær. Ár og dagar síðan Víkingur
hefur spilað jafn flottan fótbolta og
í Víkinni í gær.“
Huldumaðurinn bjó síðan til
Facebook-síðu þar sem hann hélt
áfram að lofsama Leif, nú fyrir frá-
bæra frammistöðu í knattspyrnu-
þættinum Sunnudagsmessunni á
Stöð 2 Sport 2. Þegar fréttist að pist-
ill um huldumanninn ætti að birtast
á knattspyrnuvefsíðunni fotbolti.net
hvarf Facebook-síðan snögglega.
Ekkert hefur náðst í Leif frá því
hann var rekinn úr starfi. Hann
hefur því hvorki hafnað né staðfest
þann orðróm opinberlega að hann
hafi sjálfur búið til huldumanninn.
Ekki sá fyrsti
Notandinn Albert Örn er ekki fyrsta
dæmið um að einstaklingar villi á sér
heimildir á netinu í því skyni að lofsama
einhvern. Orlando Figes, prófessor í
sögu við Birkbeck-háskólann í London,
varð uppvís að því í fyrra að villa á sér
heimildir á vefsíðu Amazon. Lofsamaði
hann bók eftir sjálfan sig en gerði lítið
úr verkum annarra.
Áður en hann varð uppvís að því að
villa á sér heimildir hafði Orlando Figes
hótað samstarfsmönnum á sínu fræða-
sviði, blaðamönnum og dagblöðum
sem gáfu í skyn að hann væri að verki
málsókn. Þegar hann loks viðurkennn-
di mistök sín sagðist hann hafa verið
undir miklu álagi. Sagnfræðingurinn
Robert Service varð fyrir því að Orlando
Figes sagði bók hans „hræðilega“ á Am-
azon. Sagði hann að þetta hefði haft
mjög slæm áhrif á sig og eiginkonu sína.
Robert Service var því feginn þegar upp
komst um athæfi Orlandos Figes.
n Orðrómur gengur um að Leifur Garðarsson hafi villt á sér heimildir n Kornið
sem fyllti mælinn hjá Víkingi n Svipað mál í Bretlandi vakti mikla hneykslun
Rekinn eftir fréttir
af hulduaðdáanda
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Leifur Garðarsson Hefur
ekki svarað opinberlega fyrir
ásakanir um að hafa búið til
huldumann á netinu til þess
að lofsyngja sjálfan sig.
„Takk leikmenn og Leifur
Garðarsson fyrir frábæran
fótbolta í gær. Ár og dagar síðan
Víkingur hefur spilað jafn flottan
fótbolta og í Víkinni í gær.
Ölvaður ökumaður
lét sér ekki segjast
Karl á þrítugsaldri var tekinn í tvígang
um helgina fyrir ölvunar- og fíkni-
efnaakstur. Maðurinn var stöðvaður
í miðborginni um miðnætti á föstu-
dagskvöld og reyndist þá vera í ann-
arlegu ástandi við stýrið.
Maðurinn lét sér ekki segjast því
rúmum sólarhring síðar, eða aðfara-
nótt sunnudags, var maðurinn aftur
kominn á stjá og enn var ökuferð
hans stöðvuð í miðborginni. Sem
fyrr var hann ekki í ástandi til að aka
bíl. Í tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að maðurinn hafi áður komið
við sögu hjá lögreglu. Í heildina voru
þrettán teknir fyrir ölvunarakstur
og fjórir fyrir akstur undir áhrifum
fíkniefna.
Vilja upplýsingar
um ofurlaun
Fjárlaganefnd hefur óskað eftir því
að fá lista yfir þá ríkisforstjóra sem
hafa neitað að fara að tilmælum, eða
fyrirmælum, forsætisráðherra um að
enginn ríkisforstjóri hafi hærri laun
en ráðherrann. Þetta segir Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson, þingmaður
Samfylkingar og fulltrúi í fjárlaga-
nefnd Alþingis.
„Fjöldi yfirmanna á stofnunum
ríkisins hefur ekki lækkað laun sín
í samræmi við yfirlýsingar forsæt-
isráðherra þess efnis að enginn
ríkisforstjóri þiggi hærri laun en
ráðherrann,“ segir Sigmundur Ernir
á heimasíðu sinni. Hann segir að
þetta hafi verið upplýst á fundi fjár-
laganefndar í morgun með fulltrú-
um Ríkisendurskoðunar og Fjársýslu
ríkisins.
„Fjárlaganefnd hefur óskað eftir
því að fá lista yfir þá ríkisforstjóra
sem hafa neitað að fara að tilmælum
/ fyrirmælum forsætisráðherra. Og
hafa greinilega komist upp með það
… í ljósi óljósrar skilgreiningar á orð-
inu ríkisforstjóri! Það verður athygl-
isverður listi,“ segir Sigmundur.