Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 15
Mannbroddar gegn breinbrotum Ungir sem
aldnir leita í stórum stíl á slysavarðstofuna þegar færðin er slæm og
hálka á gangstéttum og götum. Vetrarfærð er núna víða um land og til
að mynda hefur snjónum kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu. Þá er vert
að minna gangandi vegfarendur á mannbrodda. Þeir eru festir neðan
á skó og koma í veg fyrir að notandinn renni í hálkunni. Mannbroddar
fást meðal annnars hjá flestum skósmiðum og einnig hafa einstaka
byggingavöruverslanir selt mannbrodda. Verðum því skynsöm og
skellum undir okkur broddunum. Það gæti komið í veg fyrir beinbrot.
Sjáum út um bílrúðuna Sólin er enn lágt á lofti og getur auðveldlega blindað
ökumenn. Það er því mikilvægt að hafa gott skyggni út um rúðurnar og á heimasíðu Vegagerðarinnar
eru ökumenn hvattir til að hreinsa bílrúðurnar reglulega. Þar segir að gæta þurfi þess að strjúka ekki
framrúðuna að innanverðu með höndunum því þá getur húðfita sest á hana. Betra sé að nota sköfu
eða láta miðstöðina vinna sitt verk. Reglulegur þvottur og bón á bílnum kemur dregur úr viðloðun
snjós en auk þess er bónhúðin vörn gegn tæringu vegna saltsins á götunum. Mælt er með að fylla
rúðuvökvageyminn með frostþolnum vökva og mikilvægt sé að skipta um léleg rúðuþurrkublöð. Þau
skulu vera ósprungin og laus við tjöru. Oft nægi að strjúka yfir blöðin með tusku vættri með tjöruleys-
andi efni. Eins er mikilvægt að hafa rúðusköfu og lítinn snjókúst á aðgengilegum stað í bílnum.
Neytendur | 15Miðvikudagur 9. mars 2011
Nokkur góð ráð um hvernig næra má húðina á einfaldan og ódýran hátt:
Hrein og náttúruleg efni
Hársnyrtistofur
fá á baukinn
Ríflega 8 af hverjum 10 hársnyrtistof-
um eru með verðskrá yfir þjónustu
sína, samkvæmt nýlegri athugun
Neytendastofu sem kannaði
verðmerkingar á 156 hárgreiðslu-
stofum. Í hitteðfyrra var sams konar
athugun gerð og þá var hlutfallið
66 prósent en þá voru 128 stofur
heimsóttar. „Einnig var skoðað
hvort hársnyrtistofurnar væru með
sérvörur sínar verðmerktar og kom
í ljós að verðmerkingar voru ekki
sem skyldi hjá 26 prósent þeirra 150
stofa sem voru með sérvörur til sölu.
Þetta er alls ekki ásættanlegt,“ segir á
neytendastofa.is. Þar segir að ríflega
50 stofur hafi fengið áminningu að
þessu sinni.
Munum eftir
smáfuglunum
Á þessum árstíma er mikilvægt að
muna eftir fuglunum en þessi tími
getur verið þeim erfiður. Margir
venja sig á að setja út fuglafóður eða
matvæli af borði sínu, svo sem epli,
fitu og aðra matarafganga. Fugla-
verndarféalg Íslands gefur ráð um
hvað sé best að gefa þeim en þar seg-
ir að í kuldum og frosthörkum þurfi
fuglarnir mikla orku til að halda á
sér hita og því sé fita ein besta fæðan
handa þeim. Gott sé að gefa fuglum
fitu sem fellur til á heimilinu eins og
tólg, flot, kjötsag og mör en sú fæða
er afar vinsæl hjá þeim. Eins sé hægt
að nota aðra kjötafganga og jafnvel
hægt að blanda fitu saman við brauð
og jafnvel korn. Slík fæða getur
haldið lífi í fuglunum sem reyna að
þreyja þorrann og góuna.
276 þurfa að
skila Lexus
„Neytendastofu hefur borist tilkynn-
ing frá Toyota á Íslandi um að inn-
kalla þurfi 276 bifreiðar af gerðinni
Lexus RX300, RX350, RX400h vegna
teppahlífar við inngjafarfetil sem
getur losnað og bögglast með þeim
hugsanlegu afleiðingum að fetillinn
fer ekki eðlilega í toppstöðu þegar
honum er sleppt.“ Frá þessu greinir
á vef Neytendastofu. Þar kemur líka
fram að þeir bifreiðaeigendur sem
um ræði muni fá sent bréf eða haft
samband við þá símleiðis. Ekki er
tekið fram hvort ökumönnum sé
hætta búin vegna þessa.
Húðin er stærsta líffærið og mikil-
vægt að hugsa vel um hana. Húð-
in gegnir fjölmörgum hlutverkum,
svo sem að verja önnur líffæri gegn
meiðslum og sýkingum og verja
okkur gegn sólbruna, ofþornun og
hitabreytingum. Eins framleiðir
hún D-vítamínið sem er okkur svo
mikilvægt en auk þess gefur hún
okkur kost á að skynja áferð um-
hverfisins.
Ýmsar húðsnyrtivörur eru á
markaðinum sem eiga að gera
kraftaverk fyrir húðina en virkni
þeirra er misjöfn og margir eru
fullir efasemda um hvort smyrja
eigi slíkum efnum á sig. Á sumum
þeirra má jafnvel finna varúðarorð
um skaðsemi efnanna séu þau not-
uð í óhófi eða þau innbyrt. Það er
því spurning hvort það sé hollt og
gott fyrir líkamann að nota þessar
vörur.
Á heilsubankinn.is má finna
nokkur ráð um það hvernig næra
má húðina á náttúrulegan hátt sem
er einnig einfaldur og ódýr. Þar seg-
ir að gagnlegt sé að taka inn Omega
3-fitusýrur en yfir vetrarmánuði og í
miklum kulda getur verið gagnlegt
að auka inntökuna. Hún verði fyrir
vikið mýkri og síður þurr.
Kókosolía er einnig talin gefa
húðinni raka og verja hana gegn
skaðlegum sólargeislum. Olían
mun ýta undir uppbyggingu nýrra
vefja, er græðandi og dregur úr
öldrun.
Að lokum er bent á að lífræna
Jojoba-olíu sem er fljótandi vax úr
kaldpressuðum plöntum. Hún fari
djúpt ofan í húðina og hjálpi við að
koma jafnvægi á rakastig hennar.
Olían sé nærandi, ýti undir teygjan-
leika húðarinnar og vinni gegn
hrukkumyndun.
Þess skal gæta að náttúrulegu
efnin sem við notum séu hrein og
ekki sé búið að blanda tilbúnum
efnum við þau. gunnhildur@dv.is
Stærsta líffærið Húðin gegnir mörgum og
mikilvægum hlutverkum og því nauðsynlegt
að fara vel með hana. MYND PHOTOS.COM
Þórdís J. Kristjánsdóttir lenti í þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu að finna
hárbeitt brot af dúkahnífsblaði í pott-
inum þegar hún ætlaði að sjóða sér
hafragraut. Haframjölið er frá Eur-
oshopper og keypti Þórdís pokann
í Bónus í Spönginni. Hún getur ekki
hugsað þá hugsun til enda ef hún
hefði gleypt hnífsblaðið.
Glampaði á hnífsblaðið
„Mér fannst þetta bara óhugnanlegt.
Þetta var ósköp venjulegur dagur
hjá mér er ég náði í haframjölspoka,
sem ég var hálfnuð með, upp í skáp.
Ég setti þrjár kúffullar matskeiðar af
haframjöli í pottinn þegar ég fór með
hann að vaskinum sá ég glampa á
eitthvað innan um haframjölið,“ seg-
ir Þórdís þegar hún lýsir því hvern-
ig hún uppgötvaði brotið af dúka-
hnífsblaðinu. Hún segist hafa dregið
dúkahnífsblaðið upp úr pottinum
en það var ekki stærra en svo að það
rúmaðist í matskeiðinni.
„Mér krossbrá og það fyrsta sem
ég hugsaði var, hvað ef ég hefði ekki
tekið eftir þessu í pottinum og hnífs-
blaðið hefði farið ofan í mig,“ segir
hún. Hún segir það ekki vera ætlun-
ina að koma neinum í vandræði með
því að segja frá þessu. Henni hafi
einungis fundist það mikilvægt að
vara fólk við. „Það er ekki gott að fá
svona ofan í sig. Eitthvað hefur gerst
og þetta gæti leynst í fleiri pökkum.“
Harma atburðinn
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir að að-
standendur verslunarinnar harma
þetta innilega. Hann staðfestir það
í samtali við DV að hnífsblaðið hafi
væntanlega komið úr búðinni sjálfri
en ekki við framleiðslu erlendis.
„Þetta er hræðilegt slys og hefði get-
að farið afar illa,“ segir hann og bætir
við að aldrei sé of oft brýnt fyrir fólki
að fara varlega með hnífana. Þeir séu
notaðir til þess að skera upp kassa
með vörum og það sem hefði gerst
í þessu tilfelli var að hnífurinn fór
í gegnum kassann, inn í vöruna og
brotnaði þar.
Aðspurður hvað Bónus geri í slík-
um tilvikum segir Guðmundur að
haft sé samband við viðskiptavin hið
fyrsta. Eins eru send bréf á verslun-
arstjóra Bónuss og enn og aftur ít-
rekað að varlega skuli fara með hníf-
ana. Hann segist ekki hafa lent í slíku
áður, ekki svo hann muni eftir. „Þetta
er hræðilegt slys sem hefði getað far-
ið mun verr. Þetta fór vel, sem betur
fer,“ bætir hann við.
Fær gjafabréf í Bónus
Eftir að Þórdísar rak augun á hnífs-
blaðið í grautarpotti sínum sendi
hún tölvupóst til verslunarstjóra
Bónuss í Spönginni. „Ég fékk þó
ekki svör strax þar sem verslun-
arstjórinn var ekki við og aðstoð-
arverslunarstjórinn sinnti þessu
ekki. Mér finnst allt í lagi að þeir
séu miður sín út af þessu því þetta
er grafalvarlegt mál.“ Öryggisfull-
trúi Bónuss hafði þó samband
við Þórdísi á þriðjudaginn og hún
fullvissuð um að henni yrði þetta
bætt upp. „Hún sagði að þau vildu
gjarnan bæta mér þetta upp og að
ég fengi gjafabréf frá Bónus.“ Að-
spurð hvað henni fyndist um það
sagði hún að erfitt væri að verð-
meta svona hluti. „Ég veit þó alveg
hvað hefði gerst ef ég væri í Banda-
ríkjunum. Þá væri ég sennilega að
verða milljónamæringur. Ég hef
hins vegar engan áhuga á því. Að-
alatriðið er að ég var heppin og
slapp.“
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
HNÍFSBLAÐ FANNST
Í HAFRAMJÖLSPOKA
n Viðskiptavinur Bónuss fann brot af dúkahnífsblaði í Euro-
shopper-haframjöli n Hnífsblaðið stakkst inn í pokann þegar
starfsmenn Bónuss skáru kassa með haframjölspokum
Þórdís Kristjánsdóttir Brá illilega þegar
hún fann brotið af hnífsblaðinu og segist
vera heppin að hafa ekki gleypt það.
Hnífurinn og haframjölið Þórdís tók þrjár matskeiðar úr þessum poka og þar leyndist
hárbeitt brot af dúkahnífsblaði. MYND ÞÓRDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR