Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 9. mars 2011 Miðvikudagur Börsungar með knattspyrnusýningu á Camp Nou: Barcelona í átta liða úrslit Spánarmeistarar Barcelona eru komn- ir í 8. liða úrslit Meistaradeildar Evr- ópu eftir góðan 3-1 sigur á heimavelli gegn Arsenal á þriðjudagskvöld. Ars- enal léku manni færri nær allan síðari hálfleikinn sem reyndist þeim ofviða gegn ógnarsterku liði Börsunga. Barcelona byrjaði leikinn af mikl- um krafti. Höfðu yfirburði á miðj- unni og sóttu linnulaust í fyrri hálfleik. Börsungum gekk þó illa að skapa sér marktækifæri þrátt fyrir yfirburðina. Arsenal-menn virkuðu sem tauga- veiklaðir áhorfendur allan fyrri hálf- leikinn, náðu aldrei neinum takti og fengu boltann aðeins lánaðan í nokkr- ar sekúndur áður en Börsungar voru búnir að hirða hann af þeim og byrjað- ir á nýrri sókn. En Arsenal-menn voru þéttir í vörninni og staðráðnir í að hanga á 2-1 forskoti sínu úr fyrri leiknum. Allt þar til á 48. mínútu þegar fyrirliðinn Cesc Fabregas gerði klaufaleg mistök fyrir framan vítateig sinna manna. Andr- es Iniesta komst inn í arfaslaka hæl- sendingu hans, vippaði boltanum inn fyrir vörn Arsenal, þar sem Lionel Messi tók á móti honum. Messi náði valdi á knettinum, vippaði honum yfir Manuel Almunia sem kom aðvífandi og hamraði hann síðan viðstöðulaust í markið. Stórbrotið mark. Almun- ia hafði komið inn á sem varamaður á 20. mínútu fyrir Wojciech Szczesny sem virtist hafa puttabrotnað skömmu áður. Barcelona var á leiðinni áfram. Síðari hálfleikur byrjaði þó vel fyr- ir Arsenal. Samir Nasri tók hornspyrnu á 52. mínútu en Sergio Busquets, sem stillt var upp í miðverðinum í leikn- um, varð fyrir því óláni að stanga bolt- ann í eigið mark. Taflið hafði snúið við og í þessari stöðu var Arsenal áfram í 8. liða úrslitin. Barcelona þurfti mark til að ná framlengingu, tvö til að sigra. Og þeir voru ekki hættir. Tveimur mín- útum eftir mark Arsenal fékk Robin van Persie sitt annað gula spjald fyrir að skjóta eftir að hafa verið flaggað- ur rangstæður. Harður dómur en Ars- enal manni færri síðustu 40 mínútu leiksins. Á 68. mínútu skoraði Xavi eft- ir frábæran samleik. Tveimur mínút- um síðar var brotið á Pedro í vítateig Arsenal og Messi skoraði sitt annað mark úr vítinu. Barcelona er því komið áfram í keppninni. mikael@dv.is Lokaumferðin í körfunni n Tuttugasta og önnur og síðasta umferðin í Iceland Express-deild karla fer fram á fimmtudaginn. Snæfell er orðið deildarmeist- ari en enn geta þrjú lið fallið. Sex leikir eru á dagskrá sem hefjast allir klukkan 19.15 en þeir eru: Njarð- vík – Tindastóll, Keflavík – Grindavík, Fjölnir – ÍR, KR – Snæfell, Hamar – Stjarnan og Haukar – KFÍ. KFÍ er fallið og Hamar er sem stendur í 11. sætinu. Rétt fyrir ofan Hvergerðingana eru Tindastóll og Fjölnir sem bæði hafa fjórtán stig. Úrslitaleikur hjá stelp- unum n Stelpurnar okkar í íslenska kvennalandsliðinu leika til úrslita á Algarve-mótinu í knattspyrnu í dag, miðviku- dag, gegn stórliði Bandaríkjanna. Framganga stelpnanna á mótinu hef- ur verið hreint með ólíkindum en þær byrj- uðu mótið með því að leggja fjórða besta landslið heims, Svíþjóð, að velli. Næst lögðu stelpurnar Kína og svo á mánudag- inn vann Ísland Danmörku í fyrsta skiptið, 1–0. Er þetta í fyrsta skiptið sem Ísland leikur til úrslita á þessu sterka, árlega æfingamóti. Helena í úrvalsliðið n Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir var valin í úrvalslið Mountain West-riðilsins í banda- ríska háskóla- boltanum. Þetta er í þriðja skipt- ið sem Helenu hlotnast þessi heiður. TCU, lið Helenu, endaði í öðru sæti rið- ilsins en Helena skoraði að með- altali 13,8 stig í leik, gaf 4,6 fráköst, gaf 4,7 stoðsendingar og stal bolt- anum 1,5 sinnum að meðaltali í leik. Næst á dagskrá hjá TCU er úrslitahelgi Mountain West-rið- ilsins í Las Vegas en Helena er að spila sitt síðasta tímabil þar sem hún er útskrifuð. Brawn stórgræddi n Ross Brawn, liðstjóri Mercedes GP í Formúlu 1, græddi 100 millj- ónir dollara á því að selja hlut sinn í liðinu til arab- íska hlutabréfar- isans Daim- ler and Aabar. Brawn keypti liðið af Honda fyrir einn dollara árið 2008 þegar liðið var farið á hausinn. Brawn gerði þá Brawn GP að meisturum árið 2009 áður en Mercedes keypti síðan liðið af Ross Brawn. Brawn hélt sínum 24,9 prósenta hlut í lið- inu sem hann seldi nú og græddi eins og áður segir 100 milljónir dollara. Þrír 1. deildar slagir n Þrír leikir fara fram í Lengjubik- arnum í knattspyrnu á fimmtudags- kvöldið en öll liðin sem mætast leika í 1. deildinni í sumar. Í Akra- neshöllinni tekur ÍA á móti Selfossi en bæði lið eru talin líkleg til þess að fara upp um deild í sumar. Tví- höfði verður síðan í boði í Egilshöll- inni. Klukkan 19.10 mætast Fjölnir og HK og þegar þeim leik er lokið eða klukkan 21.10 mætast lið ÍR og Hauka. Frítt er inn á alla leiki í Lengjubikarnum. Molar „Þessi leikur leggst vel í mig. Það er alltaf gaman að koma heim og hitta strákana,“ segir Róbert Gunn- arsson, línumaður íslenska lands- liðsins í handbolta, en strákarnir okkar mæta Þýskalandi tvívegis í vikunni í undankeppni EM 2012. Fyrri leikurinn er í Laugardalshöll í kvöld, miðvikudag, en sá seinni verður leikinn ytra á sunnudaginn. Eftir óvænt tap gegn Austurríki í sama riðli í október á síðasta ári er sigur ótrúlega mikilvægur ætli strákarnir okkar sér til Serbíu í jan- úar á næsta ári þar sem EM verður haldið. Þjóðverjar unnu Íslendinga á HM í einum versta leik landsliðs- ins til langs tíma en þar hófst fjög- urra leikja taphrina Íslands á mót- inu. Því fagnar Róbert því að fá að svara fyrir tapið. „Það er samt bara bónus,“ segir hann. „Það er samt ekki rétt að fara inn í leikinn til að hefna fyrir eitthvað. Við þurfum að horfa á heildarmyndina en hún er sú að við þurfum að klára þennan riðil og því á ekki að skipta máli hvernig síðasti leikur fór,“ segir Ró- bert. Þurfum að hugsa um okkur Í október í fyrra náði Austurríki jafn- tefli gegn Þýskalandi auk þess að vinna Ísland. Er riðillinn því í miklu uppnámi og berjast þessi þrjú lið um tvö laus sæti á EM. „Þetta er al- veg gríðarlega mikilvægur leikur,“ segir Róbert. „Tapið gegn Austur- ríki dældaði vissulega vonir okkar en sumir segja bara að þetta hleypi spennu í riðilinn. Aðalatriðið er að við þurfum að klára okkar leiki. Við þurfum að fara að venjast því að hugsa þannig því ef við klárum okk- ar þá er allt í góðu.“ Beðinn um að líta til baka á leik- inn gegn Þýskalandi á HM svarar Róbert: „Það er alveg klárt að þar gáfum við eftir í vörninni. Sókn- arleikurinn var líka upp og ofan en þetta eru auðveldar afsakanir. Við vorum líka að klikka á skotum úr góðum færum en við því er svo sem ekkert að segja. Það getur alltaf gerst. Nú er liðinn smátími frá leikn- um þannig að við getum horft til baka og svarað þessari spurningu.“ Fá lið sem geta stoppað okkur Þegar Róbert horfir til baka á tapið gegn Þýskalandi á HM er erfitt að tala ekki um dómarana sem væg- ast sagt stóðu sig ekki í stykkinu en íslenska sendinefndin sendi dóm- araeftirlitinu upptöku með tólf sýni- dæmum þar sem annaðhvort var ekki dæmt víti þegar Róbert sérstak- lega átti að fá vítakast en einnig voru nokkur mörk einfaldlega tekin af ís- lenska liðinu. „Mér finnst leiðinlegt að tala um dómarana en ég veit alveg að þetta skipti gífurlegu máli í leiknum. Við höfum samt oft lent í svona dóm- gæslu og öðrum utanaðkomandi aðstæðum sem hafa haft áhrif á leik- inn. Við verðum einfaldlega bara að rísa yfir það og sigrast á svona mót- læti,“ segir Róbert sem er sigurviss nái íslenska liðið að knýja fram sinn leik. „Ég vil nú ekkert vera að „jin- xa“ þetta daginn fyrir leik en þeg- ar við hittum á okkar besta dag eru ekki mörg lið í heiminum sem geta stoppað okkur. Það er samt ekkert sjálfgefið að detta alltaf á toppleiki. En ef við spilum okkar bolta þá vil Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is n Ísland mætir Þýskalandi í undan- keppni EM n Sigur gríðarlega þýð- ingarmikill ætli Ísland sér til Serbíu n Vilja fulla Laugardalshöll n Guðmundur landsliðsþjálfari finnur nýjar leiðir til að leggja Þýskaland Strákarnir okkar í hefndarhug Vill sigur Róbert Gunnarsson segir fá lið geta keppt við það íslenska hitti það á góðan dag. Þarf að gera betur Arnór Atlason átti ekki gott HM og hann verður að gera betur eins og Aron Pálmarsson á vinstri vængnum. M Y N D iR S iG TR Y G G U R A R i J Ó H A N N SS O N Listaverk Andres Iniesta fagnar með Lionel Messi eftir að sá síðarnefndi hafði skorað frábært mark í lok fyrri hálfleiks. MYND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.