Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 9. mars 2011 Miðvikudagur „Við bjuggumst aldrei við svona miklum við- brögðum.“ n Ólafur Helgason, faðir Theodórs Elvisar, um viðbrögðin sem nafngiftin hefur fengið hér á landi sem og erlendis en Elvis fékk meira að segja sendingu frá Graceland. – DV „Hún er bara að vinna vinnuna sína.“ n Jón Hilmar Hall- grímsson, Jón stóri, um lögregluna. Hann kippir sér ekkert upp við það ef lögreglan fylgist sérstaklega með samtökunum Semper Fi sem hann fer fyrir. Hún banki hvort sem er reglulega upp á hjá honum. – DV „...hann lét berja sig í hakkabuff af því að það er ekkert ofbeldi í hon- um.“ n Berglind Þorvaldsdóttir, móðir drengs í Hveragerði sem hefur verið lagður í svo mikið einelti að hann er hættur að mæta í skóla. – DV „Í dag er ég fullgildur meðlimur í Outlaws.“ n Jón Trausti Lúthersson sem snéri baki við Fáfni og Hells Angels og stofnaði Black Pistons MC. – DV „Það má kannski segja að okkar stríðskostnaður sé bara kostnaðurinn af bankahruninu.“ n Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, vill koma á „stríðsskatti“ ekki ólíkum þeim sem Bandaríkjamenn settu á til að fjármagna stríðsrekstur í kringum seinni heimsstyrj- öldina. Skatturinn myndi leggjast á þá sem eru með milljón eða meira í laun. – Visir.is Einelti er lífsháski S amfélag manna er með þeim ósköpum gert að alls stað- ar þrífst grimmd í einhverj- um mæli. Ofbeldið er gjarn- an við hvert fótmál. Á netinu vega nafnlausir aumingjar gjarnan að nafngreindu fólki úr launsátri. Það mætti skilgreina sem rafrænt ein- elti. Í skólum og á vinnustöðum er algengt að fólk sem er í einhverju frábrugðið öðrum verði fórnar- lömb þeirra sem telja sig vera „normal“. Eineltið þrífst úti um allt og verður alltaf til staðar. Það er hins vegar á valdi samfélagsins alls að búa til þau mörk sem duga til að lágmarka og halda niðri þessum viðbjóði. Vel meinandi fólk getur auðveldlega komið í veg fyrir stór- an hluta eineltismála með því að fordæma athæfi gerenda og halda þannig niðri hvöt þeirra til þess að særa og meiða þá sem eru að ein- hverju marki utan við normið. DV sagði á mánudaginn frá 11 ára dreng í Hveragerði sem hefur sætt einelti árum saman. Nú er svo komið að hann neitar að mæta í skólann þar sem ofsækjendur hans bíða. Móðir hans lýsti því hvernig hann hefur verið útskúfaður, lam- inn og niðurlægður í skólanum. Og þegar drengurinn bauð bekknum sínum í afmæli mætti aðeins einn. Hinir sniðgengu boðið. Fjöldi ann- arra dæma hefur komið fram um að brotalöm sé í skólanum. Gerendur í eineltismálum eru ekki endilega slæmt fólk. Í flestum tilvikum er um að ræða óupplýsta einstaklinga sem í hugsunarleysi og af gráu gamni særa meðbræður og -systur. Lausnin liggur í stöðugri fræðslu um það hvernig fórnar- lömbunum líður. Skólakerfinu ber skylda til þess að halda niðri of- beldinu með því að upplýsa alla nemendur um skelfilegar afleið- ingar eineltis. Fjöldi dæma er til um sjálfs- víg sem eiga rót sína í því ofbeldi sem einelti er. Þar þarf ekki vitn- anna við. Skólayfirvöld í Grunn- skólanum í Hveragerði verða að fara í gegnum sín mál af auðmýkt. Þau verða að leitast við að varpa ljósi á það sem er að gerast í skól- anum. Öllum verður að vera ljóst að óbætanlegur skaði getur hlotist af ofbeldi af þeim toga sem móðir- in í Hveragerði lýsir. Einelti er lífs- háski. Leiðari Voru þið með læti? „Já, það voru brjáluð læti. Það þýðir ekkert minna á hundraðasta baráttudegi kvenna“ segir Inga Dóra Pét- ursdóttir, fram- kvæmdastýra UN Women á Íslandi en landsnefnd félagasamtakanna tók formlega til starfa í gær. Efnt var til gleði vegna þessa við Hljómalindarreitinn. Spurningin Bókstaflega Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Útskúfaður, lam- inn og niðurlægður í skólanum. Sótt að Svavari n Svavar Halldórsson, fréttamaður Ríkisútvarpsins, stendur eins og klettur í ólgusjó lögsókna útrásar- víkinga. Sá sem sækir harðast að honum er Pálmi Haralds- son, kenndur við Fons. Þá er Jón Ásgeir Jóhannes- son athafnamað- ur einnig drjúg- ur við að velgja honum undir uggum. En Svavar lætur engan bilbug á sér finna og fer ótroðnar slóðir í fréttum af Jón Ásgeiri þar sem hann ýjar að því að fólk ætti að segja upp Stöð 2 og hætta að lesa Fréttablaðið til að láta ekki allt yfir sig ganga. Villi sleginn kaldur n Einn allra skarpasti fjárfest- ir landsins, Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags fjárfesta, hefur verið fastagest- ur í þættinum Útsvari þar sem hann keppir fyrir Garðabæ. Í fyrra unnu Garðbæ- ingar keppnina og vann þá Vil- hjálmur mikinn leiksigur þegar hann neitaði að þiggja gjafabréf Ice- land Express sem er í eigu hins um- deilda Pálma Haraldssonar. Minna fór fyrir Vilhjálmi í ár þegar hann og félagar voru slegnir út af Álftnes- ingum. Klárar kjörtímabilið n Pólitískir andstæðingar Dags B. Eggertssonar, oddvita Samfylkingar- innar í Reykjavík, mega nú vígbúast sem aldrei fyrr. Orðrómur hefur ver- ið uppi um að kjörtímabilið kunni að verða endasleppt hjá Degi þar sem hann og eiginkona hans séu hugsanlega á leið í framhaldsnám í læknisfræði. Dagur brást skjótt við sandkorni DV sem lýsti vangavelt- unum. Segir þessi helsti ábyrgðar- maður Besta flokksins afdráttar- laust að hann sé ekki á förum. Mun Dagur því sitja áfram út kjörtíma- bilið. Pínleg ádrepa n Ádrepa Kjartans Ólafssonar, fyrr- verandi ritstjóra og þingmanns, um bók Þórs Whitehead prófessors um íslenska kommúnista er ekkert ann- að en áfellisdómur yfir vinnubrögð- um Þórs. Dóm Kjartans um Þór er að finna í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar. Í ádrepunni sparkar Kjartan stoðunum undan þeirri nið- urstöðu Þórs að íslenskir kommún- istar hafi verið þjálfaðir í vopnaburði í Sovétríkjunum til að taka völdin á Íslandi í blóðugri byltingu þannig að ekki stendur steinn yfir steini. Innlegg Kjartans er hluti af langri og persónu- legri umræðu sagnfræðinga um þessi mál en meðal annarra sem hafa deilt um málið eru Jón Ólafsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, en svo virðist sem íslenskum hægrimönnum sé mjög í mun að koma að þeirri hæpnu söguskýringu að íslenskir kommún- istar hafi ætlað að fremja valdarán í byltingu á dögum kalda stríðsins. Sandkorn TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. U m fátt hefur verið ritað eins mikið og hlutverk og stöðu tungumála. Aðallega í hug- og félagsvísindum. Í kjall- aragrein í DV þann 17. febrúar vakti ég athygli á einum þætti sem ég nefndi vistarbönd tungunnar. Pét- ur Gunnarsson kom með andmæli „Frjómátt íslenskunnar“ þann 2. mars og er rétt að svara þeim. Hlutverk tungumála Þar sem Pétur nálgast málið frá öðr- um sjónarhóli vaknar spurning- in hvort forsendur séu fyrir sam- ræðu, hvort sjónarhornin útiloki ekki hvort annað. Skoðum þau út frá hlutverki tungumála í skilningi Ulrichs Ammon: Nytsemd – annars vegar fyrir menntun og vísindi, starfsval, fé- lagslegan hreyfanleika, hagvöxt – og hins vegar fyrir pólitíska og land- fræðilega einingu. Samnefnari – þ.e. mikilvægi tungumálsins fyrir samstöðu, ímynd, félagslega og menningar- lega sameiningu. Tjáning – samskipti innan og milli hópa. Önnur flokkun sem skiptir máli er aðgreining hagsmuna út frá stétt- eða lagskiptingu. Hvort tung- an hafi áhrif á stöðu stétta til dæm- is á vinnumarkaði, í fræðaheimin- um eða notkun fjöl- eða vefmiðla. Hugtökin þjóð og menning sneiða hjá þessum greinarmun. Allt verð- ur einsleitt, menningarhagsmunir allra renna saman og útilokað verð- ur að aðgreina til dæmis hagsmuni rithöfunda frá öðrum. Þriðja flokkunin tengist samfellu fyrirbæris í tímanum. Eitt fyrirbæri getur borið sama nafn í ár og aldir en þarf ekki að vera hið sama eða samfellt. Staða íslenskunnar Í grein minni fjallaði ég aðallega um fórnarkostnað íslenskunnar fyr- ir vissa hópa og vakti athygli á að tungan verkar á suma eins og vist- arbönd á vinnumarkaði. Þúsund- ir margtyngdra Íslendinga starfa til dæmis í skandinavísku löndunum. Danska, sænska og norska vinnu- aflið flæðir milli landa líkt og ár án landamæra meðan eintyngdir at- vinnulausir lepja dauðann úr skel á Íslandi. Sem tryggir vinnuafl á lús- arlaunum. Í fræðaheiminum verða menn af nauðsyn nytsemdar og tjáskipta að skrifa á gjaldgengu tungumáli hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Nýyrðasmíðin heyrir aðallega undir þennan geira. Litlu málsvæðin ráða ekki við verkefnið. Í netheiminum er nánast allt efni á stóru tungumálunum. Sama á við sjónvarpsefni. Gjaldgengi móðurmáls og mála- kunnátta skýrir þannig aðgang, for- gang og mismunun. Sárt er til þess að vita að eintyngdir Íslendingar (verkalýður og lægri millistétt) þurfi að búa við hliðstætt skömmtunar- kerfi menningar og í Austur-Þýska- landi forðum. Þrúgandi og kúgandi! Tungan breytist og þá er henni oft gefin ný nöfn; latína verð- ur ítalska og norræna verður að 4 tungumálum. Fyrir 6 öldum skildu Íslendingar illa frændur sína í Skandinavíu. Þegar forsetinn hitti Snorra í páfagarði skildu þeir ekki hvor annan. Íslenskan í dag hefur enga upprunavottun. Lesandinn sér væntanlega vanda málræktar- manna við val viðmiða hins „rétta“ máls! Svör við andmælum Rök Péturs Gunnarssonar byggja fyrst og fremst á samstöðuhlut- verki tungunnar fyrir þjóð og sjálfs- ímynd. Einnig gætir hugmynda um afstæði tungunnar, að mál og menning séu samofin, óaðskiljan- leg. Að menn ruglist í ríminu við að skipta um flík eða mál. Þetta er utan við mitt efni en hér geta aðrir lagt orð í belg. Pétur segir að íslenskan sé ekki fjötur um fót því allir læri tungu- mál. Nemandi sé bara nemandi líkt og þjóð sé þjóð. Með 4 til 5 tungu- málaáfanga að baki eru marg- ir ef ekki flestir bjargarlausir. Höf- undar með máltilfinningu geta á hinn bóginn tekið upp önnur mál. Gunnar G., Kristmann og Heinesen eru nærtæk dæmi. HKL reyndi fyrir sér bæði á dönsku og ensku. Eigin- lega munaði aðeins hársbreidd að hann skrifaði á dönsku. Mín umfjöllun er fyrst og fremst félagsleg, að það sé ekki forsvaran- legt að halda uppi tungu mismun- unar nema að hafa ráð á því. Pétur og margir aðrir andmæla þessu. Og þá hlýtur fáfróður maður að spyrja hvort þeir séu reiðbúnir til að taka á sig fórnarkostnaðinn – þegar bankabúðin er stekkur! Nálgun Péturs á heita grautnum ber keim af hugmyndum Claude Lévi-Strauss um varðveislu menn- ingar og menningarkima í út- rýmingarhættu. Ballarhafið hef- ur skapað verndar- eða griðasvæði íslenskunnar með ærnum fórnar- kostnaði fyrir marga. Verndarsvæði íslenskunnar Kjallari Sævar Tjörvason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.