Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Miðvikudagur 9. mars 2011
Fjórar flatir, sex sandgryfjur og púttstúdíó:
Allt til alls í nýju húsi Tigers
Tiger Woods hefur ekkert gengið á
golfvellinum undanfarna átján mán-
uði en ein leiðin til þess að sporna við
því er að flytja inn í nýja glæsivillu í
Flórída. Hvernig hjálpar húsið til? Jú,
þar er allt til alls til að æfa golf.
„Í húsinu eru fjórar flatir til að æfa
púttin, sex sandgryfjur sem eru mis-
djúpar, myndbandsherbergi til að fara
yfir sveifluna og púttstúdíó. Ef eng-
inn vindur er úti get ég mest notað sjö
járnið utan dyra. Þá get ég einnig sleg-
ið bolta út úr húsinu af annarri hæð-
inni,“ ritar Tiger Woods á heimasíðu
sinni. „Ég er ótrúlega spenntur fyrir
húsinu og sérstaklega þessari æfinga-
aðstöðu en hún á eftir að hjálpa mér
mikið.“
Áður átti Tiger heima í Isleworth
sem er úthverfi í Orlando en það var
einmitt þar sem farsinn í kringum
framhjáhald hans hófst. Nú horfir Tig-
er fram á veginn en hann segist vera í
mun betra standi en í fyrrasumar.
„Ég er ljósárum betri en ég var
í fyrrasumar. Ég er núna með mun
dýpri skilning á hvaða skot ég á að
velja hverju sinni en það á ég að
þakka Sean Foley. Hann hefur hjálp-
að mér mikið,“ segir Tiger.
Tiger hefur ekki unnið mót lengi
en hann fær tækifæri til þess að enda
þessa eyðimerkurgöngu um helgina
þegar heimsmótið í golfi fer fram.
„Hvenær mun ég vinna mót aftur?
Þegar það gerist, þá gerist það,“ seg-
ir Tiger. „Núna hugsa ég bara um að
halda áfram að bæta mig og reyna
finna mitt fyrra form.“
tomas@dv.is
Liverpool fylgist
með Gago
n Enska úrvalsdeildarliðið Liver-
pool fylgist nú grannt með mál-
um argentínska miðjumannsins
Fernandos Gago
hjá Real Madr-
id en liðið hef-
ur áhuga á að
kaupa hann í
sumar, sam-
kvæmt breskum
miðlum. Hinn
24 ára gamli
Gago hefur spil-
að yfir 90 leiki með Real Madrid
frá því að hann var keyptur þangað
árið 2007. Undanfarið hefur hann
þó þurft að verma tréverkið mik-
ið þar sem hann er orðinn fjórði
kostur inn á miðjuna. Þetta tímabil
hefur hann aðeins byrjað einn leik
fyrir þá hvítu.
Nýi Ronaldo fer á
kostum
n Japaninn Ryo Miyaichi sem Arsen-
al keypti en lánaði strax til Feyen-
oord í Hollandi stendur heldur bet-
ur undir nafni
sem hinn nýi
Ronaldo þessa
dagana. Frá því
að hann kom til
Hollands í jan-
úar hefur hann
gjörsamlega
farið á kostum
og sýnt ótrú-
lega hæfni með boltann. Þá skoraði
hann sitt fyrsta mark á dögunum.
„Það sem Arsene Wenger sagði við
mig er ég skrifaði undir samninginn
hjá Arsenal hvatti mig til dáða og nú
dreymir mig um að komast til Ars-
enal sem fyrst,“ segir Miyaichi.
Ekki í F1 til að eignast
vini
n Tvöfaldur heimsmeistari í For-
múlu 1, Fernando Alonso hjá Ferr-
ari, hefur svarað þeim ásökunum
að hann hafi
ekkert gaman
af því að keppa
í Formúlunni
en hann þykir
jafnan frekar fúll.
Segist Alonso
hafa gríðarlega
gaman af því að
keppa og væri
sama þó hann myndi alltaf enda
síðastur. Á blaðamannafundi í Bar-
celona sagði hann þó enn fremur:
„Ég er ekki í Formúlu 1 til að eignast
vini heldur vinna titla. Ég vil bara
vinna nógu marga svo að fólkið
muni eftir mér.“
BBC ósátt við United
n Breska ríkissjónvarpið BBC
er mjög ósátt við þá ákvörðun
Manchester United að hafa ekki
gefið kost á viðtölum eftir 3–1 tap-
ið gegn Liverpool um síðastliðna
helgi. BBC ætlar ekki að leggja inn
formlega kvörtun til enska knatt-
spyrnusambandsins en „mun þó
ræða við forráðamenn deildarinn-
ar“ eins og talsmaður BBC orðaði
það. United gæti átt yfir höfði sér
sektir fyrir að ræða ekki við neinn
fjölmiðil sem hefur réttinn að
deildinni, en aðeins ef útvarps-
stöðin TalkSPORT eða Sky Sports
leggja inn kvörtun.
Ótrúlegur stuðningur
n Framherjinn hávaxni Andy
Carroll kom inn á fyrir Liverpool í
sínum fyrsta leik þegar Liverpool
lagði United, 3–1, um helgina.
Hann ætlaði einfaldlega ekki að
trúa þeim stuðningi sem hann
fékk inni á vellinum. „Þegar ég
var að hlaupa til baka eftir fyrsta
skallann minn öskraði fólkið svo
hátt að ég varð bara æstur. Ég var
náttúrulega meira en ánægður að
komast aftur út á knattspyrnuvöll-
inn. Stuðningurinn var ótrúlegur,
líka þegar ég var að hita upp. Þetta
var alveg ótrúleg stemning,“ segir
Carroll.
Molar
Ekki lengur bestur Gengi Tigers Woods
hefur verið ömurlegt undanfarin misseri.
ég sjá tvö stig í húsi á miðvikudag-
inn. Það er alveg á hreinu,“ segir Ró-
bert Gunnarsson sem skartar líka
þessu glæsilega yfirvaraskeggi í til-
efni Mottumars.
Eigum mikið inni
„Við erum í hefndarhug,“ segir Guð-
mundur Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari, um leikinn mikilvæga
í kvöld. „Við töpuðum fyrir Þjóð-
verjum síðast og spiluðum þar ekki
nægilega vel. Þeir náðu á okkur
mörkum sem við erum ekki sáttir
við. En Þýskaland er með frábært
lið og við þurfum að spila vel til að
vinna þá. Ég tel okkur eiga mik-
ið inni bæði varnarlega og sóknar-
lega. Núna er ég að kortleggja hvaða
breytingar við getum gert í vörn-
inni og sömuleiðis í sókninni,“ seg-
ir Guðmundur en hvað var að í Sví-
þjóð?
„Þeir skoruðu of mikið á þriðju
bylgju í hraðaupphlaupum. Við
fengum þrjú mörk á okkur á þann
hátt, Glandorf var að skora auðveld
mörk og svo fengum við tvö mörk
á okkur einum fleiri. Þegar þetta er
talið saman eru kannski sex til sjö
mörk sem ég vil bara ekki sjá og er
óþarfi að fá á sig.“
Þýskaland kemur sem sært dýr
Fyrir utan sigurinn á Íslandi gerði
Þýskaland lítið sem ekkert á HM og
endaði í níunda sæti. Guðmundur
hefur að vanda samt varann á. „Þjóð-
verjar koma hingað alveg dýrvitlaus-
ir,“ segir hann. „Þeir voru gagnrýndir
mjög eftir HM og koma hingað sem
sært dýr. Þeir munu vera alveg kol-
brjálaðir og ætla sér að sækja þessi
tvö stig. Leikurinn er líka upp á líf og
dauða. Hann skiptir gríðarlegu máli
upp á það hvort við komumst hrein-
lega á EM,“ segir Guðmundur sem vill
ekkert gefa upp um hvað hann telji
liðið þurfa mörg stig af þeim sex sem í
boði eru til að komast til Serbíu.
„Ég vil ekki segja neitt um það.
Mín heimspeki er bara að hugsa um
næsta leik því það er hann sem skiptir
máli. Það sem við vitum er að til þess
að vinna Þýskaland þarf liðið að spila
mjög vel. Það þýðir ekkert hálfkák
gegn þeim því Þjóðverjar eru með
frábært lið. Ég vonast bara til þess að
fólkið styðji við bakið á okkur og fylli
Höllina.“
Strákarnir okkar í hefndarhug