Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 11
Fréttir | 11Miðvikudagur 9. mars 2011 Rektor Kvikmyndaskólans skiptir sér ekki af frítíma starfsmanna: Húsvörður breyttist í vítisengil Húsvörðurinn í Kvikmyndaskóla Ís- lands er meðlimur í mótorhjólasam- tökunum Vítisenglum. Hann um- breyttist í vítisengil um síðustu helgi þegar íslensku mótorhjólasamtökin MC Iceland fengu inngöngu í alþjóð- lega mótorhjólaklúbbinn Vítisengla. Þetta hefur DV eftir traustum heim- ildum. Húsvörðurinn vill þó sjálfur ekki tjá sig um málið. „Ég hef ekkert um þetta mál að segja,“ segir hann að- spurður um þátttöku sína í Vítisengl- um. „Ég bið þig bara vel að lifa.“ Húsvörðurinn var meðlimur í ís- lenska mótorhjólaklúbbnum MC Ice- land sem um helgina gekk formlega inn í samtökin Vítisengla, eftir að hafa verið með formlega stöðu áhangenda samtakanna frá árinu 2009. Rektor Kvikmyndaskólans, Hilmar Oddsson, segist ekki hafa fengið málið inn á borð til sín og segir að skólinn hafi hingað til ekki haft afskipti af því sem starfsmenn aðhafist í frítíma sínum. Leiðtogi íslenskra vítisengla hef- ur ítrekað sagt að þeir séu fjölskyldu- menn og að samtökin séu fjölskyldu- samtök. „Við erum fjölskylduklúbbur fyrst og fremst, ekki glæpasamtök,“ sagði Einar Ingi Marteinsson, leiðtogi vítisengla, sem er oft kallaður Einar „Boom“, í samtali við DV á dögunum. Einar hefur þó veigrað sér við því að tjá sig um málefni samtakanna og svar- aði mörgun spurningum DV með því að segja „Nó komment“, eða „Ekkert svar“, þegar hann var spurður út vígslu MC Iceland inn í Vítisengla fyrir helgi. Margir meðlimir Vítisengla á Ís- landi hafa komist í kast við lögin sam- kvæmt heimildum DV og stangast það á við fjölskylduímyndina sem Einar Ingi dregur upp af klúbbnum. Þess ber þó að geta að þrátt fyrir að meðlimir Vítisengla á Íslandi hafi gerst brotlegir við íslensk lög hafa samtökin ekki ver- ið dæmd fyrir að brjóta lögin. adalsteinn@dv.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Frumsýning í Kassanum 10. mars Tryggðu þér miða! eFtir HenriK ibsen Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is Enda telur hann að á sér og sínum hafi verið brotið frá fyrsta degi. Hann telur ríkið bera höfuðábyrgð í málinu og ætlar því ekki að gefast upp þrátt fyrir afsvar forsætisráðuneytisins. Guðbrandur telur rétt sinn skýr- an samkvæmt 6. og 13. grein Mann- réttindasáttmála Evrópu um að hann eigi að fá úrlausn sinna mála jafnvel þó það hafi ekki tekist á þeim tveim- ur dómstigum sem í boði eru hér á landi. Hann hefur einnig farið með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu en það gerði hann eftir að hafa tapað málinu í Hæstarétti í fyrra skiptið. Umsókninni var hafnað. Sendi bréf til Ögmundar „Það er ekki til í dæminu að ég gef- ist upp. Það er bara ekki hægt,“ segir Guðbrandur sem á mánudagsmorg- un sendi Ögmundi Jónassyni inn- anríkisráðherra bréf vegna málsins. „Það verður að klára þetta mál. Það var brotið á okkur og hefur verið gert alla tíð síðan. Manni dettur í hug spil þar sem er svindlað á manni lon og don og síðan í restina er manni leyft að hirða síðustu tvo slagina. Það er hent í okkur smánarbótum fyrir að láta hreppinn eiga sig.“ Guðbrandur segir að málið hafi legið eins og mara á fjölskyldunni í nærri þrjá áratugi. „Við vorum svo að komast á þokkalegt ról þegar dómur Hæstaréttar féll. Þá var bara gjörsam- lega sparkað undan okkur fótunum á nýjan leik. Ég hélt að við byggjum í réttarríki þar sem réttlætið fengi fram að ganga en það er bara barna- trú. Þetta er ekki bara sorgarmál fyr- ir okkur heldur íslenskt réttarkerfi, stjórnsýslu og þjóðina almennt,“ seg- ir hann að lokum og bíður eftir svari Ögmundar. Fyrir þá sem vilja kynna sér mál Guðbrands betur hefur hann vistað gögn sem hann hefur safnað að sér á vefsíðunum gubrandur.blogspot. com og gkh.blog.is/blog/gkh. Guðbrandur Haraldsson „Manni hefur verið lofað hinu og þessu af fjölda manns í gegnum tíðina en svo er ekki staðið við neitt.“ Ekki á borði rektors Hilmar Oddsson segir ekkert hafi komið inn á sitt borð er varðar mál húsvarðarins en bendir á að skólinn hafi hingað til ekki skipt sér af því sem starfsmenn hans gera utan vinnutíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.