Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Page 14
Með allt á hreinu
n Lofið fær starfsfólk Bónus Lang-
holti á Akureyri. Norðlendingur
sendi eftirfarandi: „Ég versla oft í
þeirri búð og mér finnst það starfs-
fólk sem ég hef þurft að leita aðstoð-
ar hjá gríðarlega vel upplýst og það
er líflegt og kurteist. Einnig er búðin
mjög snyrtileg og þar er allt á
hreinu. Svo er það besta að
grænmetiskælirinn er gríð-
arlega fallegur og snyrtilegur
yfirleitt sem er að mínu
mati mjög mikilvægt
og ábótavant í flestum
matvöruverslunum á
Íslandi í dag.“
Reiknaðu
mataræðið út
Við heyrum sífellt fréttir af því að
Íslendingar borði ekki nógu hollan
mat og séu ekki vel á sig komnir
líkamlega. Alls konar ráðleggingar
dynja á okkur úr öllum áttum og oft
er erfitt á átta sig á hvað eru bestu
ráðin. Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar
er spurt: „Hvernig er mataræðið?
Borðar þú nógu hollan mat? Færðu
nóg af bætiefnum og trefjum úr
fæðunni? Er fitan ef til vill of mikil?“
Þar má finna reiknivél sem finnur út
úr þessu fyrir þig en þar má reikna
saman þá fitu og bætiefni sem þú
færð úr því sem þú borðar daglega.
Þú svarar 19 krossaspurningum og
færð svo að vita hvernig mataræði
þitt sé og gefin eru ráð um hvað má
betur fara.
Öll sjónvörpin
biluð
n Lastið fer einnig norður á Akur-
eyri en það er líkamsræktarstöðin
Átak sem fær það að þessu sinni. „Í
stöðinni eru sjónvörp á
hlaupabrettunum sem
væri gott og blessað ef
þau væru ekki öll bil-
uð. Annað hvort virkar
ekki hljóðið, myndin
er afskaplega óskýr eða
sjónvarpið virkar bara alls
ekki, “ segir óánægður við-
skiptavinur.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
LOF&LAST
Hvítar tennur með jarðarberjum Jarðarber og matarsódi geta hjálpað
okkur við að fá hvítari tennur, segir á heilsubankinn.is. Það sem orsakar að tennurnar okkar
litast eru lituð mólekúl sem finnast til dæmis í rauðvíni, kaffi og tei. Stöðugt færist í vöxt að fólk
reyni hinar ýmsu aðferðir við að gera tennur sínar hvítari. Hér á landi er það til dæmis æ algeng-
ara að fólk fari í tannhvíttun en slíkar meðferðir geta haft tannkul í för með sér sem og slæm
áhrif á góminn og taugaenda í gómnum. Heilsubankinn.is mælir hins vegar með að blanda
saman jarðarberjum og matarsóda og dreifa því á tennurnar. Blandan er látin vera á tönnum í
fimm mínútur en að því loknu skulu tennur burstaðar með örlitlu tannkremi. Þó er varað við því
að gera þetta of oft þar sem ofnotkun getur mögulega haft slæm áhrif á glerung tannanna.
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 9. mars 2011 Miðvikudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 231,9 kr. Verð á lítra 236,8 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 230,7 kr. Verð á lítra 235,6 kr.
Verð á lítra 231,9 kr. Verð á lítra 236,8 kr.
Verð á lítra 230,6 kr. Verð á lítra 235,5 kr.
Verð á lítra 230,7 kr. Verð á lítra 235,6 kr.
Verð á lítra 231,9 kr. Verð á lítra 236,8 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Akureyri
Melabraut
Algengt verð
Flestar plastvörur, frá stútkönnum
til matarfilmu, geta gefið frá sér efni
sem virka eins og hormónið estró-
gen. Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn sem birtist á Environmental
Health Perspective, vefsíðu sem birt-
ir ritrýndar greinar um heilbrigðis-
mál. Fjallað hefur verið um skaðsemi
efnisins Bisfenól-A (BPA) í plastvör-
um en nýjustu rannsóknir sýna hins
vegar að þetta eigi ekki einungis við
BPA og enn sé efni að finna í plast-
vörum sem berast í matvælin og hafa
eiginleika til að líkja eftir estrógeni.
Efnin má finna í BPA-fríum
vörum
Rannsakaðar voru rúmlega 400
hundruð vörur en áhersla var lögð
á vörur sem komast í snertingu við
mat og þá sérstaklega vörur svo
sem barnapela og vatnsbrúsa. Í ljós
kom að yfir 70 prósent þeirra gáfu
frá sér efni sem líkir eftir horm-
ónum þegar vörurnar voru látn-
ar liggja í saltvatni eða alkóhóli.
Rannsóknin sýndi að efni þessi má
einnig finna í BPA-fríum vörum.
Notkun á því efni í plastvörum hef-
ur verið umdeild á síðustu árum og
í kjölfarið lagði til dæmis Kanada
blátt bann við notkun efnisins og
þar er það flokkað sem eitur. Dan-
mörk, ásamt nokkrum öðrum að-
ildarlöndum Evrópusambandsins,
hefur nú einnig bannað notkun á
BPA í pelum fyrir ungbörn. Marg-
ar vörur eru nú auglýstar sem BPA-
fríar og hafa framleiðindur notað
önnur efni í staðinn en áhrif þeirra
eru ekki eins kunn. Samkvæmt nýj-
ustu rannsóknum hafa þau sömu
áhrif og BPA.
Truflar hormónastarfsemi
Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós
að BPA líkir eftir estrógeni í líkaman-
um og getur því truflað hormóna-
starfsemi. Það valdi meðal annars
röskun á innkirtlastarfsemi, ófrjó-
semi, skemmdum á æðakerfi, aukn-
um líkum á brjóstakrabbameini og
snemmbærum kynþroska. Efni þetta
var gríðarlega algengt í plastílátum,
drykkjarflöskum og matarílátum úr
plasti, innan í niðursuðudósum og
í pelum. Það er gjarnan notað til að
herða plast og oftast að finna í glans-
andi hörðum plastvörum. Sýnt hefur
verið fram á að BPA lekur út í vökva
úr plastílátum og hætt er við að því
meira sem þau eru notuð og ef þau
eru hituð margfaldist lekinn. Það
sama á við ef heitum vökva er hellt í
ílát.
„Mál sem þarf að fylgjast með“
„Matvælastofnun gaf út í haust
ráðleggingar til foreldra um það
hvernig eigi að lágmarka flæði BPA
í barnapelum,“ segir Stefán Vil-
hjálmsson, matvælafræðingur hjá
Matvælastofnun. „En þessi nýja
rannsókn sýnir fram á að það eru
fleiri efni en bara BPA sem geta
haft svipaða verkun eða líkt eftir
kvenhormóninu estrógeni. Þetta
er eitthvað sem við fylgjumst með
hér hjá Matvælastofnun. Við höf-
um ekki bannað BPA en þetta mál
er í skoðun og er mál sem þarf að
fylgjast vel með,“ segir Stefán.
Hafa ákveðnar áhyggjur
Aðspurður hvort menn hafi áhyggj-
ur af þessu segir Stefán að eins og
fram hefur komið hafi ekki verið sýnt
fram á beina skaðsemi miðað við
það magn sem hugsanlega kann að
finnast í vörum eða í matvælum sem
geymd eru í þess konar plastílátum.
Menn hafi þó ákveðnar áhyggjur af
þessu og þetta sé eitthvað sem þurfi
að fylgjast með. „Það eru áfram-
haldandi rannsóknir á þessu efni
og mögulegum áhrifum þess. Stað-
an hjá okkur er sú að við bendum á
hvernig meðhöndla eigi plastílát, svo
sem pela, og við fylgjumst með þró-
uninni.“ Sér í lagi sé nauðsynlegt að
fylgjast með þessu með tilliti til ör-
yggis ungbarna en þau séu mun við-
kvæmari en aðrir fyrir efnunum fram
að hálfs árs aldri.
BPA væntanlega bannað á
Íslandi á árinu
Stefán bendir á að Matvælaöryggis-
stofnun Evrópu gaf út álit í sept-
ember þar sem ekki var talin
ástæða til að banna efnið þar til
rannsóknir sýndu ótvíræðari skað-
semi BPA. Ráðherraráð ESB ákvað
að ganga lengra og nú í lok janúar
var gefin út tilskipun um takmörk-
un á notkun BPA sem fólst í banni
við notkun þess í barnapelum.
Framleiðsla á barnapelum með
BPA var bönnuð í löndum ESB frá
1. mars á þessu ári og innflutning-
ur og dreifing frá 1. júní. Þessi til-
skipun er nú í umsagnarferli hjá
ríkjum á Evrópska efnahagssvæð-
inu, þar með talið á Íslandi, og tek-
ur væntanlega gildi hér í framhaldi
af því.
Ráðleggingar Matvælastofnunar um meðhöndlun á pelum sem innhalda BPA.
1. Henda rispuðum pelum eða pelum með sprungum í.
Slitinn barnapeli gæti haft sprungur sem sýklar safnast fyrir í og erfitt er að þrífa og ef
pelinn inniheldur BPA gæti það flætt yfir í vökvann í meira magni en ella.
2. Hitastig skiptir miklu máli
Það skiptir máli hvernig hita á til dæmis brjóstamjólk eða þurrmjólk. Rannsóknir hafa
sýnt að BPA getur flætt í litlu magni yfir í mat og/eða drykk. Meira magn efnisins flæðir
ef sjóðandi eða heitt vatn/matvæli eru sett í ílát sem inniheldur BPA.
Ekki setja sjóðandi eða mjög heitt vatn ásamt þurrmjólk eða annan heitan vökva í
barnapela sem inniheldur BPA þegar verið er að undirbúa blönduna fyrir barnið.
Áður en vatninu er blandað við mjólkurduftið er best að setja sjóðandi vatn í ílát sem
inniheldur ekki BPA og leyfa því að kólna þar til það er orðið volgt.
Þurrmjólk sem er tilbúin til neyslu er í lagi að nota við stofuhita eða velgja hana örlítið
með því að setja pelann í heitt vatn úr krananum.
Hitið aldrei barnapela í örbylgjuofni. Alveg sama af hvaða tegund þeir eru, mjólkin gæti
hitnað misjafnlega og barnið getur þá brennt sig á henni.
Þrífið og sótthreinsið barnapela samkvæmt leiðbeiningum sem fylgja. Látið svo pelann
kólna áður en þurrmjólkinni eða öðrum vökva er bætt út í.
3. Merkingar og leiðbeiningar sem fylgja pelum og öðrum matarílátum
Það er góð regla að setja ílát aðeins í uppþvottavél ef þau eru merkt með „dishwasher
safe“ og sama með örbylgjuofn ef þau eru merkt með „microwave safe“.
Þegar plast með BPA er hitað í örbylgju eða þvegið í þvottavél eykst flæði BPA úr
plastinu.
Á heilsubankinn.is eru leiðbeiningar um hvernig hægt sé að forðast nálgun við BPA en
þar segir að það sé kjörið að nýta sér málm- eða glerflöskur undir drykki, nota plastbrúsa
sem merktir eru númer 5 því þeir eru sagðir skaðlausir. Forðast skuli hert plastmatará-
höld, sérstaklega fyrir lítil börn, nema hægt sé að fullvissa sig um að þau innihaldi ekki
eiturefnið. Sé BPA í plastvörunum sé mikilvægt að nota mild þvottaefni á þær, sleppa
því að þvo þær í uppþvottavél. forðast að þær hitni og þrífa þær með svampi. Það dragi
úr líkum á því að efnið leysist upp og berist út í matvælin. Þar sem BPA er gjarnan í
niðursuðudósum er vert að benda á að kaupa frekar vörur sem eru í glerkrukkum.
Ráðleggingar Matvælastofnunar
Ráðleggingar Heilsubankans
n Nýjar rannsóknir sýna að enn sé að finna efni sem líkja eftir hormónum
í flestum plastvörum n Auka líkur á ófrjósemi, brjóstakrabbameini,
snemmbærum kynþroska n Matvælastofnun fylgist með þróun mála
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
EITUREFNIN FLÝTA
FYRIR KYNÞROSKA
Ungbarn með pela Komið hefur í ljós að fleiri efni
en BPA geta líkt eftir estrógeni. MYND PHOTOS.COM