Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Síða 17
Erlent | 17Miðvikudagur 9. mars 2011
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, liggur nú á spítala eftir að
hafa gengist undir flókna skurðað-
gerð á andliti. Margir muna ef til
vill eftir því þegar Berlusconi fékk
styttu í höfuðið fyrir rúmi ári, eða
í desember árið 2009. Var forsæt-
isráðherrann þá í þann mund að
stíga upp í glæsibifreið sína þegar
maður nokkur, Massimo Tartaglia,
henti styttu í höfuð forsætisráð-
herrans. Það var kaldhæðnislegt að
styttan var eftirmynd af Dómkirkj-
unni í Mílanó, táknmynd heima-
borgar Berlusconis. Tartaglia,
sem er rafmagnsverkfræðingur að
mennt, mun hafa þjáðst af geðsjúk-
dómi og var ári síðar dæmdur ósak-
hæfur. Hann var hins vegar dæmd-
ur til að dvelja í ár á geðsjúkrahúsi.
Þrátt fyrir að Berlusconi hafi verið
talsvert skaddaður eftir atvikið,
ákvað hann að fyrirgefa Tartaglia
opinberlega árásina.
Gat ekki hreyft kjálkann
Samkvæmt Alberto Zangrillo, sem
starfar sem persónulegur læknir
Berlusconis, var nauðsynlegt fyr-
ir forsætisráðherrann að gangast
undir aðgerðina, þar sem hann hafi
átt í erfiðleikum með að tyggja og
kyngja mat. Þrátt fyrir að ekkert sjá-
ist á Berlusconi þegar hann kemur
fram opinberlega, var nauðsynlegt
fyrir hann að fá bæði beinígræðslu í
kjálkann, sem og nýjar tennur – en
hann missti einmitt tvær tennur í
styttuárásinni.
Berlusconi er einmitt þekktur
fyrir að vera með útlitið á heilan-
um. Hann kemur yfirleitt ekki fram
opinberlega án þess að eyða mikl-
um tíma með förðunarmeistara
sem sér um að láta Berlusconi líta
út fyrir að vera yngri en 74 ár hans
á þessari jörð gefa til kynna. Hann
hefur einnig gengið í gegnum með-
ferð við krabbameini í blöðruháls-
kirtli og gengur einnig með hjarta-
gangráð. Til að passa enn frekar
upp á útlitið hefur hann einnig
gengist undir hárígræðslu sem og
andlitslyftingu.
Mun standa í ströngu næstu
vikur
Talsmenn forsætisráðherrans segja
að hann gæti verið mættur aft-
ur til vinnu strax á fimmtudag. Þá
fullyrtu þeir einnig að Berlusconi
hygðist vera viðstaddur réttarhöld
þar sem hann er sjálfur sakborn-
ingur, en honum er gefið að sök að
hafa sængað með ólögráða vænd-
iskonu og síðar beitt valdi sínu til
að hylma yfir glæpinn. Samkvæmt
ítölskum lögum er ekki nauðsyn-
legt fyrir sakborninga að vera við-
staddir þegar réttað er yfir þeim,
nema við vitnaleiðslur. Berlusconi
er hins vegar staðráðinn í að verja
sig sjálfur, en hann mun hafa lið
lögfræðinga sér við hlið þurfi hann
aðstoð. „Forsætisráðherrann tel-
ur þetta kjörið tækifæri til að sýna
að hann geti varið sig sjálfur,“ sagði
Niccolo Ghedini, einn lögfræð-
inga hans. Berlusconi hefur þó sett
réttinum skilyrði – að réttarhöldin
megi aðeins fara fram á mánudög-
um, aðra daga væri glaumgosinn
frá Sardiníu of upptekinn. Réttar-
höldin munu að óbreyttu hefjast
þann 6. apríl í Mílanó.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Forsætis ráð -
herrann telur
þetta kjörið tækifæri til
að sýna að hann geti
varið sig sjálfur.
n Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, liggur á
sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir aðgerð á andliti
n Hefur enn ekki jafnað sig á „styttuárásinni“ í desember 2009
n Hann ætlar að verja sig sjálfur í komandi réttarhöldum
Berlusconi
undir hnífinn
Í kjölfar árásarinnar
Berlusconi blóðugur eftir
styttuárás Massimos
Tartaglia.