Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Qupperneq 21
Hreinn fæddist í Miðskeri í Hornafirði og ólst upp í Horna-firði. Hann lauk prófum frá Iðn- skólanum í Reykjavík, sveinsprófi í húsasmíði 1968, öðlaðist meistara- réttindi 1974 og lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 1992. Hreinn vann við húsasmíðar og smíðakennslu til 1987, var fastráðinn kennari við Nesjaskóla 1987–96, kenn- ari við Mýrarhúsaskóla 1996–97 og var síðan aðstoðarskólastjóri við Nesja- skóla frá 1997–2001. Hreinn var um skeið byggingar- fulltrúi og fasteignamatsmaður í Nesjahreppi, virðingamaður fyrir Brunabótafélag Íslands. Hann sat í barnaverndarnefnd um árabil, situr í sóknarnefnd, er meðhjálpari og hef- ur sungið í Samkór Hornafjarðar um árabil. Hreinn æfði og keppti í íþróttum á yngri árum, var virkur í starfi íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar, starfaði í Lionsklúbbnum Hæni í Nesj- um, sat í stjórn Menningarfélags Aust- ur-Skaftfellinga um skeið, var fyrsti formaður Leikfélags Hafnar- kauptúns og síðar í Leikhópi Mána. Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum leiksýningum í Nesjum og á Höfn og samið gamanmál í bundnu máli og flutt við ýmis tækifæri. Fjölskylda Hreinn kvæntist 1956 Ragn- heiði Hjartardóttur, f. 21.3. 1936, hús- móður. Þau skildu. Hreinn kvæntist 24.10. 1964 Krist- ínu Gísladóttur, f. 29.7. 1940, kennara og síðar skólastjóra Nesjaskóla. Hún er dóttir Gísla Björnssonar, rafveitu- stjóra á Hornafirði, og k.h., Regínu Stefánsdóttur húsmóður. Börn Hreins og Ragnheiðar eru Eiríkur, f. 27.11. 1957, bifreiðarstjóri í Hafnarfirði, kvæntur Þórunni Þor- steinsdóttur og eiga þau tvær dæt- ur; Steinar, f. 26.8. 1960, d. 30.9. 1961; Sigrún Helga, f. 29.7. 1962, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Héðni Ólafssyni og eiga þau þrjár dætur. Börn Hreins og Kristínar eru Reg- ína, f. 26.10. 1966, landfræðingur og þjóðgarðsvörður í Skaftafelli en sam- býlismaður hennar er Klaus Kretzer og á hún tvo syni; Steingerður, f. 24.7. 1970, MA í alþjóðlegum samskiptum og MA í viðskiptafræði, starf- ar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, búsett á Selfossi og á hún tvö börn; sveinbarn, f. 2.8. 1971, d. 3.8. 1971; Pálm- ar, f. 18.11. 1974, íþróttakenn- ari og þrekþjálfari hjá knattspyrnufé- laginu Djurgarden í Svíþjóð en kona hans er Linda Guttormsdóttir og eiga þau tvö börn. Systkini Hreins: Benedikt, f. 20.4. 1914, nú látinn, var búsettur á Höfn, var kvæntur Hallgerði Jónsdóttur; Sig- urður, f. 21.7. 1918, nú látinn, var bú- settur á Höfn, var kvæntur Ásu Finns- dóttur; Sigurbjörg, f. 16.9. 1922, á Stórulág í Hornafirði, ekkja eftir Sig- finn Pálsson; Rafn, f. 15.8. 1924, nú látinn, var búsettur í Reykjavík, var kvæntur Ástu Karlsdóttur. Foreldrar Hreins voru Eiríkur Sig- urðsson, f. 16.8. 1879, d. 15.3. 1937, bóndi í Miðskeri, og k.h., Steinunn Sigurðardóttir, f. 7.8. 1884, d. 13.5. 1975, húsfreyja. Eyrún fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hún var í Barna-skóla Vestmannaeyja og Fram- haldsskólanum í Vestmannaeyjum, stundaði nám í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan BSc-prófi 2004. Þá stundaði hún nám á túbu við Tónlistarskóla Vestmanna- eyju og lauk þar 4. stigs prófi. Eyrún stundaði fiskvinnslustörf í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyj- um með námi þar, vann í tvö sumur við Sparisjóðinn í Vestmannaeyjum, starfaði síðan hjá Íslandsbanka í Eyj- um og vann þar fram að útskrift 2004. Hún hóf þá fullt starf hjá Íslandsbanka í Reykjavík haustið 2004 og starfaði þar (hjá Glitni) fram að vori 2009. Þá hóf hún störf hjá Almenna lífeyris- sjóðnum og hefur starfað þar síðan. Eyrún æfði og keppti í handbolta með ÍBV, lék með meistaraflokki liðs- ins í nokkur ár og varð Íslandsmeist- ari með liðinu árið 2000. Hún lék með Lúðrasveit Vestmannaeyja um nokk- urra ára skeið. Fjölskylda Eiginmaður Eyrúnar er Davíð Egils- son, f. 24.1. 1981, læknakandidat. Dóttir Eyrúnar og Davíðs er Erna Sólveig Davíðsdóttir, f. 20.1. 2007. Systur Eyrúnar eru Valgerður Sig- urjónsdóttir, f. 6.7. 1982, starfsmað- ur við leikskóla á Neskaupstað; Ólöf Rún Sigurjónsdóttir, f. 12.10. 1989, há- skólanemi; Jóna Rán Sigurjónsdóttir, f. 12.10. 1989, háskólanemi; Jóhanna Björg Sævarsdóttir, f. 13.2. 2004. Foreldrar Eyrúnar eru Erna Ólöf Óladóttir, f. 7.4. 1963, útgerðarmaður í Mjóafirði, og Sigurjón Sigurjónsson, f. 29.12. 1958, strætisvagnsstjóri, bú- settur í Hafnarfirði. Eiginmaður Ernu Ólafar er Sævar Egilsson, f. 22.3. 1961, útgerðarmaður í Mjóafirði. Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Miðvikudagur 9. mars 2011 Til hamingju! Afmæli 9. mars Til hamingju! Afmæli 10. mars 30 ára „„ Grzegorz Jan Dryjanski Álftamýri 22, Reykjavík „„ Katarzyna Owczarska Kirkjuteigi 7, Reykja- nesbæ „„ Gunnar Guðjónsson Holtsgötu 19, Hafnarfirði „„ Guðrún Ósk Traustadóttir Grasarima 2, RVK „„ Hildur Rafnsdóttir Sundlaugavegi 18, Reykjavík „„ Þórdís Rafnsdóttir Frostafold 28, Reykjavík „„ Krzysztof Etorowicz Birkilundi, Mosfellsbæ „„ Jolanta Kozlowska Skúlabraut 19, Blönduósi „„ Björn Elvar Sigmarsson Mávahlíð 23, RVK „„ Jón Örn Albertsson Álfhólum 9, Selfossi „„ Þorbjörg Sif Þorsteinsdóttir Selvaði 11, Reykjavík „„ Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir Sæviðarsundi 86, Reykjavík „„ Valdimar Hannes Hannesson Tröllakór 8, Kópavogi „„ Einar Örn Arnarson Baldursgötu 9, Reykjavík „„ Sigurður Örn Línb. Kristjánsson Hörðalandi 12, Reykjavík „„ Sigríður Þóra Óðinsdóttir Melalind 6, Kópavogi „„ Sigmundur Bjarki Garðarsson Hlíðarvegi 56, Kópavogi „„ Ólafur Gíslason Goðatúni 7, Garðabæ „„ Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir Njarðvíkur- braut 26, Reykjanesbæ „„ Jóna Bergþóra Sigurðardóttir Lindarvaði 15, Reykjavík „„ Guðmundur Snorri Benediktsson Skúla- garði, Kópaskeri „„ Haukur Árni Vilhjálmsson Garðabraut 24, Akranesi „„ Katarzyna Olechnowicz Engjaseli 65, RVK 40 ára „„ Izabela Anna Sobota Þórufelli 14, Reykjavík „„ Jón Þór Eyjólfsson Stórakrika 45, Mosfellsbæ „„ Henning Ólafsson Álsvöllum 8, Reykjanesbæ „„ Jón Gauti Dagbjartsson Staðarhrauni 9, Grindavík „„ Jón Agnar Torfason Greniteigi 30, Reykja- nesbæ „„ Guðmundur Hannesson Suðurgötu 22, Reykjanesbæ „„ Bjarnfríður Bjarnadóttir Hringbraut 56, Reykjanesbæ „„ Tinna Jónsdóttir Goðabyggð 15, Akureyri 50 ára „„ Arnheiður Ingimundardóttir Sörlaskjóli 88, Reykjavík „„ Katrín Rósa Gunnarsdóttir Lautasmára 45, Kópavogi „„ Marína Sigurgeirsdóttir Norðurgötu 42, Akureyri „„ Stella Kristjánsdóttir Suðurgötu 47, Hafn- arfirði „„ Kristján Sigurðsson Norðurvangi 32, Hafn- arfirði „„ Þorkell Gíslason Víðivöllum, Varmahlí𠄄 Ragnar Jens Bjarnason Fróðaþingi 2, Kópavogi „„ Sigurður Bergmann Glæsivöllum 21b, Grindavík „„ Somsri Kongsanan Breiðöldu 4, Hellu „„ Michael Andrew Otero Marklandi 12, Reykjavík „„ Sigurjón Tómas Jósefsson Vallarbraut 11, Akranesi 60 ára „„ Jadwiga Milewicz Hafnargötu 72, Reykjanesbæ „„ Sigurbjörg Þorvarðardóttir Draumahæð 2, Garðabæ „„ Kristín Lilja Sigurðardóttir Brekkuseli 31, RVK „„ Símon Helgi Ívarsson Ásholti 2, Mosfellsbæ „„ Einar I Einarsson Fífubarði 4, Eskifirði „„ Kristinn K. Guðmundsson Þingholtsstræti 26, Reykjavík „„ Bryndís Hilmarsdóttir Breiðvangi 54, Hafn- arfirði „„ Pétur Reimarsson Hagamel 10, Reykjavík „„ Ragnheiður Magnúsdóttir Kristnibraut 73, Reykjavík „„ Ingólfur Einarsson Lyngheiði 5, Hveragerði „„ Magnús Ólafsson Gvendargeisla 19, Reykjavík 70 ára „„ Kristín Einarsdóttir Bröttuhlíð 3, Akureyri „„ Elísabet Svavarsdóttir Stórholti 14, Reykjavík 75 ára „„ Magnús Þ. Einarsson Skúlagötu 10, Reykjavík „„ Elsa Stefánsdóttir Skarðshlíð 13g, Akureyri „„ Kristján Sæmundsson Barmahlíð 31, Reykjavík 80 ára „„ Helga Þórðardóttir Eskivöllum 9b, Hafnarfirði „„ Sonja Ingibjörg Kristensen Kirkjuvegi 11, Reykjanesbæ „„ Ester Guðlaugsdóttir Víkurbraut 11a, Vík „„ Sigurður H. Karlsson Hjallalundi 20, Akureyri „„ Áslaug Valdemarsdóttir Skúlagötu 20, Reykjavík 85 ára „„ Ingimar H. Guðmundsson Skaftahlíð 40, Reykjavík „„ Halldór Jónsson Álfhólsvegi 133a, Kópavogi 30 ára „„ Jasmina Crnac Skeljatanga 29, Mosfellsbæ „„ Korinna Bauer Hrísrima 3, Reykjavík „„ Markus Esser Laufskálum, Sauðárkróki „„ Ernestas Cirvinskas Asparfelli 10, Reykjavík „„ Dario Gustavo Nunez Salazar Vesturbrún 37, Reykjavík „„ Lárus Guðbjörn Jónsson Skessugili 3, Akureyri „„ Anna Lilja Johansen Markarflöt 16, Garðabæ „„ Eva Hrönn Helgadóttir Skessugili 3, Akureyri „„ Eva Björk Ásgeirsdóttir Gerðhömrum 20, RVK „„ Erla Margrét Gunnarsdóttir Aragötu 2, Reykjavík „„ Arna Rut Kristinsdóttir Lómasölum 14, Kópavogi „„ Jón Þórarinsson Austurbergi 14, Reykjavík „„ Svavar Gauti Stefánsson Boðagranda 14, RVK „„ Inga Huld Alfreðsdóttir Dalalandi 4, Reykjavík 40 ára „„ Renata Agnes Edwardsdóttir Háaleitisbraut 56, Reykjavík „„ Franklyn Fawundu Miklubraut 78, Reykjavík „„ Jagoda Maria Optolowicz Grænuhlíð 11, RVK „„ Chuanming Zhang Bólstaðarhlíð 46, Reykjavík „„ Friðrik Baldursson Urðargerði 7, Húsavík „„ Silja Pálsdóttir Svarfaðarbraut 14, Dalvík „„ Ólína Valdís Rúnarsdóttir Barmahlíð 9, Sauðárkróki „„ Guðrún Halldórsdóttir Vesturtúni 1, Álftanesi „„ Unnar Steinn Guðmundsson Reykhóli 2, Selfossi „„ Þórdís Einarsdóttir Fjallakór 14, Kópavogi „„ Helga Björg Valgeirsdóttir Túni, Reykholt í Borgarfirði „„ Jónína Herdís Sigurðardóttir Sandabraut 2, Akranesi „„ Gunnar Tjörvi Sigurðsson Hrísmóum 6, Garðabæ „„ Guðbjörg Anna Guðmundsdóttir Klyfjaseli 4, Reykjavík „„ Hjördís Selma Björgvinsdóttir Ásgarði 73, Reykjavík „„ Gróa Hlín Jónsdóttir Melseli 14, Reykjavík „„ Erna Agnarsdóttir Stangarholti 18, Reykjavík „„ Sigurlín Bjargmundsdóttir Álftarima 16, Selfossi „„ Sigurður Bjarni Rafnsson Hólmagrund 5, Sauðárkróki „„ Leifur Reynisson Njálsgötu 59, Reykjavík „„ Sigríður Sveinsdóttir Reynimel 41, Reykjavík „„ Drífa Sævarsdóttir Álfhólsvegi 79c, Kópavogi „„ Birna Öxdal Gestsdóttir Hálsvegi 2, Þórshöfn 50 ára „„ Kurt Aagaard Rasmussen Hamarsteigi 3, Mosfellsbæ „„ Danilo Paraiso Gonzales Hamraborg 26, Kópavogi „„ Bryndís Skúladóttir Álsvöllum 2, Reykjanesbæ „„ Guðríður B. Friðþjófsdóttir Gljúfraseli 13, RVK „„ Guðrún Sigurðardóttir Bergholti 6, Mos- fellsbæ „„ Bjarni Aðalsteinn Pálsson Goðheimum 18, RVK „„ Birna Birgisdóttir Furuhlíð 7, Hafnarfirði „„ Hildur Jóhannesdóttir Vesturbergi 137, RVK „„ Linda Þorsteinsdóttir Nestúni 9, Hellu „„ Anders Kjartansson Hlíðargötu 28, Fáskrúðs- firði „„ Gunnhildur H. Gunnarsdóttir Skarphéðins- götu 6, Reykjavík „„ Kristín Garðarsdóttir Furuvöllum 13, Hafn- arfirði „„ Reynir Kristjánsson Lækjarbergi 62, Hafn- arfirði „„ Gígja Sveinsdóttir Álagranda 12, Reykjavík „„ Ragnar Hauksson Þorláksgeisla 8, Reykjavík „„ Björg Steinarsdóttir Gnípuheiði 6, Kópavogi „„ Kristjana G. Halldórsdóttir Skútagili 4, Akureyri „„ Ágúst Magni Þórólfsson Kópavogsbraut 43, Kópavogi 60 ára „„ Guðni Gunnarsson Gauksási 4, Hafnarfirði „„ Helga Markúsdóttir Álfholti 56c, Hafnarfirði „„ Jóhann Guðfinnsson Glæsivöllum 6, Grindavík „„ Agnes Aðalgeirsdóttir Marargötu 3, Reykjavík „„ Steinunn M. Lárusdóttir Frostaskjóli 81, RVK „„ Erlendur H. Borgþórsson Hæðargarði 5, RVK „„ Anna Rósantsdóttir Ránargötu 1, Akureyri „„ Sigurbjörg Helena Jónasdóttir Holtsbúð 12, Garðabæ „„ Lilja Sigurðardóttir Eikjuvogi 24, Reykjavík 70 ára „„ Gunnar Benediktsson Marargrund 6, Garðabæ „„ Viktoría Guðmundsdóttir Sóltúni 20, Selfossi „„ Sigurbjörg Jóhannsdóttir Árnatúni 9, Stykkishólmi „„ Sveinbjörn Guðmundsson Klapparstíg 1, RVK „„ Þorkell Þorkelsson Vesturbraut 18, Hafnarfirði „„ Stefán Óskarsson Rein, Húsavík „„ Sigrún Karin Holdahl Lautasmára 6, Kópavogi 75 ára „„ Ottó Þorgilsson Sólvallagötu 2, Hrísey „„ Þóra Þ. Björnsdóttir Víðilundi 24, Akureyri 80 ára „„ Sigvaldi Loftsson Stekkjarholti 22, Akranesi 85 ára „„ Lilja Guðmundsdóttir Höfðagrund 5, Akranesi „„ Alma Ásbjarnardóttir Brúnavegi 9, Reykjavík „„ Laufey Guðmundsdóttir Hringbraut 50, Reykjavík 90 ára „„ Lilja Jónsdóttir Fornhaga 15, Reykjavík „„ Hulda Jónsdóttir Austurbrún 39, Reykjavík Albert fæddist á Hellissandi, ólst þar upp og var þar búsettur til 1994 er hann flutti í Voga á Vatnsleysuströnd. Hann var síðan bú- settur Njarðvík um skeið en er nú bú- settur í Keflavík. Hann var í Barnaskóla Hellissands. Hann fór fyrst til sjós er hann var níu ára og stundaði síðan sjómennsku lengst af, oft á eigin bátum. Þá starfaði hann í frystihúsum á Hellissandi og víðar og stundaði beitningu og önnur störf tengd sjávarútvegi. Fjölskylda Eiginkona Alberts var Stefanía Elín Hinriksdóttir, f. 25.10. 1925, d. 30.11. 2000, húsmóðir. Hún var dóttir Hin- riks Ólafssonar, sjómanns á Eskifirði, og k.h., Láru Sigurlínu Ólafsdóttur húsfreyju. Börn Alberts og Stefaníu eru Guð- laugur Jakob, f. 22.12. 1960, starfs- maður við bleikjueldi á Tálknafirði, var kvæntur Jóhönnu Björk Hall- bergsdóttur en þau skildu og eru börn þeirra Margrét Dagbjört, f. 10.4. 1986, Albert Þórir, f. 19.2. 1990, og Bjarki Snær, f. 17.9. 1997, en kona Guðlaugs er Margrét Magnúsdóttir og er dótt- ir þeirra Jóna Stefanía, f. 13.12. 2006; Lára Karólína, f. 21.9. 1963, húsmóð- ir í Bandaríkjunum, var gift Þresti Heiðari sjómanni en þau skildu og eru börn þeirra Guðlaugur Stefán, f. 23.4. 1986, Garðar Örn, f. 27.8. 1990, og Steinar Þór, f. 18.4. 1993; Þröstur, f. 27.7. 1967, stýrimaður í Ólafsvík, kvæntur Sóleyju Jónsdóttur grunn- skólakennara en börn þeirra eru Tinna Rut, f. 23.3. 1994, og Leo Örn, f. 17.3. 1998. Systkini Alberts: Þórir Bjarni Guð- laugsson, f. 8.2. 1930, d. 19.2. 1979, var sjómaður í Ólafsfirði; Gunnar Breið- fjörð, f. 28.4. 1932, fyrrv. sjómaður, búsettur í Keflavík; Kristinn Breið- fjörð, f. 12.8. 1934, fyrrv. leigubifreiða- stjóri, búsettur í Mosfellsbæ; Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 5.11. 1935, var bú- sett á Hellissandi, nú í Ólafsvík; Lauf- ey Guðlaugsdóttir, f. 6.7. 1937, búsett í Hafnarfirði; Líneik Guðlaugsdótt- ir, f. 14.11. 1938, búsett í Hafnarfirði; Sæberg Guðlaugsson, f. 14.2. 1940, sendibílstjóri, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Alberts: Guðlaugur Jak- ob Alexandersson, f. á Stapatúni á Hellissandi 9.11. 1894, d. 22.1. 1986, sjómaður á Hellissandi, og k.h., Sús- anna Ketilsdóttir, f. á Stakkabergi á Hellissandi 30.5. 1900, f. 13.1. 1988, húsfreyja. Þau bjuggu lengst af á Sól- bakka á Hellissandi. Albert Guðlaugsson Fyrrv. sjómaður Hreinn Eiríksson Fyrrv. aðstoðarskólastjóri Nesjaskóla Eyrún Sigurjónsdóttir Viðskiptafræðingur í Reykjavík 80 ára á miðvikudag 80 ára á fimmtudag 30 ára á miðvikudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.