Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Page 2
„Þegar ég fór úr vinnunni klukkan
tvö þá var bíllinn horfinn.“ Þannig
hefst frásögn Ragnhildar Jónu Þor-
geirsdóttur, sundlaugarstarfsmanns
á sjötugsaldri, sem varð fyrir barðinu
á óprúttnum þjófum þann 24. mars.
Ragnhildur segir að skömmu eftir
að bíllinn hvarf hafi hún áttað sig á
því að þjófarnir hefðu einnig farið
heim til hennar og hreinsað þar út
öll verðmæti hennar og barnabarns
hennar.
Lyklarnir horfnir
Ragnhildur hafði hengt upp úlpuna
sína í fatahengi starfsmanna Sund-
hallarinnar þar sem hún starfar. Í
lok vinnudags áttaði hún sig á því
að lyklarnir að bílnum hennar voru
horfnir úr úlpuvasanum og bíll-
inn var hvergi sjáanlegur þar sem
hún hafði skilið við um morguninn.
Ljóst var að einhverjir óprúttnir að-
ilar höfðu stolið bílnum eftir að hafa
tekið lyklana ófrjálsri hendi fyrr um
daginn.
Eins og í bíómynd
Ragnhildur gerði sér grein fyrir því
í samtali við lögreglu að húslykl-
arnir hefðu einnig verið á kippunni.
Vinnufélagi hennar fór þá með henni
að heimili hennar til að ganga úr
skugga um að ekki væri búið að fara
þar inn. Því miður reyndust þjóf-
arnir hafa látið greipar sópa á heim-
ili Ragnhildar. „Þetta var bara eins
og í bíómynd, búið að róta í öllum
kommóðum og skúffum. Allt skartið
var tekið, tölva, myndavél og GSM-
sími. Svo var einnig tekin tölva, iPod
og allir skartgripir frá dótturdóttur
minni sem dvelur hjá mér.“
Bíllinn enn týndur
Ragnhildur segir það svakalega lífs-
reynslu að lenda í því að koma að
heimili sínu í þessu ástandi. Erfitt
sé að ímynda sér annað en að vanir
menn hafi þarna verið á ferðinni.
Hún hefur grun um að tvær mann-
eskjur á fertugsaldri sem vöktu
nokkra athygli eins sundlaugargests
hafi verið að verki. Virðist sem þess-
ir aðilar hafi ekki haft það efst í huga
að njóta sundferðarinnar heldur hafi
þeir verið í leit að einhverju allt öðru.
Lögreglan hefur ekki haft uppi
á þjófunum eftir því sem DV kemst
næst. Bíllinn hennar, Toyota Rav 4,
er ennþá týndur en Ragnhildur seg-
ir það erfiðast að sætta sig við að öll
gögn barnabarnsins hennar úr skóla
séu horfin. Hún vonast þó til þess að
með því að koma fram og segja sína
sögu geti það hjálpað til við leitina
að þjófunum og því sem stolið var.
Númer bílsins er MP 336 og eru þeir
sem einhverjar upplýsingar hafa um
málið beðnir að hafa samband við
lögreglu.
2 | Fréttir 8.–10. apríl 2011 Helgarblað
Eykur lífsgæði
barna sinna
Ebba Guðný
Guðmunds-
dóttir ferðaðist
með fötluðum
syni sínum og
fjölskyldu yfir
hálfan hnött-
inn vegna kynna
þeirra af suðurafr-
íska spretthlaup-
aranum Oscar Pistorius sem fæddist,
eins og sonur Ebbu Guðnýjar, fóta-
laus fyrir neðan hné. Ebba Guðný er
höfundur bókarinnar Hvað á ég að
gefa barninu mínu að borða og trúir
því að það megi auka lífsgæðin með
því að borða hollan og ljúffengan
mat. Ebba Guðný sagði frá dvöl sinni
í Afríku í mánudagsblaði DV og gaf
lesendum að auki nokkrar hvetjandi
uppskriftir til að prófa heima við.
Gáttaður á fléttu
Björgólfs
Starfsmaður
ríkisskatt-
stjóra gagnrýndi
viðskiptafléttu
Björgólfs Thors
Björgólfssonar í
tölvupósti. Björg-
ólfur hefur yfir-
tekið einkahlutafélagið Hersi–ráð-
gjöf og þjónustu, sem áður var í eigu
samstarfsmanna hans og afskrifað
70 milljóna kröfu sem hann átti á
félagið. Samhliða afskriftinni og yfir-
töku Björgólfs hefur ríkisskattstjóri
löggilt skilanefnd yfir Hersi. „Ég verð
enn að segja að ég skil ekki hvaða
leikur er þarna í gangi,“ sagði Skúli
Jónsson, forstöðumaður hjá fyrir-
tækjaskrá ríkisskattstjóra, í tölvupósti
til annars skilanefndarmannanna
sem stjórn Hersis hafði kosið til að
slíta félaginu.
Metinn hæfur af
barnavernd
Maðurinn
sem situr í
gæsluvarðhaldi
grunaður um
gróf kynferðis-
brot gegn sjö ára
syni sínum hefur
í gegnum tíðina
verið dæmdur
fyrir ýmiss konar
brot. Gert var hæfnismat á mannin-
um að beiðni barnaverndarnefndar
Hafnarfjarðar fyrir nokkrum árum.
Þar var hann metinn hæfur til að vera
með drenginn á móti móður hans.
Manninum var dæmd full umgengni
við drenginn. Móðir drengsins vildi
ekki leyfa manninum að umgangast
hann vegna gruns um að maðurinn
væri í fíkniefnaneyslu og neitaði að
fara eftir dómnum, samkvæmt heim-
ildum DV.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Hlaupasokkar
• Minnka verki og þyngsl í kálfum
• Minni hætta á blöðrumyndun
• Draga úr bjúgsöfnun
„Þetta var bara
eins og í bíómynd,
búið að róta í öllum
kommóðum og skúffum.
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
Sundlaugarvörður
rændur í vinnunni
n Stálu bíllyklunum meðan hún var í vinnunni og tóku bílinn n Fóru einnig inn
á heimili hennar og létu greipar sópa n Skartgripir, tölva og myndavél hurfu
Sárt saknað Þjófarnir stálu lyklunum að bifreið Ragnhildar og óku á brott.
Allt farið Meðal þess sem
þjófarnir höfðu á brott með sér
voru iPod, tölva og skartgripir
dótturdóttur hennar sem dvelur
hjá henni. Mynd RóBERt REyniSSon
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á
fimmtudag karlmann í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn sextán ára stúlku. Þá
var hann dæmdur til að greiða henni
400 þúsund krónur í miskabætur.
Málsatvikum var lýst þannig fyrir
dómi að maðurinn hafi verið farar-
stjóri í æfingar- og keppnisferð sem
stúlkan var í ásamt fleirum árið
2007. Hópurinn hafi gist í íþrótta-
húsi og öll hafi þau verið búin að
neyta áfengis þegar atvikið átti sér
stað. Flestir sváfu á hörðum dýnum
á gólfi hússins, en fararstjórinn lá á
stærri og þykkari dýnu. Hann bauð
stúlkunni og öðrum fararstjóra að
sofa með sér á dýnunni og þáðu
þau það. Stúlkan segir fararstjór-
ann hafi snúið sér að henni og káfað
innan klæða á kynfærum hennar og
brjósti. Þá var í dómnum einnig til-
greint atvik sem átti sér stað á heim-
ili stúlkunnar árið 2008. Stúlkan
hélt teiti fyrir sama hóp og var í fyrr
nefndri æfingar- og keppnisferð og
þar segir hún fararstjórann hafa af-
klætt sig og lagst ofan á hana, hann
hafi hins vegar horfið frá því að hafa
samræði við hana.
Í niðurstöðu dómsins segir að
stúlkan hafi verið staðföst í fram-
burði sínum bæði í skýrslutökum
og fyrir dómi. Þá fær framburður
stúlkunnar einnig stoð í framburði
vitna. Ákærði neitaði sök í málinu en
kannaðist þó við að hafa lagt hönd
á mjöðm stúlkunnar undir sængur-
fötum í ferðinni. Þá kvaðst hana
hafa kysst stúlkuna í teitinu og farið
höndum um líkama hennar eftir að
hún hafði afklæðst.
Í niðurstöðu dómsins kemur
jafnframt fram að ákærði hafi gegnt
trúnaðarstörfum fyrir félagið sem
stóð að ferðinni. Þá hafi hann einnig
verið framkvæmdastjóri þess. Hann
bar ábyrgð á ungmennum sem
honum var trúað fyrir og bar sér-
stök skylda að gæta barna yngri en
18 ára.
Sex mánaða fangelsi:
Fararstjóri
braut
gegn stúlku