Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Side 36
E rla fæddist á Hornafirði en ólst upp í Mosfellsbænum. Hún var í Varmárskóla, stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi 2001, stundaði síðan nám í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík og lauk BSc.-prófi þaðan 2006. Erla var líkamsræktarþjálfari hjá Baðhúsinu og Sporthúsinu með námi, starfaði hjá Pricewaterhouse- Coopers endurskoðunarstofu í eitt ár en hefur starfrækt ferðaþjónustuna að Hellishólum í Rangárþingi frá 2007 auk þess sem hún er fjármálastjóri Múr- og málningarþjónustunnar Höfn í Reykjavík frá 2010. Erla æfði fitness um skeið og tók þátt í Galaxy Fitness-mótinu árið 2005. Fjölskylda Maður Erlu er Birgir Þór Júlíusson, f. 11.7. 1972, matreiðslumaður á Hellis- hólum. Börn Erlu og Birgis Þórs eru Birgir Þór Birgisson, f. 13.3. 2007; Viktor Logi Birgisson, f. 4.7. 2009; Nadía Líf Birgis- dóttir, f. 24.11. 2010. Bræður Erlu eru Benedikt Arnar Víðisson, f. 18.4. 1974, nemi í lögfræði við Háskólann á Bifröst; Elías Víðis- son, f. 9.4. 1976, byggingarfræðingur, búsettur í Mosfellsbæ; Hlynur Víðis- son, f. 2.11. 1977, húsamálari, búsett- ur í Reykjavík; Víðir Víðisson, f. 12.9. 1989, húsamálari og boxari, búsettur í Mosfellsbæ. Foreldrar Erlu eru Víðir Jóhanns- son, f. 31.7. 1956, framkvæmdastjóri Múr- og málningaþjónustunnar og Stoðpallaleigu, búsettur á Hellishól- um, og Bryndís Laila Ingvarsdóttir, f. 3.8. 1957, framkvæmdastjóri Ferða- þjónustunnar á Hellishólum. B ergvin fæddist í Grindavík og ólst þar upp. Hann var í Grunn-skóla Grindavíkur. Bergvin byrjaði til sjós sextán ára og var á bátum og Grindavík, lengst af á Árna í Teigi GK – I og Grindvíkingi GK – 606. Hann hóf síðan störf hjá afa sínum og ömmu í saltfiskvinnslunni Þrótti 2007, hefur starfað þar síðan og er nú vinnslustjóri þar. Bergvin hefur æft og keppt í körfu- bolta með ÍG frá 2005 og hefur leikið með meistaraflokki liðsins. Fjölskylda Kona Bergvins er Hildur María Brynj- ólfsdóttir, f. 6.3. 1985, húsmóðir. Börn Bergvins og Hildar Maríu eru Pétur Ingi Bergvinsson, f. 19.9. 2000; Ólöf María Bergvinsdóttir, f. 23.10. 2007; Karen Lind Bergvinsdóttir, f. 7.2. 2011. Systkini Bergvins eru Alís Inga, f. 26.7. 1972, starfsmaður við Grensás- deild Landspítalans, búsett í Hafn- arfirði; Sigríður Jónasdóttir, f. 24.11. 1973, húsmóðir í Grindavík; Sigurður Jóhann, f. 26.11. 1973, bóndi að Hálsi í Fnjóskadal; Ingibergur Þór Ólafarson, f. 22.5. 1976, leigubílstjóri, búsettur í Reykjavík; Fjóla Kristín Ólafardóttir, f. 16.8. 1991, nemi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Foreldrar Bergvins: Ólöf Þórar- insdóttir, f. 17.1. 1955, d. 19.11. 1998, húsmóðir í Grindavík, og Rúnar Þór Björgvinsson, f. 15.10. 1955, skipstjóri í Grindavík. G uðmann fæddist í Varmahlíð í Skagafirði og ólst þar upp. Hann var í Varmahlíðarskóla, stund- aði nám við Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra og Verkmenntaskólann á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi, 4. stigs vélstjórnarprófi og prófi í raf- virkjun. Hann lauk síðar sveinsprófi í rafvirkjun hjá Eimskip í Sundahöfn 2008. Guðmann var í sumarvinnu í klæðningaverki að leggja slitlag á þjóðvegi víða um land á framhalds- skólaárunum, var vélstjóri á togar- anum Klakki frá Sauðárkróki í eitt ár, var við nám og störf við rafvirkjun hjá Eimskip í Reykjavík til 2010 en er nú vélstjóri hjá Vífilfelli á Akureyri. Guðmann starfaði um skeið í Flug- björgunarsveitinni í Varmahlíð. Fjölskylda Eiginkona Guðmanns er Dagný Rut Magnúsdóttir, f. 11.1. 1986, nemi við Verkmenntaskólann á Akureyri. Börn Guðmanns og Dagnýjar Rut- ar eru Viktoría Rós Egilsdóttir, f. 6.7. 2002; Anton Orri Guðmannsson, f. 11.12. 2007. Systir Guðmanns er Eva Rún Böðvarsdóttir, f. 7.9. 1992, nemi við Verkmenntaskólann á Akureyri. Foreldrar Guðmanns eru Böðv- ar Hreinn Finnbogason, f. 24.5. 1957, bifvélavirki hjá Frumherja, búsettur í Varmahlíð, og Guðbjörg Guðmanns- dóttir, f. 28.11. 1963, sundlaugarvörð- ur í Varmahlíð. Harpa fæddist í Hafnarfirði, ólst þar upp til fjögurra ára aldurs en síðan í Þingholt- unum. Hún var í Austurbæjarskóla, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og lauk síðar prófum í tölvunarfræði og tölvuviðgerðum. Harpa var í unglingavinnunni í Reykjavík, fór á barnsaldri með föð- ur sínum í siglingar víða um heim en hann var þá bryti í farmennsku, var sjálf kokkur á Svaninum og var plötusnúður við diskótek á Hótel Borg, í Sigtúni og í Zafari, vann á rannsóknarstofu Háskóla Íslands 1980–85, var læknaritari við Land- spítalann 1987–89, var einkaritari héraðslæknisins í Reykjavík 1990– 92 og hefur starfað við Heilsugæslu Miðbæjar frá 1992. Harpa hefur stundað myndlist frá 1975, hefur tekið þátt í nokkr- um samsýningum og haldið fimm einkasýningar. Hún hóf að mynd- skreyta barnabækur 1975 og hefur myndskreytt fimmtán bækur auk þess sem hún teiknaði myndasögur fyrir Stundina okkar í Sjónvarpinu um skeið. Þá hefur hún sinnt dag- skrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp. Harpa er trúnaðarmaður á vegum SFR og situr í fræðslu- og skemmtinefnd SFR. Fjölskylda Maður Hörpu er Gunnar Gunnars- son, f. 15.9. 1959, ljósmyndari. Sonur Hörpu og Ásgeirs Ragn- ars Bragasonar dansara er Franz Guðni, f. 15.6. 1984. Systkin: Þröstur Júlíus Karlsson, f. 1.11. 1948, rithöfundur og sjúkra- liði; Sigrún Stella Karlsdóttir, f. 1.2. 1954, húsmóðir í Portúgal; Guð- rún Glódís Gunnarsdóttir, f. 13.12. 1968, leikkona og eróbikkennari í Wales á Englandi. Foreldrar Hörpu eru Karl Júlí- usson, f. 26.4. 1924, d. 19.10. 1975, bryti, og Guðrún Jacobsen, f. 30.10. 1930, rithöfundur í Reykjavík. 36 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 8.–10. apríl 2011 Helgarblað Þ orsteinn fæddist á Reyðará og ólst þar upp. Hann naut far-kennslu á barnaskólaaldri og lauk gagnfræðaprófi frá Laugaskóla í Suður-Þingeyjarsýslu 1949. Þorsteinn bjó félagsbúi á Reyðará 1950–64 og tók síðan alfarið við búi þar og var þar bóndi til 1997. Þá fluttu þau hjónin til Hafnar í Hornafirði og hafa verið búsett þar síðan. Þorsteinn var auk þess barna- kennari í Bæjar- og Mýrahreppi í tutt- ugu og tvo vetur. Þorsteinn sat í stjórn ungmenna- félagsins Hvatar í tíu ár, í stjórn ung- mennasambandsins Úlfljóts 1960–65, 1970–76 og 1984–85, í stjórn Búnað- arfélags Lónsmanna frá 1964–98, var gjaldkeri Búnaðarsambands Austur- Skaftfellinga 1962–87, í stjórn Sauð- fjárræktarfélags Lónsmanna þrjátíu og tvö ár, í stjórn Sauðfjárræktarsam- bands Austur-Skaftfellinga 1955–75, var fulltrúi á fjórtán aðal- og auka- fundum Stéttarsambands bænda á árunum 1971–87, sat í stjórn Stéttar- sambands bænda og í Framleiðslu- ráði landbúnaðarins 1973–87, í stjórn Kaupfélags Austur-Skaftfellinga 1971– 92, í sóknarnefnd Stafafellskirkju 1965–98, í stjórn Menningarsam- bands Austur-Skaftfellinga um árabil, sat í hreppsnefnd Bæjarhrepps 1963– 98, var oddviti hreppsins 1982–98, sat í sýslunefnd Austur-Skaftfellinga um árabil frá 1987 og í stjórn Sjúkrasam- lags Bæjarhrepps frá 1951 og meðan það starfaði. Hann var stofnfélagi í Karlakórnum Jökli og söng með hon- um í fjölda ára. Eftir Þorstein hafa komið út bæk- urnar Gamla hugljúfa sveit, I. bindi, útg. 1990, II. bindi, útg. 1995, III. bindi, útg. 1998, og IV. bindi útg. 2007. Þá hefur hann skrifað greinar í Skaft- felling, ársrit Austur-Skaftfellinga, og í afmælisrit sem gefið var út þegar ungmennasambandið Úlfljótur varð fimmtíu ára. Fjölskylda Þorsteinn kvæntist 10.7. 1965 Vig- dísi Guðbrandsdóttur, f. 24.5. 1929, d. 21.9. 2005, húsfreyju frá Heydalsá. Hún var dóttir Guðbrands Björnsson- ar, f. 14.5. 1889, d. 2.7. 1946, bónda á Heydalsá í Strandasýslu, og Ragn- heiðar Sigureyjar Guðmundsdóttur, f. 24.8. 1894, d. 24.10. 1972, húsfreyju. Synir Þorsteins og Vigdísar eru Geir Þorsteinsson, f. 24.4. 1965, tré- smíðameistari á Höfn í Hornafirði, eiginkona hans er Björk Pálsdóttir og börn þeirra eru; Þorsteinn, f. 27.1. 1996 og Vigdís María, f.19.05.2002, en sonur Geirs er Stefán Mikael Þór, f. 18.9. 1990; Gunnar Bragi Þorsteins- son, f. 13.8. 1966, búfræðingur og verktaki, var kvæntur Herborgu Þur- íðardóttur en þau skildu en dætur þeirra eru Elín Sól, f. 20.1. 1993, Þór- dís, f. 3.9. 1996, og Birta, f. 3.6. 1998, en sonur Herborgar er Gísli Halldór Sig- urðsson, f. 31.7. 1987. Sonur Vigdísar er Guðbrandur Ragnar Jóhannsson, f. 19.8. 1949, kennari og eigandi Vatnajökul Travel, var kvæntur Benediktu Theódórs og eru synir þeirra Páll, f. 30.9. 1974, d. 26.5. 1976, og Páll, f. 13.4. 1979. Guð- brandur og Benedikta skildu og var síðan sambýliskona hans Þórdís Sig- urðardóttir, f. 2.2. 1939, d. 24.12. 1994. Systkin Þorsteins: Aðalheiður Geirsdóttir, f. 11.3. 1923, fyrrv. vefnað- arkennari á Höfn í Hornafirði; Sigurð- ur Geirsson, f. 5.2. 1924, d. 18.8. 2004, bóndi á Reyðará, síðar verktaki og umsjónarmaður íþróttahúss á Höfn; Baldur Geirsson, f. 11.9. 1930, rafvirki í Reykjavík. Foreldrar Þorsteins voru Geir Sig- urðsson, f. 21.7. 1898, d. 10.2. 1974, bóndi að Reyðará, og Margrét Þor- steinsdóttir, f. 18.9. 1896, d. 13.4. 1987, húsfreyja. Ætt Geir var bróðir Stefáns, skólastjóra í Reykholti í Biskupstungum, Ás- mundar, kennara og alþm., og Hlöð- vers, skólastjóra á Siglufirði. Geir var sonur Sigurðar, b. á Reyðará Jónssonar, b. og söðlasmiðs á Set- bergi í Nesjum Jónssonar. Móðir Sigurðar var Sesselja Sigurðardótt- ir. Móðir Geirs á Reyðará var Anna, dóttir Lúðvíks J. Christian Schou, verslunarmanns í Vallaneshjáleigu og faktors á Húsavík Hermannsson- ar Schou, verslunarmanns á Siglu- firði. Móðir Önnu var Elín, systir Hjörleifs, pr. á Undirfelli, föður Ein- ars H. Kvaran rithöfundar, afa Æv- ars Kvaran, leikara og rithöfundar. Bróðir Einars Kvaran var Sigurður Kvaran læknir, afi Ásdísar Kvaran lögfræðings. Bróðir Elínar var Jón í Saurhaga á Völlum, afi Guðmund- ar Sveinssonar, fyrrv. skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Jón var auk þess langafi Einars Jónsson- ar, pr. á Kálfafellsstað. Elín var dóttir Einars, pr. í Vallanesi Hjörleifsson- ar, pr. á Hjaltastöðum Þorsteins- sonar, bróður Guttorms, prófasts á Hofi, langafa Þórarins á Tjörn, föður Kristjáns Eldjárn forseta, föður Þór- arins Eldjárn, skálds og rithöfundar, og Sigrúnar myndlistarkonu. Móðir Elínar var Þóra Jónsdóttir Schjölds, vefara á Kórreksstöðum og ættföður Vefaraættar Þorsteinssonar. Þorsteinn Geirsson Fyrrv. bóndi, oddviti og kennari að Reyðará í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu Erla Víðisdóttir Viðskiptafræðingur að Hellishólum Bergvin Ólafarson Vinnslustjóri hjá saltfiskvinnslunni Þrótti í Grindavík Guðmann Þ. Böðvarsson Vélstjóri á Akureyri Harpa Karlsdóttir Kerfisumsjónarmaður hjá Heilsugæslunni í Miðbæ 85 ára á föstudag 30 ára á laugardag 30 ára á laugardag 30 ára á sunnudag 50 ára á laugardag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.