Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 21
Fréttir | 21Helgarblað 20.–22. maí 2011
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
110% leiðin – átt þú rétt?
· Ef skuldir eru umfram 110% af verðmæti fasteignar er hægt að sækja
um að skuldirnar verði færðar niður að 110% af verðmæti eignarinnar.
· Á við um lán til kaupa á íbúð til eigin nota sem áttu sér stað fyrir árið 2009.
· Ef veðrými er á öðrum eignum umsækjanda lækkar niðurfærsla skulda sem því nemur.
· Kannaðu málið fyrir 1. júlí nk., en þá rennur út frestur til að sækja
um þessa niðurfærslu.
· Sækja skal um rafrænt á www.ils.is.
· Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2011.
Bónus var oftast með lægsta verðið
þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð í þremur lágvöruverðversl-
unum og fjórum þjónustuverslun-
um á höfuðborgarsvæðinu mánu-
daginn 16. maí. Hæsta verðið var
oftast að finna í Nóatúni og Fjarð-
arkaupum eða í um þriðjungi til-
vika. Í þeim tilvikum sem umbeðin
vara var til í verslununum Bónuss,
Krónunnar og Nettó var um eða
undir þriggja króna verðmunur í 21
tilviki. Í könnuninni voru 107 vöru-
tegundir skoðaðar. Sem fyrr segir
voru Nóatún og Fjarðarkaup með
hæsta verðið í 36 tilvikum og Hag-
kaup í 26 tilvikum. Bónus var með
lægsta verðið á 77 vörutegundum
af þeim 107 sem skoðaðar voru.
Flestar vörurnar sem skoðaðar
voru í könnuninni voru til í Fjarð-
arkaupum eða 105 af 107 og næst-
flestar í Hagkaupum 102 af 107.
Í frétt um könnunina á vef-
síðu ASÍ kemur fram að áberandi
mestur verðmunur í könnuninni
var á ávöxtum og grænmeti en í
aðeins 3 tilvikum af 19 var munur
á hæsta og lægsta verði minni en
25 prósent. Sem dæmi má nefna
að mestur verðmunur var á rauð-
um chillí en hann kostaði 1.290
krónur kílóið í Bónus en var dýr-
astur á 3.975 krónur kílóið í Fjarð-
arkaupum. Verðmunurinn var því
talsverður, 208 prósent. Minnstur
verðmunur var á avokadó sem var
ódýrast á 519 krónur kílóið í Bón-
us en dýrast á 598 krónur kílóið í
Fjarðarkaupum, 15 prósent verð-
munur.
Könnunin var gerð á sama tíma
í eftirtöldum verslunum: Bónus
Holtagörðum, Krónunni Höfða,
Nettó Mjódd, Fjarðarkaupum
Hafnarfirði, Nóatúni í Nóatúni,
Samkaupum Úrvali Hafnarfirði og
Hagkaupum Kringlunni.
Verslunin Kostur í Kópavogi
neitaði að taka þátt í könnuninni.
ASÍ kannaði verðlag í verslunum:
Ódýrast í Bónus