Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 36
36 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Zóphónías Pálsson
Fyrrv. skipulagsstjóri ríkisins f. 17.4. 1915 – d. 15.5. 2011
Jónína Jónatansdóttir
Kvenréttindakona og verkalýðsleiðtogi f. 22.5. 1869 – d. 1.12. 1946
Zóphónías fæddist að Hvanneyri í Borgarfirði og ólst þar upp til fermingaraldurs er fjölskyldan
flutti til Reykjavíkur.
Zóphónías lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík,
stundaði nám í mælingarverkfræði
við Landbúnaðarháskólann í Kaup
mannahöfn og lauk þaðan prófum
1939.
Zóphónías starfaði síðan í Dan
mörku, einkum hjá Geodætisk Insti
tut í Óðinsvéum og í Kaupmanna
höfn.
Zóphónías flutti með fjölskyldu
sína heim til Íslands 1945 og hóf þá
störf sem verkfræðingur hjá Skipu
lagi bæja og kauptúna. Hann var
yfirverkfræðingur þar á árunum
1950–54 en var þá skipaður skipu
lagsstjóri ríkisins og gegndi því emb
ætti til 1985 er hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir. Hann starfaði þar
þó áfram að tilteknum skipulagsmál
um og starfaði auk þess í nokkur ár
hjá varnarmáladeild utanríkisráðu
neytisins.
Zóphónías kenndi auk þess við
Iðnskólann í Reykjavík á árunum
1945–54 og var prófdómari þar til
1985. Þá var hann prófdómari við
verkfræðideild Háskóla Íslands
1948–85.
Zóphónías var félagi í Rótarý
klúbbnum Reykjavík – Austurbær frá
stofnun klúbbsins, 1963.
Zóphónías og Lis, eiginkona hans,
voru mikið fyrir útvist og gönguferð
ir, sund og bóklestur og ræktuðu vel
fjölskyldutengslin.
Fjölskylda
Zóphónías kvæntist 20.12. 1940 Lis
Nellemann, f. í Álaborg 25.1. 1921,
d. 29.10. 2009, húsmóður. Hún var
dóttir Nic. Nellemann, mælingar
verkfræðings í Álaborg, og k.h., Mar
grethe, f. Lund, húsmóður. Zóhónías
hafði verið í starfsnámi við fyrirtæki
tengdaföður síns um skeið.
Zóphónías og Lis eignuðust fjög
ur börn. Þau eru:
Páll Zóphóníasson, f. 12.7. 1942,
byggingatæknifræðingur, kvænt
ur Áslaugu Hermannsdóttur, f. 6.8.
1943, og eru börn þeirra Zóphónías,
f. 8.2. 1967; Sigríður, f. 2.7. 1969, og
á hún tvo syni, þann eldri með Hall
varði Þórssyni, en þann yngri með
Karli Hjálmarssyni; Sif, f. 22.2. 1974
en maður hennar er Grímur Jónsson
og eiga þau tvö börn.
Hjalti Nick Zóphóníasson, f. 20.2.
1944, lögfræðingur, kvæntur Sig
rúnu Þór Haraldsdóttur, f. 22.1. 1944,
kennara og eru börn þeirra Ágústa
Þóra, f. 12.6. 1964 en maður hennar
er Gunnar Hilmarsson og eiga þau
tvö börn og eitt barnabarn; Harald
ur Ásgeir, f. 30.10. 1965, var kvæntur
Huldu Styrmisdóttur og eiga þau þrjá
syni; Anna Lis, f. 12.5. 1969; Hjördís
Björk, f. 17.6. 1981.
Bjarki, f. 13.6. 1946, arkitekt,
kvæntur Ulrike Baierl, f. 6.9. 1948,
og eru synir þeirra Magnús Daníel, f.
23.6. 1975; Jakob Nicolai Basil, f. 24.4.
1980.
Margrét, f. 13.10. 1953,
myndlistar maður, var gift Sigurði
Skagfjörð Sigurðssyni en þau skildu
og er dóttir þeirra Júlía, f. 20.10. 1986.
Systkini Zóhóníasar voru Unnur
Pálsdóttir, f. 23.5. 1913, d. 1.1. 2011,
húsmóðir, var gift Sigtryggi Klem
enzsyni, ráðuneytisstjóra í fjármála
ráðuneytinu og seðlabankastjóra;
Páll Agnar Pálsson, f. 9.5. 1919,
d. 10.7. 2003, yfirdýralæknir, var
kvæntur Kirsten Henriksen dýra
lækni; Hannes Pálsson, f. 5.10. 1920,
fyrrv. aðstoðarbankastjóri Búnað
arbanka Íslands, kvæntur Sigrúnu
Helgadóttur; Hjalti Pálsson, f. 1.11.
1922, d. 24.10. 2002, lengst af fram
kvæmdastjóri verslunarsviðs SÍS,
var kvæntur Ingigerði Karlsdóttur,
fyrrv. flugfreyju; Vigdís Pálsdóttir, f.
13.1. 1924, húsmóðir í Reykjavík og
ekkja eftir Baldvin Halldórsson leik
ara.
Foreldrar Zóphóníasar voru Páll
Zóphóníasson, f. í Viðvík í Skaga
firði 18.11. 1886, d. 1.12. 1964, skóla
stjóri, alþm. og búnaðarmálastjóri,
og k.h., Guðrún Þuríður Hannes
dóttir, f. 11.5. 1881, d. 11.11. 1963,
húsmóðir.
Ætt
Páll var sonur Zóphóníasar, prófasts
í Viðvík Halldórssonar, b. á Brekku í
Svarfaðardal Rögnvaldssonar. Móð
ir Halldórs var Sophía Þorsteins
dóttir, systir Hallgríms, föður Jón
asar skálds. Móðir Zóphóníasar var
Guðrún Björnsdóttir, systir Guð
nýjar, langömmu Hermanns Jónas
sonar forsætisráðherra, föður
Steingríms forsætisráðherra, föður
Guðmundar alþm.
Móðir Páls var Jóhanna Sofía,
systir Jarþrúðar, konu dr. Hannes
ar Þorsteinssonar, ritstjóra og þjóð
skjalavarðar, en hálfsystur hennar
voru Þóra, kona Jóns Magnússonar
forsætisráðherra, og Elínborg, kona
Geirs, vígslubiskups Sæmundssonar.
Jóhanna Sofía var dóttir Jóns, há
yfirdómara og alþm., bróður Péturs
biskups og Brynjólfs Fjölnismanns.
Jón var sonur Péturs, prófasts á
Víðivöllum í Skagafirði Péturssonar
og Þóru Brynjólfsdóttur, gullsmiðs
Halldórssonar, biskups á Hólum
Brynjólfssonar. Móðir Jóhönnu var
Jóhanna Soffía Bogadóttur, fræði
manns á Staðarfelli Benediktssonar,
ættföður Staðarfellsættar og Jarþrúð
ar Jónsdóttur, pr. í Holti í Önundar
firði Sigurðssonar. Móðir Jarþrúðar
var Solveig Ólafsdóttir, lögsagnara á
Eyri í Seyðisfirði Jónssonar, ættföður
Eyrarættar, langafa Jóns forseta.
Guðrún Þuríður var dóttir Hann
esar, hreppstjóra í Deildartungu
Magnússonar, hreppstjóra á Vil
mundarstöðum Jónssonar, b. á
Vilmundarstöðum Auðunssonar.
Móðir Jóns var Margrét Þorvalds
dóttir, hreppstjóra á Sturlureykjum
Arngrímssonar. Móðir Guðrúnar var
Vigdís, systir Þuríðar, ömmu Jóns
Helgasonar, prófessors og skálds í
Kaupmannahöfn. Vigdís var dóttir
Jóns, b. í Deildartungu Jónsson
ar, dbrm. í Deildartungu Þorvalds
sonar, ættföður Deildartunguættar,
bróður Margrétar.
Jónína fæddist á Miðengi í Garðahverfi á Álftanesi. Á fæðingarári henn
ar kom út í Bretlandi
rit heimspekings
ins, frjálshyggju og
nytjastefnumanns
ins Johns Stuarts
Mill, Kúgun kvenna,
en það rit átti eftir að
vera biblía kvenrétt
indasinna í marga ára
tugi og, ásamt Frelsinu,
þekktasta rit Mills.
Jónína var dóttir Jóna
tans Gíslasonar, sjómanns á
Miðengi, og k.h., Margrétar Ólafsdótt
ur húsfreyju. Jónína gekk í Kvenrétt
indafélag Íslands 1910 og var helsti
hvatamaður að stofnun Verkakvenna
félagsins Framsóknar 1914, ásamt
vinkonu sinni, Bríeti Bjarnhéðins
dóttur, en þær stöllur voru nágranna
konur í Þingholtsstrætinu í Reykjavík.
Jónína var formaður félagsins
frá stofnun og næstu tutt
ugu árin. Hún var í öðru
sæti á framboðslista
Kvennaframboðsins
til bæjarstjórnar, 1914.
Þá var Jónína einn
stofnenda Alþýðu
sambands íslands og
Alþýðuflokksins og
átti sæti í stjórn þeirra.
Hún varð fyrsta konan
sem tók sæti í bæjar
stjórn Reykjavíkur fyrir
Alþýðuflokkinn 1920, átti
sæti í fátækranefnd og fjársöfn
unarnefnd Landspítalans og vann
mikið fyrir Slysavarnafélag Íslands.
Jónína var rólynd kona og hug
ljúf, með fremur viðkvæma lund, en
þó ætíð reiðubúin að rétta þurfandi
hjálparhönd.
Eiginmaður hennar var Flosi Sig
urðsson trésmíðameistari.
Andlát
Merkir Íslendingar
Torfi Hjartarson
Tollstjóri og ríkissáttasemjari f. 21.5. 1902 – d. 8.10. 1996
Torfi Hjartarson fæddist á Hvanneyri í Borgar firði. For
eldrar hans voru
Hjörtur Snorrason
alþm., skólastjóri á
Hvanneyri og bóndi
á Skeljabrekku og í
Arnarholti, og k.h.,
Ragnheiður hús
freyja, dóttir Torfa,
skólastjóra í Ólafs
dal Bjarnasonar, þess
fræga búskaparfrömuðar
og framfarasinna.
Bróðir Torfa Hjartarson
ar var Snorri, eitt listfengnasta skáld
okkar á síðari helmingi síðustu ald
ar. Það var hann sem ráðlagði meist
ara Þórbergi að halda áfram að vinna
með Matthíasi Johannessen að sam
talsbókinni Í kompaníi við allífið,
sem síðar varð frægasta viðtalsbók
sem gefin hefur verið út á Íslandi.
Meðal barna Torfa eru Hjörtur,
fyrrv. hæstaréttardómari, og Ragn
heiður, fyrrv. rektor Menntaskólans
í Reykjavík.
Torfi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1924,
embættisprófi í lögfræði frá Háskóla
Íslands 1930 og dvaldi í London við
framhaldsnám á árunum
1930–31.
Torfi naut mikils
trausts sem vandaður
embættismaður enda
tollstjóri í Reykjavík í
tæp þrjátíu ár, sátta
semjari á sama tíma
frá 1945 og til sjötíu
og átta ára aldurs og
oddviti yfirkjörstjórn
ar við bæjarstjórnar
kosningar í Reykjavík á
árunum1949–70. Hann
kom oft til álita til ýmissa
embætta, t.d. kom hann sterk
lega til greina sem borgarstjóraefni
sjálfstæðismanna og sem ráðherra í
utanþingsstjórn. Hann varð fyrsti for
maður Sambands ungra sjálfstæðis
manna, 1930, og hélt eftirminnilega
ræðu á afmæli SUS á Þingvöllum,
1990. Þar mælti hann skörulega gegn
ESBaðild og sagði Íslendinga ekki
hafa brotist undan Dönum til að láta
þá stjórna sér aftur í gegnum Brussel.
Torfi var látlaus og hressilegur
í viðmóti, hélt góðri heilsu fram á
elliár og ók eins og herforingi sínum
hálfrar aldar gamla Willysjeppa, er
hann sjálfur var kominn á tíræðis
aldur.
Merkir Íslendingar
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík