Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 8
Frestað vegna veikinda n Þrotabú vill fá til sín heimili Stefáns og Rikku M unnlegum málflutningi í máli þrotabús Stefáns H. Hilmarssonar, fjármála­ stjóra 365 og fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, gegn félaginu Vegvísi ehf. var frestað fyrir Héraðs­ dómi Reykjavíkur á mánudag vegna veikinda lögmanns þrotabúsins. Þrotabúið krefst þess að fá til sín fasteignina Laufásveg 68, en um er að ræða heimili Stefáns og konu hans, sjónvarpskokksins Friðriku Hjördísar Geirsdóttur, eða Rikku eins og hún er jafnan kölluð. Stefán seldi Vegvísi Laufásveg 68 þann 18. september árið 2008 og var kaupverðið 150 milljónir króna. Fé­ lagið átti að taka við greiðslu áhvíl­ andi veðskulda upp á tæplega 85 milljónir króna og greiða Stefáni lokagreiðslu upp á rúmlega 65 millj­ ónir króna þann 18. september árið 2009, að því er kemur fram í stefn­ unni sem birtist í Lögbirtingablaðinu síðastliðið haust. Þann 22. mars 2011 lýsti stjórn­ armaður Vegvísis því hins vegar yfir að lokagreiðslan hefði verið innt af hendi með gerð lánssamnings 2. febrúar árið 2009. Samningurinn lýtur að því að Vegvísir greiði Stefáni 60 milljónir króna í einni greiðslu eft­ ir 25 ár og er því um svokallað kúlu­ lán að ræða. Í stefnunni er fullyrt að láns­ samningurinn sé til málamynda á milli nátengdra aðila, en Stefán var framkvæmdastjóri Vegvísis og móðir hans var, á þeim tíma sem kaupsamningurinn var gerður, bæði stjórnarmaður félagsins og eigandi þess, og er enn. Þrotabúið fer fram á að kaup­ samningnum verði rift, sem og láns­ samningnum fyrir eftirstöðum kaup­ verðsins. „Markmið dómsmálsins er að endurheimta fasteignina þannig að hún standi til fullnustu fyrir kröfu­ hafa þrotabúsins,“ segir í stefnunni. solrun@dv.is A ldraðir sem búa í þjón­ ustuíbúðum á vegum Reykjavíkurborgar borga 260 krónum meira fyrir há­ degismat, en starfsmenn Reykjavíkurborgar. Starfsmenn Reykjavíkurborgar sem borða í mötuneyti Ráðhússins borga 400 krónur fyrir máltíðina, en innifalið í henni er súpa, heit máltíð og kaffi. Hins vegar þarf heimilisfólk sem býr í þjónustuíbúðum aldraðra að borga 660 krónur fyrir hverja máltíð ef hún er keypt í lausasölu, en ef einstak­ lingur er í föstu fæði eða borgar með matarmiðum kostar máltíðin 610 krónur. Vilji fólk fá mjólkurglas með máltíðinni kostar það 150 krónur aukalega fyrir hvert glas. Þess má geta að einn lítri af léttmjólk kostar 109 krónur samkvæmt upplýsingum frá Bónus. Kaffibolli og te kostar 150 krónur fyrir gamla fólkið, en er eins og áður segir frítt ef þú vinnur hjá borginni. „Ótrúlegt okur“ Aðstandandi aldraðrar konu sem flutti nýlega inn í þjónustuíbúð á vegum Reykjavíkurborgar segir að gömlu konunni hafa blöskrað þeg­ ar hún var rukkuð um 150 krón­ ur þegar hún bað um mjólkurglas með hádegismatnum. „Hún er ný­ lega flutt þangað og er í hádegis­ mat á hverjum degi. Hún borgar eitthvað á milli sex og sjö hundruð krónur fyrir máltíðina og getur sjálf­ sagt fengið vatn með máltíðinni, en gamalt fólk er nú margt vant því að drekka mjólk með matnum.“ Aðstandandinn segir konuna hugsa um hverja krónu og finn­ ist miður að þurfa að borga þessa upphæð fyrir mjólkina. „Það er lítil búð þarna og hún getur keypt heil­ an lítra fyrir 130 krónur sem henni finnst líka dýrt því hún veit alveg hvað mjólkin kostar í Bónus. En það er vissulega þægilegt að hafa aðgang að lítilli búð þarna og geta keypt sér mjólk og allt í lagi kannski að borga 130 krónur fyrir mjólkina þar, en 150 krónur fyrir mjólkurglas er náttúrulega alveg ótrúlegt okur.“ Spurning hvað sé dýrt Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýsinga­ fulltrúi Velferðarsviðs hjá Reykja­ víkurborg, segir að rukkað sé eftir gjaldskrá eftir settum reglum. „Það er farið eftir reglum og gjaldskrám sem settar eru. Hjá flestum mötu­ neytum er svo boðið upp á vatn með mat og kaffibolla. Ef annað er valið greiðir maður sérstaklega fyrir það.“ Samkvæmt upplýsingum frá félagsbústöðum kostar um 60 þús­ und krónur að leigja 35 fermetra einstaklingsþjónustuíbúð hjá Reykjavíkurborg, en það er þó eitt­ hvað misjafnt eftir þjónustukjörn­ um. Tveggja herbergja íbúð kostar um 90 þúsund. Ofan á það bætast þjónustugjald, hússjóður, rafmagn og hiti. Sem dæmi má taka er þjón­ ustugjaldið á Dalbraut 19.800 fyrir einstaklingsíbúð en inni í því gjaldi felst sólarhringsvakt starfsmanns, stjórnunar­ og skrifstofuhald, ræst­ ingar á sameign og aðstaða í setu­ stofu. Á Dalbraut er einnig lækna­ samningur inni í þjónustugjaldinu og það því aðeins hærra en í öðrum þjónustukjörnum. Grunnlífeyrir aldraðra er um 150 þúsund krón­ ur og munar því um hvert mjólkur­ glas. Mjólkurglas kostar aldraða 150 krónur n Okrað á öldruðum n Borga meira fyrir matinn en borgarstarfsmenn„Hún borgar eitt- hvað á milli sex og sjö hundruð krónur fyrir máltíðina og getur sjálf- sagt fengið vatn með mál- tíðinni, en gamalt fólk er nú margt vant því að drekka mjólk með matnum. Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Dýr sopinn Það getur verið dýrt fyrir aldraða sem búa í þjón- ustuíbúðum ef þeir vilja helst drekka mjólk með matnum. Riftun Þrotabúið fer fram á að kaupsamningnum sem og lánasamningnum verði rift. Ósáttur sjóðsfélagi: „Harmið þið heimsku ykkar í fjárfestingum“ „Þar harmið þið heimsku ykkar í fjárfestingum og lofið bót og betr­ un,“ skrifar Ísfirðingurinn Henry Bæringsson í svarbréfi til stjórnar Lífeyrissjóðs Vestfirðinga sem hafði sent sjóðsfélögum bréf þar sem stjórnin sagðist harma að hafa tap­ að 10,4 milljörðum króna.  Í svarbréfi Henrys til stjórnar­ innar bendir hann á að þessi upp­ hæð dygði nærri því fyrir jarðgöng­ um frá Dýrafirði yfir í Arnarfjörð sem og uppbyggðum vegi um Dynjandisheiði. Svarbréfið birtist á ísfirska vef­ fréttamiðlinum Skutli en þar segir Henry meðal annars: „Teljið þið að það sé nóg að senda okkur bréf og lofa bót og betrun? Á ykkar vakt tapaðist það fé sem verkafólk trúði ykkur fyrir, og þó arfa heimskulegt kerfi leyfi atvinnurekendum að koma að ráðstöfun eigna lífeyris­ sjóðsins, er þyngra en tárum taki að sjá þar efstan á blaði stjórnarfor­ mann í fyrirtæki sem fengið hefur milljarða afskriftir. Sú ráðstöfun að inni í stjórnum sjóðanna skuli vera fulltrúar atvinnurekenda heyrir vonandi brátt sögunni til. Því þetta hrun lífeyrissjóðakerfisins hefur sýnt okkur að í gegnum stjórnirnar hafa atvinnurekendur gengið frek­ lega á okkar eign, sjálfum sér til ágóða. Keypt í bönkum sem svo lánuðu til fyrirtækja, sem svo fengu þessa sömu peninga afskrifaða. Hafa nýtt sér ítök sín í sjóðunum til að færa sjálfum sér peningana aftur í gegnum bankana. Eða haldið þið að það sé hafið yfir vafa að á ár­ unum fyrir hrun hafi kaup lífeyris­ sjóðs á hlutafé í banka ekki liðkað fyrir lánafyrirgreiðslu til fyrirtækis í eigu stjórnarmanns í lífeyrissjóði? Verkalýðurinn tapaði sínum lífeyri, en gróðapungarnir fengu afskrift­ ir,“ skrifar Henry sem segir sjóðinn sem betur fer ekki vera sinn aðal­ sjóð. „En ef svo væri færi ég í kross­ ferð til þess að þeir stjórnarmenn sem sátu í gömlu stjórninni víki sæti strax og við tæki stjórn undir forsæti fulltrúa verkafólks sem berðist fyrir brottrekstri fulltrúa atvinnurekenda úr stjórninni. Að hafa atvinnurekendur þarna inni er eins og að leyfa þeim að hafa pró­ kúru á launareikninginn okkar, því lífeyrissjóðurinn er okkar framtíðar launasjóður,“ skrifar Henry í bréf­ inu lesa má í heild sinni á skutull.is. Stálu fartölvu úr leikskóla Óprúttnir aðilar brutust inn í leikskólann Krógaból við Bugðusíðu á Akureyri aðfara­ nótt þriðjudags. Þar var meðal annars stolið Dell­fartölvu, hljómborði, skanna og nokkr­ um stafrænum myndavélum af gerðinni Canon. Einnig var brotist inn í húsnæði Brim­ borgar við Tryggvabraut. Þar var stolið lítilræði af pening­ um og síðan fór þjófurinn eða þjófarnir á brott á Ford Mon­ deo­fólksbifreið árgerð 2011. Bifreiðin er brún að lit með skráningarnúmerinu OO­M86. Þeir sem kunna að hafa orðið bifreiðarinnar varir og eða vita hvar hún er niðurkomin eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Akur eyri í síma 464­7705. 8 Fréttir 29. febrúar 2012 Miðvikudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.