Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 12
12 Erlent 29 febrúar 2012 Miðvikudagur Ein afsökunarbeiðni á dag n Ummæli á Facebook draga dilk á eftir sér B andarískum karlmanni, Mark Byron, hefur verið gert að biðja fyrrverandi eiginkonu sína afsökunar á ummælum sem hann viðhafði um hana á Face­ book. Það var dómstóll í Cincinatti sem ákvað þetta en refsingin er um margt sérstök. Byron þarf að skrifa sömu afsökunarbeiðnina á Facebo­ ok­síðu sína á hverjum degi í heilan mánuð, ella eiga á hættu að þurfa að sitja á bak við lás og slá í 60 daga. Ummælin sem Byron var dæmd­ ur fyrir lét hann falla á Facebook­ síðu sinni í nóvember í fyrra. „Ef þú ert illgjörn og hefnigjörn kona, sem vilt eyðileggja líf eiginmanns þíns og taka föður sonar þíns frá honum fyrir fullt og allt, þarftu bara að segjast vera hrædd við hann. Þá verður sonurinn tekinn í burtu,“ sagði Byron. Byron og eiginkona hans höfðu átt í forræðisdeilu í kjölfar erfiðs skilnaðar en þau eiga saman tæplega tveggja ára son. Byron heldur því fram að barns­ móðir hans hafi haldið syni þeirra frá honum og samkvæmt dómsúr­ skurði má hann einungis umgang­ ast son sinn á tveggja vikna fresti og þá í nokkra tíma í senn. Verjandi Byrons, Jill Meyer, gagnrýnir dóminn harðlega og seg­ ir að hann vegi mjög að tjáningar­ frelsinu. Ummæli Byrons hafi ekki falið í sér hótun og hann hafi lát­ ið ummælin falla á lokaðri Face­ book­síðu sinni. „Það að einhver geti sagt þér hvað þú átt að segja með dómsúrskurði er mjög vafa­ samt,“ segir Meyer í samtali við The Huffington Post. Samkvæmt dómn­ um voru ummæli Byrons til þess fallin að „skapa neikvætt viðhorf í garð fyrrverandi eiginkonu sinnar“. Þá hafi hann afvegaleitt vini sína á Facebook og þess vegna verði hann einnig að beina afsökunarbeiðn­ inni til þeirra. Byron þarf að koma fyrir dóm þann 19. mars næstkomandi þar sem hann þarf að sýna fram á að hann hafi beðist afsökunar eins og dómurinn kvað á um. J ason Ketley, 42 ára þroskaskert­ ur Breti, varð fyrir þeim hryll­ ingi að vera nagaður af rottu þar sem hann lá á St. Ebba’s rík­ isspítalanum í bænum Epsom í Surrey­sýslu á Bretlandi. Ketley var bitinn að minnsta kosti 12 sinnum ofarlega í bakið. „Þetta er viðbjóðs­ legt,“ segir Patricia Boardman, móð­ ir mannsins í samtali við Daily Mail, þar sem greint er frá málinu. Hékk á tönnunum Hjúkrunarfræðingar komust að þessu fyrir einskæra tilviljun ef svo má segja. Þær komu nefnilega að Ketley, riðandi af sársauka um ganga spítalans með stærðar rottu hang­ andi á bakinu. Hún beinlíns hékk á tönnunum sem hún hafði læst í bak sjúklingsins. Þeir fjarlægðu rottuna og drápu hana en í ljós kom að hún hafði bit­ ið Ketley, sem hefur þroska á við tveggja ára barn, að minnsta kosti tólf sinnum. Þegar foreldrar Ketley höfðu samband við spítalann, grun­ lausir um hvað gerst hafði, var þeim sagt frá hryllingnum. Fulltrúar spít­ alans halda því hins vegar fram að hagamús hafi verið að verki. Haga­ mýs lifa aðallega á fræjum og öðrum jurtum. „Þegar ég sá sárin varð mér ljóst að þetta væru bitför eftir rottu,“ segir Boardman, 63 ára móðir Ketley. „Það voru djúp bitför á honum, víða á bak­ inu og öxlinni. Ég trúi ekki að rottur séu hlaupandi um ganga spítala á vegum ríkisins.“ Rottan í rúminu Boardman segir að sonur sinn hafi verið á róandi lyfjum þegar atvik­ ið átti sér stað. Hann þjáist af geð­ hvarfasýki og eru gefin ýmiss konar lyf til að halda einkennunum niðri. Hann var á spítala vegna þess að hann hafði daginn áður verið í skoð­ un hjá sérfræðingum. „Hann var uppdópaður þegar þetta gerðist, svo það er ómögulegt að vita hversu lengi rottan nagaði hann. Hún hlýt­ ur að hafa verið uppi í rúminu hans, segir móðirin full viðbjóðs þegar hún rifjar atvikið upp en það átti sér stað í lok nóvember í fyrra. Ketley var í kjölfarið fluttur á annan spítala í bænum Epsom, þar sem honum voru gefnar sprautur við barnaveiki, stífkrampa og öðr­ um sýkingum. „Hann er fullkom­ lega varnar laus og starfsfólkinu bar skylda til að fylgjast með honum, enda á hann erfitt með að tjá sig. Ef hann byggi hjá mér við þær aðstæð­ ur sem hann bjó á spítalanum þá væri ég á bak við lás og slá,“ segir hún enn fremur og segist íhuga að leggja fram kæru á hendur spítalanum. Hún lagði upphaflega fram formlega kvörtun en við henni hefur ekki verið brugðist. Hefur átt erfitt með svefn Hún átelur starfsfólk spítalans og segir farir sínar ekki sléttar í sam­ skiptum við hann. Í eitt skipti hafi henni bréfleiðis verið meinaður að­ gangur að sjúkraskrám sonar síns, nema að fengnu leyfi hans. Hún treystir þeim ekki fyrir syni sínum og er nú að skoða hvort hún geti lát­ ið einhverja aðra aðila annast hann. „Ég hef átt erfitt með svefn síðan þetta gerðist. Mér þykir verst að geta ekki spurt Jason hvernig honum líði, því hann getur ekki talað,“ segir hún. Hún segir enn fremur að lyfja­ gjöfin á sjúkrahúsinu, þar sem hann dvelur oft, geri hann verri. Hann sé uppdópaður og ekki sjálfum sér líkur. „Þeir leyfa mér ekki einu sinni að fara með hann til annars læknis, jafnvel þó ég borgi sjálf. Ég vil fá annað álit.“ Jo Young, yfirmaður spítalans, segir í samtali við Daily Mail að atvik­ ið sé reiðarslag fyrir alla og að kvart­ anir fjölskyldunnar séu teknar mjög alvarlega. „Það sást mús á spítal­ anum hér í nóvember og meindýra­ eyðar voru strax ræstir út til að finna á þessu skýringar. Við getum hins vegar ekki gefið svör við öllu fyrr en niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir.“ „Hann var fullkom- lega varnarlaus og starfsfólkinu bar skylda til að fylgjast með hon- um, enda á hann erfitt með að tjá sig. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Nagaður af rottu á sjúkrabeði n Jason Ketley sem er þroskaskertur varð fyrir barðinu á rottu Bitförin Rottan hlýtur að hafa komist upp í rúm mannsins. Gat ekki kvartað Jason Ketley er með geðhvarfasýki og hefur þroska á við tveggja ára barn. Rannsaka rottuganginn Verið er að gera úttekt á því hvort meindýr hafist við á spítalanum. Umdeildur dómur Mark Byron þarf að biðjast afsökunar á Facebook-síðu sinni á hverjum degi í heilan mánuð. Pútín í góðri stöðu Allt útlit er fyrir að Vladimír Pútín sigri í fyrstu umferð forsetakosn­ inganna sem fram fara í Rússlandi um næstu helgi. Ríkisrekna rann­ sóknarfyrirtækið VTsIOM spáir Pútín 60 prósentum atkvæða en leiðtogi Kommúnistaflokksins, Gennady Zyuganov, fengið að­ eins 15 prósent ef spár ganga eftir. Milljarðamæringurinn Mikhail Prokohorov fengi liðlega 9 prósent atkvæða. Svo einkennileg er staðan að niðurstöður könnunarinnar eru aðeins birtar í löndum utan Rúss­ lands, þar sem bannað er að birta skoðanakannanir síðustu daga fyrir kosningar. Vill 75% há- tekjuskatt Frambjóðandi sósíalista og vinstri róttækra í forsetakosningunum í Frakklandi í vor, Francois Hol­ lande, vill að þeir sem hafa meira en eina milljón evra í árslaun, eða sem 168 milljónum íslenskra króna, greiði 75 prósent hátekju­ skatt. Hann hefur gert hægrimenn í landinu brjálaða. Þeir hafa bent á að ríkustu Frakkarnir myndu flýja land ef af þessu yrði. Hann segir að enginn þurfi að þéna meira en eina milljón evra. Hollande hefur látið hafa eftir sér að hann ætli að rétta úr fjárlagahalla ríkisins með stóraukinni skattheimtu á há­ tekjufólk og fjármálastofnanir. Hollande hefur unnið nokkuð á Sarkozy forseta, ef marka má síð­ ustu skoðanakannanir. Í síðustu könnun var munurinn 9 prósentu­ stig. Forsetakosningar fara fram í landinu 22. apríl en síðari umferð fer fram 6. maí. Tilnefndur til Nóbelsverðlauna Bradley Manning, sem ákærð­ ur hefur verið fyrir að leka miklu magni hernaðarupplýsinga til Wikileaks, hefur verið tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels. Listinn hefur ekki verið gerður opinber en AP­fréttastofan hefur komist yfir nokkur nöfn á listanum. Alls eru 230 tilnefndir til verðlaunanna en það hvílir á herðum fimm manna dómnefndar að velja sigurvegara. Á listanum má meðal annars finna Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Bill Gates, stofn­ anda Microsoft, og Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara Þýskalands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.