Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 MMC MONTERO LTD Árgerð 2003, ekinn 113 Þ.km, sjálf- skiptur, leður ofl. Verð 1.750.000. Raðnr. 284106 á www.bilalind.is - Jeppinn er á staðnum! BMW 325i E46 05/2004, ekinn 80 Þ.km, sjálfskiptur, leður, umboðsbíll. LÆKKAÐ VERÐ 2.190.000. Raðnr. 283617 á www. bilalind.is - Sá Þýski er á staðnum! CHRYSLER 300 C SRT-8 Árgerð 2007, ekinn 81 Þ.km, sjálf- skiptur, leður, 426 hö. Gríðarlega gott eintak! Verð 4.950.000. Raðnr.320516 á www.bilalind.is - Kagginn er í salnum! KIA PICANTO LX 11/2006, ekinn 46 Þ.km, 5 gíra. Verð 1.150.000. Raðnr. 270805 á www. hofdahollin.is - Sá sparneytni er á staðnum! NISSAN NAVARA 4WD DOUBLE CAB AT LE. 01/2008, ekinn 142 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Tilboðs- verð 2.690.000. Raðnr.118183 á www. hofdahollin.is - Pikkinn er á staðnum! BMW 645CI Árgerð 2004, ekinn aðeins 45 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 7.990.000. Raðnr. 135387 á www.hofdahollin.is - Kagginn er í salnum! TOYOTA YARIS TERRA Árgerð 2006, ekinn 116 Þ.km, 5 gíra. Verð 1.150.000. Raðnr. 270360 á www. hofdahollin.is - Bíllinn er á staðnum! SUBARU Impreza WRX STI Árgerð 2006, ekinn 119 Þ.km, 6 gíra, roofspoiler ofl. Verð 3.990.000. Raðnr. 270573 á www.hofdahollin.is - Sportarinn er í salnum! PORSCHE 911 TURBO Árgerð 2001, ekinn 80 Þ.km, sjálf- skiptur, 416 hö. nýjar álfelgur og dekk, carbon toppur og - spoiler. Eins og nýr! Verð 10.290.000. Raðnr. 280791 á www. hofdahollin.is - Sá netti er í salnum! M.BENZ C240WAGON 11/2004, ekinn 131 Þ.km, sjálf- skiptur, leður ofl. Verð 2.390.000. Raðnr.284129 á www.bilalind.is - Bíllinn er á staðnum! BMW 320D 12/2006, ekinn 72 Þ.km, dísel, 6 gíra, leður ofl. flottur bíll! LÆKKAÐ VERÐ 3.190.000. Raðnr. 321607 á www. bilalind.is - Sá Þýski er á staðnum! AUDI Q7 QUATTRO 3,0 TDI S-LINE 03/2007, ekinn 75 Þ.km, dísel, sjálf- skiptur. Mjög gott verð 7.950.000. Raðnr.320737 á www.bilalind.is - Bíllinn er á staðnum! www.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík FARÐU AFTUR Í BÍÓ Í FYRSTA SINN Tangabryggja 14-16, 110 Rvk. S. 567 4840 www.hofdahollin.is RÝMINGARSALA! Tangabryggja 14-16, 110 Rvk. S. 567 4840 www.hofdahollin.is RÝMINGARSALA! Íbúð óskast Íbúð óskast fyrir háskólanema, helst á 105 svæðinu eða nálægt. Vinsamlegast hafið samband í 6617338 eða 7760179 . Harmonikka til sölu Antik harmonikka til sölu 120 bassa ítölsk 3.kóra. Nú yfirfarin Upplýsingar í síma 5670437 eða 8671837 Tek að mér Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847- 8704 eða á manninn@hotmail.com É g veit að margir Íslend- ingar eru afar hrifnir af H&M þannig mér fannst sniðugt að byrja að senda föt frá H&M,“ segir Nína Björk Gunnarsdóttir, ljósmyndari og fyrirsæta, um nýju vefsíðuna sína, Nína sendir föt. Síðuna er að finna á Facebook en í gegnum hana geta Íslendingar versl- að föt frá H&M. Nína fer svo og kaupir fötin og sendir þau til Íslands. „Ég set myndir á síðuna þar sem fólk sér hvað er í boði og getur pantað í gegnum mig og borgar fyrir sendingu og þjónustu- gjald eitt fast verð, en ef fólk pantar heilan gám sjáum við til með það,“ segir Nína hlæjandi. Nína hefur verið búsett í Lúxemborg í þrjú ár ásamt manni sínum og tveimur börnum. Þar hefur hún sinnt ljósmyndaverkefnum ásamt því að vera í fjarnámi. Nína hefur sjálf gaman af því að versla og veit hversu vel Ís- lendingar kunna að meta H&M-fatabúðina. „ Flottir hönnuðir eru að hanna sína línu fyrir búðina og það hefur komið rosalega vel út. Næsti hönnuður er Marni og það er sko vel hægt að velja sér margt úr línunni.“ Til að byrja með verður Nína með kvenföt úr H&M á boðstólum en hyggst bæta við úrvalið ef vel gengur. „Eins ætla ég að taka við sérpöntunum og svo ætla ég að senda barnaföt, þau eru æðisleg í H&M,“ segir hún bjartsýn á framhaldið en hún hefur fengið góðar viðtök- ur við síðunni. „Ég var bara að byrja þannig að það er kannski ekkert að marka en ég hef góða trú á þessu.“ viktoria@dv.is Fólk 23Miðvikudagur 29. febrúar 2012 „Hef góða trú á þessu“ n Nína Björk sendir Íslendingum föt úr H&M Nágrannarnir með heyrnarhlífar n Gaman að búa til óhljóð n Einmanalegt að semja einn É g hef alltaf verið í hljómsveitum svo fyrir mig er það skemmti- leg tilbreyting að vera svona einn heima inni í stofu en ég trúi að það geti verið einmanalegt til lengd- ar,“ segir tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson sem hefur unnið að eigin efni þessa dagana. Krummi hefur þegar gefið út lagið Broken Clock á Gogoyogo og segir fleiri lög væntanleg auk þess sem sólóplata gæti komið út á næsta ári. „Ég hef verið að gera sóló- tónlist frá því að ég byrjaði að semja tónlist sem var þegar ég var mjög ungur. Ég hef svo verið extra-duglegur við það síðustu tvö árin,“ segir Krummi sem lýsir nýja efn- inu sem angurværu gotnesku poppi. „Eða „experimen- tal“ poppi. Ég veit það ekki. Ég hef mjög gaman af því að búa til óhljóð og „noise“- tónlist heima hjá mér,“ segir Krummi sem vonast til þess að hann sé ekki að æra ná- grannana. „Hingað til hafa þeir gefið mér séns og svo eru líka til heyrnarhlífar á þess- um góðu tímum okkar.“ Í mars kemur út plata með Legend og í sumar mun ný plata með Mínus líta dagsins ljós. Það er því nóg að gera hjá Krumma. Hann viðurkennir að það sé meira sköpunarfrelsi fólgið í því að semja einn. „En það er líka einmanalegt. Sem er stundum gott en stundum ekkert sérstaklega skemmti- leg,“ segir hann og játar því að öll þessi tónlist sé afar fjöl- breytt. „Ég hef gaman af allri tónlist, sama hvort það er rokk, raftónlist eða eitthvað annað. Fyrir mér er tónlist góð eða léleg. Þannig flokka ég hana. Ég hef alltaf verið mjög áhrifagjarn listamaður og hef gaman af því að dýfa mínum tám ofan í mismun- andi drullupolla. Það er um að gera að hafa smá fjöl- breytileika í þessu til að lífga upp á tilveruna.“ Aðspurður segist hann vel geta hugsað sér að feta í fót- spor Svölu systur sinnar og hljómsveitarinnar Steed Lord sem er að gera það gott í Los Angeles. „Þeim gengur alveg rosalega vel þarna úti og eru iðin við að fylgja sveitinni eftir enda orðin vinsæl í Kali- forníu og þar um kring. Ég væri alveg til í að búa þarna í smá tíma og vera í kring- um fjölskyldu og vini sem þar eru. Það er aldrei að vita nema maður freisti gæfunnar erlendis en núna er ég helvíti fastur hér með mín verkefni og þarf að standa undir þeirri ábyrgð.“ Um það hvort Steed Lord nái að „meika það“ segist hann hafa 110% trú á Svölu og félögum. „Það sem skiptir mestu máli er að meika það hjá sjálfum sér og ég held að þau séu alveg að því. Hitt ger- ist svo bara af sjálfu sér.“ indiana@dv.is Krummi Krummi telur að það geti verið einmanalegt til lengdar að vinna einn heima í stofu. Býr til óhljóð Krummi segist hafa gaman af að búa til óhljóð. Fötin heim Nína gleður eflaust H&M-aðdáendur á Íslandi en þeir geta nú pantað frá búðinni og Nína sendir fötin til Íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.