Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 10
10 Fréttir 29. febrúar 2012 Miðvikudagur
E
ignarhaldsfélag í eigu Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar fékk
greiddar tæpar 33 milljónir
króna frá Landsbanka Ís-
lands í júní 2003. Greiðslan
var vegna sölu Guðlaugs Þórs á um-
boði fyrir tryggingamiðlun sviss-
neska tryggingafélagsins Swiss Life
sem hann seldi til Landsbankans
á þessum tíma. Peningarnir voru
lagðir inn á reikning eignarhalds-
félagsins Bogmannsins ehf., sem
Guðlaugur Þór átti ásamt eiginkonu
sinni, Ágústu Johnson. Þetta kemur
fram á reikningsyfirliti frá Lands-
bankanum sem DV hefur undir
höndum. Guðlaugur staðfestir, í
samtali við DV, að viðskiptin hafi átt
sér stað.
Millifærslan frá Landsbankanum
til eignarhaldsfélags Guðlaugs Þórs
var framkvæmd þann 13. júní 2003.
Bogmaðurinn var stofnaður þann
11. júní 2003, samkvæmt samþykkt-
um félagsins frá þeim degi, og virð-
ist því hafa verið komið á laggirnar
gagngert til að taka við greiðslunni
frá Landsbankanum. Tilgangur
félagsins er sagður vera auglýsinga-
miðlun.
Er sjálfur með Swiss Life
Mánuði áður, í kosningunum til Al-
þingis í maí 2003, komst Guðlaug-
ur Þór inn á þing fyrir hönd Sjálf-
stæðisflokksins. Áður en Guðlaugur
Þór fór inn á þing hafði hann verið
starfsmaður Búnaðarbankans þar
sem hann starfaði í tryggingadeild-
inni. Guðlaugur Þór var auk þess
einnig borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins á árunum 1998 til 2006.
Hann hætti í Búnaðarbankanum
um það leyti sem bankinn samein-
aðist Kaupþingi og fór skömmu síð-
ar inn á Alþingi Íslendinga þar sem
hann hefur setið síðan.
Guðlaugur Þór segir að viðskipt-
in með íslenska umboðið fyrir Swiss
Life tengist starfslokum hans í Bún-
aðarbankanum. Hann segist hafa
varið í það miklum tíma, einu til
tveimur árum, að tryggja Búnað-
arbankanum umboðið fyrir Swiss
Life hér á landi í gegnum skrif-
stofur félagsins í Liverpool á Eng-
landi. Búnaðarbankinn keypti svo
þetta umboð fyrir tilstilli Guðlaugs
Þórs. „Við erum með fyrstu Swiss
Life-trygginguna sjálf, ég og Ágústa.
Þessar tryggingar voru miklu hag-
stæðari og veittu miklu meiri trygg-
ingavernd,“ segir Guðlaugur Þór
sem varð í kjölfarið tengiliður Bún-
aðarbankans við Swiss Life. „Ég
stýrði þessu og seldi þessar vörur.“
Keypt með láni frá bankanum
Þegar Guðlaugur Þór hætti í Bún-
aðarbankanum við sameininguna
við Kaupþing varð niðurstaðan sú
að hinn sameinaði banki vildi ekki
halda umboðinu fyrir Swiss Life.
„Niðurstaðan varð sú að ég keypti
Swiss Life því ég hafði unnið mjög
hart að því að ná þessum samning-
um og vildi að þetta héldi áfram hér
á landi.“
Guðlaugur Þór segist aðspurður
hafa keypt Swiss Life-umboðið með
skammtímaláni frá Búnaðarbank-
anum. „Ég man það ekki alveg en
ég held að ég hafi fengið skamm-
tímalán, væntanlega frá Búnaðar-
bankanum. Það leið mjög skammur
tími frá því ég keypti umboðið þar til
ég seldi það þannig að vaxtagjöldin
hafa ekki verið mjög mikil.“
Hann segist hafa selt umboðið
til Landsbankans á nokkurn veg-
inn kostnaðarverði. „Þetta er vænt-
anlega einn versti díll sem nokkur
maður hefur gert,“ segir Guðlaugur
og bætir því við að söluverðið hafi
rétt dugað til að greiða lánið til baka
til Búnaðarbankans og fyrir útlögð-
um kostnaði. Guðlaugur Þór segist
því ekki hafa grætt mikið persónu-
lega á viðskiptunum. Aðspurður
hvort hann hafi grætt milljónir á
viðskiptunum segir hann að svo hafi
ekki verið.
Ekkert um greiðsluna í árs-
reikningnum
Í ársreikningi Bogmannsins fyrir árið
2003 kemur ekkert fram um þessa
greiðslu frá Landsbankanum. Eigið
fé félagsins nam einungis rúmlega
2 milljónum króna og var hagnaður
þess rúmlega 1.200 þúsund. Engar
upphæðir eins og umræddar tæpu
33 milljónir virðast hafa runnið í
gegnum Bogmanninum. Samt sýnir
greiðslukvittunin fram á það að fé-
lagið tók við umræddri greiðslu frá
Landsbankanum. Sömu sögu er að
segja um ársreikning félagsins árið á
eftir: Ekkert í bókhaldi félagsins sýnir
þetta tæplega 33 milljóna króna inn-
legg á reikning félagsins.
Guðlaugur Þór segist ekki geta út-
skýrt af hverju söluverð umboðsins
komi ekki fram í sjóðstreymisyfirlit-
inu í ársreikningi Bogmannsins. „Ég
bara hef ekki hugmynd um það. Var
þetta ekki 2003. Er ársreikningurinn
ekki undirritaður af endurskoðanda?
Ég man ekki nákvæmlega allt sem ég
gerði árið 2003. Ég kann ekki að segja
frá þessu. En við vorum í góðri trú í
þessum viðskiptum.“
Kominn á þing og vildi út
Guðlaugur segir að hann hafi ein-
faldlega viljað hætta öllum viðskipt-
um áður en hann færi á þing: „Í ör-
stuttu máli er þetta svona: Þetta var
mál sem ég var búinn að vinna að
ógeðslega lengi og loksins kominn
með í land. Ég grátbað Kaupþing um
að taka þessa vöru, þar sem Kaup-
þing faktískt tók yfir Búnaðarbank-
ann. Þeir skildu mín rök en vildu ekki
halda þessu umboði. Ég tók því bara
umboðið yfir. Aftur á móti hafði ég
enga möguleika á því að fara að reka
þetta, ég var kominn inn á þing og
vildi bara koma mér út úr þessu og
sel þetta nokkurn veginn á kostnað-
arverði inn í Landsbankann. Ég bara
tók þetta yfir og hafði ekki tíma eða
tækifæri til að leika einhvern póker-
leik með fjárfestingu upp á 30 millj-
ónir og var því ekkert að bjóða þetta
út eða bíða. Ég vildi bara vera „on
the safe side“ og bara lokaði þessu
dæmi,“ segir Guðlaugur Þór.
Aðspurður af hverju hann seldi
umboðið til Landsbankans segir
Guðlaugur Þór enga sérstaka ástæðu
hafa verið fyrir því: „Ég vildi bara
hreinsa borðið mitt. [...] Landsbank-
inn var algjörlega „sure thing“. Þeir
bara borguðu og ekkert vesen.“
Fyrrverandi samstarfsmenn
Guðlaugs
Þegar millifærslan til eignarhalds-
félagsins átti sér stað var Sigurjón
Árnason, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Búnaðarbankans,
nýorðinn bankastjóri Landsbankans.
Á þriðja tug starfsmanna Búnaðar-
bankans hætti í bankanum í apríl
2003 vegna fyrirhugaðrar samein-
ingar bankans og Kaupþings. Bæði
Landsbankinn og Búnaðarbankinn
höfðu verið einkavæddir í lok árs
2002 eða byrjun árs 2003 og var sam-
eining Búnaðarbankans og Kaup-
þings kynnt í apríl þetta ár. Meðal
annarra starfsmanna Búnaðarbank-
ans sem hættu um þetta leyti og
fóru yfir til Landsbankans voru Ingvi
Örn Kristinsson, Elín Sigfúsdóttir og
Steinþór Gunnarsson. Segja má að
eiginlega allt yfirmannateymi Lands-
bankans við hrun hafi komið úr Bún-
aðarbankanum á þessum tíma. Guð-
laugur þekkti því ágætlega til þeirra
starfsmanna Búnaðarbankans sem
nú voru komnir til Landsbankans.
Miðað við svör Guðlaugs Þórs
skiptu tengsl hans við þáverandi
starfsmenn Landsbankans þó ekki
máli í þessu tilfelli. „Þetta er ekkert
leyndarmál,“ segir Guðlaugur Þór um
viðskiptin með tryggingaumboðið.
Styrkjamálið
Tengsl Guðlaugs Þórs við Lands-
bankann voru opinberuð eft-
ir hrunið 2009 þegar í ljós kom að
þingmaðurinn hafði haft milli-
göngu um það í lok árs 2006 að
bankinn veitti flokknum 25 millj-
óna króna fjárstyrk. Guðlaugur
Þór hafði einnig milligöngu um 30
milljóna króna styrk frá FL Group.
Mikið var rætt um styrkjamálið á
vormánuðum 2009 og sendu Stein-
þór Gunnarsson og Þorsteinn Jóns-
son, kenndur við Vífilfell, þá frá sér
yfirlýsingu þar sem þeir sögðust
hafa aflað styrkjanna eftir að Guð-
laugur Þór hafði haft samband við
þá. Orðrétt sagði í yfirlýsingunni:
„Við undirritaðir áttum þátt í því að
safna fé fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
desember 2006. Aðkoma okkar að
söfnuninni hófst þegar Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, alþingismaður,
hafði samband við okkur og upp-
lýsti að fjárhagsstaða flokksins væri
mjög bágborin. Hann hvatti okkur
til að leggja flokknum lið og safna
fjármunum fyrir hann, en hafði
ekki frekari afskipti af málinu eftir
það.“
Guðlaugur Þór og Steinþór
þekktust meðal annars í gegnum
starf sitt á vegum Sambands ungra
sjálfstæðismanna en Guðlaugur var
formaður sambandsins á árunum
1993 til 1997 og Steinþór ritari. Þá
hefur Guðlaugur Þór einnig verið í
góðu sambandi við Sigurjón Árna-
son, líkt og hann ræddi í viðtali við
Morgunblaðið í apríl 2009. Guð-
laugur neitaði því reyndar, þrátt
fyrir að Morgunblaðið fullyrti það,
að hann hefði rætt beint við Sigur-
jón um styrkina – Steinþór hefði
séð um það. „Þetta er bara ekki rétt.
Það sem er rétt í þessu er að Sigur-
jón, sem ég er búinn að þekkja frá
Háskólanum og við tölum reglu-
lega saman, hringdi í mig upp á
spítala til að kanna hvernig ég hefði
það. En þá fór ég líka yfir það með
honum, af því að það var annar að-
ili, eins og komið hefur fram, bú-
inn að hafa samband við hann út af
styrk, að það væri eitthvað sem ég
ræddi ekki og kæmi ekkert að.“
Þessi tengsl Guðlaugs Þór við
starfsmenn bankans virðast því
hvorki hafa skipt máli við sölu hans
á tryggingaumboðinu til bankans
árið 2003 né í styrkjamálinu árið
2006, ef marka má orð hans sjálfs.
fékk 33 milljónir
frá bankanum
Seldi tryggingaumboð til Landsbankans
Guðlaugur Þór Þórðarson seldi Landsbankanum
umboð fyrir svissneskt tryggingafélag í júní 2003.
Kaup Guðlaugs á umboðinu voru fjármögnuð með
láni frá Búnaðarbankanum, þar sem hann starfaði
áður en hann var kjörinn á þing í júní 2003.
n Keypti tryggingamiðlun af Búnaðarbankanum með láni n Seldi umboðið til Landsbankans
„Þetta er
væntanlega
einn versti díll
sem nokkur
maður hefur gert
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is