Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 29. febrúar 2012 Miðvikudagur Íhugaði eftirlaunin í janúar n Forsetinn segist hafa kannað eftirlaun sín Ó lafur Ragnar Grímsson forseti hefur íhugað stöðu sína vand­ lega á síðustu mánuðum og komist að þeirri niðurstöðu að ef hann gefi kost á sér til áframhald­ andi setu í embætti sé hann í raun og veru að bjóða fram krafta sína í sjálf­ boðavinnu. Þetta var meðal annars það sem kom fram í máli hans á blaða­ mannafundi sem haldinn var á Bessa­ stöðum á mánudag. Sagðist forsetinn ekki hafa af því neinn fjárhagslegan ávinning að bjóða sig aftur fram. Í desember á síðasta ári sagði Örn­ ólfur Thorsson, ritari Ólafs Ragnars, að forsetinn hefði ekki kannað eftir­ launaréttindi sín. Þetta var svar við fyrirspurn DV um eftirlaunaréttindin í tengslum við ítarlega umfjöllun á eftir­ launaréttindum ráðamanna. Þar kom meðal annars fram að Ólafur Ragnar komi í raun til með að njóta tvöfaldra eftirlauna þar sem hann eigi rétt á háum eftirlaunum fyrir störf sín sem forseti og sem ráðherra og þingmaður. Forsetinn hélt því líka fram á fund­ inum að hann hefði tekið af allan vafa um það í nýársávarpi sínu að hann ætl­ aði að hverfa úr embætti. Hann gaf þó til kynna að vegna gífurlegs þrýstings hafi hann ákveðið að taka þá ákvörð­ un sína til endurskoðunar. Fyrir blaða­ mannafundinn tók Ólafur við um það bil 31 þúsund undirskriftum frá stuðn­ ingsmönnum sem skora á hann að gefa aftur kost á sér. Ólafur þakkaði þeim fyrir en bætti við að hann væri ekki tilbúinn að gefa þeim svar. Í samtali við DV sagði Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og einn þeirra sem stóðu að undirskrifta­ söfnuninni, að hann hefði ekki búist við öðrum viðbrögðum en að hann vonaðist til að Ólafi myndi snúast hug­ ur. Guðni sagðist þá vera sérstaklega ánægður með hversu vel undirskrifta­ söfnunin gekk. adalsteinn@dv.is Aðkomumaður játar rán: Hafði hálfa milljón upp úr krafsinu Tæplega tvítugur piltur játaði við yfirheyrslur hjá lögreglunni á Akureyri að hafa framið rán í Fjölumboðinu að Geislagötu á Akureyri þann 23. febrúar síðast­ liðinn. Pilturinn ógnaði starfs­ manni með úðabrúsa og tók pen­ inga úr afgreiðslukassa. Pilturinn var handtekinn 25. febrúar eftir að hafa verið stöðv­ aður við akstur á óskráðri bifreið. Daginn eftir, 26. febrúar, var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins sem átti að renna út í dag, miðvikudag. Í tilkynn­ ingu frá lögreglu kemur fram að honum hafi verið sleppt úr haldi á þriðjudagskvöld og telst málið upplýst. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að pilturinn hafi haft um fimm til sex hundruð þúsund krónur upp úr krafsinu. Ránsfengnum hafði hann meðal annars eytt í fíkniefni, lyf og skuldir. Pilturinn kom frá Reykjavík þann 22. febrúar síð­ astliðinn á stolnum bíl ásamt rúmlega tvítugum kunningja sínum en bílnum höfðu þeir stolið í Reykjavík og einnig bens­ íni á hann. Bílinn urðu þeir þó að skilja eftir í Skagafirði eftir að hafa fest hann og brotist þar inn í sumarbústað. Þangað voru þeir svo sóttir frá Akureyri. Eftir að annar hafði framið ránið á Akur­ eyri tók hinn póstbíl traustataki þann 24. febrúar síðastliðinn sem skilinn hafði verið eftir í gangi við hús á Akureyri. Hann braust inn í aðra bifreið og stal úr henni nokkrum smáhlutum og síðan inn í einbýlishús austan Akur­ eyrar og stal þaðan talsverðum verðmætum.  Hann var síðan handtekinn sama dag á Svalbarðsströnd eftir eftirför lögreglu og játaði brot sín og þýfið komst til skila. Báðir þessir piltar hafa komið við sögu lögreglu áður. Auk þess að vera báðir án ökuréttinda eru þeir báðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Svaraði engu Ólafur Ragnar hélt blaða- mannafund án þess að gefa nokkuð svar um hvort hann ætlaði að bjóða sig fram eða ekki. Þ að er alveg ljóst að þetta hef­ ur hvílt mikið á henni,“ segir einn af heimildarmönnum DV aðspurður um aðkomu Telmu Halldórsdóttur, lög­ manns á Fulltingi, að al­Thani mál­ inu svokallaða. Ákært var í málinu í síðustu viku og voru fjórir fyrrver­ andi stjórnendur Kaupþings ákærð­ ir fyrir umboðssvik, markaðsmis­ notkun og önnur brot. Einn hinna ákærðu í málinu er Ólafur Ólafsson en einn af samstarfsmönnum Telmu á lögmannsstofunni, Kristinn Hall­ grímsson, hefur unnið náið með fjár­ festinum um margra ára skeið. Í ákæru sérstaks saksóknara í al­ Thani málinu kemur fram að svo mikil leynd hafi verið yfir aðkomu Ólafs Ólafssonar að því að Telma hafi ekki vitað um aðild hans fyrr en eftir að viðskiptin voru um garð gengin. Í stuttu máli snýst al­Thani málið um sýndarviðskipti í hlutabréfakaupum katarska sjeiksins al­Thanis á 5 pró­ senta hlut í Kaupþingi fyrir 26 millj­ arða króna í lok september 2008. Talið er að viðskiptin hafi verið sett á svið til að efla tiltrú umheimsins á Kaupþingi í aðdraganda íslenska efnahagshrunsins. Í ákærunni segir um þessa leyndu aðkomu Ólafs: „Í fjórða lagi hvíldi mikil leynd yfir aðild ákærða Ólafs að viðskiptunum. Mjög fáir starfsmenn Kaupþings vissu af þætti hans í viðskiptunum. Þá er það til marks um leyndina að að­ komu Ólafs að kaupunum var haldið leyndum fyrir fyrirsvarsmanni Q Ice­ land Finance, Telmu Halldórsdóttur,“ segir í ákærunni en Telma var stjórn­ armaður í Q Iceland Finance, félagi sjeiksins sem keypti bréfin. Telma mun hafa haldið, samkvæmt þessu, að viðskiptin með Kaupþingsbréfin hefðu farið fram á venjulegum, við­ skiptalegum forsendum. Bara beðin Telma hefur því verið hreinsuð af meintri saknæmri háttsemi í að­ komu sinni að al­Thani viðskiptun­ um. Hún var hins vegar yfirheyrð við rannsókn málsins á sínum tíma og var með réttarstöðu grunaðs manns. Líkt og kemur fram hér að framan fólust veruleg óþægindi í því fyrir Telmu að vera yfirheyrð í málinu og hafa réttarstöðu grunaðs manns. Í viðtali við DV í september 2009 útskýrði Telma aðkomu sína að við­ skiptunum með þeim hætti að hún hefði verið beðin um að sitja í stjórn Q Iceland Finance. „Ég var bara beðin um þetta sem lögmaður. Fyrir bankahrun var mjög algengt að lögmenn væru beðnir um að sitja í stjórnum fyrir hönd kúnna. Þegar búið var að ákveða viðskiptin vantaði Íslending til að sitja í stjórn Q Iceland Finance og þá var ég beðin um þetta.“ Aðspurð hver það var sem bað hana um að sitja í stjórn Q Ice­ land Finance sagðist Telma ekki vilja greina frá því. „Veistu, ég vil ekki tjá mig um það því það skiptir ekki máli.“ Ólíklegt er þó annað en að Krist­ inn Hallgrímsson hafi verið sá sem bað Telmu um viðvikið en hann var stofnandi Q Iceland Finance. DV hef­ ur þó ekki heimildir fyrir því að Krist­ inn hafi verið yfirheyrður hjá sérstök­ um saksóknara vegna málsins. Hitti aldrei sjeikinn Telma sagði DV jafnframt frá því að hennar eina aðkoma að félaginu hafi verið að tilkynna um viðskiptin til Kauphallar Íslands og annarra eftir­ litsaðila en að hún hefði hins vegar aldrei hitt sjeikinn al­Thani. „Ég hef aldrei hitt sjeikinn. Þetta kenndi mér það að þetta fer ekki vel saman: að vera lögmaður og sitja í stjórnum fé­ laga og fyrirtækja. Þetta bara gerðu lögmenn á sínum tíma og þetta er eitthvað sem maður bara lærir af.“ Einn af heimildarmönnum DV segir um aðkomu Telmu að viðskipt­ unum að aðild hennar að þeim megi flokka sem gáleysi þó ljóst sé að hún hafi ekki framið lögbrot. „Það er auð­ vitað klárlega gáleysi að taka þátt í einhverju sem maður veit ekki hvað er en hún gerði ekkert kríminelt,“ segir hann. Eftir stendur hins vegar að Telma tengdist umræddu saka­ máli um nokkurra ára skeið án þess að hafa vitað nákvæmlega hvernig lá í viðskiptunum sem hún léði nafn sitt en hún var þó hreinsuð af grun í mál­ inu á endanum. Telma blekkT og Tengd sakamáli n Kristinn talinn hafa beðið Telmu um viðvikið n Hreinsuð af grun „Það er auðvitað klárlega gáleysi að taka þátt í einhverju sem maður veit ekki hvað er en hún gerði ekkert kríminelt. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Forvitnileg hliðarsaga Ein af hliðarsögunum í al-Thani málinu er aðkoma samstarfsmanns Kristins Hallgrímssonar, lögmanns Ólafs Ólafssonar, að málinu. Telma Halldórsdóttir hefur hins vegar hlotið uppreist æru eftir útgáfu sérstaks saksóknara þar sem fyrir liggur að hún sjálf var blekkt þegar hún var beðin um að taka þátt í viðskiptunum.Blekkt Telma vissi ekki að Ólafur Ólafsson tengdist al-Thani viðskiptunum. Ektafiskur hefur ætíð og eingöngu notað vottað matvælasalt frá Salt- kaupum í allar sínar vörur! Ekta fiskur ehf - Hauganesi v/Eyjafjörð - Sími: 466 1016 - www.ektafiskur.is virðing gæði Þessigamligóði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.