Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 19
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði 19Miðvikudagur 29. febrúar 2012
fimmtudag 1. mars
30 ára
Miroslaw Tomasz Kondraciuk Fannarfelli
4, Reykjavík
Magdalena Rogowska Melum, Djúpavogi
Jolanta Mikulska Vesturbergi 10, Reykjavík
David Ramon Rodriguez Framnesv. 61, RVK
Andrea Davíðsdóttir Hvassafelli 1, Borgarn.
Ómar Björn Skarphéðinsson Skriðugili 1, Ak.
Ragnheiður Sigurðardóttir Bjargartanga
11, Mosfellsbæ
Nanna Bryngeirsdóttir Njálsgötu 69, RVK
Bjarni Þór Logason Gnoðarvogi 74, Reykjavík
Örvar Þorri Rafnsson Stigahlíð 80, Reykjavík
Ingibjörg J. Vilhjálmsdóttir Bárugr. 9, RVK
Gréta Íris Karlsdóttir Njörvasundi 17, RVK
Kristín Jónsdóttir Granaskjóli 17, Reykjavík
Símon Rósinkrans Pizarro Miklubraut 70,
Reykjavík
40 ára
Maria Johanna van Dijk Skólavegi 55,
Fáskrúðsfirði
Reynir Þorvaldsson Holtsgötu 22, Reykjavík
Magnús Þórðarson Rauðási 16, Reykjavík
Friðrik Bergmann Kristjánsson Hverfis-
götu 10, Hafnarfirði
Gestur Andrés Grjetarsson Kvíaholti 22,
Borgarnesi
Magnús Albert Jensson Langagerði 88,
Reykjavík
Hannes Sigurður Sigurðsson Frostaþingi
11, Kópavogi
Áslaug Jóna Skúladóttir Laufengi 3,
Reykjavík
Linda Björk Sigurðardóttir Stapasíðu 13b,
Akureyri
50 ára
Örvar Ármannsson Suðursölum 12, Kópavogi
Helga Guðrún Eiríksdóttir Baugstjörn 28,
Selfossi
Ásgerður Sverrisdóttir Viðarrima 35,
Reykjavík
Kristinn Arnarson Fremristekk 13, Reykjavík
Elfa Stefánsdóttir Hvammabraut 16,
Hafnarfirði
Albert Jakobsson Lynghaga 26, Reykjavík
Örn Leifsson Eiríksgötu 27, Reykjavík
60 ára
Garry Lou Goehring Grensásvegi 56,
Reykjavík
Guðrún Sigurðardóttir Viðarrima 47,
Reykjavík
Sigurborg Sigurbjarnadóttir Breiðuvík 18,
Reykjavík
Elín H. Sæmundsdóttir Ytra-Skörðugili 2,
Varmahlíð
Finnur Þór Dýrfjörð Fagrahjalla 7, Vopnafirði
Theódór K. Þórðarson Skúlagötu 9a,
Borgarnesi
Bergljót Hallgrímsdóttir Haga 1, Húsavík
70 ára
Sólon Rúnar Sigurðsson Kórsölum 5,
Kópavogi
Sigrún Ágústsdóttir Gljúfraseli 12, Reykjavík
Eyjólfur Magnússon Scheving Arahólum
4, Reykjavík
Guðrún Sveinbjörnsdóttir Mýri, Fosshólli
Samúel Gústafsson Vallarási 3, Reykjavík
Vilhjálmur Björnsson Hafnarbraut 12, Dalvík
Ingigerður R. Eymundsdóttir Birkihlíð 6,
Vestmannaeyjum
Alda B. Bjarnadóttir Fljótaseli 12, Reykjavík
75 ára
Einar Jónsson Blöndubakka 20, Reykjavík
Ævar Þorsteinsson Enni, Blönduósi
Hanna Gyða Kristjánsdóttir Lindargötu
64, Reykjavík
Sigurbjörg Guðmundsdóttir Hverafold
32, Reykjavík
Steina Hlín Aðalsteinsdóttir Heiðmörk 19,
Hveragerði
Garðar Sigurðsson Vesturgötu 8, Reykja-
nesbæ
Erling Tom Pálsson Skriðugili 3, Akureyri
80 ára
Grétar Jónsson Sólvallagötu 40, Reykjavík
Guðmundur Hjörleifsson Álftarima 5,
Selfossi
Stefanía Brynjólfsdóttir Barðastöðum 11,
Reykjavík
Ásmundur Geirsson Miðholti 1, Hafnarfirði
Kristín Hólmgrímsdóttir Einilundi 10c,
Akureyri
Kolbrún Ármannsdóttir Funalind 7,
Kópavogi
Ástríður Oddný Sigurðardóttir Engihjalla
11, Kópavogi
Jón Sigurðsson Hánefsstöðum, Seyðisfirði
Gísli Eyjólfsson Kristnibraut 2, Reykjavík
Þórarinn Björnsson Miðholti 10, Þórshöfn
85 ára
Sigríður Magnúsdóttir Móabarði 12,
Hafnarfirði
90 ára
Ingibjörg Júlíusdóttir Kirkjusandi 3,
Reykjavík
J
æja Sævar. Nú ertu að
verða þrítugur. Hvernig
leggst það í þig?
„Bara vel. Ég held það
verði bara gaman.“
En sá sem verður þrítugur
kemst þar með á fertugsaldur-
inn. Er það ekki svolítið skerí?
„Það er nú kannski óþarfi
að orða spurninguna á svona
óhuggulegan hátt. En ég ætla
samt að svara neitandi. Ég er
nefnilega búinn að vera að
venja mig við þessa tilhugsun
síðastliðin þrjú til fjögur ár og
ég held að það hafi tekist: Stíft
prógramm, sjáðu til. Þetta er
nefnilega eins og í boltanum.
Þetta snýst allt um aga, rétt
hugarfar og réttan undirbún-
ing. Ég tel mig þess vegna vera
reiðubúinn að stíga þetta stóra
skref inn í fertugsaldurinn.“
Ertu svolítill afmæliskarl í
þér. Heldurðu yfirleitt upp á
daginn?
„Nei, ég get nú ekki sagt
það. Ég hef ekki haldið upp á
afmælið mitt frá því ég varð tví-
tugur. Svo það er nú eiginlega
kominn tími til að gera eitt-
hvað skemmtilegt núna.“
Já ókei. Hvað á gera?
„Ég ætla að fresta þessu um
einn dag þannig að föstudag-
inn 2. mars verður bara ein
allsherjarveisla.“
Það er ekkert annað. Hvar
verður hún haldin, heima?
„Nei, nei. Það er klár salur,
sá besti í bænum.“
Hvar er hann?
„Það er auðvitað Leiknis-
salurinn í Breiðholtinu. Þar
verður boðið upp á guðaveigar
og pinnamat.“
Já, þú er auðvitað Leiknis-
maður. Lékstu ekki með meist-
araflokki í knattspyrnu?
„Jú. Ég byrjaði ungur að æfa
og keppa og keppti með meist-
araflokki í áratug en hætti fyrir
þremur árum. Hins vegar er ég
að þjálfa töluvert hjá Leikni og
er í námi í íþróttafræði við Há-
skólann í Reykjavík.“
En þið eruð alltaf í fyrstu
deildinni, er það ekki?
„Jú, en við munum komast
upp í úrvalsdeildina í sumar.
Sannaðu til.“
Jahá. En þetta verður alla
vega fótboltaveisla hjá þér á
föstudaginn. Heldurðu að þú
náir þá þrennu?
„Ef ég þekki mína menn rétt
þá skora alla vega einhverjir
Leiknismenn þrennu í tilefni
dagsins.“
Á
sgeir fæddist á Beru-
firði og ólst upp í Fagra-
hvammi. Hann gekk í
barnaskóla sem þá var
farskóli en að Fagra-
hvammi dvaldi hann til tvítugs
við búskap og sjósókn. Ásgeir
bjó í Höfnum á Reykjanesi og
í Keflavík á árunum 1952–57.
Þar stundaði hann bifreiða-
akstur og trésmíðar. Hann var
búsettur á Djúpavogi frá 1958
en hefur verið búsettur í Hafn-
arfirði frá 2003.
Ásgeir sá um áætlunar-
ferðir á milli Hornafjarðar og
Djúpavogs á árunum 1970–80.
Hann hefur fengist við marg-
vísleg störf, var verkstjóri hjá
Búlandshreppi um langt ára-
bil, sá um lagningu vatns-
veitu fyrir byggðarlagið á ár-
unum 1963–64 og hefur unnið
mikið að samgöngumálum á
Austurlandi. Hann vann lengi
á sinni eigin jarðýtu, er mikill
áhugamaður um veg yfir Öxi
og sá um viðhald á þeim vegi
frá unga aldri en faðir hans
var einn af þeim sem fyrst-
ir ruddu leiðina, svo segja má
að Ásgeir hafi fengið Öxi í arf
eftir hann. Ásgeir starfaði hjá
síldarbræðslunni á Djúpavogi
til 2003. Þá hóf hann störf hjá
Arnarfelli við Kárahnjúka-
virkjun og starfaði þar í nokkra
mánuði. Hann starfaði síðan á
jarðýtu í Kópavogi í eitt og hálft
ár, og vann síðan við það að
rífa Faxaskála á Austurbakka
gömlu hafnarinnar í Reykjavík,
þar sem nú er komið tónlistar-
húsið Harpa. Hann hefur síð-
an unnið við sumarbústaða-
smíðar.
Ásgeir sat í hreppsnefnd
Búlandshrepps 1970–82. Hann
er einn stofnfélaga í Lions-
klúbbi Djúpavogs.
Fjölskylda
Kona Ásgeirs er Halldóra Krist-
ín Jónsdóttir, f. 6.6. 1941, hús-
móðir og fyrrv. fiskvinnslu-
kona. Foreldrar hennar: Jón
Sigurðsson, látinn, skrifstofu-
maður og ökukennari, og Jón-
ína Jónsdóttir, látin, húsmóð-
ir og verkakona. Þau bjuggu í
Rjóðri á Djúpavogi.
Börn Ásgeirs og Halldóru
Kristínar eru Jónína Dag-
mar, f. 11.10. 1958, leikskóla-
kennari og háskólanemi, bú-
sett í Hafnarfirði en maður
hennar er Sigmar Sigurðsson
verslunarmaður og eru börn
hennar Helga, Guðjón, Ómar
og Alba Rós; Hjörtur, f. 25.2.
1960, kaupmaður í Hafnar-
firði en kona hans er Bríet Pét-
ursdóttir kaupmaður og eru
börn þeirra Arna Rut, Hjálm-
ar Vatnar, Dagný Rut og Brynja
Rut; Harpa, f. 10.9. 1963, leik-
skólakennari, búsett í Reykja-
vík en maður hennar er Jónas
Guðmundsson sölumaður og
eru börn þeirra Daníel Páll,
Ásgeir og Heiðrún Dóra; Ás-
geir Ævar, f. 2.6. 1973, tónlist-
armaður og starfsmaður við
tölvufyrirtæki, búsettur í Hafn-
arfirði; Hallur Kristján, f. 23.12.
1979, knattspyrnuþjálfari hjá
HK en sambýliskona hans er
Tinna Guðmundsdóttir, starfs-
maður við leikskóla og er son-
ur þeirra Adam Breki auk þess
sem börn Halls frá því áður eru
Aron Bjarki og Saga.
Systkini Ásgeirs: Borghild-
ur, f.19.1. 1922, d. 20.6. 1993,
var búsett í Gautavík á Beru-
fjarðarströnd; Snjófríður, f.
19.5. 1923, d. 11.2. 1982, lengst
af búsett á Djúpavogi; Guð-
mundur, f. 16.12. 1925 og d.
21.3. 1972, lengst af bóndi og
smiður að Unná á Berufjarð-
arströnd; Hrefna, f. 8.1. 1928,
húsmóðir, nú búsett á Akur-
eyri; Magnús, f. 30.1. 1930,
húsasmiður, búsettur á Egils-
stöðum; Rannveig, f. 27.11.
1933, d. 15.5. 2010, sjúkraliði á
Selfossi.
Foreldrar Ásgeirs: Hjálmar
Guðmundsson, f. 14.6. 1897, d.
1.5. 1971, bóndi, og k.h., Jón-
ína Þorbjörg Magnúsdóttir, f.
16.12. 1898, d. 5.12. 1985, hús-
móðir. Þau hjónin bjuggu sína
hjúskapartíð í Fagrahvammi á
Berufjarðarströnd.
H
jörtur fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp í Vesturbænum
og Laugarneshverf-
inu. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1972, lögfræðiprófi frá
Háskóla Íslands 1977 og stund-
aði framhaldsnám við Kings
College í London 1983–84.
Hjörtur var lögregluþjónn
í Kópavogi 1974, á Seltjarnar-
nesi 1975–76, var fulltrúi hjá
yfirsakadómaranum í Reykjavík
frá 1977 og aðalfulltrúi þar frá
1989 eftir að hafa verið settur
aðalfulltrúi nokkrum sinnum
frá 1985, settur sakadómari hjá
Sakadómi Reykjavíkur nokkr-
um sinnum 1985–88, settur
bæjarfógeti á Siglufirði nokkr-
um sinnum á árunum 1986–88,
skipaður sakadómari í Reykja-
vík 1989, skipaður héraðsdóm-
ari við Héraðsdóm Reykjavíkur
1992. Hjörtur varð héraðsdóm-
ari við Héraðsdóm Suðurlands
1.1. 2004 og dómstjóri þar frá
1.1. 2006. Hjörtur situr í Dóm-
stólaráði og var kjörinn formað-
ur Dómarafélags Íslands 25.11.
2011.
Fjölskylda
Sambýliskona Hjartar frá 1995
er Hildur Jónsdóttir, f. 2.12.
1955, sérfræðingur stjórnar-
ráðsins í jafnréttismálum. Hún
er dóttir Jóns heitins Sigurðs-
sonar hljóðfæraleikara og Jó-
hönnu G. Erlingsson þýðanda.
Fyrri kona Hjartar var Hafdís
Sigurbjörnsdóttir, f. 24.7. 1953.
Dætur Hjartar og Hafdísar
eru Guðrún Svava Hjartardótt-
ir, f. 22.11. 1972, kennari, mað-
ur hennar er Haukur Ófeigsson
og eiga þau þrjú börn; Hjördís
Anna Hjartardóttir, f. 2.11. 1978,
býr í Belfast.
Sonur Hjartar og Hildar er
Jörundur Snær Hjartarson, f.
5.2. 1998.
Börn Hildar eru Ragna
Bjarnadóttir, f. 4.4. 1975, aðstoð-
armaður dómara við Mannrétt-
indadómstólinn í Strassborg
og á hún tvö börn; Erlingur Atli
Pálmarsson, f. 8.6. 1989, nemi í
Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi.
Systkini Hjartar eru Eygló
Aðalsteinsdóttir, f. 28.10. 1953,
sjúkraliði í Reykjavík; Guðrún
Aðalsteinsdóttir, f. 31.7. 1955,
matsveinn í Reykjavík; Erling
Ólafur Aðalsteinsson, f. 7.5.
1960, kennari og ljósmyndari í
Reykjavík; Gylfi Dalmann Að-
alsteinsson, f. 6.5. 1964, stjórn-
málafræðingur og lektor við
Háskóla Íslands, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Aðalsteins eru
Aðalsteinn Dalmann Októsson,
f. 26.2. 1930, fyrrv. verkstjóri,
og Gyða Erlingsdóttir, f. 25.11.
1929, d. 16.11. 2005, fyrrv. póst-
maður.
Ætt
Aðalsteinn er sonur Októs Guð-
mundar, verkamanns á Akra-
nesi Guðmundssonar, Krist-
jánssonar. Móðir Októs var
Guðríður Jósafatsdóttir.
Móðir Aðalsteins var Ást-
rós Þorsteinsdóttir, b. á Brekku
í Norðurárdal Benediktssonar,
og Sigríðar Helgadóttur.
Gyða er dóttir Erlings söngv-
ara, bróður Sigurðar Ólafsson-
ar, söngvara og hestamanns,
föður Þuríðar söngkonu. Annar
bróðir Erlings var Jónatan, tón-
skáld og píanóleikari, afi Jón-
atans Garðarssonar, dagskrár-
gerðarmanns og rithöfundar,
einkum um tónlist. Meðal hálf-
systkina Erlings voru Sigmund-
ur Halldórsson arkitekt og
Guðmundur Halldórsson, for-
stjóri byggingarfélagsins Brúar.
Erling var sonur Ólafs, verka-
manns í Reykjavík Jónatansson-
ar, b. á Kolbeinsstöðum, bróður
Páls, langafa Megasar. Annar
bróðir Jónatans var Jón, langafi
Jóns, föður Bjarna Braga, fyrrv.
aðstoðarbankastjóra Seðla-
bankans sem er faðir Jóns Braga
heitins, prófessors; Einvarðs,
föður Hallvarðs, fyrrv. ríkis-
saksóknara og Jóhanns, fyrrv.
alþm., og Jónatans hæstaréttar-
dómara, föður Halldórs, fyrrv.
forstjóra Landsvirkjunar. Systir
Jónatans var Oddný, langamma
Ingvars, föður Júlíusar Vífils,
borgarráðsmanns og óperu-
söngvara. Jónatan var son-
ur Jóns, dýrðarsöngs í Hauka-
tungu í Kolbeinsstaðahreppi
Pálssonar, og Ingibjargar Böðv-
arsdóttur. Móðir Ólafs var Þóra
Salómonsdóttir. Móðir Erlings
var Þuríður, systir Halldórs, föð-
ur Þórðar frá Dagverðará. Ann-
ar bróðir Þuríðar var Vigfús,
faðir Erlings söngvara. Systir
Þuríðar var Stefanía, móðir Jó-
hanns Sæmundssonar, trygg-
ingayfirlæknis og ráðherra, en
bróðir Jóhanns var Guðmund-
ur, faðir Hjalta dómkirkjuprests,
og systir Jóhanns er Oddfríður
skáldkona, móðir Guðmundar
heitins Ingólfssonar píanóleik-
ara. Önnur systir Jóhanns var
Aðalheiður, móðir Baldurs Sím-
onarsonar prófessors. Þuríður
var dóttir Jóns, hreppstjóra að
Álftavatni Jónssonar, b. á Þor-
geirsfelli Þorsteinssonar, ætt-
föður Þorsteinsættar Jónssonar.
Móðir Þuríðar var Jóhanna Vig-
fúsdóttir.
Móðir Gyðu var Hulda,
systir Svavars Gests, tónlist-
armanns og dagskrárgerðar-
manns. Annar bróðir Huldu var
Hörður, faðir Vilborgar fram-
kvæmdastjóra, móður Marð-
ar Árnasonar alþm. Hulda var
dóttir Gests, b. á Staðarbakka
og síðar verslunarmanns í
Reykjavík Guðmundssonar, b.
á Bóndhóli Jónssonar. Móðir
Huldu var Helga Loftsdóttir, b.
á Gríshóli Halldórssonar. Móð-
ir Helgu var Katrín Gísladóttir,
oddvita á Saurum í Helgafells-
sveit Sigurðssonar. Móðir Gísla
var Elín, systir Guðmundar,
langafa Gunnars Guðbjarts-
sonar, fyrrv. formanns Stétt-
arsambands bænda. Annar
bróðir Elínar var Jóhannes,
langafi Guðmundar J., for-
manns Dagsbrúnar. Þriðji
bróðirinn var Halldór, langafi
Ingólfs, heitins Margeirsson-
ar rithöfundar. Elín var dóttir
Þórðar, ættföður Hjarðarfells-
ættarinnar Jónssonar.
Hjörtur Ottó Aðalsteinsson
Dómstjóri við Héraðsdóm Suðurlands og formaður Dómarafélags Íslands
Fótboltaveisla á föstudag
Síungur Sævar Ólafsson þrítugur
Ásgeir Hjálmarsson
Fyrrv. verktaki og bifreiðastjóri
60 ára sl. mánudag
80 ára sl. þriðjudag
Afmælisbörn
Til hamingju!
Afmælisbarn dagsins