Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Blaðsíða 15
Erlent 15Mánudagur 26. mars 2012
Þ
ó Google Maps gefi þér
möguleika á að skoða
býsna nákvæmar gervi-
hnattamyndir af nánast öll-
um borgum heimsins eru
nokkrir staðir sem ekki er hægt að
skoða myndir af. Þannig er ekki hægt
að sjá myndir frá Norður-Kóreu. Þá
eru myndir af konungshöllinni í
Hollandi og orkuveri sem stend-
ur skammt frá heimavistinni við
Cornell-háskóla í New York móðu-
kenndar. Ástæðurnar fyrir þessu eru
margþættar að sögn forsvarsmanna
Google, en sumir staðir eru ekki
sýnilegir af öryggisástæðum.
Þurfa að fara að lögum
Deanna Yick, talsmaður hjá Google,
segir í samtali við vefritið mashable.
com að gervinhnattamyndir sem
Google Maps notast við séu stund-
um fengnar frá opinberum stofnun-
um víðs vegar um heiminn. Þessar
stofnanir þurfi að framfylgja lögum
sem eru í gildi í hverju landi fyrir sig
og stundum séu gerðar kröfur um að
myndir séu gerðar ógreinilegar. Þeg-
ar Google Maps fór fyrst í loftið voru
myndir af Hvíta húsinu í Washing-
ton gerðar óskýrar. Sú er ekki raunin
lengur og getur hver sem er skoðað
myndir af húsi forsetans og lóð hans.
„Við reynum að útvega fólki eins góð-
ar upplýsingar og mögulegt er. Kerfið
okkar er í sífelldri þróun,“ segir Yick.
Hér eru birtar myndir af tíu
stöðum sem búið er að gera óskýr-
ar.
„Við reynum að
útvega fólki eins
góðar upplýsingar og
mögulegt er.
n 10 staðir sem ekki eru sýnilegir á Google Maps
mátt ekki sjá
staðir sem þú
Konungshöllin í Hollandi
Koninklijk Paleis-höllin í Amsterdam í
Hollandi er meðal þeirra bygginga sem
ekki má sýna með skýrum hætti á Google
Maps. Raunar eru fleiri byggingar sem
tilheyra hollensku konungsfjölskyldunni
á sama lista, þar á meðal Royal Stables-
byggingin í borginni Haag.
Flugvöllur í Japan
Á þessari mynd, sem tekin er á eyjunni
Minami Torishima sem tilheyrir Japan,
sést flugvöllur ef vel er gáð. Japanski her-
inn notar flugvöllinn og líklega er myndin
óskýr af þeim sökum.
Flugvöllurinn í Buffalo
Eins og sést á meðfylgjandi mynd Google
Maps af Buffalo Niagara-alþjóðaflug-
vellinum í Bandaríkjunum er búið að gera
hann óskýran. Myndin er óvenjuhvít og
verður óskýrari eftir því sem þysjað er inn.
Bygging í Utah
Á þessari mynd er búið að gera óskýra
mynd af Michael Aaf-byggingunni í
Utah. Bandaríski herinn hefur aðsetur
á svæðinu en talið er að þar fari meðal
annars fram þróunarvinna á kjarnorku-
vopnum. Myndin er því móðukennd af
augljósri ástæðu.
Þjóðgarður í Chile
Aðeins er hægt að sjá Tantauco-þjóð-
garðinn í Chíle úr mjög mikilli fjarlægð.
Ef þysjað er inn verður myndin óskýr.
Líklega er um öryggisráðstöfun að ræða
en svæðið er heimkynni fjölmargra dýra í
útrýmingarhættu.
Orkuver í New York-ríki
Hér sést mynd af orkuveri sem staðsett er
skammt frá Cornell-háskóla í Íþöku í New
York-ríki. Orkuverið var tekið í notkun
árið 2010 en það framleiðir rafmagn með
jarðgasi. Líklega er um öryggisráðstöfun
að ræða enda orkuverið gríðarlega stórt
og umfangsmikið.
Stífla í Suður-Karólínu
Við Keowee-stöðuvatnið í Suður-Karólínu
er stór stífla sem er óskýr á Google Maps.
Stíflan var byggð til að útvega orkuveri
Duke Energy-fyrirtækisins næga orku.
Þarna er um öryggisráðstöfun að ræða
enda myndi stórhætta skapast ef stíflan
yrði skotmark hryðjuverkamanna.
Vissingen í Hollandi
Eins og áður segir eru eignir hollensku
konungsfjölskyldunnar gerðar óskýrar á
Google Maps. Það á við um fleiri mannvirki
þar í landi. Í Vissingen hefur hollenski
herinn meðal annars aðsetur og þar standa
einnig gríðarstórir olíutankar. Hvað leynist
nákvæmlega vinstra megin á myndinni skal
ósagt látið enda ómögulegt að sjá það.
Dularfullt svæði í Síberíu
Ekki liggur fyrir hvers vegna þetta svæði í
Rússlandi hefur verið gert óskýrt, ekki síst
þar sem myndin er tekin yfir óbyggðum
Síberíu. Svæðið er skammt frá borginni
Egvekinot við Beringshaf.
Babylon í Írak
Undir svörtu blettunum á myndinni
stendur Babylon. Um er að ræða forna
borg sem var svo endurreist en notendur
Google Maps geta hins vegar ekki notið
dýrðarinnar.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Jörðin Með aðstoð Google Maps er hægt
að skoða nánast allt sem fyrir augu ber. Þó
eru nokkrir háleynilegir staðir sem ekki er
hægt að skoða. Mynd ReuteRs